Morgunblaðið - 30.09.2019, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 30.09.2019, Blaðsíða 22
22 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 30. SEPTEMBER 2019 60 ára Aðaheiður er Akureyringur og hefur ávallt búið á Akureyri. Hún er viðskiptafræð- ingur að mennt frá Há- skólanum á Akureyri og er verkefnastjóri launa og kjaramála hjá HA. Maki: Sigurgeir Sigurðsson, f. 1956, húsasmiður hjá Hyrnu ehf. Börn: Halldóra Friðný Sigurgeirsdóttir, f. 1980, og Heimir Sigurgeirsson, f. 1989. Barnabörnin eru Aðalheiður Karen og Jó- hanna Kristín, dætur Halldóru, og Viktor Freyr Heimisson. Foreldrar: Magnús Lórenzson, f. 1934, vélstjóri, og Elínbjörg Eyjólfsdóttir, f. 1936, húsmóðir. Þau eru búsett á Akur- eyri. Aðalheiður Magnúsdóttir Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Þú ættir að slást í hópinn með kunningjunum því öll sameiginleg upplyft- ing er góð skemmtan og styrkir vinaböndin. 20. apríl - 20. maí  Naut Þér kann að finnast samstarfsmenn þínir einum of gagnrýnir á þín störf. Láttu fara eins lítið fyrir þér og þú getur þar til stormurinn er genginn yfir. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Þér finnast alls kyns áhrif steðja að þér svo þú átt erfitt með að vinna úr þeim. Gættu að fjárhagsstöðu þinni og reyndu að hafa hana í lagi. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Hættu að láta þér leiðast allir skap- aðir hlutir. Hlustaðu á það ef viðbrögð þín við fréttum vinar eru tilfinningaleg. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Þér finnst þú hafa gert skýra grein fyr- ir þinni afstöðu og skilur ekki viðbrögð sumra. Þetta er tímabundið, það léttir bráðum til. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Þú ert engu bættari, þótt þú hafir síðasta orðið í deilum við kunningja þína. Þú átt á hættu að leiðindi skapist vegna umtals um fyrirætlan þína. 23. sept. - 22. okt.  Vog Þótt þú hafir margt á þinni könnu máttu ekki hunsa vin sem væntir þess að heyra frá þér. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Góðir eru gamlir siðir en stundum er þó nauðsynlegt að breyta til. Leggðu þig fram um að sinna smáatrið- unum um leið og þú reynir að afkasta sem mestu. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Þú gætir lent í deilum við for- eldra þína eða yfirmenn í dag. Ef þér finnst einhver hegða sér undarlega er líklegra en ekki að eitthvað sé á seyði. 22. des. - 19. janúar Steingeit Fólk leggur meira á sig fyrir við- urkenningu en efnislega umbun. Vertu tilbúinn að aðstoða vin þurfi hann á stuðn- ingi þínum að halda. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Þú munt ekki sjá eftir því að leggja mikið á þig í dag. Tilfinningar þínar eru sterkari en vanalega, ekki síst gagnvart þínum nánustu. 19. feb. - 20. mars Fiskar Þótt þú hafir ýmislegt fyrir stafni er eins og þér finnist eitthvert tómahljóð í til- verunni. Gerðu hreint og komdu hlutum í röð og reglu. Sigurður stundaði mikið íþróttir á yngri árum og varð Íslandsmeistari með Val í fótbolta í 2., 3. og 4. flokki. Hann var einnig í körfubolta og handbolta á Akureyri og var knatt- spyrnudómari. Sigurður var valinn Fjárfestir ársins af Vísbendingu árið 1993. Helstu áhugamál Sigurðar eru skógrækt, brids, stangveiði, göngu- ferðir og útivist. „Ég spila ennþá brids með félögum úr MA frá 1957 og fór að veiða á hverju ári í Selá í Vopnafirði og veiddi mikið í vötn- unum þar upp frá, auk þess sem ég veiddi í mörgum öðrum ám.“ Sigurður og eiginkona hans, Svala, byggðu hús í Heiðarlundi í Garðabæ og bjuggu þar 1972-2006 og stunduðu mikið garðrækt. Þau keyptu 30 hekt- ara lands í landi Skammbeinsstaða í Holtum, byggðu þar bústað og rækt- uðu þar skóg frá 1994. Fjölskylda Eiginkona Sigurðar var Amalía Svala Jónsdóttir, f. 1.8. 1943, d. 17.9. 2012, en þau gengu í hjónaband 6.7. 1968. Svala var hjúkrunarkona og deildarstjóri á skurðstofudeild Land- unnar Esju, Fellalax hf., Steins hf., Plastprents hf., Jökuls hf., Reyk- vískrar endurtryggingar hf., Sam- bands íslenskra brunatrygginga, Stjórn P.Samúelsson, Toyota og Al- menna líftryggingafélagsins hf. Hann er í stjórn Félags skógareig- enda á Suðurlandi og stjórn Skóg- ræktarfélags Garðabæjar. S igurður Karl Sigurkarls- son er fæddur 30. sept- ember 1939 í Reykjavík. Hann ólst upp á Bar- ónsstíg 24 í Reykjavík og var í sveit á sumrin í Hvítárhlíð í Bitrufirði, Gaulverjabæ og Litlu- Sandvík í Flóa. „Þegar ég var í sveit í Hvítárhlíð var ekki búið að leggja veg til Hólmavíkur. Ég tók rútuna upp að Ásgarði í Dölum og svo var farið á hestbaki í gegnum Saurbæ, í Gils- fjarðarbotn og þaðan yfir á Strandir. Sú ferð tók tvo daga.“ Sigurður gekk í Austurbæjarskóla, var við nám í húsasmíði 1956 og gekk í Menntaskólinn á Akureyri 1957- 1960. Hann tók skógræktar- námskeiðið Grænni skógar við Há- skólann á Hvanneyri 2013. Sigurður vann í brúarvinnu á Aust- urlandi og Norð-Austurlandi á sumr- in á unglingsárum. Hann vann í Landsbanka Íslands 1960-62 og hjá Almennum tryggingum hf. frá 1962. Hann varð aðalgjaldkeri þar 1965, fjármálastjóri 1970, framkvæmda- stjóri 1982 og forstöðumaður fjár- málasviðs Sjóvár-Almennra hf. 1989- 2004 en þá fór hann á eftirlaun. „Starfið gekk sinn vanagang, en það var þó fjölbreytt, það er óhætt að segja það. Hvað varðar breytingar á þessum tíma þá var lánastarfsemi töluverður þáttur í starfi trygginga- félaga. Ég vann mikið í kringum út- veginn, en við lánuðum töluvert til út- gerða. Það gekk upp og niður hjá þeim og þær fóru meira og minna á hausinn á tímabili en það gjörbreytt- ist eftir að kvótakerfinu var komið á. Svo má nefna að Sjóvá-Almennar voru fyrsta tryggingafélagið til að bjóða upp á bílalán, sem varð stór hluti af fjármálastarfseminni, auk þess sem félagið var það fyrsta til að bjóða upp á að iðgjöldum væri dreift á kreditkort.“ Sigurður sat í skólanefnd Grunn- skóla Garðabæjar, í stjórn íþrótta- bandalags drengja, Knattspyrnu- dómarafélags Reykjavíkur, íþróttafélagsins Stjörnunnar í Garða- bæ, Taflfélags Garðabæjar og var fyrsti formaður þess; hann sat í stjórn Stangaveiðifélags Ármanna, Loftpressunnar sf., Glerverksmiðj- spítala á Hringbraut. Foreldrar hennar voru hjónin Jón Pálsson sundkennari, f. 6.6. 1904, d. 21.2. 1983, og Þórunn Sigurðardóttir, f. 9.9. 1899, 9.5. 1991, húsfreyja í Reykjavík. Börn Sigurðar og Svölu eru 1) Sindri Karl Sigurðsson, f. 20.3. 1970, verkefna- og þróunarstjóri hjá Síldarvinnslunni í Neskaupstað. Kvæntur Elínu Hjaltalín Jóhannes- dóttur, hjúkrunarfræðingi og hjúkr- unarforstjóra á hjúkrunarheimilinu Uppsölum á Fáskrúðsfirði. Þau eru búsett í Neskaupstað. Börn þeirra eru Sigurpáll, f. 1996, Elísa Björg, f. 2001, og Jón Theódór, f. 2003; 2) Þór- unn Sigurðardóttir, frjálsíþrótta- þjálfari og píanókennari, búsett í Hafnarfirði. Unnusti hennar er Jó- hann Kristinn Rafnsson rannsóknar- tæknir. Barn hennar og Jóhanns Helgasonar, fv. maka, er Svala. f. 1995; 3) Anna Sigríður Sigurð- ardóttir, spænskukennari og kennslustjóri í Lýðskólanum á Flat- eyri, búsett þar. Börn hennar eru Alma Sóley, f. 2005, en faðir hennar er Eric Wolf; Sigurður Stefán, f. Sigurður Karl Sigurkarlsson, fv. forstöðumaður hjá Sjóvá-Almennum – 80 ára Fjölskyldan Sigurður og Svala ásamt börnum, tengdabörnum og barnabörnum á jólunum 2011. Vann við tryggingar í rúm 40 ár Úr Heiðarlundi Svala og Sigurður. 40 ára Erla er Reyk- víkingur, nánar tiltekið Árbæingur, og hefur búið í Árbænum frá eins árs aldri. Hún er með BA-gráðu í fé- lagsráðgjöf frá HÍ og grunn- og framhalds- skólakennararéttindi. Hún er grunnskóla- kennari í Rimaskóla. Maki: Friðrik Grétarsson, f. 1972, kvik- myndagerðarmaður og vinnur hjá Tales from Iceland og sér um það safn. Börn: María Rut Arnarsdóttir, f. 2001, og Aþena Rut Friðriksdóttir, f. 2012. Bróðir: Arnar Ragnarsson, f. 1988. Foreldrar: Ragnar Gunnarsson, f. 1956, blikksmiður, og Ásgerður Karlsdóttir, f. 1958, ræstitæknir í Rimaskóla. Þau eru búsett í Árbænum. Erla Ragnarsdóttir Til hamingju með daginn B Æ J A R L I N D 1 4 - 1 6 2 0 1 K Ó P AV O G U R S Í M I 5 5 3 7 1 0 0 L I N A N . I S O P I Ð M Á N T I L F Ö S T U D A G A 1 1 - 1 8 I L A U G A R D A G A 1 1 - 1 6 Börn og brúðhjón Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum. Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.