Morgunblaðið - 30.12.2019, Qupperneq 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 30. DESEMBER 2019
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Vilhjálmur Einarsson,
fyrrverandi skólameist-
ari, frjálsíþróttamaður
og fyrsti verðlaunahafi
Íslendinga á Ólympíu-
leikum, lést á Landspít-
alanum á laugardag,
28. desember. Vil-
hjálmur fæddist á
Hafranesi við Reyðar-
fjörð 5. júní 1934 og var
sonur hjónanna Einars
Stefánssonar frá Mýr-
um í Skriðdal, fulltúa á
Egilsstöðum, og Sigríð-
ar Vilhjálmsdóttur frá
Hánefsstöðum í Seyðis-
firði. Vilhjálmur gekk í barnaskól-
ann á Reyðarfirði, farskólann á Völl-
um, Gagnfræðaskólann á Seyðisfirði
og Alþýðuskólann á Eiðum. Að
loknu landsprófi frá Eiðum innrit-
aðist hann í Menntaskólann á Akur-
eyri árið 1951 og útskrifaðist sem
stúdent frá stærðfræðideild vorið
1954. Haustið 1954 hlaut Vilhjálmur
skólastyrk við Dartmouth-
háskólann í Bandaríkjunum og út-
skrifaðist þaðan með BA-próf með
áherslu á listasögu. Þá sótti Vil-
hjálmur framhaldsnám í uppeldis-
og kennslufræði við Gautaborgar-
háskóla 1974-1975 og aftur á árunum
1990-1993.
Vilhjálmur var kennari við Hér-
aðsskólann á Laugarvatni 1957-1958
og skólastjóri þar á vorönn 1959.
Hann var kennari við Gagnfræða-
skóla Austurbæjar
1959-1960 og kennari
við Samvinnuskólann á
Bifröst 1959-1965. Á
því sama ári tók Vil-
hjálmur við sem skóla-
stjóri Héraðsskólans í
Reykholti á árunum
1965-1979, á miklu
blómaskeiði þar.
Á Reykholtstím-
anum, 1967-1970, var
Vilhálmur formaður
Ungmennasambands
Borgarfjarðar en á
þeim tíma var sumar-
hátíðin í Húsafelli
haldin og var afar fjölsótt.
Loks gegndi Vilhjálmur starfi
skólameistara Menntaskólans á Eg-
ilsstöðum frá upphafi skólans 1979
til ársins 2001 og vann þar mikið
brautryðjandastarf. Frá 2001 var
Vilhjálmur um árabil stundakennari
við Menntaskólann á Egilsstöðum
og sama ár stofnaði hann Náms-
hringjaskólann sem var í námskeiðs-
formi.
Meðal annarra starfa má nefna að
hann stofnaði og rak Íþróttaskóla
Höskuldar og Vilhjálms ásamt
Höskuldi Goða Karlssyni íþrótta-
kennara 1960-1972. Var skólinn
starfræktur í Mosfellsdal, Varma-
landi og Reykholti í Borgarfirði. Vil-
hjálmur stofnaði bókaforlagið Að
austan sem gaf út tvær bækur: Mag-
isterinn og Silfurmanninn.
Vilhjálmur er meðal fræknustu
íþróttamanna Íslendinga fyrr og síð-
ar. Á barns- og unglingsárum reyndi
hann sig í ýmsum greinum en ein-
beitti sér síðan að stökki og frjálsum
íþróttum. Hann setti Norðurlanda-
met í þrístökki árið 1956 sem veitti
honum rétt til keppni á Ólympíu-
leikunum í Melbourne í Ástralíu það
sama ár. Fyrsta stökk Vilhjálms þar
var ógilt en fyrir það bætti hann í
næsta stökki og fór þá 16,26 metra,
sem var ólympíumet. Metið átti Vil-
hjálmur í tvo klukkutíma en þá bætti
Brasilíumaðurinn Ferreira Da Silva
það með stökki sínu upp á 16,35
metra í fjórðu tilraun. Vilhjálmur
endaði í öðru sæti, fékk silfur-
verðlaun, og var fyrsti Íslending-
urinn til að komast á verðlaunapall á
Ólympíuleikum. Vilhjálmur var
fimm sinnum kjörinn íþróttamaður
ársins; 1956, 1957, 1958, 1960 og
1961
Vilhjálmi var árið 2005 veittur
riddarakross hinnar íslensku fálka-
orðu fyrir framlag sitt til íþrótta- og
uppeldismála. Þá var hann tekinn
inn í Heiðurshöll Íþrótta- og ólymp-
íusambands Íslands árið 2012.
Vilhjálmur lætur eftir sig eigin-
konu, Gerði Unndórsdóttur, og syn-
ina Rúnar, Einar, Unnar, Garðar,
Hjálmar og Sigmar, auk 19 barna-
barna og 14 barnabarnabarna.
Útför Vilhjálms verður gerð frá
Hallgrímskirkju föstudaginn 10. jan-
úar kl. 15.
Andlát
Vilhjálmur Einarsson
Alexander Kristjánsson
Þór Steinarsson
Ekki kæmi á óvart að fleiri kærur
bærust á hendur Kristjáni Gunnari
Valdimarssyni, sem er í haldi vegna
gruns um frelsisskerðingu, líkams-
árás og kynferðisbrot gegn þremur
konum. Þetta segir Karl Steinar
Valsson, yfirlögregluþjónn hjá lög-
reglunni á höfuðborgarsvæðinu.
Karl Steinar segir að þótt öll mál
séu að einhverju leyti ólík sé það
reynsla lögreglu í álíka málum, þar
sem fjöldi kæra um kynferðisbrot
liggur fyrir, að búast megi við fleiri
kærum eftir því sem rannsókn vind-
ur fram. Er það meðal annars á þeim
grunni sem lögregla fór í gær fram á
að gæsluvarðhald yfir Kristjáni
Gunnari yrði framlengt um fjórar
vikur, en gæsluvarðhald rann út síð-
degis í gær.
Áfram í haldi fram
að ákvörðun dómara
Kristján Gunnar sætti einangrun
þar til í hádeginu í gær, en þá var
hann leiddur fyrir dómara. Til rysk-
inga kom fyrir utan héraðsdóm þeg-
ar ónefndur maður reyndi að koma í
veg fyrir að fjölmiðlar næðu mynd-
um af Kristjáni er hann var leiddur
út í lögreglubíl á ný.
Dómari tók sér frest til hádegis í
dag til að taka afstöðu til kröfu lög-
reglu um áframhaldandi gæsluvarð-
hald, en Kristján verður engu að síð-
ur áfram í haldi lögreglu á
lögreglustöðinni á Hverfisgötu þar
til úrskurður liggur fyrir í dag. Karl
Steinar segir að sú ráðstöfun byggist
á fyrirmælum ríkissaksóknara frá
árinu 2018. „Þau kveða á um að þeg-
ar dómari telur sig þurfa lengri tíma
sé viðkomandi engu að síður áfram í
haldi lögreglu.“ Úrræðinu hefur, að
sögn hans, aðeins örsjaldan verið
beitt. Kristján Gunnar var handtek-
inn á heimili sínu við Aragötu í
Reykjavík aðfaranótt aðfangadags,
grunaður um að hafa haldið ungri
konu nauðugri á heimili sínu í tíu
daga auk fíkniefnabrota. Hann var
látinn laus að skýrslutöku lokinni, en
síðan handtekinn að nýju að morgni
jóladags, þá grunaður um kynferð-
isbrot, frelsissviptingu og líkams-
árás gegn tveimur öðrum konum um
nóttina.
Hafnar gagnrýni réttargæslu-
manna á vinnubrögð lögreglu
Saga Ýrr Jónsdóttir, réttargæslu-
maður konunnar sem Kristjáni er
gefið að sök að hafa haldið nauðugri
á heimili sínu í tíu daga, hefur gagn-
rýnt vinnubrögð lögreglu og sagt að
mögulegt hefði verið að bjarga henni
sólarhring fyrr, þegar lögreglumenn
og foreldrar konunnar fóru að húsi
Kristjáns til þess að leita hennar. Þá
hefði Kristján sagt að allt væri í fínu
lagi og ákváðu lögreglumenn að að-
hafast ekkert, þrátt fyrir að foreldr-
arnir og lögregla hefðu séð mikið
magn fíkniefna á heimilinu.
„Við hljótum öll að spyrja okkur
að því hvað veldur því að lögreglan
hikar við að fara inn hjá honum en
hikar ekki við að fara inn hjá Jóni
Jónssyni,“ sagði Saga í viðtali við
mbl.is.
Undir þetta hefur Leifur Runólfs-
son, réttargæslumaður annarrar
kvennanna, tekið og telur að koma
hefði mátt í veg fyrir að Kristján
Gunnar bryti gegn þeim.
Spurður út í gagnrýnina segir
Karl Steinar að lagalegar forsendur
hafi ekki verið fyrir gæsluvarðhaldi
aðfaranótt aðfangadags. Lögregla
krefjist til að mynda ekki gæsluvarð-
halds vegna neysluskammta af fíkni-
efnum. Málið horfi þó öðruvísi við nú.
„Konurnar tvær lögðu fram kæru
vegna kynferðisbrota, frelsissvipt-
ingar og líkamsárásar á jóladag.
Eftir það kom konan úr fyrra málinu
og lagði fram kæru vegna kynferðis-
brota,“ segir Karl Steinar og bætir
við að lögregla líti málið alvarlegum
augum. Því hafi hún farið fram á há-
marksgæsluvarðhald, fjórar vikur,
bæði á grundvelli rannsóknarhags-
muna og til að koma í veg fyrir að
sakborningur haldi áfram brotum
meðan rannsókn málsins sé ekki lok-
ið.
Karl Steinar segir að á aðfanga-
dag hafi upplýsingar lögreglu hins
vegar ekki verið nægar til að fara
fram á gæsluvarðhald. „Við höfðum
ekki skýra tímalínu yfir atburða-
rásina þá. En það er auðvitað alltaf
auðvelt að vera vitur eftir á,“ segir
Karl Steinar.
Lögregla notaðist við búkmynda-
vélar við handtökurnar og segir Karl
Steinar að upptökur úr þeim hafi
verið yfirfarnar af lögreglu. Ekkert
hafi komið fram sem bendi til þess að
vinnubrögð hafi ekki verið í sam-
ræmi við verklag. Hann bætir þó við
að allar upptökur verði færðar til
nefndar um eftirlit með lögreglu,
sem muni yfirfara þær.
Tjáir sig ekki, en treystir
því að lögregla vinni faglega
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir
dómsmálaráðherra segist í skriflegu
svari til mbl.is ekki munu tjá sig um
rannsókn lögreglu eða gagnrýni á
hana. „Rannsóknin er á viðkvæmu
stigi og ég treysti því að faglega sé
unnið af hálfu lögreglunnar,“ segir
dómsmálaráðherra. Þá hefur Sigríð-
ur Björk Guðjónsdóttir, lögreglu-
stjóri á höfuðborgarsvæðinu, ekki
heldur viljað tjá sig efnislega um
gagnrýnina, en hún hefur heitið því
að málið verði skoðað til hlítar.
Lögregla fer fram á fjögurra vikna gæsluvarðhald Yfirlögregluþjónn hafnar
gagnrýni á vinnubrögð Dómsmálaráðherra vill ekki tjá sig, en treystir lögreglu
Búast við fleiri kærum
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Innsiglað Lögregla innsiglaði heimili Kristjáns í vesturbæ Reykjavíkur á
jóladag. Hann er grunaður um að hafa haldið konu fanginni þar í tíu daga.
Karl Steinar
Valsson
Áslaug Arna
Sigurbjörnsdóttir
Katrín Jakobsdóttir forsætisráð-
herra minntist Vilhjálms Einars-
sonar á fésbókarsíðu sinni í gær.
Sagði hún m.a. að Vilhjálmur hefði
verið þjóðhetja og að afrek hans á
Ólympíuleikunum í Melbourne
hefði markað djúp spor í Íslands-
söguna. Afrekið hefði verið ein-
stætt fyrir fámenna þjóð sem hefði
orðið lýðveldi aðeins tólf árum fyrr.
„Óhætt er að segja að hann hafi þá
orðið þjóðhetja,“ ritaði Katrín.
Hún minntist einnig kynna sinna
af Vilhjálmi í ágústmánuði 2012, við
formlega opnun minjasvæðis við
Skriðuklaustur í Fljótsdal. Sagði
hún Vilhjálm þá hafa breitt yfir sig
teppi, vegna kulda, og þar með
bjargað heilsu sinni. „Blessuð sé
minning hans,“ ritaði Katrín svo.
Forsætisráðherra minntist Vilhjálms
Landsbjörg fór í um þrjú útköll að
meðaltali á dag á árinu sem er að
ljúka, að sögn Guðbrands Arnar Arn-
arsonar, verkefnastjóra aðgerðamála
hjá Landsbjörg. Hann segir að þó sé
ekki búið að gera árið upp og tölurnar
skýrist þegar líða taki á nýtt ár.
Óveðrið í byrjun desember setti svip
á björgunarárið og sannaði veigamik-
ið hlutverk björgunarsveita í landinu.
Björgunarmenn fara því reynslunni
ríkari inn í næsta ár. ,,Það skiptir
máli að björgunarsveitir séu til staðar
því við vitum aldrei hvenær við þurf-
um á þeim að halda,“ sagði hann.
Mikilvægi björgunarsveita sé ekki
mælt í fjölda útkalla.
Salan ekki dræmari
Sala flugelda gekk vel hjá Lands-
björg um helgina. „Vanalega eru 28.
og 29. desember nokkuð rólegir en í
dag var meira að gera en oft áður,“
sagði Jón Ingi Sigvaldason, markaðs-
og sölustjóri hjá Landsbjörg, í gær.
Hann býst við því að flestir kaupi
flugelda á tveimur síðustu dögum
ársins. Ekkert bendir til þess að
færri kaupi flugelda í ár en í fyrra,
þrátt fyrir umræðu um áhrif þeirra á
loftslagið. Landsbjörg býður þeim
sem hafa áhyggjur af mengunar-
áhrifum flugelda upp á að kaupa rót-
arskot. Fyrir hvert keypt rótarskot
gróðursetur Landsbjörg tré í sam-
starfi við Skógræktarfélag Íslands en
allur ágóði þeirra rennur samt sem
áður til björgunarsveitanna. Jón seg-
ir rótarskotin seljast vel í ár eins og í
fyrra. veronika@mbl.is
Þrjú útköll
á dag
yfir árið
Óveðrið setti
svip sinn á árið
Morgunblaðið/Árni Sæberg