Morgunblaðið - 25.09.2019, Síða 24
24 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. SEPTEMBER 2019
Gunnlaugur Snær Ólafsson
gso@mbl.is
V
ið höfum verið mjög sterkir
í Bandaríkjunum undan-
farin ár eða frá því að við
seldum fyrsta skipið árið
2006 í Seattle. Við vorum
að senda búnað í tvö skip þar, það er
verið að uppfæra þau skip og koma
fyrir rafmagnsvindum í stað glussa-
vinda. Við höfum sérhæft okkur í raf-
magnsvindum alla tíð. Okkar stærsti
markaður í dag er hins vegar Rúss-
land. Við erum búin að semja um sex
skip fyrir Norebo, sex stóra togara,
og opið á fjóra til viðbótar,“ segir
Bjarni Þór Gunnlaugsson, fram-
kvæmdastjóri Naust Marine.
„Þetta er í gegnum okkar Knarr-
verkefni,“ segir hann. Knarr er
markaðsfyrirtæki fyrir fimm íslensk
fyrirtæki sem sérhæfa sig á sviði bún-
aðar fyrir fiskveiðiskip og byggja á ís-
lenskri tækni. Fyrirtækin sem koma
að Knarr ásamt Naust Marine eru
Brimrún, Frost, Nautic, Skaginn 3X
og Skipatækni. „Fyrirtækin bjóða í
þessi skip saman. Þó að þau starfi öll
sjálfstætt þá reynum við að vinna
saman og erum sterkari sem heild en
hvert í sínu lagi þó að fyrirtækin
komist ekki alltaf öll að í hverju verk-
efni,“ útskýrir framkvæmdastjórinn.
Heildarverðmæti Knarr-verkefna
sem hafa verið gerðir samningar um
á tveimur árum í Rússlandi nema um
15 milljörðum íslenskra króna.
„Margt smátt gerir eitt stórt,“ segir
Bjarni þór og bendir á að Naust Mar-
ine hafi þegar gert samninga um
verkefni í Rússlandi að virði um 2,5
milljarðar króna og við það bætast
samningar sem eru á lokastigi sem
munu færa þá upphæð yfir þrjá millj-
arða.
Stærsti togari Rússlands
„Það er mikið að gerast í Rússlandi
og við erum að ganga frá samningum
í stærsta togara Rússlands sem smíð-
aður er fyrir útgerðarfélagið RK
Lenina í Petropavlovsk, um er að
ræða verksmiðjutogara,“ segir Bjarni
Þór og bætir við að Skaginn 3X og
Frost komi einnig að verkefninu. Um
er að ræða verk upp á 800 milljónir
króna fyrir Naust Marine. „Við
sjáum um flestalla fylgihluti á dekk-
inu, krana og vindur. Við getum gert
þetta í dag vegna þess að Naust Mar-
ine stofnaði fyrirtæki á Spáni fyrir
tæpum tveimur árum, þar sem við
hönnum og framleiðum allar vind-
urnar og annan stálbúnað.“ Hann
segir 10 starfsmenn starfa hjá dótt-
urfélaginu á Spáni. „Við erum aðal-
lega með hönnunarteymi, við hönnum
allt, svo erum við með samsetn-
inguna, en látum undirverktaka um
að framleiða fyrir okkur. Setjum svo
saman sjálfir.“
Spurður hvort Rússland sé vaxandi
markaður fyrir félagið segir Bjarni
Þór svo vera. „Já eins og er. Þetta eru
alltaf sveiflur í þessum mörkuðum,
einn fer upp og annar niður. Þess
vegna reynum við að vera á öllum
mörkuðum í heiminum þar sem mað-
ur veit aldrei hvað fer upp eða niður
næst. Við höfum verið að bíða eftir
þessari sprengju í Rússlandi í allt að
átta ár. Nýsmíðin byrjaði fyrir um
tveimur árum og er þetta allt komið í
fullan gang, að endurnýja stóran
hluta skipaflota Rússlands. Þeir eru
komnir virkilega vel af stað í því og
vonandi er enn mikið eftir. Við sjáum
fram á að þetta haldi áfram næstu
fimm til átta árin, en það er aldrei
gott að segja hvað gerist.
Svo koma aðrir markaðir inn eins
og Bandaríkin, þar eru aðstæður að-
eins öðruvísi en í Rússlandi. Það þarf
að framleiða allt í Bandaríkjunum.
Þeir eru ekki með mikla reynslu í
þessu, orðið langt síðan þeir hafa
smíðað mikið af fiskiskipum þar, en
kostnaðurinn við smíðina er mjög
hár,“ segir hann.
Ný mið í stöðugri skoðun
„Við höfum aðeins verið í Kína. Ind-
land er mjög erfitt, við höfum ekki
viljað sækja inn á þennan markað að
svo stöddu. Það þarf margt að breyt-
ast áður en við sýnum þessum mörk-
uðum áhuga,“ svarar Bjarni Þór
spurður hvort félagið sé einnig að
leita á markaði vaxandi hagkerfa eins
og Kína og Indlands. „Kínverski
markaðurinn er aftur á móti í stöð-
ugri þróun. Við höfum verið að selja í
eldri skip þar. Höfum einnig verið í
tveimur íslenskum togurum sem voru
smíðaðir þar, líka í skipum sem hafa
verið framleidd í Taívan og Kína, en
við höfum ekki beint spjótum okkar
að Kína ennþá. Þar gengur allt út á
verðið en maður veit aldrei.
Við erum að vinna í mjög góðu
samstarfi við þessi fyrirtæki [í
Knarr]. Þótt þau séu ekki mörg í dag,
þá vonandi verða þau fleiri með ár-
unum. Við erum stofnendur þarna
með fimm öðrum fyrirtækjum. Þótt
við höfum beint spjótum okkar að-
allega að Rússlandi núna vegna upp-
gangs þar þá erum við á öðrum mörk-
uðum líka. Við erum að þreifa fyrir
okkur á Nýja-Sjálandi þótt það sé
langt í burtu og við erum að þreifa
fyrir okkur í Bandaríkjunum með
Knarr-lausnina. Óskastaðan er að við
getum framleitt fiskiskip í samstarfi
við slipp og boðið eigendum heild-
arlausn. Það eru kannski nokkur ár í
að það takist,“ útskýrir hann. „Það er
allavega mikið í gangi hjá okkur,
brjálað að gera og allt lítur mjög vel
út eins og staðan er í dag,“ bætir
Bjarni Þór við.
Skortur á sérhæfðu starfsfólki
Stöðugur skortur er á sérmenntuðu
starfsfólki að sögn Bjarna Þórs.
„Okkur vantar tæknimenntað fólk,
okkur vantar iðnaðarmenn. Það er
orðinn það mikill skortur á þessu að
hver starfsmaður er mjög dýr í sam-
anburði við önnur lönd.“ Hann segir
mikilvægt að fjölga í iðnnámi til þess
að mæta þörfum greinarinnar. „Að
sjálfsögðu þurfum við að auka veru-
lega í þessu, það er reyndar eitthvað
að gerast í dag í þessum iðngreinum.
Ég heyri það að það er einhver fjölg-
un í vélvirkjun og rafvirkjun. Vonandi
bætist ennþá meira við. Þetta eru góð
störf og góðar tekjur sem þessir að-
ilar geta fengið. En það er orðinn of
mikill skortur.“
Spurður hvort þessum iðngreinum
sé gert nógu hátt undir höfði svarar
Bjarni Þór: „Það er ekki gott að
segja. Ég myndi vilja sjá íslensk
fyrirtæki kaupa mun meira af ís-
lenskum fyrirtækjum. Taka Norð-
menn sér til fyrirmyndar; þeir styðja
sín fyrirtæki vel. Það mætti gera
miklu meira hér heima því við erum í
algjörum sérflokki.“
Morgunblaðið/Hari
Sóknarfæri Framkvæmdastjórinn segir mikinn skort á tæknimenntuðu fólki og að því standi til boða góð störf.
Milljarðasamningar í Rússlandi
Naust Marine er eitt
þeirra fyrirtækja sem
koma að gerð stærsta
togara Rússlands. Mikil
tækifæri eru fyrir ís-
lensk sérhæfð fyrirtæki í
þessu stóra landi.
Togarar Fyrirtækið hefur komið að gerð sex togara hjá Norebo í Rússlandi og gætu þeir orðið fjórir til viðbótar. Rússar vinna nú að því að endurnýja fiskiflota sinn.
Smíði Vindur Naust Marine sem voru að koma úr framleiðslu á Spáni.
Græjur Togvindustjórnunar-
kerfið er ekki síður mikilvægt
en togvindurnar sjálfar.