Morgunblaðið - 18.10.2019, Blaðsíða 19
Morgunblaðið/Ómar
Isamu Noguchi hannaði þetta borð 1944 en það er mjög lýsandi fyrir þennan stíl. Það fæst í Pennanum.
Tímalaus hönnun í gegnum kynslóðir
Í viðtali við New York Times frá 2016 gáfu
nokkrir hönnuðir álit sitt á þessum stíl og yf-
irtöku hans á heimilum vestanhafs á nýrri
öld. Einhverjir sögðust þreyttir á honum en
tóku fram að húsgögnin væru tímalaus og
allir áttu þeir að minnsta kosti eitt eða tvö
húsgögn frá þessum tíma heima hjá sér.
Einn sagði að hönnunin væri tímalaus og
fullkomin fyrir nútímaheimili, í bland við
aðra stíla.
Ef litið er á sameiginleg einkenni heimila í
bókinni og þess sem má telja algengt í dag ber
helst að nefna skandinavíska hönnunarstóla úr
við og leðri, plöntur, tekkhúsgögn og formuð
hangandi ljós í opnum stofum. Helsti sjáanlegi
munurinn er líklegast samsetningin og svo
samhengið sem íbúðir þessar eru byggðar í.
Íbúðaeigendur í dag eru óhræddir við að
blanda saman gömlu og nýju.
Í stuttu máli: Það þarf kannski ekki að leita
langt yfir skammt til að fá innblástur fyrir
heimilið – mögulega bara í albúmið hjá ömm-
um okkar.
Hansa-hillur eru ekki bara vinsælar hjá ungu fólki á Íslandi
heldur um allan heim.
Leikmynd úr sjónvarpsþáttunum Mad Men. Stutt leit á netinu færir
þér greinar á við: „Svona stíliserar þú heimili þitt í Mad Men-stíl.“
FÖSTUDAGUR 18. OKTÓBER 2019 MORGUNBLAÐIÐ 19
Helgi Jón Harðarson
Sölustjóri
Andrea Guðrún Guðlaugsd.
Löggiltur fasteignasali
Freyja Sigurðardóttir
Löggiltur fasteignasali
Hilmar Þór Bryde
Löggiltur fasteignasali
Hlynur Halldórsson
Löggiltur fasteignasali
Magnús Emilsson
Löggiltur fasteignasali
Ágústa Hauksdóttir
Löggiltur fasteignasali
Hildur Loftsdóttir
Ritari / Skjalavinnsla
TRAUST FASTEIGNASALA Í 36 ÁR