Morgunblaðið - 10.02.2019, Blaðsíða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. OKTÓBER 2019SJÓNARHÓLL
KRISTINN MAGNÚSSON
Á rétt um einu ári hefur efnahagsástandið hér álandi breyst talsvert til hins verra. Í stað hag-vaxtar hefur tekið við samdráttur. Breytingin
hefur komið niður á bæði heimilum og fyrirtækjum,
m.a. í auknu atvinnuleysi og samdrætti í tekjum.
Á sama tíma og stjórnvöld hafa nýtt ríkisfjármálin
til að vinna á móti niðursveiflunni hefur peninga-
stefnunefnd Seðlabankans lækkað stýrivexti bankans.
Aðilar vinnumarkaðarins náðu kjarasamningum á al-
mennum vinnumarkaði á fyrri hluta árs með áherslu á
að halda verðbólgu lágri. Hagstjórnaraðilar hafa þann-
ig gengið í takt í því verki að milda niðursveifluna og
tryggja stöðugleika, sem er forsenda áframhaldandi
velmegunar.
Það er fagnaðarefni að hagstjórnaraðilar gangi í
takt í hagstjórnaraðgerðum sín-
um. Það er einnig fagnaðarefni að
sá taktur er nú betri en oftast áð-
ur í íslenskri hagsögu. Það er hins
vegar ekki nóg að ganga í takt
heldur verður takturinn að vera
af áræðni og nægjanlega hraður
til að mýkja efnahagssamdráttinn
og skapa grundvöll fyrir nýju
hagvaxtarskeiði.
Huga þarf að öllum þeim þátt-
um sem kunna að mynda grunn
að nýju hagvaxtarskeiði og hjálpa
fyrirtækjum og heimilum að
mæta efnahagssamdrættinum. Það er mikilvægt að
forgangsröðun í opinberum fjármálum endurspegli þá
meginþætti sem líklegastir eru til að efla samkeppn-
ishæfni Íslands og undirbyggja þar með bætt lífskjör
landsmanna litið til framtíðar.
Ánægjulegt er að í frumvarpi ríkisstjórnarinnar til
fjárlaga sem nú er til umræðu á Alþingi er áhersla á
nýsköpun, menntun og fjárfestingu í innviðum. Einnig
eru þar áform um umbætur í starfsumhverfi fyr-
irtækja. Ráða þessir þættir miklu um samkeppn-
ishæfni Íslands til framtíðar. Verðmætasköpun er drif-
in áfram af vel menntuðu og hæfileikaríku vinnuafli,
traustum innviðum sem uppfylla þarfir samfélagsins
og skilvirku, hagkvæmu og stöðugu starfsumhverfi.
Mikilvægt er að gera réttu hlutina rétt. Gæta þarf
að því að það fjármagn sem sett er í einstök málefni
skili sér í bættri samkeppnishæfni og aukinni inn-
lendri verðmætasköpun fyrirtækjum og heimilum til
heilla. Mikilvægt er að huga að skilvirkni og kostn-
aðarlágmörkun í rekstri hins opinbera. Í því sambandi
þarf að auka áherslu á árangur útgjaldaþátta hjá hinu
opinbera. Með bættum árangurstengingum og for-
gangsröðun má tryggja betri nýtingu á skattfé lands-
manna, losa um framleiðsluþætti, auka framleiðni og
skapa svigrúm til skattalækkana.
Við þessar aðstæður er hættulegt að ofmeta væntan
viðsnúning hagkerfisins, eins og virðist því miður vera
gert í spám sem undanfarið hafa verið lagðar til
grundvallar ákvarðanatöku. Í þessum spám er gert
ráð fyrir að eftir tiltölulega mildan samdrátt í hagkerf-
inu taki hagvöxtur nokkuð kröftuglega við sér á næsta
ári. Forsendur þessa efna-
hagsbata sem spárnar gera
ráð fyrir eru býsna bjartsýnis-
legar og líklegt hlýtur að telj-
ast að frekari hagstjórnar-
aðgerða sé þörf ef
viðsnúningur hagkerfisins á að
vera hraður hér á landi á
næstunni.
Laun á vinnustund eru há
hér á landi í alþjóðlegum sam-
anburði. Laun hafa á síðustu
árum hækkað langt umfram
innlendan framleiðnivöxt og
laun í löndum helstu keppinauta innlendra fyrirtækja.
Samkeppnisstaðan hefur því versnað til muna á við
önnur lönd.
Staðan er umhugsunarefni m.a. í ljósi þess að fyrir-
tækin þurfa nú að takast á við minni innlenda eftir-
spurn og hagvöxt. Hún er einnig umhugsunarefni í
ljósi þeirrar áleitnu spurningu með hvaða hætti má
knýja áfram hagvöxt næstu missera. Þörf er á að
þessari stöðu sé mætt með því að dregið sé úr álögum
á íslensk fyrirtæki.
Mikilvægt er að tryggja íslenskum fyrirtækjum
samkeppnishæfni þannig að framleiðni vinnuafls standi
undir þessum launum og í leiðinni góðum efnahags-
legum lífsgæðum hér á landi. Réttar aðgerðir í opin-
berum fjármálum og peningamálum skipta þar sköp-
um.
HAGFRÆÐI
Ingólfur Bender
aðalhagfræðingur
Samtaka iðnaðarins
Að gera það rétta rétt
”
Huga þarf að öllum
þeim þáttum sem kunna
að mynda grunn að nýju
hagvaxtarskeiði og
hjálpa fyrirtækjum og
heimilum að mæta
efnahagssamdrætt-
inum.
FORRITIÐ
Fólkið á bak við Beeken veit að
markaðslínurit gera aðeins tak-
markað gagn. Það getur verið fróð-
legt að sjá hvernig verðmæti fyrir-
tækis hefur sveiflast upp og niður
frá degi til dags eða frá ári til árs, en
það sem vantar á línuritið er hverjar
forsendurnar voru fyrir því að hluta-
bréfaverðið lækkaði eða hækkaði. Sá
sem ekki veit hvað olli því að verðið
rauk upp, eða þaut niður, er engu
nær um það hvernig reksturinn hef-
ur gengið eða hvað það er sem hefur
mótað almenningsálitið.
Það er einmitt það sem starf
markaðsgreinenda gengur út á; að
liggja yfir fréttum og ná að tengja
saman hvernig atburðir dagsins
móta verðbréfamarkaði. Beeken
gerir þetta á sjálfvirkan hátt, en for-
ritið skimar helstu fréttaveitur og
tengir það sem þar er sagt við þróun
verðbréfa stakra fyrirtækja.
Framsetningin er þannig að í
einni svipan er hægt að átta sig vel á
þróuninni yfir langt tímabil, en hug-
búnaður Beeken er svo snjall að
hann getur m.a. gert greinarmun á
því hvort orðalag frétta er jákvætt,
neikvætt eða hlutlaust.
Í fyrstu nær þjónustan aðeins yfir
bandarísk og kanadísk hlutabréf en
til stendur að bæta erlendum gjald-
miðlum og rafmyntum við. ai@mbl.is
Tengja saman línurit
og helstu fréttir