Morgunblaðið - 30.09.2019, Síða 24

Morgunblaðið - 30.09.2019, Síða 24
24 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 30. SEPTEMBER 2019 Pepsi Max-deild karla FH – Grindavík......................................... 3:0 Stjarnan – ÍBV ......................................... 3:2 Breiðablik – KR........................................ 1:2 Valur – HK................................................ 2:0 KA – Fylkir ............................................... 4:2 ÍA – Víkingur R ........................................ 1:5 Lokastaðan: KR 22 16 4 2 44:23 52 Breiðablik 22 11 5 6 45:31 38 FH 22 11 4 7 40:36 37 Stjarnan 22 9 8 5 40:34 35 KA 22 9 4 9 34:34 31 Valur 22 8 5 9 38:34 29 Víkingur R. 22 7 7 8 37:35 28 Fylkir 22 8 4 10 38:44 28 HK 22 7 6 9 29:29 27 ÍA 22 7 6 9 27:32 27 Grindavík 22 3 11 8 17:28 20 ÍBV 22 2 4 16 23:52 10 Markahæstir: Gary Martin, ÍBV/Val ............................... 14 Steven Lennon, FH................................... 13 Thomas Mikkelsen, Breiðabliki ............... 13 Elfar Árni Aðalsteinsson, KA .................. 13 Hilmar Árni Halldórsson, Stjörnunni ..... 13 Rússland Rostov – Dinamo Moskva ....................... 3:0  Ragnar Sigurðsson lék allan tímann með Rostov en Björn Bergmann Sigurðarson var ekki í hópnum. Ural – CSKA Moskva .............................. 0:3  Hörður Björgvin Magnússon lék allan tímann með CSKA og skoraði eitt mark og Arnór Sigurðsson lék fyrstu 60 mínúturnar og skoraði eitt mark. Rubin Kazan – Ufa .................................. 0:0  Viðar Örn Kjartansson lék síðasta hálf- tímann fyrir Rubin Kazan. Krasnodar – Arsenal Tula...................... 2:0  Jón Guðni Fjóluson lék allan tímann með Krasnodar. Þýskaland Augsburg – Leverkusen ......................... 0:3  Alfreð Finnbogason lék fyrstu 68 mín- úturnar með Augsburg. Wolfsburg – Jena..................................... 8:1  Sara Björk Gunnarsdóttir fór af velli á 76. mínútu í liði Wolfsburg. B-deild: St. Pauli – Sandhausen ........................... 2:0  Rúrik Gíslason lék ekki með Sandhausen vegna veikinda. Bochum – Darmstadt .............................. 2:2  Guðlaugur Victor Pálsson lék allan tím- ann með Darmstadt. KNATTSPYRNA HANDKNATTLEIKUR Úrvalsdeild karla, Olísdeildin: KA-heimilið: KA – ÍR................................ 19 Origo-höllin: Valur – ÍBV .................... 19.15 Enski boltinn á Síminn Sport Manchester United – Arsenal .................. 19 Í KVÖLD! FÓTBOLTI Guðmundur Hilmarsson gummih@mbl.is FH-ingar tryggðu sér þriðja sætið og þar með síðasta Evrópusætið sem var í boði þegar þeir lögðu Grindvíkinga 3:0 í lokaumferð Pepsi Max- deildarinnar í knattspyrnu í Kapla- krika á laugardaginn. Í fyrra höfnuðu FH-ingar í fimmta sæti í deildinni og voru ekki með í Evrópukeppninni í ár í fyrsta sinn í 15 ár en Hafnarfjarðar- liðið þurfti sigur gegn föllnum Grind- víkingum til að tryggja sér Evrópu- farseðilinn og það tókst. Steven Lennon skoraði tvö af mörkum FH og Daninn Morten Beck Guldsmed setti eitt. Lennon skoraði 13 mörk í deild- inni og fékk silfurskóinn en Guldsmed skoraði átta mörk í þeim átta leikjum sem hann spilaði með FH eftir að hann kom til liðsins um mitt tímabil. Gary Martin marka- kóngur í annað sinn Baráttan um markakóngstitilinn var gríðarlega spennandi en það fór svo að lokum að enski framherjinn Gary Martin varð markakóngur deildarinnar og það í annað skipti. Hann tryggði sér gullskóinn með því að skora bæði mörk Eyjamanna í 3:2 tapi gegn Stjörnumönnum. Martin skoraði mörkin í aðeins fimmtán leikj- um. Tvö þeirra komu í þremur leikj- um með Val í upphafi tímabils og tólf þeirra í tólf leikjum með ÍBV síðari hluta tímabilsins. Martin skoraði alls 14 mörk, einu marki meira en Steven Lennon, Thomas Mikkelsen, Breiðabliki, Elfar Árni Aðalsteinsson, KA, og Hilmar Árni Halldórsson úr Stjörnunni, sem var einn markahæstur fyrir loka- umferðina. Martin varð einnig markakóngur 2014 og varð hann markahæstur í deildinni árið 2013 ásamt Atla Viðari Björnssyni og Viðari Erni Kjartans- syni. Lennon fékk silfurskóinn þar sem hann spilaði átján leiki og Mikk- elsen fékk bronsskóinn með tuttugu leiki. Frábært tímabil KR-inga Íslandsmeistarar KR-inga enduðu frábært tímabil með 2:1 útisigri gegn Breiðabliki og jöfnuðu þar með eigið stigamet frá árinu 2013 og Stjörn- unnar 2014. KR fékk 52 stig en liðið tapaði aðeins tveimur leikjum, gegn Grindavík og HK. KR-ingar voru langbestir í sumar sem sést best á því að þeir enduðu mótið 14 stigum á eft- ir Breiðabliki, sem hafnaði í öðru sæti. Blikarnir kvöddu Ágúst Gylfa- son en nýr maður er á leið í brúna hjá þeim grænklæddu og bendir allt til þess að það verði Óskar Hrafn Þor- valdsson sem hefur gert kraftaverk með Gróttu. Undir hans stjórn fóru Gróttumenn upp um tvær deildir á tveimur árum og spila í deild þeirra bestu í fyrsta sinn á næsta tímabili. Elfar Árni með þrennu Elfar Árni Aðalsteinsson kórónaði gott tímabil sitt með því að skora þrennu í 4:2 sigri KA-manna gegn Fylki á heimavelli. KA-liðið endaði þar með í fimmta sæti eftir að hafa verið í fallsæti. KA átti flottan enda- sprett á mótinu. Liðið var taplaust í síðustu sjö leikjum sínum og vann fjóra þeirra. Allan stöðugleika vant- aði hjá Fylkismönnum í ár en þeir enduðu í áttunda sæti deildarinnar. Helgi Sigurðsson stýrði Árbæjarlið- inu í síðasta sinn en sterkur orðrómur er um að Ágúst Gylfason taki við starfi hans. Valsmenn kvöddu Ólaf Jóhann- esson með 2:0 sigri á móti HK en eftir leikinn tilkynntu Valsmenn að samn- ingur við Ólaf yrði ekki endurnýj- aður. Ólafur stýrði Valsliðinu í fimm ár og undir hans stjórn varð liðið tví- vegis Íslandsmeistari og tvisvar bik- armeistari. Fyrrverandi lærisveinn hans hjá FH, Heimir Guðjónsson, er sagður vera á leið á Hlíðarenda og er reiknað með að hann verði kynntur til leiks þar í vikunni. Skagamenn gáfu heldur betur eft- ir. Þeir byrjuðu mótið frábærlega og voru efstir um tíma en náðu aðeins að vinna tvo leiki í seinni umferðinni. Þeir steinlágu fyrir sprækum Vík- ingum á heimavelli, 5:1. FH-ingar endurheimtu Evrópufarseðilinn  Gary Martin hreppti gullskóinn eftir æsilega baráttu  KR jafnaði stigametið Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Markakóngur Gary Martin, framherji ÍBV, endaði sem markakóngur. Hér er hann í baráttu við Martin Rauschen- berg á Stjörnuvellinum í lokaumferð Pepsi Max-deildarinnar en Martin skoraði bæði mörk Eyjamanna. KA – Fylkir 4:2 0:1 Ólafur Ingi Skúlason 1. 1:1 Elfar Á. Aðalsteinsson 16. (v) 2:1 Elfar Árni Aðalsteinsson 28. 3:1 Andri Fannar Stefánsson 64. 3:2 Geoffrey Castillon 81. 4:2 Elfar Árni Aðalsteinsson 90. MMElfar Árni Aðalsteinsson (KA) MCallum Williams, Hrannar Björn Steingrímsson, Andri Fannar Stef- ánsson, Nökkvi Þeyr Þórisson (KA), Ólafur Kristófer Helgason, Leonard Sigurðsson, Valdimar Þór Ingimund- arson, Geoffrey Castillion (Fylki). Dómari: Helgi Mikael Jónasson 6. ÍA – Víkingur R. 1:5 1:0 Bjarki Steinn Bjarkason 13. 1:1 Örvar Eggertsson 16. 1:2 Kwame Quee 23. 1:3 Óttar Magnús Karlsson 56. 1:4 Kwame Quee 75. 1:5 Ágúst E. Hlynsson 89. MÓttar Bjarni Guðmundsson, Vikt- or Jónsson, Bjarki Steinn Bjarkason (ÍA), Halldór Smári Sigurðsson, Sölvi Geir Ottesen, Kári Árnason, Kwame Quee, Óttar Magnús Karlsson (Vík- ingi). Dómari: Elías Ingi Árnason 8. Breiðablik – KR 1:2 0:1 Kennie Chopart 24. 0:2 Kristján F. Finnbogason 26. 1:2 Thomas Mikkelsen 89. (v) MMKennie Chopart (KR). MElfar Freyr Helgason, Alexander Helgi Sigurðarson, Thomas Mikkels- en Höskuldur Gunnlaugsson, Viktor Örn Margeirsson (Breiðabliki), Beitir Ólafsson, Finnur Tómas Pálmason, Arnór Sveinn Aðalsteinsson, Pálmi Rafn Pálmason, Kristinn Jónsson, Kristján Flóki Finnbogason, Óskar Örn Hauksson (KR). Dómari: Jóhann Ingi Jónsson 8. Valur – HK 2:0 1:0 Andri Adolphsson 17. 2:0 Patrick Pedersen 45. MMHannes Þór Halldórsson (Val) MHaukur Páll Sigurðsson, Patrick Pedersen, Kristinn Freyr Sigurðs- son, Sigurður Egill Lárusson, Andri Adolphsson, Eiður Aron Sigur- björnsson (Val), Ásgeir Börkur Ás- geirsson, Ásgeir Marteinsson, Atli Arnarson, Birnir Snær Ingason, Arn- þór Ari Atlason (HK). Dómari: Ívar Orri Kristjánsson, 5. FH – Grindavík 3:0 1:0 Steven Lennon 16. 2:0 Steven Lennon 48. (v) 3:0 Morten Beck Guldsmed 60. MM Steven Lennon (FH) MGuðmann Þórisson, Guðmundur Kristjánsson, Davíð Þór Viðarsson, Björn Daníel Sverrisson, (FH), Mar- inó Axel Helgason, Elias Tamburini (Grindavík). Dómari: Þorvaldur Árnason 8. Stjarnan – ÍBV 3:2 1:0 Alex Þór Hauksson 39. 1:1 Gary Martin 64. 2:1 Sölvi S. Guðbjargarson 74. 3:1 Guðjón Baldvinsson 84. 3:2 Gary Martin 87. (v) MAlex Þór Hauksson, Eyjólfur Héð- insson, Þorsteinn Már Ragnarsson (Stjörnunni), Gary Martin, Jonathan Franks, Sigurður Arnar Magnússon (ÍBV). Dómari: Erlendur Eiríksson 8. Lokaumferðin 2019 Norðlingabraut 8 110 Reykjavík S: 530-2005 Bíldshöfði 16 110 Reykjavík S: 530-2002 Tryggvabraut 24 600 Akureyri S: 461-4800 &530 2000 www.wurth.is Verkfæri – Festingar – Fatnaður – Persónuhlífar – Efnavara – Bílaperur – Rafmagnsvörur Tracker úlpa • Stærðir S–4XL • Hentar báðum kynjum • Vatnsþolin, þykk og hlý úlpa • 100% pólýester ytra efni • Má þvo og hengja upp • Hægt er að losa hettu og kraga af • Tveir innanverðir vasar og 8 að utanverðu Vnr: 1899 448 8XX Verð: 15.990 kr.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.