Morgunblaðið - 19.11.2019, Page 14
Hinn fullkomni íslenski hversdagsbíll er Range Rover
Evouqe. Þegar Evoque var kynntur hér á Íslandi haust-
ið 2011 féllum við hjónin flöt fyrir framúrstefnulegri
hönnun þessa bíls sem reyndist svo vera alger „trend
setter“. Ég setti þáverandi bíl okkar umsvifalaust
á sölu og pantaði einn Evoque sem við fengum
síðla vetrar 2012. Nú sjö og hálfu ári síðar erum
við enn á þessum bíl, alltaf jafn ánægð og ekki
síst konan mín. Evoque er fjórhjóladrifinn
tæknivæddur sportbíll, nettur, kraftmikill,
snöggur og jafvel talsvert meiri jeppi en
margir stærri jeppar á götum borgarinnar.
Draumabílskúrinn
Litli borgarbíllinn er MINI Cooper, 5 dyra. Hef
alltaf haft auga á Mini. Hulda föðursystir mín átti
einn rauðan ’67 ef ég man rétt sem hún fór allra
sinna ferða á, karllaus og sjálfstæð, skemmti-
legur töffari. Svo á líka góður vinur minn nokkra
slíka originala. Gæti vel hugsað mér Mini í mið-
borgarsnattið fyrir Michelsen úrsmiði. Og einn
gamlan Austin Mini líka.
Mótorhjólið: Harley David-
son. Ég er búinn að vera
með mótorhjólapróf síðan
ég var 17 ára og þvældist
um á Yamaha-hjóli en
hætti þegar frúnni leist
ekkert á akstursmátann.
Ég var samt alltaf ákveð-
inn að fá mér Harley
Davidson-hippa þegar ég
yrði fimmtugur og leitaði
ráða hjá vini mínum Guð-
mundi í Nesradíói sem gaf mér
góð ráð en sagði svo: „Þú veist að
það eru bara til tvenns konar hjólamenn,
þeir sem eru búnir að detta og hinir sem eiga eftir
að detta. Hvar ert þú?“ Ég fékk mér ekkert hjól,
tók ekki áhættuna á að handleggsbrjóta mig og
geta ekki gert við
úrin.
Fyrir lottóvinninginn: Bentley Bentayga. Sá þennan bíl í
Sviss og sá er flottur. Fékk tækifæri til að skoða hann
gaumgæfilega og vinnubrögðin í framleiðslu leyna sér ekki
né hráefnið sem notað er. Ættuð bara að sjá bílinn að inn-
an. Held að þetta sé einn flottasti og vandaðasti bíll sem
framleiddur er í dag.
Ómissandi ökutæki nr. 8 er Delorean. Ég var með í sölu, fyrir fáum árum,
úr frá Romain Jerome sem hétu „DNA of famous legends“. Meðal þeirra
voru gerð úr ryðguðu stáli úr Titanic-
skipinu, ösku úr Eyjafjallajökli og
stáli úr Delorean-bíl sem
notaður hafði verið í
myndunum Back to
the Future. Síðan þá
hefur mig langað í
bæði slíkan bíl og úrið,
væri það ekki ómissandi og flott
í safnið?
Í villtustu draumum:
Mercedes-Benz 300 SL
Gullwing. Tímalaus
hönnun þessa bíls
heillar og gerir mig hug-
fanginn eins og flesta
aðra bílaáhugamenn.
Draumur minn er ljós-
silfraður að utan og
knallrauður að innan.
Þessum bíl er ekki hægt
að lýsa í orðum. Maður
þarf að upplifa hann.
Þetta er sá bíll sem ég
ber saman við Rolex-
úrin: tímalaus hágæði,
mikil ending og frábær
fjárfesting.
Sunnudagabíllinn:
1956 Ford Fairlane
Crown Victoria
Skyliner
„Glass
Top. Mig
hefur
dreymt
um þenn-
an bíl frá
unglings-
árum og hef
aldrei séð neinn bíl
sem tekur honum
fram í hönnun og töff-
araskap. Ég er almennt mjög veikur fyrir bandarískum bílum frá 1956-
1960; stórum, vængjuðum og hlöðnum krómi. Svo ekki sé minnst á
mælaborðið í þeim. Þarna tel ég að bandarískir bílar hafi náð hátindi sín-
um. Á eftir þessum draumabíl komu nokkrir uppáhalds, s.s. 1957 Olds-
mobile Royale Delta 88, 1957 Chevrolet Bel Air, 1958 Buick Limited, 1959
Cadillac Coupe Deville og 1959 Chevrolet Bel Air til að nefna nokkra.
Fíni bíllinn væri Porsche Taycan. Líkt og úrin, hefur
Porsche alla tíð verið mér einkar hugleikinn. Eflaust
hefur það eitthvað að gera með að í Porsche sam-
einast eiginleikar sem ég sækist eftir,
svo sem fegurð, nákvæmni, afl og
geta og ekki síst völundarsmíði
og yfirburða verkfræði. Í mín-
um geira er nauðsynlegt að
horfa ávallt til framtíðar en þó
með klassíkina að leiðarljósi.
Því er nýr, byltingarkenndur
rafmagnsbíll Porsche, Tayc-
an, mér afar hugleikinn
þessa dagana.
14 | MORGUNBLAÐIÐ
Þ
að er ekki óalgengt að áhugi
á bílum og úrum fari sam-
an, og kemur því ekki á
óvart að Frank Ú. Michel-
sen skuli vera með töluverða bíla-
dellu. Varla þarf að kynna Frank fyr-
ir lesendum en hann stendur vaktina,
ásamt sonum sínum, í nýrri og glæsi-
legri verslun Michelsen úrsmiða á
Tryggvagötu við Hafnartorg. Versl-
unin flutti fyrir skemmstu úr gamla
húsnæðinu á miðjum Laugavegi og
hefur straumur viðskiptavina legið á
nýja staðinn allt frá opnun.
Frank segist ekki veita nýjum bíl-
um svo mikla athygli og þar sé konan
hans mun betur með á nótunum.
Hann á aftur á móti mjög erfitt með
að standast bandaríska dreka frá
tímabilinu 1956 til 1960: „Þetta var
tími króms og stórra vængja. Geim-
öldin var að hefjast og Bandaríkja-
menn með hugann við tunglið og eld-
flaugar sem endurspeglaðist í
hönnun bílanna. Stór og mikil bretti
byrja að sjást og hvöss horn taka
smám saman við af bogadregnum lín-
um. Ekki þurfti að hafa neinar
áhyggjur af bensíneyðslu og mengun
og leyfðist hönnuðum að fantasera
eins og þá langaði.“
Sá bíll frá þessum tíma sem höfðar
sterkast til Franks er Ford Fairlane
Crown Victoria Skyliner árgerð 1956
„Glass Top“. Er þessi öndvegisbíll
jafn flottur og nafnið á honum er
langt, og sýnir vel hvernig bættar
framleiðsluaðferðir og nýir straumar
í hönnun voru farin að móta bílaheim-
inn. Aðeins voru framleiddir 603 bílar
af þessari gerð, með 202 hestafla V8-
vél og glerþaki yfir fremri hluta far-
þegarýmisins.
Heyflutningar á pallbíl
Gaman er að segja frá því hvað
Frank og kona hans Inga eru sam-
rýmd þegar kemur að bílakaupum.
Frank segir þau gjarnan hafa þann
háttinn á að hann komi með tillögur
en hún taki endanlega ákvörðun.
Hefur það gerst að Inga hefur bjarg-
að manni sínum frá því að láta bíla-
delluna hlaupa með sig í gönur, eins
og þegar hann dauðlangaði að kaupa
risastóran pallbíl á hátindi góðæris-
ins á síðasta áratug. „Á þessum tíma
voru gjöldin á pallbílum þannig að
hægt var að fá heljarinnar ökutæki á
tiltölulega hagstæðu verði,“ segir
Frank sem var alveg hreint að farast
úr löngun í pallbíl af stærstu og
bandarískustu gerð. „Hún Inga
horfði á mig um stund og spurði mig
svo hvort ég ætlaði mér að fara að
ferja hey á milli staða.“
Þegar Frank síðan finnur bíl sem
honum líkar vel heldur hann tryggð
við ökutækið. Þannig eignaðist hann,
fyrir rösklega sjö árum, einn af
fyrstu Range Rover Evoque-
sportjeppunum sem fluttir voru hing-
að til lands og er enn þann dag í dag
hæstánægður með kaupin.
Eflaust vita sumir lesendur að það
orðspor festist snemma við Evoque
að hann væri nokkurs konar kvenna-
jeppi og kannast Frank alveg við það
að hafa stundum verið strítt á því að
aka um á bíl sem sjálf Victoria Beck-
ham á að hafa átt einhvern þátt í að
hanna. Frank lætur stríðnina vita-
skuld ekki á sig fá, enda ekkert út á
Evoque að setja.
„Evoque er best lýst sem fjór-
hjóladrifnum sportbíl. Bæði er hann
með þá eiginleika sem maður væntir
frá alvörujeppa, en hefur mjög
skemmtilega aksturseiginleika og
hentar til daglegra nota í borginni.
Range Rover kynnti til sögunnar al-
veg nýja gerð af bíl með Evoque og
hafa síðan fleiri framleiðendur fylgt í
kjölfarið,“ segir Frank og ljóstrar því
upp að hann hafi aldrei áður verið
svona lengi á sama bílnum.
ai@mbl.is
Draumabílskúr Franks Michelsens úrsmiðs
Veikur fyrir bandarískum drekum
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Frank við nýju verslunina. Hann kolféll fyrir Range Rover Evoque.
Frank á erfitt með að standast þá stóru vængi
og mikla króm sem einkenndi bílahönnun
Bandaríkjamanna í upphafi geimaldar.
Ljósmyndir
Mini: BMW Group
Evoque: Land Rover
Taycan: Porsche
Bentayga: Bentley Media
MB 300 SL : Flickr/Sicnag
(CC)
Crown Victoria: Wikipedia/
Bluedisk (CC)
Harley: Harley Davidson
Media
Delorean: Wikipedia
(Grenex (CC).