Morgunblaðið - 30.09.2019, Page 25

Morgunblaðið - 30.09.2019, Page 25
ÍÞRÓTTIR 25 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 30. SEPTEMBER 2019 England Everton – Manchester City .................... 1:3  Gylfi Þór Sigurðsson lék allan tímann með Everton. Aston Villa – Burnley.............................. 2:2  Jóhann Berg Guðmundsson var ónotað- ur varamaður hjá Burnley. Sheffield United – Liverpool................... 0:1 Bournemouth – West Ham...................... 2:2 Chelsea – Brighton................................... 2:0 Crystal Palace – Norwich........................ 2:0 Tottenham – Southampton...................... 2:1 Wolves – Watford..................................... 2:0 Leicester – Newcastle ............................. 5:0 Staðan: Liverpool 7 7 0 0 18:5 21 Manch. City 7 5 1 1 27:7 16 Leicester 7 4 2 1 11:5 14 West Ham 7 3 3 1 10:9 12 Tottenham 7 3 2 2 14:9 11 Chelsea 7 3 2 2 14:13 11 Bournemouth 7 3 2 2 13:12 11 Arsenal 6 3 2 1 11:10 11 Crystal Palace 7 3 2 2 6:7 11 Burnley 7 2 3 2 10:9 9 Manch. Utd 6 2 2 2 8:6 8 Sheffield Utd 7 2 2 3 7:7 8 Wolves 7 1 4 2 9:11 7 Southampton 7 2 1 4 7:11 7 Everton 7 2 1 4 6:12 7 Brighton 7 1 3 3 5:10 6 Norwich 7 2 0 5 9:16 6 Aston Villa 7 1 2 4 8:11 5 Newcastle 7 1 2 4 4:11 5 Watford 7 0 2 5 4:20 2 Holland AZ Alkmaar – Heracles .......................... 2:0  Albert Guðmundsson fór meiddur af velli hjá AZ á 28. mínútu. Belgía Oostende – Antwerpen ........................... 1:1  Ari Freyr Skúlason lék allan leikinn með Oostende. Kasakstan Astana – Kaisar Kyzylorda .................... 3:0  Rúnar Már Sigurjónsson lék allan tím- ann með Astana. Búlgaría Levski Sofia – Botev Vratsa................... 3:1  Hólmar Örn Eyjólfsson lék allan tímann með Levski og skoraði eitt mark. Noregur Bodö/Glimt – Tromsö ............................. 4:0  Oliver Sigurjónsson var ekki í leik- mannahóp Bodö/Glimt. Vålerenga – Ranheim ............................. 1:1  Matthías Vilhjálmsson lék síðasta hálf- tímann með Vålerenga. Molde – Lilleström .................................. 2:1  Arnór Smárason lék allan seinni hálf- leikinn með Lilleström. Hvíta-Rússland BATE Borisov – Neman Grodno ........... 1:0  Willum Þór Willumsson lék allan tímann með BATE. KNATTSPYRNA Bikarmeistarar Stjörnunnar höfðu betur gegn Íslandsmeisturum KR í karlaflokki í meistarakeppni KKÍ sem fram fór í Origo-höllinni á Hlíð- arenda í gær. Leiknum lauk með 12 stiga sigri Garðbæinga, 89:77 en Vesturbæingar leiddu með þremur stigum í hálfleik, 45:42. Stjarnan vann hins vegar þriðja leikhluta með 20 stigum, 32:12, og Íslandsmeist- urnum tókst ekki að koma til baka í fjórða leikhluta. Kyle Johnson fór mikinn í liði Stjörnunnar og skoraði 21 stig og tók fimm fráköst. Hjá KR var Matthías Orri Sigurðarson stigahæstur með 18 stig og sex frá- köst. Þá unnu þrefaldir meistarar Vals sannfærandi sigur gegn Keflavík í kvennaflokki, 105:81. Valskonur voru með frumkvæðið í leiknum all- an tímann og leiddu með ellefu stig- um í hálfleik, 53:42. Keflavík skoraði aðeins átta stig í þriðja leikhluta gegn 27 stigum Vals og Íslands- meistararnir sigldu sigrinum þægi- lega heim í fjórða leikhluta. Guð- björg Sverrisdóttir var stigahæst í liði Vals með 22 stig og tvö fráköst en hjá Keflavík var Daniela Morillo atkvæðamest með 36 stig og sjö frá- köst. bjarnih@mbl.is Stjarnan lagði Íslandsmeistarana  Valskonur bættu fjórða bikarnum í safnið eftir öruggan sigur á Keflavík  KR án fyrirliðans og þriggja sterkra leikmanna  Íslandsmótið hefst 2. október Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Átök Helena Sverrisdóttir og Daniela Morillo. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Barátta Michael Craion og Hlynur Bæringsson. Íslandsmeistararnir Elín Metta Jen- sen, Val, og Óskar Örn Hauksson, KR, voru valin bestu leikmenn úr- valsdeilda karla og kvenna, Pepsi Max-deildanna, á lokahófi deildanna sem fram fór í Gamla bíói í gær- kvöldi. Það voru Leikmannasamtök Íslands sem stóðu fyrir lokahófinu í samstarfi við KSÍ og Ölgerðina. Finnur Tómas Pálmason, KR, var valinn efnilegastur karlamegin og Hlín Eiríksdóttir, Val, var valin efni- legust kvennamegin. Rúnar Kristinsson, þjálfari KR, var valinn þjálfari ársins í karla- flokki og Pétur Pétursson, þjálfari Íslandsmeistara Vals, var valinn besti þjálfarinn kvennamegin. Pétur Guðmundsson var dómari ársins karlamegin og Gunnar Oddur Hafliðason kvennamegin. Þá var einnig valið lið ársins þar sem Íslandsmeistarar KR áttu sjö fulltrúa en kvennamegin áttu Ís- landsmeistarar Vals þrjá fulltrúa. bjarnih@mbl.is Elín Metta og Óskar Örn bestu leikmenn sumarsins Morgunblaðið/Eggert Best Elín Metta Jensen, framherji Vals, var valin best. Morgunblaðið/Hari Bestur Óskar Örn Hauksson, fyrirliði KR var valinn bestur. Fullkomin byrjun Liverpool í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta hélt áfram um helgina. Liverpool hafði betur gegn Sheffield United á útivelli á laugardag, 1:0, og er með fullt hús stiga eftir sjö leiki. Liverpool spilar oftast betur, en með lukkudísirnar sér í liði, tókst Liverpool að knýja fram nauman sigur. Staðan var markalaus fram að 70. mínútu en þá skoraði Georginio Wijnaldum sigurmarkið. Skotið hans utan teigs virtist meinlaust en Dean Hend- erson í marki Sheffield missti bolt- ann ótrúlega klaufalega á milli fóta sér og Liverpool gat fagnað enn einum sigrinum. Það virðist allt falla með Liverpool. Gylfi Þór Sigurðsson spilaði vel fyrir Everton á heimavelli gegn meisturum Manchester City. Það dugði hins vegar ekki til. Staðan í hálfleik var 1:1, en City-liðið var sterkt í seinni hálfleik og vann 3:1- sigur. City er enn fjórum stigum á eftir Liverpool og getur aðeins ósk- að þess að lærisveinar Jürgen Klopp fari að misstíga sig. Leicester virðist eiga fína mögu- leika á að ná einu af fjórum efstu sætunum. Liðið er í þriðja sæti með 14 stig og hefur aðeins tapað einum leik. Leicester fór illa með New- castle á heimavelli í gær, 5:0. Tottenham og Chelsea eru sam- stiga. Bæði lið unnu sína þriðju leiki á laugardag. Tottenham hafði bet- ur gegn Southampton og Chelsea vann Brighton. Þau eru í fimmta og sjötta sæti með ellefu stig. Fyrir ofan þau er West Ham með tólf stig. West Ham gerði vel í að jafna tvívegis á útivelli gegn Bour- nemouth og verður forvitnilegt að sjá hversu langt West Ham kemst á leiktíðinni. Lukkudísirnar með Liverpool í liði AFP Heppinn Georginio Wijnaldum hafði heppnina með sér. V E R T Heilsutvenna uppfyllir daglega vítamín- og steinefnaþörf Íslendinga í tveimur perlum. - því að sumt virkar betur saman Stundum þarf tvo til

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.