Morgunblaðið - 18.10.2019, Page 20
Fasteignaljósmyndun.is
Í búðirnar eru 30-78 fm að stærð og eru allar mjög vandaðar ogvel skipulagðar.Íbúðirnar eru fullbúnar með fallegum innréttingum, gólf-
efnum, uppþvottavél og ísskáp. Um er að ræða sprautulakkaðar
innréttingar frá danska framleiðandanum HTH, Arens og frá
Cubo design sem selt er í Parka og eru eldhústækin frá AEG. Öll
blöndunartæki eru frá Grohe og eru flísar og parket frá Parka.
Eins og sést á myndunum er hver fm nýttur til fulls og allt gert
til þess að það fari sem best um íbúana.
Umhverfið í kringum blokkirnar er svolítið eins og fólk sé kom-
ið til útlanda en margar íbúðanna eru með stórum þakgörðum og
á milli húsanna frá Hverfisgötu og Laugavegi liggur ný göngu-
gata sem ber heitið Kasthústígur en þar eru skemmtileg versl-
unarpláss.
Alls eru þetta 72 íbúðir í þremur lyftuhúsum með sameigin-
legum bílakjallara með innakstri frá Hverfisgötu.
Splunku-
nýtt í 101
Ef þig dreymir um að búa í miðbæ Reykjavíkur
og nennir alls ekki að gera upp húsnæði með
tilheyrandi kostnaði þá eru íbúðirnar við Brynju-
reit, Hverfisgötu 40-44 og Laugaveg 27a og b
eitthvað fyrir þig.
Marta María | mm@mbl.is
Öll húsgögnin í sýningaríbúð-
inni eru úr Húsgagnahöllinni.
Hér má sjá huggulegan
flauelssófa, hringlaga borð og
mottu sem fer allt vel saman.
Innréttingar eru vandaðar en það
sem er nýtt og spennandi er að
uppþvottavél og ísskápur fylgir
með í kaupunum. Eina sem eigand-
inn þarf að gera er að koma með
húsgögnin sín og kaupa í matinn.
Gott skápapláss er í
svefnherberginu.
Hvítar innrétt-
ingar eru allt-
af klassískar.
20 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. OKTÓBER 2019