Morgunblaðið - 25.09.2019, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 25.09.2019, Blaðsíða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. SEPTEMBER 2019 Eltak sérhæfir sig í sölu og þjónustu á vogum Bjóðum MESTA úrval á Íslandi af smáum og stórum vogum Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is F arið er að síga á seinni hlut- ann í löngu og krefjandi hönnunarferli og munu gest- ir á Sjávarútvegssýningunni 2019 fá að sjá nýtt fley sem gæti markað kaflaskil í íslenskri skipasögu. Nýjasti báturinn frá Navis gengur nefnilega fyrir rafmagni og býður greininni upp á tækifæri til að skipta yfir í umhverfisvænni orku- gjafa. Kári Logason, skipaverkfræðingur hjá Navis, segir þessa nýju gerð 30 tonna báta hafa fengið nafnið Magnea en verkefnið hlaut styrk frá Tækniþróunarsjóði. Hann bendir á að hugtakanotkunin sé ekki alveg sú sama í bátum og bílum, og þó að Magneu-bátarnir séu skilgreindir sem rafmagnsbátar er lítil ljósavél um borð. „Ljósavélin hleður orku inn á rafhlöðuna þegar þörf er á meiri drægni, en framdriftarbúnaðurinn er allur rafdrifinn.“ Á meðan skipið er við bryggju tek- ur um fimm klukkustundir að full- hlaða rafhlöðuna og á hleðslan að nægja á þeim túrum þar sem stutt frá heimahöfn á miðin. Þar sem um línu- skip er að ræða þurfti að leysa úr ýmsum áskorunum sem snúa að mis- munandi orkuþörf á ólíkum stigum veiðanna. „Mest er gengið á orkuna þegar siglt er út á miðin, og aftur til baka. En þegar skipið er komið á rétt- an stað og línan látin út þá er alla jafna siglt á 60% af hámarkshraða, eða um 6-7 hnútum, og síðan beðið í tvo til þrjá tíma á meðan fiskurinn bít- ur á agnið. Þá er línan dregin um borð og siglt á 2-3 hnúta hraða á meðan,“ útskýrir Kári. Hljóðlátari vinnustaður Hönnunarvinna og prófanir hafa leitt í ljós að ýmsir kostir fylgja því að raf- væða skip af þessari stærð og gerð. Þannig má koma drifrásinni fyrir með öðrum hæti, og nota rafhlöðurnar sem ballest, svo að nýta má rýmið innan skipsins með betra móti. „Í stað þess að láta vélarrýmið taka mikið pláss aftur í skut fer lítið fyrir rafmótornum og í staðinn hægt að hafa vistarverur áhafnar í skutnum þar sem minnst verður vart við hreyfingu og hávaðann af því þegar öldur skella á stefninu. Við getum aftur á móti haft ljósavél- ina frammi í stefni, í litlu tæknirými, og hægt að raða tækjum um borð með öðrum hætti.“ Sjófærni verður sú sama og hjá hefðbundnu skipi af sömu stærð, en þar sem skrúfan er ekki knúin áfram af stórum olíumótor verður mun minni hávaði og titringur um borð. Þegar nota þarf ljósavélina ætti áhöfnin varla að verða þess vör enda smá í sniðum og einangruð frá öðrum hlutum skipsins. Útreikningar Navis benda til að Magneu-bátar veðri hagkvæmari í rekstri en gengur og gerist, og ættu að vera fýsilegur kostur jafnvel ef ekkert verður af því að stjórnvöld veiti útgerðum ívilnanir vegna orku- skipta. „Rætt hefur verið um að hið opinbera flýti fyrir þróuninni en enn þá er ekkert fast í hendi með það. Magnea verður svolítið dýrari í smíð- um en ætti að vera umtalsvert ódýr- ari í rekstri og spara á bilinu 60-100% af olíunotkun sambærilegra skipa. Þá verður viðhaldskostnaður mun lægri enda gildir það sama með rafmagns- skip og rafmagnsbíla að búnaðurinn um borð er einfaldari, minna slit og minni þörf fyrir viðgerðir og vara- hluti.“ Það eina sem þarf, segir Kári, er að telja eina útgerð á að taka af skarið svo að hægt verði að sýna greininni allri hvernig skipið reynist. Ekki þarf að koma upp sérstökum hleðslu- stöðvum því hleðslukerfið er hannað inn í bátinn sjálfan og aðeins þarf að stinga honum í samband við það sem í daglegu tali er kallað stærri smábáta landtenging. „Í flestum höfnum er hægt um vik að komast í þannig raf- tengingu og víða verið að leita leiða til að bæta enn frekar möguleika skipa til að tengjast rafmagni og m.a.s. heitu vatni við bryggju svo þau þurfi ekki að brenna dísilolíu á meðan þau liggja við landfestar.“ Aðspurður hvort fimm klukku- stunda hleðslutími henti útgerðum vel segir Kári að algengt sé að bátar í 30 tonna kerfinu haldi af stað til veiða um kl. 1-2 að nóttu. „Þegar komið er á miðin er línan lögð út og beðið, og skipið komið aftur í höfn með aflann um kvöldmatarleytið. Höfum við ráð- fært okkur við fjölda útgerða sem hafa sagt okkur að fimm tímar ættu að duga, langoftast.“ Skyldi einhver hafa áhyggjur af því að hafa kröftugar rafhlöður um borð í rennblautu skipi segir Kári ekkert að óttast. Rafbúnaðurinn um borð komi frá leiðandi fyrirtæki og þannig frá honum gengið að engin hætta á að skapast af. „Og svo má ekki gleyma að nú þegar er mikið af rafbúnaði um borð í skipum, og veldur engum vand- ræðum enda búnaðurinn hannaður í samræmi við það umhverfi sem hann er í.“ Rafhlöður gætu bætt orkunotkun Hvað kemur svo næst? Gæti kannski verið raunhæft að rafvæða allan flot- ann, frá minnstu trillum upp í stærstu togara? Kári segir að líklega sé langt í að stærstu skipin, sem geta verið að veiðum svo vikum og jafnvel mán- uðum skiptir, muni geta gengið fyrir rafmagni eingöngu en rafhlöðutækni geti þó hjálpað til við að bæta orku- notkun skipa. „Væri þá t.d. hægt að hafa ljósavélar um borð sem framleiða rafmagn á sem hagkvæmastan hátt og beina inn á rafhlöðu, sem svo er notuð þegar koma toppar í orkuþörf skips- ins s.s. þegar gera þarf skjótar hraða- breytingar. Mætti jafnvel líka nota það bakafl sem verður til í ýmsum búnaði um borð, s.s. á spilum, til að hlaða rafhlöðurnar. Allt myndi þetta stuðla að jafnari orkuframleiðslu og þar með minni olíunotkun,“ útskýrir Kári. „Þá er einnig vert að skoða aðra orkugjafa, eins og metanól, sem gætu verið umhverfisvænni en dísilolían sem flotinn notar í dag.“ Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Stoltir Bjarni Hjartarson, Hjörtur Emilsson og Kári Logason við módel af rafmagnsbátnum. Hleðslustöðin er innbyggð í bátinn og ætti ekki að vera flókið að tengja hann við rafmagn í flestum höfnum. Þægindi Magneu bátarnir bjóða m.a. upp á annars konar skipulag vinnu- og svefnrýma um borð. Risaskref í átt að rafvæð- ingu flotans Magneu-báturinn sem Navis hefur hannað ætti að hafa jafngóða sjó- færni og önnur 30 tonna skip en nota litla og jafnvel enga olíu. Líkt og með rafmagnsbíla ætti viðhaldskostnaður líka að vera minni.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.