Morgunblaðið - 25.09.2019, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 25.09.2019, Blaðsíða 38
38 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. SEPTEMBER 2019 Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is Þ að vantar ekki nema þrjú ár í þrítugsafmælið hjá Ís- felli. Íslenskir sjómenn þekkja þetta fyrirtæki vel enda með átta starfs- stöðvar um landið allt og í 332 blað- síðna vörulista fyrirtækisins má finna hér um bil allt sem þarf til að stunda veiðar. Að sögn Guðbjarts Þórarinssonar hafa veiðarfærin ver- ið í forgrunni hjá fyrirtækinu allt frá stofnun, en Ísfell bæði hannar og framleiðir veiðarfæri í samvinnu við skipstjóra og útgerðir ásamt því að bjóða hverju sinni besta mögulega efnisval frá virtum innlendum og er- lendum fyrirtækjum. „Við erum í öll- um veiðarfærum en sérstaklega sterkir í línu, snurvoðum, rækjutroll- um, botntrollum og nótum, auk þess að vera umboðsmenn fyrir leiðandi framleiðendur á búnaði fyrir línu- veiðar s.s. Mustad Autoline,“ út- skýrir hann og bætir við að gaman hafi verið að fylgjast með þróuninni á þessu sviði: „Tækninni fleygir fram og þökk sé m.a. þróun á efnum sem notuð eru í veiðarfærin, ásamt fram- förum í tölvuhermun togveiðarfæra, hefur okkur tekist að stíga stór skref í sérhönnun veiðarfæra sem henta hverju skipi og hverjum skipstjóra.“ Tölvumódel flýta þróuninni Miklu skiptir að geta boðið útgerð- um upp á sérhönnuð veiðarfæri enda toggeta skipa mismunandi og getur einnig þurft að taka tillit til þess hvaða tegundir stendur til að veiða. Þá hafa skipstjórar oft sterkar skoð- anir á því hvernig þeir vilja hafa veiðarfærin, byggt á eigin reynslu og innsæi. Guðbjartur segir að í dag sé hægt að búa til mjög nákvæm tölvu- módel sem endurskapa lögun veið- arfæranna í sjónum svo að hönnuðir geta breytt og bætt til að ná fram sem bestum eiginleikum. „Við getum m.a. látið tölvuna gefa okkur innsýn í lögun veiðarfæranna við mismun- andi aðstæður þar sem við sjáum opnun, hvort sem er lárétt eða lóð- rétt, ásamt upplýsingum um þyngd veiðarfærisins í togi. Nú er svo kom- ið að prófanir í tölvuhermi flýta gríð- arlega fyrir öllu vöruþróunarferlinu og gera það að verkum að mód- elprófanir í tönkum ættu að verða markvissari vilji menn nota flæði- tanka.“ Þá segir Guðbjartur að Ísfell hafi fest kaup á neðansjávarmyndavél sem hafi verið notuð við rannsóknir á veiðarfærum. Upptökurnar hafa gagnast hönnuðum fyrirtækisins við að bæta og breyta eiginleikum veið- arfæranna: „Það kemur sjálfsagt ekkert í stað raunveruleikans og er þetta frábær viðbót við tölvu- tæknina.“ Spyrst út þegar veiðarfæri virka vel Greinin kallar sífellt eftir æ full- komnari og léttari veiðarfærum sem hafa sem minnst viðnám þegar þau eru dregin ofan í sjó, án þess þó að fórna veiðigetu eða endingu. Guð- bjartur segir vöruþróunina því aldrei stoppa, og það spyrjist fljótt út með- al sjómanna ef veiðarfæri gefa góða raun. „Menn eru yfirleitt áhuga- samir um að prófa nýjungar og líka duglegir að ræða það sín á milli ef ný lausn eða ný hönnun reynist virka vel við veiðar.“ Er gaman að segja frá því hvað umhverfisvitundin er mikil í grein- inni og sýna opinberar tölur að end- urvinnslu veiðarfæra er mjög vel sinnt á Íslandi. Guðbjartur segir nokkuð vel ganga að koma veiðar- færum í endurvinnslu og ekki sé erf- itt að endurvinna net sem gerð eru t.d. úr pólyetílen og næloni. Þurfi einfaldlega að safna veiðarfærunum saman og aðskilja parta úr ólíkum efnum áður en þeir eru sendir út í heim til endurvinnslu. „Að endur- vinna hrein efni er ekki vandasamt en verður flóknara þegar ólíkum efn- um er blandað saman. Þótt alltaf megi gera betur eru framfarirnar á þessu sviði hreint ótrúlegar frá því sem tíðkaðist þegar ég byrjaði sjálf- ur á sjó í kringum 1980.“ Minna blóðmar með hnútalausu neti Spurður um áhugaverða vöru sem gæti náð útbreiðslu á Íslandi nefnir Guðbjartur hnútalaus pokanet sem hafa reyndar verið fáanleg á markaði í mörg ár en ekki mikið notuð hér- lendis. „Hefðbundið hnýtt pokanet getur valdið meira hnjaski á fisk- inum en hnútalaust net. Hnútalaust net er fléttað saman án hnúta og er yfirborð þess slétt svo það nuddast ekki eins harkalega utan í fiskinn þegar hann er kominn í pokann og hífður um borð. Má ætla að þannig megi auka gæði vörunnar og dæmi um 20 til 30% minnkun á blóðmari,“ segir hann. „Á það t.d. við um norsk- an sjávarútveg að þar eru hnútalaus- ir pokar mikið notaðir og eru útgerð- ir þar að öllum líkindum ekki að gera það án nokkurs ávinnings enda um dýrara efni að ræða.“ Er hnútalaus poki nú þegar í notkun hjá íslensku skipi og segist Guðbjartur hlakka til að sjá fleiri aðila hér á landi nota þessa lausn svo sannreyna megi að hún dragi úr mari og skemmdum og stuðli að jafnari gæðum. Hafa stigið stór skref í sérhönnun veiðarfæra Í tölvuhermi er hægt að sjá með mikilli ná- kvæmni lögun veiðar- færa við mismunandi aðstæður. Framleið- endur eins og Ísfell keppast við að svara kalli markaðarins um umhverfisvænni, full- komnari og léttari net. Morgunblaðið/Eggert Nákvæmni „Nú er svo komið að prófanir í tölvuhermi flýta gríðarlega fyrir öllu vöruþróunarferlinu,“ segir Guðbjartur. Morgunblaðið/Eggert Vandvirkni Carlos Lima og Hermundur Pálsson að störfum. Dýrmæt reynsla býr í starfsfólki fyrirtækisins. Morgunblaðið/Eggert Úthugsað Jóhann Th Þórðarson, Gósi, á netaverkstæðinu. Útgerðir hafa ákveðnar kröfur um eiginleika veiðarfæra. Öryggisbúnaður skipar stóran sess í vöruframboði Ísfells og sel- ur fyrirtækið úrval vandaðra björgunarbáta og flotbúninga ásamt rekstrarleigu á björg- unarbátum og býður lausnir og þjónustu á hífingar- og fallvarnar- búnaði. Guðbjartur nefnir sérstaklega mikilvægi þess að sá búnaður sem Ísfell selur er vott- aður í samræmi við ströngustu reglur og notaður af kröfuhörðum aðilum. „Við gerum jafnframt út- tektir á fallvarnarbúnaði fyr- irtækja og önnumst námskeið þar sem farið er vandlega yfir rétta notkun,“ útskýrir hann. „Er sama hvernig á það er litið; öryggið á ávallt að vera í fyrsta sæti og hef- ur orðið gríðarleg vitundarvakn- ing hvað þetta varðar hvort sem er til sjós eða lands og styður minnkandi slysatíðni til sjós þessa þróun.“ Öryggið í fyrsta sæti Eltak sérhæfir sig í sölu og þjónustu á vogum Bjóðum MESTA úrval á Íslandi af smáum og stórum vogum

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.