Morgunblaðið - 30.12.2019, Page 1
M Á N U D A G U R 3 0. D E S E M B E R 2 0 1 9
Stofnað 1913 304. tölublað 107. árgangur
ÍÞRÓTTA-
MAÐUR
ÁRSINS 2019
250 BÆKUR
UM DA VINCI
Á EINU ÁRI
ALLTAF AÐ
LÆRA EITTHVAÐ
NÝTT Í MJÖLNI
MENNING 28 BARNABLAÐIÐÍÞRÓTTIR 27
Viðræður aftur á fullt
Sameyki skoðar aðgerðir í kjaraviðræðum strax á nýju ári Biðlund fram-
haldsskólakennara fer dvínandi Fundir bókaðir hjá ríkissáttasemjara og ríkinu
daga vikunnar 5.-11. janúar. Þá á samninganefnd
ríkisins bókaða fundi með öllum sínum viðsemj-
endum á nýju ári. „Við erum reiðubúin til að ganga
frá samningi á sömu nótum og lífskjarasamning-
arnir í vor,“ sagði Sverrir Jónsson, formaður
samninganefndar ríkisins, í samtali við Morgun-
blaðið.
Kennarafélag Fjölbrautaskólans í Garðabæ og
kennarafélag Kvennaskólans í Reykjavík eru á
meðal þeirra félaga sem hafa sent frá sér ályktanir
og hvatt til þess að hert verði á kjaraviðræðum.
Ragnar Þór Pétursson, formaður Kennarasam-
bands Íslands, sagði þó að enginn óskaði sér að til
átaka kæmi.
Teitur Gissurarson
teitur@mbl.is
Strax eftir áramót munu forystumenn Sameykis,
stéttarfélags í almannaþjónustu, leggjast í undir-
búning fyrir mögulegar aðgerðir félagsins í kjara-
viðræðum. Þetta segir Árni Stefán Jónsson, for-
maður Sameykis, í samtali við Morgunblaðið.
Sameyki er eitt af mörgum félögum sem eftir ára-
mót halda áfram í kjaraviðræðum sem dregist
hafa á langinn. „Nú er eiginlega alveg komið nóg
af þessum hægagangi sem er búinn að vera í níu
mánuði,“ segir Árni.
Búast má við að kjaraviðræður sem eftir standa
fari á fullt skrið strax á nýju ári, en sem dæmi eru
bókaðir fundir hjá ríkissáttasemjara alla virka MGæti endað í aðgerðum »4
Kátir krakkar sem voru við sumarhús í Skorra-
dalnum í Borgarfirði í gær nýttu efnivið náttúr-
unnar og hlóðu myndarlegan hnöttóttan snjó-
karl. Fígúru þessari verður þó aðeins fárra
lífstunda auðið því spáð er rigningu og hlýindum
um sunnan- og vestanvert landið næstu sólar-
hringa. Þannig eru öll mannanna verk háð duttl-
ungum náttúrunnar og veðráttunnar, sem á Ís-
landi er oft fljót að breytast.
Morgunblaðið/Eggert
Hnöttóttur
snjókarl í Skorradal
Snjór í Borgarfirði en rigningarspá í kortunum
Útlit er fyrir að umfang fasteigna-
viðskipta á höfuðborgarsvæðinu
hafi verið svipað á þessu ári og því
síðasta. Loðnubrestur, gjaldþrot
WOW og kjaradeilur dempuðu
markaðinn framan af ári en bjart-
sýni almennings jókst með haust-
inu svo að lifnaði yfir markaðinum.
Í viðtali við Pál Pálsson fast-
eignasala kemur fram að von er á
u.þ.b. 3.000 nýjum íbúðum á mark-
að á höfuðborgarsvæðinu á kom-
andi ári og ætti það að hjálpa til
við að halda aftur af hækkun fast-
eignaverðs. Á þessu ári virðist
markaðurinn hafa náð jafnvægi og
hefur fasteignaverð hækkað um
2,4% undanfarna 12 mánuði.
Reiknar Páll með að verðþróunin
verði í takt við almenna verðbólgu
næstu tvö árin eða svo.
Óvíst er hve lengi jafnvægið get-
ur varað og gætu íþyngjandi
stefna og vinnubrögð sveitarfélag-
anna, sem og tregða bankanna til
að lána vegna húsbyggingarverk-
efna, haft neikvæð áhrif á fram-
boð.
Undanfarna tvo áratugi hefur
fasteignaverð á höfuðborgarsvæð-
inu að jafnaði hækkað um 5-6% ár-
lega. ai@mbl.is » 12
Von á fjölda
nýrra íbúða
á markað
Hægt hefur á
hækkun fasteignaverðs
Morgunblaðið/Júlíus
Húsnæði Á þessu ári virðist mark-
aðurinn hafa náð jafnvægi.
„Ég er búinn að ná mér aftur að
fullu. Ég er einungis að glíma við
minni háttar meiðsl en er á bata-
vegi,“ skrifaði úthafsræðarinn
Fiann Paul, um borð í skipi á leið
frá Suðurskautslandinu til Síle um
miðjan dag í gær. „Ég er gríðar-
lega stoltur af teyminu mínu og
afreki okkar,“ skrifaði hann jafn-
framt, en Fiann Paul og liðsmenn
hans urðu um jólin fyrstu menn-
irnir til að róa til Suðurskauts-
landsins. Alls voru liðsmennirnir
sex í bátnum, og skiptu sér í
þriggja manna teymi sem hvort
reri 90 mínútur í senn, 24 tíma á
sólarhring.
Fiann hefur búið hér á landi
undanfarin rúm tíu ár og rær und-
ir íslenskum fána. Fiann og fé-
lagar lögðu af stað frá Hornhöfða,
syðsta punkti Síle, 13. desember
og komu til Suðurskautslandsins
rétt eftir hádegi á jóladag. »10
Ljósmynd/Aðsend
Í ólgusjó Kapparnir á ferð suður. Fremstur stendur Fiann Paul.
Róandi ofurhugar
„Gríðarlega stoltur“ af afrekinu
Lífeyrismál, sterkari veikindaréttur og úrbæt-
ur á tæknilegum atriðum sem ráða launum
sjómanna verða áhersluatriði í viðræðum við
útgerðina um nýjan samning. Valmundur Val-
mundsson, formaður Sjómannasambands Ís-
lands, segir umhverfið í viðræðum breytt og
ekki sama harka og var. Þá verði að horfa til
þess að plássum til sjós sé að fækka og tækni-
væðing hafi breytt starfsumhverfi. » 6
Harkan er minni
STARFSUMHVERFI SJÓMANNA BREYTT
Björgunarsveitir Landsbjargar voru
kallaðar út um 1.250 sinnum árið
2019. Eru það svipaðar tölur og í
fyrra en út frá þeim má ætla að
sveitirnar hafi verið kallaðar út
þrisvar á dag að meðaltali.
Óveðrið sem geisaði í byrjun
desember setti svip sinn á björg-
unarárið og sannaði jafnframt mikil-
vægi björgunarsveita landsins.
Flugeldasölu Landsbjargar mið-
aði vel um helgina en flestir lands-
menn festa kaup á flugeldum á síð-
ustu tveimur dögum ársins. »2
Á þrettánda hundr-
að útkalla á árinu