Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - jan 2019, Qupperneq 18

Fréttir - Eyjafréttir - jan 2019, Qupperneq 18
18 | Eyjafréttir | Janúar 2019 Örvar Omrí Ólafsson, löggiltur endurskoðandi, var nýverið ráðinn til endurskoðunar- og ráðgjafafyrirtækisins PwC í kjölfar ákvörðunar fyrirtækis- ins að opna starfsstöð í Vest- mannaeyjum. Örvar er fæddur árið 1979 og hlaut réttindi til endurskoðunarstarfa árið 2016. Örvar hefur starfað við endurskoðun frá árinu 2014 en þar áður starfaði hann sem fjármálastjóri hjá ferðaþjón- ustufyrirtækinu Kynnisferðum. Örvar er búsettur í Vest- mannaeyjum en þangað flutti hann árið 2015 með konu sinni Kolbrúnu Kjartansdóttur ásamt þremur börnum þeirra. Kolbrún starfar sem leikskóla- kennari á leikskólanum Kirkju- gerði, er fædd og uppalin í Vestmannaeyjum og er dóttir Kjartans Bergsteinssonar, Kjartans á Múla. Eftir að hafa búið á höfuðborgarsvæðinu í nokkur ár toguðu eyjarnar sterkt í Kolbrúnu og varð það úr að fjölskyldan ákvað að flytja til Vestmannaeyja. Utan dagvinnu þykir Örvar liðtækur gítarleikari og hefur gaman af tónlist almennt. PwC er rótgróið fyrirtæki á sviði endurskoðunar og ráðgjafar sem varð til árið 1998 við samruna fyrirtækjanna Price Waterhouse og Coopers & Lybrand. Í dag er PwC eitt stærsta sérfræðinga- og ráðgjafafyrirtæki (e. professional services) í heiminum með yfir 250 þúsund starfsmenn og er í hópi hinna svonefndra stóru fjóru (e. Big 4) í sínum geira. PwC á Íslandi er íslenskt fyrirtæki sem er hluti af alþjóðlegu neti sjálfstæðra fyrir- tækja sem aðstoðar viðskiptavini sína við að auka verðmæti, stjórna áhættu og bæta árangur sinn. Í dag hefur fyrirtækið sjö starfsstöðvar víðsvegar um land. Hvað varð til þess að félagið ákvað að opna starfsstöð í Vestmannaeyjum? Stefna PwC er að bjóða þjónustu í auknum mæli á landsbyggðinni og til þeirra atvinnugreina sem þar er að finna þar sem nálægð við viðskiptavini skiptir máli. Þess má til gamans geta að félagið var með skrifstofu hér í Vestmanna- eyjum frá árinu 1970, en þeirri skrifstofu veitti Sigurður Jónsson forstöðu fyrst um sinn. Sigurður féll frá árið 1971 og tók þá Emil Theodór Guðjónsson, einn eigenda félagsins, við daglegri umsjón og veitti starfsstöðinni forstöðu. Í gosinu 1973 fluttist skrifstofan til Reykjavíkur og var viðskipta- vinum þjónað þaðan enda margir þeirra með starfsemi utan Vest- mannaeyja. Á vormánuðum 1974 fluttist reksturinn síðan aftur til Eyja og heimamenn voru ráðnir til bókhaldsstarfa á skrifstofunni. Ágúst Karlsson, sem lengi hafði verið starfsmaður félagsins í Eyjum, keypti reksturinn á árinu 1976 og sinnti bókhaldsþjónustu fyrir heimamenn um árabil,“ sagði Örvar. Í fyrra ákváðu stjórnendur PwC svo að opna starfsstöð í Vest- mannaeyjum að nýju og var þeirri ákvörðun hrint í framkvæmd með ráðningu Örvars. Hefðbundin endurskoðunarþjónusta „Í lok nóvember á síðasta ári tók félagið á leigu skrifstofurými í Sýslumannshúsinu að Heiðarvegi 15. Skrifstofan er staðsett á annarri hæð þar sem Tollstjóri var áður með skrifstofur. Líkt og Eyjamenn þekkja er fyrir í húsinu skrifstofa Sýslumanns, skrifstofa Ríkis- skattstjóra og Héraðdóms Suður- lands svo að mörgu leyti fellur sú starfsemi sem fyrir er í húsinu vel að starfsemi PwC, en PwC er reglulega í samskiptum við opinbera aðila fyrir hönd sinna viðskiptavina. Til viðbótar við hefðbundna endurskoðunarþjónustu veitir félagið þjónustu á sviði innri endurskoðunar, fyrirtækjaráðgjafar, skatta- og lögfræðiráðgjafar ásamt því að veita hefðbundna bókhalds- þjónustu og launavinnslu, fram- kvæma jafnlaunaúttektir sem og aðra sértækari þjónustu í tengslum við bókhald, reikningsskil og rekstur fyrirtækja. Starfsmenn félagsins á Íslandi eru um 100 talsins með víðtæka þekkingu og reynslu á þeirri þjónustu sem PwC býður fram,“ sagði Örvar. Hlökkum til að taka þátt í uppbyggingu samfélagsins Sjáið þið mörg tækifæri fyrir fyrir- tækið í Vestmannaeyjum? „Alger- lega. Það er mat stjórnenda PwC að fjölmörg tækifæri felist í því að opna starfsstöð í Vestmannaeyjum. Takist vel til standa vonir okkar til þess að þetta verði bæði heima- mönnum og fyrirtækjum í Eyjum til heilla, ekki síður en PwC. Líkt og Eyjamenn þekkja best sjálfir er samfélagið í Vestmannaeyjum einstakt og einkennist af dugnaði og áræðni þeirra sem þar búa. Við hlökkum til að taka þátt í áframhaldandi uppbyggingu þess samfélags,“ segir Örvar að lokum. PWC hefur opnað starfstöð í Vestmannaeyjum: Stefnan er að bjóða þjónustu í auknum mæli á landsbyggðinni ” Líkt og Eyjamenn þekkja best sjálfir er samfélagið í Vestmanna-eyjum einstakt og einkennist af dugnaði og áræðni þeirra sem þar búa. Við hlökkum til að taka þátt í áframhaldandi uppbyggingu þess samfélags SARA SjöfN GREttiSdóttiR sarasjofn@eyjafrett ir. is

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.