Morgunblaðið - 02.10.2019, Síða 28
28 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. OKTÓBER 2019
PON Pétur O. Nikulásson ehf.
Melabraut 21, 220 Hafnarfjörður | Sími: 580 0110 | pon.is
skotbómulyftara
AG línan frá Manitou býður meðal
annars upp á nýtt ökumannshús
með góðu aðgengi og útsýni.
HANNAÐUR TIL AÐ
VINNA VERKIN
NÝ KYNSLÓÐ
• DSB stjórntakkar
• JSM stýripinni í fjaðrandi armi
• Stýrð stjórnun og hraði á
öllum glussahreyfingum
• Virk dempun á bómu
Vegna mikillar eftirspurnar og fjölda áskorana hefur
Sinfóníuhljómsveit Íslands bætt við aukatónleikum
þann 8. nóvember með sveitinni ásamt Víkingi Heiðari
Ólafssyni og Daníel Bjarnasyni, en strax seldist upp á
tónleikana 7. nóvember. Tónleikarnir eru upphitun
fyrir tónleikaferð SÍ til Þýskalands og Austurríkis síð-
ar í mánuðinum. Á tónleikunum leikur Víkingur
píanókonsertinn Processions eftir Daníel Bjarnason
ásamt því að Radovan Vlatkovic flytur hornkonsert
nr. 3 eftir Mozart. Einnig leikur sveitin þætti úr Pétri
Gauti eftir Grieg og fimmtu sinfóníu Sibeliusar undir
stjórn Daníels.
Aukatónleikar með Víkingi og Daníel
Daníel Bjarnason
Arkitektafélagi Íslands barst nýver-
ið 1,5 milljóna króna höfundarréttar-
greiðsla frá Myndstefi fyrir verk
Guðjóns Samúelssonar, húsameist-
ara ríkisins. „Þessi peningur er
veruleg upphæð fyrir félagið og mun
það verja þessu fjármagni á sem
skynsamlegasta máta félagsmönn-
um og almenningi til góðs,“ segir
Gerður Jónsdóttir, framkvæmda-
stjóri félagsins, í tilkynningu til fjöl-
miðla. Þar kemur fram að þegar
Guðjón féll frá árið 1950 hafi hann
verið ókvæntur og barnlaus. Hann
lét eftir sig erfðaskrá þar sem fram
kemur að „það sem verður afgangs
af eignum hans skuli renna til Arki-
tektafélags Íslands og skal pening-
um varið í að útbreiða þekkingu á
húsagerðarlist sérstaklega í íslensk-
um anda“. Í tilkynningunni kemur
jafnframt fram að 25. apríl 2020
verði 70 ár liðin frá andláti Guðjóns,
en skv. 43. gr. höfundarlaganna helst
höfundarréttur í 70 ár. „Það þýðir að
áramótin 2020-2021 fellur höfundar-
réttur á verkum Guðjóns niður.“
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Kennileiti Guðjón Samúelsson
teiknaði Hallgrímskirkju.
Mikilvæg
gjöf Guðjóns
Bandaríska óperusöngkonan
Jessye Norman er látin, 74 ára að
aldri. Norman var ein virtasta og
dáðasta sópransöngkona tuttug-
ustu aldarinnar og hlaut m.a.
Grammy-verðlaun á ferli sínum.
Norman fæddist í Georgíu árið
1945 og var einn fárra þeldökkra
söngvara sem náðu frægð og frama
í óperuheiminum. Hún vakti fyrst
athygli fyrir glæsilegan söng og
túlkun á óperusviðum í Evrópu á
áttunda áratugnum og þreytti
frumraun sína í Metropolitan-
óperunni í New York árið 1983, að
því er fram kemur í frétt breska
ríkisútvarpsins, BBC, um andlát
hennar. Hún lést á sjúkrahúsi í New
York eftir að hafa glímt við lang-
varandi veikindi.
Norman byrjaði ung að syngja,
aðeins fjögurra ára í kirkjukór, og
hlaut skólastyrk á táningsaldri til
söngnáms við Howard-háskóla í
Washington. Þaðan hélt hún svo í
nám við Peabody-tónlistar-
háskólann og síðar Háskólann í
Michigan. Frumraun sína í óperu
þreytti hún í Berlín árið 1969 og
heillaði í kjölfarið heimsbyggðina
með einstakri raddfegurð sinni. Á
ferlinum hlaut hún fjölda verð-
launa, m.a. Grammy-verðlaun fyrir
ævistarfið og heiðursorðu franska
ríkisins.
Óperusöngkonan Jessye Norman látin
AFP
Hæfileikarík Jessye Norman var ein
merkasta óperusöngkona 20. aldarinnar.
Bleikur listamánuður hefst í Bústaðakirkju í dag og
stendur út október. Boðið verður upp á ýmsa listviðburði
með það að markmiði að minnast þeirra sem glímt hafa
við krabbamein og til stuðnings þeim sem standa í glím-
unni miðri. Í dag kl. 12.05 koma fram Jóhann Friðgeir,
Hlöðver Sigurðsson, Marteinn Snævarr og Örn Árnason
undir yfirskriftinni „Tenórar í stuði“.
Á sunnudaginn kemur Karlakórinn Tónbræður fram í
messu kl. 14 og flytur tónlist úr óperum og söngleikjum
þar sem mikið fer fyrir drama og ást. Sérstakur gestur
er Kristján Jóhannsson tenór. Um miðjan mánuð, sunnu-
daginn 13. október, verður haldin Listahátíð barnanna. Og í hádeginu 16.
október kl. 12.05 minnist Kammerkór Bústaðakirkju Atla Heimis Sveins-
sonar tónskálds.
Bleikur mánuður í Bústaðakirkju
Kristján
Jóhannsson
Ragnhildur Þrastardóttir
ragnhildur@mbl.is
Georgíski píanóleikarinn Luka
Okros, sem kallaður hefur verið
einn efnilegast píanóleikari sinnar
kynslóðar, heldur tónleika í Kalda-
lóni Hörpu föstudaginn 4. október
kl. 20.
Okros er búsettur í Lundúnum en
er um þessar mundir á tónleika-
ferðalagi. Hann mun meðal annars
troða upp í Hollandi, Eistlandi,
Hong Kong, Lúxemborg, Bretlandi
og Frakklandi á þessu ári.
Á tónleikunum í Hörpu mun
Okros leika „Impromptu op. 90“ eft-
ir austurríska tónskáldið Franz
Schubert, „Sex lítil stykki op. 16“
eftir Sergei Rachmaninoff og „Ung-
verska rapsódíu nr. 2 S244“ eftir
Franz Liszt.
Okros, sem er einungis 29 ára
gamall, hefur nú þegar unnið fyrstu
verðlaun í átta alþjóðlegum píanó-
keppnum og haldið tónleika víða um
heim.
Liszt í miklu uppáhaldi
Okros var staddur á Spáni þar
sem hann hélt fjölda tónleika þegar
blaðamaður náði tali af honum en
Okros reyndist vera hógvær og
glaðlyndur ungur maður þrátt fyrir
að vera orðinn heimsþekktur svo
ungur að árum.
Okros þekkir verkin þrjú sem
hann mun spila í Hörpu mjög vel og
hefur spilað þau margoft. „Ég valdi
verk Schuberts því það er eitt af síð-
ustu verkunum sem hann samdi og
mér finnst það bæði mjög drama-
tískt og fallegt. Þetta er mjög frægt
verk. Hvað varðar Rachmaninoff þá
er það yngra en verk Schuberts.
Það er sömuleiðis mjög fallegt og
frægt. Ég reyndi að sameina mjög
rómantíska tónlist og þekkt verk í
dagskránni. Lizst er svo í miklu
uppáhaldi hjá mér og þetta er eitt af
hans þekktustu verkum svo ég taldi
heppilegt að ljúka tónleikunum með
því,“ segir Okros.
„Ég er virkilega hrifinn af tíma-
bilinu sem verkin voru samin á og ég
tel að verkin komi á framfæri þeim
píanóleik sem ég vil að heyrist,“ seg-
ir Okros en öll verkin eru frá
nítjándu öld. Þó svo að tónleikarnir
sem Okros spilar á séu fjölmargir þá
segir hann tónleikaferðalagið alls
ekki það stærsta sem hann hefur
farið í. „Nei, þetta er í raun bara
venjuleg dagskrá. Núna fer ég
meira að segja heim til Lundúna á
milli tónleika og er ekki að spila á
hverju einasta kvöldi.“ Okros hefur
gefið út tvær plötur og vinnur nú að
plötu með sínum eigin tónsmíðum.
Innblásturinn í tónsmíðarnar
kemur meðal annars frá tónskáld-
unum sem hann spilar tónverk eftir
í Hörpu.
„Ég held að það sé óhjákvæmilegt
að sum verkanna sem ég vinn að
hafi áhrif á mínar tónsmíðar. Stund-
um eru verkin sem ég sem samt
mjög ólík því sem ég hef áður spilað.
Stundum sæki ég mér innblástur í
náttúruna og stundum í fólkið í
kringum mig. Það fer allt eftir því í
hvaða hugarástandi ég er. Sama
hvað gengur á eru tónsmíðarnar
mínar alltaf í rómantískum stíl,“
segir Okros.
Ísland númer 41 í röðinni
Hann kveðst spenntur fyrir því að
koma til Íslands en vonar að það
verði ekki of kalt. „Ég ákvað að spila
á Íslandi af margvíslegum ástæðum.
Ég hef heyrt margt gott um landið
og náttúru þess en ég er mjög hrif-
inn af fallegri náttúru. Ég hef sömu-
leiðis heyrt ýmislegt jákvætt um
Hörpu og það er frábært að fá tæki-
færi til að spila þar. Þetta er í fyrsta
skipti sem ég kem til Íslands en
landið verður það 41. sem ég hef
spilað í. Ég hef ferðast mikið í gegn-
um árin,“ segir Okros og hlær.
Hann hóf píanónám þegar hann
var fjögurra ára gamall og hélt
fyrstu einleikstónleikana sína ári
síðar. Okros lagði stund á bakkal-
árnám í tónlistarflutningi í Moskvu
og meistaranám í London Royal
College of Music.
Okros mun ræða við gesti tón-
leikanna eftir flutninginn.
„Eftir flesta tónleika er ég með
listamannaspjall og ég verð með
slíkt spjall eftir tónleikana í Hörpu
og það væri virkilega gaman að sjá
sem flesta þar.“
Tónleikarnir hefjast kl. 20 í
Kaldalóni. Miða má nálgast í miða-
sölu Hörpu, á Harpa.is eða á Tix.is.
Ljósmynd/Egor Matasov
Geðþekkur Luka Okros er viðkunnanlegur píanóleikari sem hefur getið sér gott orð á heimsvísu. Hann kveðst
þakklátur fyrir að fá tækifæri til að spila í Hörpu en Okros hefur spilað á mörgum virtustu tónleikastöðum heims.
„Alltaf í rómantískum stíl“
Luka Okros er 29 ára gamall og hefur nú þegar spilað í 40 löndum, unnið til átta verðlauna og sent
frá sér tvær plötur Okros mun spila verk frá nítjándu öld í Hörpu Hrifinn af Íslandi og Hörpu