Morgunblaðið - 10.02.2019, Blaðsíða 10
10 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. OKTÓBER 2019
HAGI ehf Stórhöfða 37 • 110 Reykjavík • S. 414-3700 • hagi@hagi.is • Hagi ehf HILTI
Hágæða
vinnuföt
í miklu úrvali
Sérmerkjum fyrir fyrirtæki
Verkfæri og festingar
Mikið úrval af öryggisvörum
Nú fástSnickers vinnuföt í
Það er ekkert því til fyrirstöðu að
jafna hlutfall kynjanna á sjó og
það gæti, að sögn Ástu Þorleifs-
dóttur, haft ýmis jákvæð áhrif á
lífið um borð, og m.a. bætt örygg-
isvitund ef kon-
ur eru í áhöfn.
Ásta er sér-
fræðingur hjá
samgöngu- og
sveitarstjórnar-
ráðuneytinu og
varaformaður
Siglingaráðs.
Hún tók þátt í
að skipuleggja
áhugaverða ráðstefnu sem haldin
var í síðustu viku: Konur og sigl-
ingar; hvað er svona merkilegt við
það? Ráðstefnan er haldin í tilefni
af átaksári Alþjóðasiglingamála-
stofnunarinnar sem miðar að því
að efla konur á sjó.
Þegar opinberar tölur eru skoð-
aðar má sjá að mjög hallar á kon-
ur í áhöfnum skipa, og á það
sennilega stærstan hlut í að skýra
kynbundinn launamun í greininni.
„Í gögnum Hagstofu kemur fram
að um 8,9% sjómanna eru kven-
menn, og er það raunar hærra
hlutfall en ég átti von á,“ segir
hún. „Er þá líka eftir að telja með
áhafnir fraktskipa og farþega-
skipa. Munurinn verður síðan enn
meiri þegar við skoðum hvernig
kynjahlutföllin eru í menntun
tengdri sjósókn. Af þeim sem hafa
lokið skipstjórnarnámi eru ekki
nema 1% konur, og aðeins 0,3%
útskrifaðra vélstjóra.“
Varð karlastarf við
vélvæðingu
Ásta bendir á að sjómennskan
hafi samt ekki alltaf verið karla-
starf og ekki ósennilegt að fyrr á
tímum hafi ríkt nokkurt jafnræði í
sjósókn enda verið að draga björg
í bú úr góðri matarkistu. Í sögu-
bókunum eru ófá dæmi um þekkta
kvenkyns skipstjóra, eða formenn
eins og starfið hét þegar róið var
til sjós á litlum árabátum. „Þetta
eru konur eins og Þuríður formað-
ur Einarsdóttir og Halldóra Ólafs-
dóttir sem einnig þótti sérlega
fiskin. Hún reri á Breiðafirði oft
með kvenáhöfn og voru jafnvel
sérsmíðaðir sérstakir kvennabátar
sem voru léttari og breiðari en
róðrarbátar almennt,“ útskýrir
Ásta.
Hlutföllin breytast síðan með
vélvæðingu flotans og segir Ásta
sennilegt að það hafi tengst þeim
breytingum sem urðu almennt á
lífi Íslendinga með þessum tækni-
framförum. „Það var sennilega af
lífsnauðsyn að konur sóttu sjó til
jafns við karla á öldum áður, en
með batnandi lífskjörum breyttust
heimilishagir landsmanna svo kon-
urnar gátu dvalið heima til að
gæta bús og barna á meðan karl-
arnir sinntu þessu krefjandi og oft
hættulega starfi.“
Svo virðist sem hlutfall kvenna í
sjómannastétt hafi náð botni í
upphafi 8. áratugarins og segir
Ásta að þá hafi aðeins mátt finna
tíning af kvenfólki á sjó, þá eink-
um í stöðum matsveina. „Það á
sér ýmsar skýringar hvers vegna
vélvæðing fækkaði konum, en svo
undarlegt sem það kann að virð-
ast nægir þar að nefna að konum
var óheimilt að stunda vél-
stjóranám allt fram til ársins
1974.“
Ójafnri kynjaskiptingu fylgja
ýmsir gallar, og nefnir Ásta þann
augljósasta; að launin á sjó eru
yfirleitt langtum betri en launin í
landi. „Hjá engum geira í íslensku
atvinnulífi er launamunur
kynjanna meiri en fiskveiðum og
-vinnslu. Í sjávarbyggðum eru
heildarlaun kvenna um helmingur
af heildarlaunum karla, sem stafar
m.a. af því að sá sem vinnur við
færibandið í fiskvinnslu í landi fær
greidd rétt rúmlega lágmarkslaun
á meðan sá sem vinnur sambæri-
leg störf við færiband um borð í
skipi fær greiddan aflahlut. Konur
á sjó fá nákvæmlega sömu laun og
karlar og má segja að þar ríki
jafnlaunastefna með aflahlutar-
kerfinu.“
Ásta bendir jafnframt á að
hærri tekjur snúist um meira en
eintóma peninga. Auknar tekjur
veiti konum aukinn styrk og meira
sjálfstæði, meiri áhrif innan síns
nærsamfélags og greiði þeim leið
að alls kyns tækifærum.
Gefa körlunum ekkert eftir
En hvað er það þá sem veldur
að ekki eru fleiri konur sem sækja
sjóinn? Þeim er varla meinað um
að fá pláss ef þær sækjast eftir
því, eða hvað? Ásta segir raunar
til dæmi þess að þeim konum sem
vilja starfa við fiskveiðar hafi ver-
ið mismunað, og jafnvel hlátur
heyrst frá hinum enda línunnar
þegar þær hafa hringt í hvert
útgerðarfélagið á fætur öðru. En
svo er líka hitt, að konur kunna að
sýna starfi sjómannsins minni
áhuga af því þær telja vinnuna
hættulegri og erfiðari en hún er.
Líklegasta skýringin er þó sú, að
mati Ástu, að fyrirmyndir skortir.
„Það kann að vera að á síðustu öld
hafi mörg handtökin um borð kall-
að á mikinn líkamlegan styrk, en
vinnuumhverfið er allt annað á
tæknivæddum skipum dagsins í
dag. Þar sem konur hafa fengið að
komast að hefur þeim gengið vel
og þær ekki verið neinir eftirbátar
karlanna. Man ég eftir sögu af
einni sem var borið það á brýn að
vera algjör aumingi, svo hún tók
sig til og si svona dró þvert yfir
þilfarið toghlera sem alla jafna var
færður milli staða með krana. Lík-
amlegt atgervi fer svo að skipta
enn minna máli í stöðum yf-
irmanna, þegar komið er upp í
stöðu stýrimanns eða skipstjóra
sem verja nær öllum vinnutíma
sínum í brúnni. Það er heldur ekk-
ert því til fyrirstöðu að konur séu
vélstjórar í nútíma tæknivæddum
vélarrýmum.“
Hvað með andrúmsloftið um
borð? Fer ekki það orðspor af sjó-
mönnum að vera hálfgerðir durgar
og klámhundar? „Þar sem konur
hafa verið í áhöfn hefur yfirleitt
verið samhljómur um að nærvera
þeirra hafi haft góð áhrif, gert
aðra áhafnarmeðlimi kurteisari í
samskiptum sín á milli og orðið
þeim hvati til að huga betur að
sjálfum sér. Það sem mest munar
um er samt að með konur um borð
virðist sem dragi úr áhættuhegðun
hjá körlunum,“ segir Ásta. „Í frá-
sögnum kvenna má líka iðulega
heyra að það geti verið erfitt ef
aðeins ein kona er um borð, en
andrúmsloftið gjörbreytist um leið
og þær eru orðnar tvær eða fleiri.
Virðist það eiga við um skip eins
og aðra vinnustaði að jafnari
blöndun kynjanna skapar betri
anda heilt yfir og hefur þau áhrif
að fólk annast sjálft sig betur,
sem má svo álykta að hafi jákvæð
áhrif á afköst, framlegð og starfs-
ánægju.“
Að mati Ástu er besta leiðin til
að fjölga konum á sjó að gera
fyrirmyndirnar sýnilegri, og
kynna ungum stúlkum það sem
raunhæfan og góðan kost að
leggja fyrir sig sjómennsku, og að
sjálfsögðu veita þeim færi á skips-
rúmi. „Við þurfum að byrja
snemma og kynna grunn-
skólabörnum miklu betur mögu-
leikana sem felast í námi í vél-
stjórn eða skipstjórn,“ segir hún
og vísar til góðs árangurs herferð-
arinnar #kvennastarf sem Samtök
iðnaðarins, Tækniskólinn og fleiri
efndu til fyrir tveimur árum til að
reyna að vekja áhuga stúlkna á
iðnnámi. „Það breytir strax svo
miklu þegar stúlkur hafa konur á
sjó sem fyrirmyndir; sýnir þeim
hvað er hægt og hvetur þær til að
láta ekkert stöðva sig.“
Blönduð áhöfn boðar gott
Ásgeir Ingvarsson
ai@mbl.is
Auk þess að vera engir eft-
irbátar karla um borð í nú-
tímaskipum þá virðist
sennilegt að með konur í
áhöfn megi reikna með að
skip verði á margan hátt
betri og öruggari vinnu-
staðir.
Ásta
Þorleifsdóttir
Auka þarf áhuga
kvenna á sjósókn og
verða fyrirmyndirnar að
vera sýnilegri.