Morgunblaðið - 19.11.2019, Side 4

Morgunblaðið - 19.11.2019, Side 4
4 | MORGUNBLAÐIÐ Viðgerðir og sala á alternatorum og startörum í flestar gerðir bíla, báta og vinnuvéla. Hjólastillingar, úrval af ljósum á kerrur og eftirvagna, kerrutenglar, kaplar, perur og tengi. Sendum um allt land. www.pgs.is pgs@pgs.is s 586 1260 Viðarhöfði 1, 110 Reykjavík Alternatorinn eða startarinn bilaður? Vík verkstæði Funahöfða 17, 110 Reykjavík Löggilding, skoðun og ísetningar á ökuritum og hraðatakmörkurum Ágúst Magni, sími 896 1083, agustm@vikverkstaedi.is, vikverkstaedi.is Endilega hafið samband og sjáið hvort við getum ekki leyst ykkar mál. Mælar á allar gerðir vagnaVið erum með nýjustu og fullkomnustu tæki sem boðið er upp á frá VDO til að mæla og stilla allar gerðir af digital og analong ökuritum Það er eins og það sé mönnum í blóð borið að reyna við met af öllu tagi. Margt af því finnst mönnum kannski fáfengilegt en slíkar vangaveltur lét Bretinn Guy Martin sem vind um eyru þjóta. Martin þessi gerði sér lítið fyrir og ók JCB Fastrac-dráttarvél á 167 km hraða sem var hraðamet fyrir vinnuvélar í þessum flokki. Nú síðla haustsins gerði hann gott betur við mettilraunir á Elvington-flugbraut- inni í Englandi. Nú brúkaði hann sérlega undir- og útbúna JCB Fastrac Two- dráttarvél til hraðakstursins. Og náði 217 km/klst. meðalhraða eftir að hafa ekið mælikaflann til beggja átta. Í annarri ferðinni sló nál hraðamælanna upp í 247 km/klst. en það er sem næst flugtakshraði margra farþegaflugvéla. Metin hef- ur hann fengið skráð og við- urkennd af metabók Guinness. agas@mbl.is Guy Martin við traktorinn góða, kampakátur eins og vera ber. Hraðskreiðasti traktor í heimi er mættur Hversu hratt ætti að vera leyfilegt að aka af stað í al- mennri umferð? Það þykir ekki amalegt að ná upp í hundraðið á 4 sekúndum, og ævintýri að fara niður fyrir 3 sekúndur. En hvað ef bíllinn nær 100 km hraða á 1,9 sekúndum, eins og rafmagns-ofurbíllinn Aspark Owl? Er það yfir höfuð skynsamlegt? Um japanska smíði er að ræða og þó að Aspark Owl þyki ekki lauflétt bifreið, eða um 1,9 tonn, þá er hún svo lág að aðeins 99 cm eru frá malbiki upp að hæsta punkti. Fyrir vikið er vindmótstaðan lítil sem engin, en ökumannsstaðan líklega svipuð og í Form- úlu 1 kappakstursbíl. Rafhlaðan getur geymt 64 kWh og á að duga í allt að 450 km akstur. Sennilega styttir það drægið töluvert ef ekið er á hámarkshraða, en drifbúnaðurinn getur framkallað allt að 2.012 hestöfl. Aspark Owl verður smíðaður í 50 eintökum og þurfa áhugasamir að borga 3,2 milljónir dala fyrir bílinn, jafnvirði tæplega 400 milljóna króna. ai@mbl.is Ökumaður situr mjög lágt, líklega eins og í Formúlu 1-bíl. Hann hefur útlit- ið með sér og vænghurðirnar ekkert slor. Aspark fer út fyrir öll velsæmismörkVarla þarf að kynna ör-far- artækjaframleiðandann Segway fyrir lesendum. Fyrirtækið þótti marka kaflaskil í samgöngu- sögunni með nettum tveggja hjóla einmennings-farartækjum sem gátu haldið jafnvægi á eigin spýt- ur. Segway-skutlan náði þó aldrei þeirri almennu útbreiðslu sem að var stefnt og er helst hægt að sjá þetta farartæki í notkun á risa- stórum vinnustöðum þar sem fólk þarf að komast hraðar milli svæða en hægt er á tveimur jafnfljótum, og einnig á vinsælum áfangastöð- um ferðamanna þar sem hentugt þykir að elta leiðsögumann á Segway-tvíhjóli frekar en að arka upp og niður brattar brekkur. Síðan þá hefur smám saman bæst við úrvalið hjá Segway og býður fyrirtæki í dag upp á skemmtileg hlaupahjól, einhjól og voldug þríhjól. Aldrei hefur Segway þó boðið til sölu jafn fyr- irferðarmikil og kraftmikil far- artæki og þau sem finna má í nýrri línu sem kynnt var á EICMA-sýningunni í Mílanó fyrr í mánuðinum. Þar svipti Segway hulunni af fjórhjólum og buggy-bílum sem hannaðir hafa verið með ut- anvegaakstur í huga. Vekur at- hygli að farartækin eru ekki raf- magnsknúin, eins og allt það sem Segway hefur smíðað til þessa, heldur nota þau fullkomna tvin- vél. ai@mbl.is Fjórhjól og buggy-bílar Segway eru engin kríli og útlitið áhugavert. Segway spanar inn á nýtt svið

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.