Morgunblaðið - 19.11.2019, Side 9
vörumerkisins, sem er eins og flestir ættu að
vita, í eigu japanska bílarisans Toyota.
Aðalnúmerið í ferðinni var samt 2020 útgáf-
an af stóra Lexus RX 450h-sportjeppanum,
með sjálfhlaðandi hybrid-vél. Í kynningum á
bílnum á lúxushótelinu sem ég dvaldi á, var
fullyrt að slík sjálfhlaðandi vél, og hybrid-tækni
Lexus, væri betri kostur en að vera á tengil-
tvinnbíl sem stungið er í samband. Sel ég það
ekki dýrara en ég keypti það en staðreyndin er
þó sú að bíllinn ekur um á rafmagni helming
tímans og eftir því sem meira og betur er
bremsað því ríkulegri skammtur af rafmagni
rennur inn á batteríið.
Þegar komið var á hótelið af flugvellinum
biðu bílarnir í röð á planinu fyrir utan, tilbúnir
í aksturinn. Það var sérstaklega gaman að sjá
þar fyrstu kynslóðina, LS 400 sedan-bílinn, frá
1989, og svo fyrsta lúxus Lexus RX-sportjepp-
ann frá 1998, og sönn tilhlökkun að fá tækifæri
til að aka þeim.
Gerður fyrir Bandaríkjamenn
Lexus var upphaflega þróaður fyrir Banda-
ríkjamarkað. Toyota hafði slegið í gegn þar,
enda bílarnir þeirra góðir og ódýrir, en eft-
irspurn var eftir dýrari og stærri bíl með meiri
þægindum en Toyota bauð upp á. Þar sem
Toyota skilgreinir sig ekki sem lúxusmerki var
ákveðið að þróa bíl undir nýju vörumerki. Eftir
að hafa farið yfir lista sem á voru 219 nöfn,
nöfn eins og Vectre, Verone, Caliber og Alexis,
varð Lexus-nafnið að lokum ofan á.
En til að gera langa sögu stutta skellti ég
mér í tvo góða bíltúra, annars vegar á LS 400
frá 1989 og hins vegar á RX frá 1998, áður en
ég prófaði þann nýjasta. Var það bráð-
skemmtileg reynsla. Að keyra LS 400-bílinn
var til dæmis eins og að stíga 30 ár aftur í
tímann, og auðvelt að sjá af hverju bíllinn þótti
vel heppnaður á sínum tíma og varð söluhæsti
lúxusbíllinn í Bandaríkjunum innan örfárra
ára. Fjöðrunin er sérstaklega eftirminnileg, og
hreyfingarnar svo mjúkar að manni leið eins
og svifið væri um spænskar göturnar á töfra-
teppi Aladdins.
Að aka nýja RX-inum, sem er af fjórðu kyn-
slóð, var ekkert slor heldur. Sætin gripu þétt
um mann frá fyrstu sekúndu, upplýsingakerfið
er til fyrirmyndar, og bíllinn er búinn öllum
þeim helstu þægindum og búnaði sem í boði er
á markaðnum í dag. Þar má nefna flottar
myndavélar allan hringinn, gott öryggiskerfi í
akstri, aðgengilegt upplýsingakerfi og mæla-
borð, afar vandaða innréttingu, gott pláss að
framan og aftan, og tengingu við Android Auto
og Apple Play.
Þó að nýi RX-bíllinn sé ekki ný kynslóð,
hafa verið gerðar nokkrar breytingar milli ár-
gerða. Til dæmis er bíllinn fáanlegur með að-
laganlegum BladeScan-háljósabúnaði (e. Bla-
deScan Adaptive High-Beam System) sem
gerir akstur í myrkri öruggari, og eykur út-
sýni um 75% án þess að blinda aðra ökumenn.
Þá hefur ytra útlit verið gert enn rennilegra
en áður, og umbætur verið gerðar í bremsu-
kerfum. Þá hefur bíllinn bæði verið lengdur og
breikkaður lítillega.
30 nýjungar kynntar
Lexus hefur alla tíð verið framarlega í
flokki er kemur að nýjungum, en í ferðinni
voru sérstaklega kynntar 30 nýjungar sem
Lexus hefur komið með að borðinu í bíla-
heiminum. Þar má nefna öryggispúða í still-
anlegu stýri, stafrænt stillanlega hliðarspegla,
og leiðsögukerfi sem staðalbúnað, en það var
fyrst í boði í LS 400-bílnum frá árinu 1998.
Þá varð Lexus fyrsti bílaframleiðandinn til
að framleiða lúxussportjeppa eins og sagði
hér á undan, Lexus RX 300 1998 árgerð, og
árið 2005 varð Lexus fyrstur framleiðenda til
að bjóða upp á sjálfhlaðanlegan lúxus Hybrid-
bíl, með tilkomu RX 400h. Á þeim tveimur
áratugum sem liðnir eru frá fyrsta Lexus-
sportjeppanum, hefur framleiðandinn stöðugt
breytt og bætt bílinn, en RX-bíllinn varð
fljótlega best seldi Lexus-bíll í heimi. Sam-
anlögð sala af þessari tegund Lexus-bíla er
komin yfir þrjár milljónir eintaka.
Að fara til Ibiza og keyra þar Lexus-
bifreiðar er jafn ánægjulegt og það hljómar,
og ég mæli eindregið með að fólk geri ann-
aðhvort eða bæði ef tækifæri gefst til. Auðvit-
að er Ibiza tvær flugleiðir í burtu, en Lexus-
umboðið er nær í tíma og rúmi, einfaldlega í
Garðabænum, í sama húsi og Toyota-
umboðið.
Tenging við Android Auto
og Apple Play er í boði.
Blaðamaður við stýrið á Lexus RX á Ibiza á Spáni.
MORGUNBLAÐIÐ | 9
» 3,5 lítra V6 tvinn-vél.
» 313 hestöfl / 335 Nm
» 6 þrepa sjálfskipting
» 7,9-8,2 l í blönduðum akstri
» 0-100 km/klst á 7,7 sek.
» Hámarkshraði: 200 km/klst.
» Drif á öllum hjólum
» Eigin þyngd: 2.160 kg
» Farangursrými: 539 lítrar
» Mengunargildi: 179-186 g/km
» Umboð: Lexus á Íslandi
» Verð frá: 11.950.000 kr.
Lexus RX 450h
Lexus-nafnið var upphaflega
valið úr 219 öðrum nöfnum.