Morgunblaðið - 30.09.2019, Page 29
MENNING 29
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 30. SEPTEMBER 2019
Ístórborgum heimsins magnasthúsnæðisvandinn ár frá ári. Húsnæð-isverð hækkar langt umfram tekjur,miðborgir breytast og margir hafa ekki
lengur efni á að búa í hverfinu sem þeir hafa
búið í frá fæðingu. Í Berlín er ástandið orðið
þannig að farið er að impra á hugmyndum á
borð við að taka húsnæði eignanámi og sú um-
ræða fer ekki fram á jaðri stjórnmálanna.
Í sænsku heimildarmyndinni Þvingun
(Push) er fjallað um ástandið á húsnæðismark-
aði víða um heim. Fredrik Gertten, leikstjóri
myndarinnar, fylgir eftir Leilani Farha, sem
fer um heiminn á vegum Sameinuðu þjóðina
með einhvers konar umboð til að ýta undir rétt
fólks til að búa í viðunandi húsnæði.
Farha er frá Kanada og í upphafi myndar er
hún að fara yfir tölur, sem sýna að á undan-
förnum 20 árum hefur verð á húsnæði í Tor-
onto hækkað ferfalt á við laun. Leiðin liggur til
Harlem í New York þar sem leigjandi lítillar
íbúðar borgar 90% af tekjum sínum í leigu og
sér fram á rækilega hækkun.
Í London hafa fjárfestar, margir frá Rúss-
landi og olíuríkjunum við Persaflóa, keypt upp
íbúðarhúsnæði í stórum stíl. Iðulega eru íbúð-
irnar tómar mestan part ársins. Fyrir vikið
hverfur þjónusta fyrir íbúana og svæði, sem áð-
ur iðuðu af lífi eru að breytast í draugahverfi.
Helstu kaupendur íbúða eru hins vegar fjár-
festingafyrirtæki og oft eru lífeyrissjóðir á bak
við fjárfestingar þeirra. Mikið er fjallað um eitt
atkvæðamesta fyrirtækið á þessum markaði,
Blackstone, sem hefur keypt húsnæði allt frá
Svíþjóð til Spánar. Í einni kynningarmynd
þeirra sést að íbúðakaupin snúast nánast ein-
göngu um eignir. Fólkið sem í þeim býr er
aukaatriði. Við sjáum dæmi um það hvernig
þrengt er að leigjendum til að koma þeim út.
Eigandinn er andlitslaus, en einn leigjandi sýn-
ir hvernig leigusalinn hefur sett upp mynda-
vélar um allt hús til að fylgjast með íbúunum.
Einn leigjandi kvartar undan því að hann hafi
árum saman borgað leigu á meðan húsnæðið
hafi drabbast niður og nú eigi hann að fara að
borga meira án þess að eiga von á að þjónustan
batni hætishót.
Fasteignakaup eru líka notuð til peninga-
þvættis. Í myndinni lýsir Roberto Saviano, sem
skrifaði bókina Gomorrha um mafíuna í Napólí
og búið hefur við lögregluvernd síðan, hvernig
skipulögð glæpasamtök nota skattaskjól til að
koma afrakstri glæpastarfsemi í umferð með
fasteignaviðskiptum.
Myndin veitir athyglisverða innsýn í þennan
heim og lýsir þróun, sem Íslendingar hafa ekki
farið varhluta af. Hún sýnir hvernig fjárfestar
kaupa húsnæði og gera upp til að hækka leigu
og ýta íbúunum sem fyrir eru út og varpar
fram þeirri grundvallarspurningu til hvers
borgir séu ef íbúarnir hafa ekki efni á að lifa í
þeim.
Farha er sýnd sem kyndilberi í baráttunni
fyrir viðunandi húsnæði á viðunandi kjörum.
Hún myndar ákveðinn þráð þegar farið er milli
borga heimsins, en hennar þáttur verður full
mikill á köflum. Í einu atriði skálar hún í hvít-
víni við aðstoðarmann sinn og spyr hvort hún
sé klár í slaginn líkt og þær séu ofurhetjur á
leið að bjarga heiminum. En þótt hún nái eyr-
um borgarstjóra og annarra valdamanna og
fari fram í nafni Sameinuðu þjóðanna virðist
baráttan á byrjunarreit og vandséð að sagan
fái ofurhetjumyndaendi.
Ljósmynd/Sasha Snow
Heimildarmynd
Þvingun (Push) bbbbn
Leikstjóri: Fredrik Gertten. Framleiðsluland: Sví-
þjóð. Tungumál: Enska, franska, ítalska, kóreska,
spænska og þýska. 92 mín. Sýnd á RIFF.
KARL
BLÖNDAL
KVIKMYNDIR
Sýnd í Bíó Paradís þriðjudaginn 1. október kl.
11.15 og laugardaginn 5. október kl. 13.15.
Bolabrögð í borginni
Framkvæmdir Í London rjúka
upp nýbyggingar. Fjárfest-
ingafélög kaupa upp heilu
íbúðahúsin og ýmist hækkar
verðið eða íbúðir standa auðar
og til verða draugahverfi.
»Eitthvað úr engu:
Myndheimur Magn-
úsar Pálssonar nefnist
sýning sem opnuð var á
laugardaginn í Lista-
safni Reykjavíkur,
Hafnarhúsi.
Nýlókórinn tróð þar
upp og var glatt á hjalla.
Verk Magnúsar eru
sýnd í fimm sölum húss-
ins og ná einnig út á
ganga og undir bert loft.
Sýningarstjórar eru
Markús Þór Andrésson
og Sigurður Trausti
Traustason.
Sýning á verkum Magnúsar Pálssonar var opnuð í fyrradag í Listasafni Reykjavíkur í Hafnarhúsi
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Hljóðlj́óðakór Nýlókórinn kom fram við opnun sýningarinnar í Hafnarhúsi á laugardag.
Listamaðurinn Magnús hlýddi á ræðu Hjálmars Sveinssonar, formanns
menningar-, íþrótta- og tómstundaráðs Reykjavíkurborgar.
Forvitnilegt Guðni Tómasson, útvarpsmaður og listsagnfræðingur, virti
fyrir sér verk hins merkilega listamanns Magnúsar Pálssonar.
Smiðjuvegur 68, Kópavogi | S. 587 1350 | bifreidaverkstaedi.is
Höfum sérhæft okkur í Toyota viðgerðum síðan 1995
Fljót, örugg og persónuleg þjónusta
Allar almennar bílaviðgerðir