Morgunblaðið - 18.10.2019, Síða 22

Morgunblaðið - 18.10.2019, Síða 22
H úsið er 265 fm að stærð og var byggt1978. Búið er að endurnýja húsið mikiðen Rut Káradóttir teiknaði nýtt skipu- lag á eldhús, baðherbergi, gestasalerni og fleira fyrir um áratug. Eins og sést á myndunum er hönnun Rutar Káradóttur, sem er einn virtasti innanhússarkitekt Íslands, sígild og klassísk og stenst tímans tönn. Ekki er víst að öll fötin sem við keyptum okkur 2009 hafi elst jafnvel. Hægt er að skoða húsið nánar inni á www.mbl.is/fasteignir Baðherbergið er stílhreint með fallegum flísum. Borðplöturnar eru með hnausþykkum granít-stein. Hönnun Rutar eldist betur en föt þess tíma Við Ljárskóga 27 í Breiðholtinu stendur afar smekklega inn- réttað einbýli. Umhverfið í kring- um húsið er mjög gróið og er húsið næstinnsta húsið í botn- langa þannig að bílaumferð er af skornum skammti. Marta María | mm@mbl.is Fasteignaljósmyndun.is Eldhúsið hefur svo sannarlega stað- ist tímans tönn. Stóri skápavegg- urinn er klassískur og eyjan er rúm- góð með tvískiptum borðplötum. Það er svo mikið pláss í eldhúsinu að það er vel hægt að koma fyrir stóru borðstofuborði. Í húsinu er vel búinn tækjasalur og því eng- in afsökun að nenna ekki að hreyfa sig. Tveir Svanir eftir Arne Jacobsen, sem fást í EPAL, fegra hvert heimili. Takið eftir skápnum á bak við? Hann er sér- smíðaður og alveg í anda Rutar Kára. Gamli tíminn. Orkumælir eins og flestir þekkja hann. Orkubú Vestfjarða og HS veitur hafa líka sett upp álíka mæla hjá sér. Arnaldur segir þó húseigendur aldrei sleppa alveg við heimsóknir heim því það er lögboðin skylda veitufyrirtækjanna að fylgjast með mælunum og þó að hægt verði að fjarlesa þá þarf að líta á þá öðru hvoru. Það er því mikilvægt að aðgengi að mælunum sé áfram gott. Rauntímamælingar framtíðin Arnaldur nefnir annan kost við nýju mælana sem er ekki síður spennandi. „Á Norðurlöndum er neytendum boðið upp á rauntímamælingar og mismunandi verðskrár eftir því hvenær sólarhringsins neyslan er. Þessir mælar bjóða upp á slíkar mælingar.“ Arnaldur segir Norðurorku ekki enn hafa mótað sér stefnu í þessum málum en hann telur víst að í framtíðinni muni íslensk veitufyrirtæki bjóða upp á mismunandi neysluverðskrár í anda þess sem önnur lönd hafa verið að gera. „Við tökum eitt skref í einu. Fyrsta skrefið er að koma þessum mælum smám saman upp.“ H úseigendur þekkja flestir að þurfa að hleypastarfsfólki frá veitufyrirtæki inn á heimili sitt tilþess að lesa á hita- og rafmagnsmæla. Þessar heimsóknir eru gerðar reglulega, bæði til að athuga hvort mælarnir virki ekki örugglega rétt og eins til þess að fá álestur sem síðan er borinn saman við áætlaðar neyslutöl- ur og stemmdur af. Í nálægri framtíð má þó gera ráð fyrir því að þessum heimsóknum fækki því veitufyrirtæki lands- ins hafa í auknum mæli tekið upp nýja gerð af orkumæl- um sem hægt er að fjarlesa. „Þessir nýju mælar hafa ýmsa kosti, meðal annars þann að þá er hægt að fjarlesa. Gögnum er þá safnað með sérstökum fjarlestrarbúnaði, í þéttbýli með föstum búnaði en í dreifbýli keyrir starfs- maður einfaldlega um sveitir með tölvu í bílnum og nær merkjum frá mælunum,“ segir Arnaldur Birgir Magnús- son, verkefnisstjóri upplýsingakerfa veitna hjá Norður- orku, en Norðurorka er eitt þeirra fyrirtækja sem smám saman hafa verið að skipta út eldri mælum í stað þessarra nýju. Önnur orku- og veitufyrirtæki á borð við Veitur, Öðruvísi orkumælar Hingað til hafa starfsmenn veitufyrirtækja reglulega gengið í hús og lesið á hita- og rafmagnsmæla. Í framtíðinni mun þessi vinna heyra sögunni til og neyslutölur heimilanna verða fjarlesnar. Snæfríður Ingadóttir | snaeja@gmail.com Nýi tíminn. Orkumælir sem hægt er að fjarlesa. 22 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. OKTÓBER 2019

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.