Morgunblaðið - 30.09.2019, Síða 26

Morgunblaðið - 30.09.2019, Síða 26
26 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 30. SEPTEMBER 2019 HANDBOLTI Olísdeild karla Fram – Haukar..................................... 22:24 Selfoss – HK ......................................... 29:25 FH – Afturelding.................................. 25:24 Staðan: Haukar 4 4 0 0 101:89 8 ÍR 3 3 0 0 95:79 6 ÍBV 3 3 0 0 80:69 6 Afturelding 4 3 0 1 107:97 6 Selfoss 4 2 1 1 116:117 5 FH 4 2 0 2 103:102 4 Valur 3 1 1 1 70:67 3 Fjölnir 4 1 1 2 102:114 3 KA 3 1 0 2 82:79 2 Stjarnan 4 0 1 3 90:107 1 HK 4 0 0 4 99:111 0 Fram 4 0 0 4 82:96 0 Undankeppni EM kvenna 6. riðill: Ísland – Frakkland............................... 17:23 Tyrkland – Króatía............................... 21:30 Staðan: Króatía 2 2 0 0 59:29 4 Frakkland 2 2 0 0 61:34 4 Tyrkland 2 0 0 2 38:68 0 Ísland 2 0 0 2 25:52 0 7. riðill: Færeyjar – Rúmenía ........................... 20:25  Ágúst Jóhannsson þjálfar Færeyjar. Meistaradeild karla Zagreb – Barcelona ............................ 19:36  Aron Pálmarsson skoraði 1 mark fyrir Barcelona. Pick Szeged – Flensburg.................... 24:24  Stefán Rafn Sigurmannsson skoraði 1 mark fyrir Pick Szeged. Celje Lasko – Aalborg ........................ 26:28  Janus Daði Smárason skoraði 2 mörk fyrir Aalborg en Ómar Ingi Magnússon er frá keppni vegna meiðsla. Elverum – París SG............................. 22:25  Sigvaldi Björn Guðjónsson skoraði 3 mörk fyrir Elverum.  Guðjón Valur Sigurðsson skoraði ekki fyrir PSG. Wisla Plock – Kristianstad................. 36:29  Ólafur Andrés Guðmundsson skoraði 12 mörk fyrir Kristianstad og Teitur Örn Ein- arsson 6. Þýskaland Minden – Lemgo .................................. 33:31  Bjarki Már Elísson skoraði 12 mörk fyr- ir Lemgo. Erlangen – Nordhorn ......................... 26:25  Aðalsteinn Eyjólfsson þjálfar Erlangen.  Geir Sveinsson þjálfar Nordhorn. Göppingen – Stuttgart........................ 31:22  Elvar Ásgeirsson skoraði 1 mark fyrir Stuttgart. Danmörk Ribe-Esbjerg – GOG............................ 25:29  Rúnar Kárason skoraði 5 mörk fyrir Ribe-Esbjerg, Daníel Þór Ingason 2 og Gunnar Steinn Jónsson 1.  Óðinn Þór Ríkharðsson skoraði 1 mark fyrir GOG og Arnar Freyr Arnarsson skor- aði ekki. Viktor Gísli Hallgrímsson varði ekki skot. HANDBOLTI Guðmundur Hilmarsson Guðmundur Karl Það var hart tekist á þegar FH hafði betur gegn Aftureldingu 25:24 í fjórðu umferð Olís-deildar karla í handknattleik í Kaplakrika í gær- kvöld. FH-ingar innbyrtu þar með sinn annan sigur í deildinni en Aft- urelding tapaði sínum fyrstu stigum í vetur. Leikurinn sveiflaðist til og frá þar sem varnarleikur og markvarsla var í góðu lagi hjá báðum liðum. Aftur- elding var skrefinu á undan FH- ingum í fyrri hálfleik þar sem Arnór Freyr Stefánsson, markvörður Mos- fellinga, gerði FH-ingum lífið leitt Afturelding náði mest fjögura marka forystu í fyrri hálfleik en heimamenn tóku sig saman í andlit- inu og náðu að jafna metin áður en hálfleikurinn var allur. FH-liðið mætti sterkt til leiks í seinni hálfleik. Birkir Fannar Brag- son leysti Þjóðverjann Phil Döhler af hólmi á milli stanganna og Birkir lagði svo sannarlega sitt af mörkum til að tryggja FH sigurinn. FH- ingar virtust vera að sigla fram úr um miðjan seinni hálfleikinn þegar þeir komust þremur mörkum yfir en Afturelding svaraði vel fyrir sig, skoraði fjögur mörk í röð og komst í forystu á nýjan leik. Í stöðunni 20:20 og rúmar sjö mínútur til leiksloka misstu Mosfellingar mann af velli og það þegar þeir voru í sókn. Gestur Ólafur Ingvarsson meiddist illa á hné og starfsmaður Aftureldingar hljóp inn á til að hlúa að Gesti. En þar sem hann hafði ekki fengið leyfi frá eftirlitsmanni missti Afturelding mann af velli í tvær mínútur og það reyndist Mosfellingum dýrkeypt. FH skoraði fjögur mörk í röð, þar af tvö í autt markið og lagði þar með grunninn að sigri sínum. Nýliðarnir stóðu í meisturunum Íslandsmeistarar Selfoss áttu fullt í fangi með að landa sigri gegn nýlið- um HK þegar liðin mættust í Hleðsluhöllinni á Selfossi á laug- ardagskvöld. Selfyssingar náðu góðu forskoti strax í upphafi og var útlit fyrir mjög erfiðan leik fyrir gestina. Um miðjan fyrri hálfleikinn tók HK leikhlé þar sem Elías Már Hall- dórsson þjálfari, hristi hrollinn úr sínum mönnum og eftir það var allt annað að sjá til nýliðanna. Þeir náðu að vinna upp fjögurra marka forskot Selfoss og gott betur en það. Staðan var 12:14 í leikhléi en Sel- fyssingar gáfu sér góðan tíma til þess að fara yfir hlutina í leikhléinu. Þeir breyttu um varnarafbrigði, fóru í 3-2-1, sem hefur gefist vel og það gekk eftir. Grímur Hergeirsson, þjálfari Selfoss, orðaði það þannig að Íslandsmeistararnir hefðu verið sjálfum sér líkir í seinni hálfleiknum. Selfoss skoraði fyrstu þrjú mörkin í seinni hálfleiknum og komst þann- ig strax yfir aftur. Meistararnir litu ekki til baka eftir það og reyndust of sterkir fyrir nýliðana þegar leið á leikinn. Að lokum skildu fjögur mörk liðin að, 29:25. Leikurinn var sýning markmann- anna á löngum köflum. Sölvi Ólafs- son í marki Selfoss og Davíð Svans- son í marki HK voru funheitir frá fyrstu mínútu og vörðu jafnt og þétt allan leikinn. Davíð var frábær á lokakafla fyrri hálfleiks, sem var besti kafli HK, en Sölvi var öflugur í seinni hálfleiknum en hann varði meðal annars þrjú vítaskot í leikn- um. Leikmenn HK hafa fæstir reynslu af úrvalsdeildinni, ef Davíð mark- vörður er undanskilinn. Stökkið upp úr 1. deildinni er talsvert en spila- mennska HK var mjög góð á köflum og nái þeir að nýta sóknirnar sínar betur þá munu þeir byrja á að reita inn stig. HK er með snögga og áræðna menn fyrir utan, til dæmis Blæ Hinriksson sem var lykilmaður í flestum sóknum liðsins, sem og Garðar Svansson, en þeir félagar voru óhræddir við að keyra á Sel- fossvörnina. Hjá Selfyssingum var Haukur Þrastarson gríðarlega mikilvægur og hann steig upp í seinni hálf- leiknum þegar þeir vínrauðu þurftu mest á því að halda. Fram enn á stiga Haukar héldu sigurgöngu sinni áfram en þeir lögðu Fram í Safa- mýri 24:22. Framarar voru lengi vel með undirtökin. Þeir voru 13:8 yfir í hálfleik og komust í 17:11 en þá vöknuðu Haukarnir til lífsins og tryggðu sér sigur. Þeir hafa unnið alla fjóra leiki sína en Framarar eru án stiga. Brynjólfur Snær Brynjólfs- son skoraði sex mörk fyrir Hauka og þeir Atli Már Báruson og Adam Haukur Baumruk voru með fimm hvor. Þorgrímur Smári Ólafsson var markahæstur í liði Fram með 10 mörk. FH stöðvaði sigurgöngu Mosfellinga  Fyrsti tapleikur Aftureldingar kom í Kaplakrika  Haukar með fullt hús Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Gegnumbrot Bjarni Ófeigur Valdimarsson að skora fyrir FH. Þátttöku Íslendinga á heimsmeistaramótinu í frjáls- um íþróttum í Doha í Katar er lokið. Ísland átti einn fulltrúa á mótinu en það var kringlukastarinn Guðni Valur Guðnason. Guðni keppti í undankeppninni á laugardaginn þar sem honum tókst ekki að tryggja sig inn í úrslitin. Hann náði aðeins einu gildu kasti af þremur og var það rúmum tíu metrum frá hans besta árangri. Guðni gerði ógilt í fyrsta og þriðja kasti og kastaði 53,91 metra þess á milli. Hann endaði í 16. og síðasta sæti í sínum riðli en þetta var fyrsta heimsmeist- aramótið sem Guðni tekur þátt í. Til þess að tryggja sig beint inn í úrslitin hefði Guðni þurft að kasta yfir 65,50 metra eða enda á meðal tólf efstu í báðum kasthópum. Besti árangur Guðna Vals í greininni er 65,53 metrar. Hann hefur hins vegar lítið getað kastað síðastliðið ár vegna veikinda og meiðsla. Guðni hefur nú náð sér af meiðslunum og vonandi nær hann sér aftur á strik og tryggir sér sæti á Ólympíuleikunum í Tókýó á næsta ári. gummih@mbl.is Þátttöku Íslands á HM lokið Guðni Valur Guðnason Kjartan Henry Finnbogason var svo sannarlega á skot- skónum með liði Vejle í dönsku B-deildinni í fótbolta í gær. Kjartan skoraði öll þrjú mörk sinna manna í 3:2 sigri gegn Næstved og kom sigurmark hans átta mín- útum fyrir leikslok. Kjartan Henry hefur þar með skorað níu mörk í níu leikjum með Vejle í deildinni og er hann markahæstur. Vejle féll úr úrvalsdeildinni á síðustu leiktíð en Kjartan ákvað að framlengja samning sinn við félagið og er samningsbundinn því til ársins 2021. Hann gekk í raðir félagsins frá ungverska liðinu Ferencváros í janúar og skoraði fimm mörk í 13 leikjum með liðinu í úrvalsdeild- inni. Vejle er í öðru sæti deildarinnar, er stigi á eftir Fredericia en á leik til góða. gummih@mbl.is Kjartan skoraði þrennu Kjartan Henry Finnbogason Gullfiskur Kæliþurrkaður harðfiskur semhámarkar ferskleika, gæði og endingu. Inniheldur 84%prótein. 84%prótein - 100% ánægja Framleiðandi: Tradex ehf, Eyrartröð 11, 220Hafnarfjörður, tradex@tradex.is Harðfiskur // Bitafiskur // Skífur Tilvalinn með á völlinn

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.