Morgunblaðið - 25.09.2019, Page 16

Morgunblaðið - 25.09.2019, Page 16
16 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. SEPTEMBER 2019 Þ etta er menntun sem gef- ur viðurkennd starfsrétt- indi innan menntunar- tilboðs sem þegar er fyrir hendi. Markmiðið er að fjölga starfsmönnum með fagþekkingu hjá Arnarlaxi og í greininni almennt,“ segir Björn Hembre, forstjóri Arnarlax, um nýtt starfsnám tengt fiskeldi sem fyrirtækið vinnur að í samstarfi við Fisktækniskóla Íslands. Samn- ingur um fræðslu starfsfólks í fiskeldi var undirritaður 6. sept- ember og hefur að markmiði að auka sérþekkingu starfsfólks á rekstri og öryggismálum á sínu starfssviði. Námið stendur sem sjálfstætt námsframboð en gengur jafnframt að fullu til eininga og samsvarar þá einnar annar námi á námsbraut Fisktækniskólans í fisktækni með sérstaka áherslu á fiskeldi. Björn segir mikil verðmæti vera fólgin í því að búa yfir sérmennt- uðum starfskrafti. „Fiskeldi er þekkingariðnaður og við sjáum skýra þörf á að því að auka þekk- ingu starfsmanna. Hingað til hefur ekki verið í boði menntun á þessu sviði á Íslandi, þannig að það eru í raun mjög fáir sem hafa einhverja sérhæfða menntun. Öll reynsla segir okkur að aukin menntun hafi jákvæð áhrif á starfsemina, svo einfalt er það. Þannig að okkur hefur fundist gott að geta boðið starfsfólki okkar og annarra fyr- irtækja tækifæri til sérhæfingar.“ „Þetta verður líka vonandi til þess að ungmenni sem standa frammi fyrir því að velja fram- tíðarstarf hafi þann valkost að sérhæfa sig þegar þau koma af unglingastigi grunnskólans,“ bætir hann við. Kröfur stöðugt að aukast Spurður hvort kröfur um þekk- ingu séu að aukast segir Björn svo vera og að með nýrri tækni sé eðlilegt að slíkar kröfur séu gerðar. „Krafan um þekkingu starfsmanna eykst stöðugt. Öll starfsemi sem þarf að taka mið af heilbrigði, umhverfi og öryggi þarfnast stöðugra umbóta – það verður hluti af þeirri kröfu og svo er það þessi líffræðilega hlið fram- leiðslunnar. Góð umgjörð líffræð- innar er kjarni framleiðslunnar í laxeldi.“ Forstjórinn segir stóran hluta starfsmannahóps Arnarlax þegar búa yfir mikilli reynslu af sjó- mennsku. „Við stöndum sterk í öllu sem varðar báta og verklega þætti sem því tengjast. En það er á sviði líffræði sem mætti efla þekkingu starfsmanna.“ Hann segir um skýra langtíma- fjárfestingu að ræða. „Það getur vel verið að það verði einhverjir ávinningar til skamms tíma líka. Við vonum að þetta hafi hvetjandi áhrif á þá sem velja að taka þátt og fengin reynsla sýnir að aukin þekking gefur af sér aukna starfs- gleði, sem síðan getur stuðlað að því að starfsfólk haldist lengur í vinnu hjá fyrirtækinu og í grein- inni.“ Ísland ekki á eftir Sérhæft fisktækninám sem tengist fiskeldi hefur verið starfrækt í Noregi frá miðjum níunda áratug, að sögn Björns. „Ég fór í þetta framhaldsnám nám eftir að ég lauk unglingastigi árið 1988 og þá hafði þetta verið í boði í nokkur ár,“ útskýrir hann. Hann segir það að slíkt nám hafi ekki verið í boði hér á landi áður ekki merki um að Ísland hafi endilega verið á eftir. „Það verður að horfa til þess að starfsgreinin hefur ekki verið mjög stór á Ís- landi og ég tel að nú sé réttur tími til þess að koma þessu á, við erum að sjá vöxt í sjókvíaeldi. Líka í eldi á landi, sem að öllum lík- indum einnig mun þurfa sérhæft starfsfólk.“ „Það hafa verið sveiflur í fisk- eldi í sjókvíum og þegar nið- ursveifla hefur orðið hafa menn líklega ekki hugsað mikið um menntunarþáttinn. En nú er verið að byggja þessa starfsemi upp og koma á sjálfbærri atvinnugrein til lengri tíma, þá er mikilvægt að leggja sitt af mörkum í mennt- unarmálum.“ Björt framtíð fiskeldis Verð á laxi hefur fallið nokkuð undanfarnar vikur og mánuði. Spurður hvaða áhrif hann telji verðþróunina hafa á greinina svar- ar Björn: „Atvinnugreinin er í uppbyggingu og við höfum ekki slátrað mörgum kynslóðum og í startholunum er mikill kostnaður. Flest fiskeldisfyrirtæki eru byrjuð að sýna jákvæða rekstrarniður- stöðu, en lágt verð dregur úr af- komu. Hins vegar vitum við ekki hversu lengi verðlagið verður svona.“ Hann segir jafnframt eðli- legt að verð lækki á tímum þegar framboð eykst mikið, en að á móti komi að eftirspurn eftir laxi fari vaxandi. „Þess vegna er mjög mik- ilvægt að við byggjum upp sam- keppnishæfa atvinnugrein.“ „Það er engin rosaleg framlegð sem við byggjum reksturinn á og það var á fyrri árshelmingi 2019 sem við gátum sýnt jákvæða rekstrarniðurstöðu, þannig að við vonum að verð fari hækkandi á ný. En það er engin dramatík í þessu,“ segir hann og bætir við að staðan hafi engin áhrif á áætlanir félagsins. „Þetta eru svona hlutir sem gerast af og til og við þurfum bara að læra að lifa með því, auk þess sem við vinnum að því að lækka kostnað til þess að við get- um lifað með því.“ Hann kveðst sannfærður um að framtíð eldis sé björt. „Ég geri ráð fyrir að framleiðslan muni aukast þegar fram líða stundir. Seiðaframleiðslan hefur haft tak- markandi áhrif en hún er að taka við sér og við verðum fljótt tilbúin að framleiða meiri lax. Við viljum sjá framleiðsluaukningu og það verður eðlileg aukning á næstu ár- um í samræmi við þau leyfi og leyfisumsóknir sem Arnarlax hefur.“ Fyrirtækjamenning mikilvæg „Það er smá menningarmunur hvað varðar atvinnuvenjur. Íslend- ingar eru ekki svo nákvæmir hvað tímasetningar varðar og það er kannski það sem veldur mesta pirringnum, en við erum nú alveg að verða komin í land með það hjá Arnarlaxi,“ svarar Björn og hlær er hann er spurður hvort hann hafi upplifað menningarmun milli atvinnureksturs á Íslandi og í Noregi. „En hvað varðar vinnusið- ferði er þetta voðalega svipað milli landanna. Það er líka mikilvægt í rekstri að byggja upp fyrirtækja- menningu innan félagsins og við vinnum stöðugt að því. Við gerum það með þeim hætti að allir koma að þeirri vinnu þannig að við náum að fá það besta úr öllum og vonandi verður vinnudagur allra betri líka.“ Auknar kröfur um þekkingu starfsmanna Gunnlaugur Snær Ólafsson gso@mbl.is Morgunblaðið/Hari Framsækið Björn Hembre, forstjóri Arnarlax, kveðst vilja sjá framleiðsluaukningu hjá félaginu og telur kröfu um menntun starfsfólks aukast með stækkun greinarinnar. Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Fagmenn Aukin þekking er sögð auka starfsgleði starfsmanna og er þar af leiðandi til þess fallin að stuðla að því að starfsfólk haldist lengur í greininni. Björn Hembre, forstjóri Arnarlax, telur kröfur um menntun starfsmanna í fiskeldi vera stöðugt að aukast enda greinin þekkingariðnaður. Hann segist ekki hafa áhyggjur af verðlækkunum á laxi, þar sem eftirspurn eftir laxafurðum fari vaxandi. Eltak sérhæfir sig í sölu og þjónustu á vogum Bjóðum MESTA úrval á Íslandi af smáum og stórum vogum

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.