Morgunblaðið - 19.11.2019, Side 8

Morgunblaðið - 19.11.2019, Side 8
Þóroddur Bjarnason tobj@mbl.is „Á Spáni er gott að djamma og djúsa, diskó- tekunum á. Hei! Sólbrenndur með „Quick Tan“-brúsa. Í sandölum og ermalausum bol.“ Þ egar ég sagði fjölskyldu og vinum frá því að ég væri nýkominn heim frá Ibiza að keyra Lexus-bifreiðar vakti það umsvifalaust hugrenningatengsl eins og þau sem lýst er hér fremst í textanum, í laginu Sandalar, í flutningi Ladda. Þó að það hafi vissulega verið prýðilegt veður meðan á dvöl minni stóð, sólin skinið í heiði og heitur andvarinn verið ljúfur og notalegur, gafst lítill tími til að skella á sig „Quick Tan“-sólarolíu og flatmaga við sundlaugina, né heldur gafst tími til að djamma og djúsa í froðudiskói niðri við strönd. Menn, bæði hér á Íslandi og annars staðar, eru fljótir að tengja þessa litlu sólareyju, sem liggur úti fyrir austurströnd Spánar, steinsnar frá eyjunum Mallorca og Menorka, við djamm og djús. Heimamenn eru orðnir dálítið þreyttir á þeirri ímynd og hafa í seinni tíð lagt áherslu á byggingu hágæða dvalarstaða þar sem meira er höfðað til efnameira fólks í stað hinna dæmigerðu sólarlandagleðipinna. Flugvéla- farmar af þeim síðarnefndu hafa komið frá Bretlandi og fleiri löndum á hverju sumri um árabil og dansað trylltan dans á partíeyjunni við undirleik frægustu plötusnúða í heimi, manna eins og David Guetta og Calvin Harris. Það kom bílablaðamanni því ekkert sér- staklega mikið á óvart að sjá stór skilti með myndum af þeim félögum tveimur skömmu eftir að stigið var út úr flugstöðinni við kom- una til Ibiza. 30 ára afmæli Lexus En eins og fyrr sagði var ég ekki kominn til Ibiza til að djamma og djúsa heldur til að aka um eyjuna í Lexus-bifreiðum. Ekki endilega bara einni bifreið, heldur nokkrum, á ólíkum aldri. Ástæðan fyrir því að boðið var upp á þetta úrval bifreiða var 30 ára afmæli Lexus- Ljósmynd / Lexus Ferðast aftur í tímann Lexus RX 450 Hybrid 2020 árgerðin er af fjórðu kynslóð þess- ara vinsælu bíla. 8 | MORGUNBLAÐIÐ Lexus valdi spænsku eyjuna Ibiza fyrir kynningu á nýjum RX 450 hybrid. Framleiðandinn er 30 ára í ár, og bauð því einnig upp á reynsluakstur á sögu- frægum eldri Lexus-bílum.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.