Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - Jan 2019, Page 6

Fréttir - Eyjafréttir - Jan 2019, Page 6
6 | Eyjafréttir | Janúar 2019 Eldmóður, áhugi og dugn- aður eru orð sem vel er hægt að nota um Ólöfu Aðalheiði Elíasdóttur. Hún hefur helgað börnum og unglingum sinn 40 ára starfsferil, hvort sem það er í gegnum þjálfun eða kennslu og hún er hvergi nærri hætt. Hún var ein af stofnendum Fimleikafélagsins Ránar og Íþróttafélagsins Ægis, þjálfari hjá Tý, Þór og síðar ÍBV- íþróttafélagi. Kenndi í Barna- skóla og Hamarsskóla,var partur af stjórnunarteymi Grunnskóla Vestmannaeyja eftir sameiningu. Hún hefur komið víða við í skólanum verið, íþróttakennari, um- sjónarkennari, danskennari, vélritunarkennari, jógakennari, deildarstjóri og endaði sem aðstoðarskólastjóri. Dagarnir hennar hafa iðulega verið langir og oftar en ekki hefur Óla Heiða, eins og hún er alltaf kölluð, unnið meira en það sem um var samið. Óla Heiða er elst fjögurra systkina, fædd og uppalin í Vestmanna- eyjum. Hún tók hefðbundna skólagöngu í Eyjum, lauk þar landsprófi við Gagnfræðaskóla Vestmannaeyja, leiðin lá síðan í Verslunarskóla Íslands þar lauk hún Verslunarskólaprófi. Hún var 18 ára þegar hún komst inn í Íþrótta- kennaraskóla Íslands á Laugarvatni og þar kynntist hún eiginmanni sínum Björgvini Eyjólfssyni. Eftir útskrift var aldrei neitt annað í stöðunni hjá Ólu Heiðu en að flytja heim til Eyja og fékk Björgvin að vita af því plani leið og þau fóru að stinga saman nefjum. Hjónin eiga tvo syni, þá Elías Inga og Eyþór. lítið af æfingum fyrir stelpur Hjónin fluttu saman til Vest- mannaeyja eftir nám árið 1978, þá reyndar sem kærustupar og aðeins rúmlega ein íþróttakennara- staða laus. „Við fengum reyndar bæði að kenna íþróttir, en ég fékk meiri íþróttakennslu, hann fór því að kenna meira bóklegt, kenndi flottum hópi krakka stærðfræði og kristinfræði sem þá voru kenndar.“ Þarna er Óla Heiða aðeins tvítug en þrátt fyrir ungan aldur gaf hún ekkert eftir, „þegar ég kom til baka var ég með mikinn eldmóð og tók að mér mikla vinnu. Á þessum tíma var til dæmis mjög lítið af æfingum fyrir stelpur, kannski tvær, þrjár æfingar í viku. Ég fór strax að þjálfa handbolta, æfði og keppti reyndar líka sjálf. Við þurftum að berjast fyrir að fá fleiri æfingatíma fyrir stelpurnar.“ rifjar Óla Heiða upp. Fimleikafélagið rán Á þessum tíma byrjaði Óla Heiða líka að þjálfa fimleika sem þá voru kenndir innan veggja skólans og öllum frjálst að mæta. „Fyrst vorum við bara sýningarhópur, ég var með nokkrar mjög duglegar og áhugasamar stelpur. Við sýndum á skólaskemmtunum og á hinum ýmsu viðburðum í bænum. Hópur- inn stækkaði fljótt, þá fórum við af stað með stórar vorsýningar sem enn í dag eru á dagskrá fimleika- félagsins. En svo fóru kröfurnar að verða meiri og við fórum að taka þátt í mótum, sem varð til þess að ákveðið var að stofna félag í kringum fimleikana. Það var mjög mikill áhugi hjá stelpunum, við vorum með mjög duglega foreldra með okkur og án þeirra hefði þetta ekki verið hægt. Ég verð svo barns- hafandi af Eyþóri árið 1987 og þá fer ég að draga mig út úr fimleik- unum,“ sagði Óla Heiða. Íþróttafélagið ægir Þegar Ólöf Margrét Magnúsdóttir sérkennari kom heim úr sérkenn- aranámi frá Noregi var hún með hugmynd sem hún viðraði við Ólu Heiðu. „Hún hafði samband við mig og lagði til að við byrjuðum með sérstaka íþróttatíma fyrir nem- endur með sérþarfir, ég tók bara vel Ólöf Aðalheiður hlaut Fréttapýramídann fyrir framlag sitt til samfélagsins: Þakklát fyrir að hafa verið partur af þessu öllu :: Bæjarbúar geta verið mjög stoltir af skólanum okkar SARA SjöfN GREttiSdóttiR sarasjofn@eyjafrett ir. is

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.