Morgunblaðið - 30.12.2019, Síða 10

Morgunblaðið - 30.12.2019, Síða 10
10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 30. DESEMBER 2019 Teitur Gissurarson teitur@mbl.is „Ég er gríðarlega stoltur af teyminu mínu og afreki okkar. Við erum að skrifa söguna,“ sagði úthafsræð- arinn Fiann Paul, sem búið hefur á Íslandi undanfarinn rúmlega áratug, starfar hér sem þerapisti og rær undir íslenskum fána, á bloggsíðu sinni í gærkvöld. Fiann varð á jóla- dag einn af sex ræðurum sem afrek- uðu í fyrsta skipti „hinn ómögulega róður“ sem kallaður er, að róa milli Suður-Ameríku og Suðurskauts- landsins. Þurfti hópurinn meðal annars að fara gegnum hið alræmda Drakesund, sem þekkt er fyrir óg- urlega strauma og hættulegar öldur. Fiann fór fyrir hópnum, en með afrekinu varð hann einnig fyrsti maðurinn til að ljúka svokallaðri al- slemmu úthafsævintýra (e. Ocean Adventure Grand Slam), en í því felst að hafa róið yfir Atlantshafið, Indlandshafið, Kyrrahafið, Norður- Íshafið og Suður-Íshafið. „Ég er ánægður með að hafa get- að sett nýtt viðmið í leiðöngrum knúnum mannaflinu einu og ég vona að það verði útgangspunktur fyrir metnaðarfulla landkönnuði framtíð- arinnar,“ sagði Fiann á bloggsíðu sinni. Höfrungar á háhyrningar „Ég er búinn að ná mér aftur að fullu. Við höfum verið á skipi sem ferjar okkur og bátinn aftur til Punta [Arenas í Síle]. Ég er einungis að glíma við minni háttar meiðsl, sem eru á batavegi. Ég sakna þess að æfa!“ skrifaði Fiann í gærkvöld, þá á leið frá Suðurskautslandinu aft- ur til Síle, en hópurinn lagði af stað til Suðurskautslandsins frá Horn- höfða, syðsta punkti S-Ameríku, klukkan 12.00 þann 13. desember síðastliðinn og kom til Suðurskauts- landsins klukkan 13.45 á jóladag. Eins og áður segir hefur Fiann áð- ur róið á heimsins stærstu höfum, en sagði um leiðangurinn til Suður- skautslandsins að þar hefði hann séð meira dýralíf en á nokkru öðru hafi. „Fágætar fuglategundir, fiskar og sjávarspendýr, höfrungar og há- hyrningar sem dæmi.“ Um ástæðuna fyrir því að hann hefur lagt fyrir sig að róa um höfin og slá heimsmet sagði hann: „Áður var ég á persónulegri vegferð en nú langar mig bara að geta lifað af því sem ég elska að gera.“ Stór stund í sögu álfunnar Engum sem þekkir til í brans- anum dylst hversu stórt afrek Fi- anns er. Sem dæmi sagði Craig Glenday, ritstjóri Heimsmetabókar Guinness, eftir að tilkynnt var að leiðangurinn hefði tekist: „Ég hef fylgst með þessum róðri með mikl- um áhuga. „Hinn ómögulegi róður“ er réttnefni, enda held ég að fæst okkar átti sig á því hversu erfið þessi áskorun er.“ Þá fjallaði New York Times um málið í gær, hvar m.a. sagði: „Þeir þurftu að sveigja framhjá ís- jökum, halda niðri andanum meðan stórir hvalir syntu hjá og berjast við öldur á stærð við byggingar, á með- an þeir reru í 24 klukkustundir á sól- arhring.“ Þá var haft eftir Wayne Ranney, jarðfræðingi sem hefur far- ið um 50 sinnum um Drake-sund á vélknúnum báti: „Þetta er stór stund í sögu Suðurskautslandsins. Allur árangur þeirra var knúinn þessum 12 handleggjum, yfir 600 sjómílur. Það er algjörlega magnað.“ 24 tímar á sólarhring Hópur Fianns reri í tveimur þriggja manna teymum, og skiptust á á níutíu mínútna fresti, í 24 klukkustundir á sólarhring. Á besta degi sínum reru kapparnir 76,5 sjó- mílur, 141,6 kílómetra. Fimm sinn- um á leiðinni var akkerið látið síga vegna ólgusjós. Þetta og fleira kem- ur fram á vefsíðu Heimsmetabókar Guinness, en eins og fyrr segir var þar á bæ fylgst vel með svaðilförinni. Í leiðangrinum voru sett heims- met á borð við fyrsta róðurinn á Suð- ur-Íshafinu, syðsta punkti sem náðst hefur á árabáti og fyrsta róðurinn um Drake-sund. Reru fyrstir á Suðurskautslandið Ljósmynd/Aðsend Ræðararnir Fiann reri á Suðurskautslandið. Á bak við hann situr Andrew Towne, einn liðsmanna Fianns í leiðangrinum.  Sá könnuður sem á flest heimsmet  Rær undir fána Íslands  „Hinn ómögulegi róður“  Komu á Suðurskautslandið eftir hádegi á jóladag  Meira dýralíf en í nokkrum öðrum leiðangri Ljósmynd/Aðsend Ofurhugar Báturinn og teymið sem reri til Suðurskautslandsins. Afrek Fianns Paul » Fyrsti maðurinn til að ljúka við „alslemmu úthafs- ævintýra“, þ.e. að róa yfir Atl- antshafið, Indlandshafið, Kyrrahafið, Norður-Íshafið og Suður-Íshafið. » Á flest heimsmet nokkurs könnuðar. » Á flest Guinness-heimsmet sem íþróttamaður hefur náð innan einnar greinar. Meðal íþróttamanna sem hann hefur þar með skotið ref fyrir rass eru sundkappinn Michael Phelps og tenniskappinn Roger Federer. Tónastöðin • Skipholti 50d • Reykjavík • sími 552 1185 • www.tonastodin.is Landsins mesta úrval af trommum í öllum verð�lokkum. Hjá okkur færðu faglega þjónustu, byggða á þekkingu og áratuga reynslu. Dekkjaþjónusta Úrval fólksbíla- og jeppadekkja SAMEINUÐ GÆÐI Opið mánudaga til fimmtudaga kl. 7.45-17.00, föstudaga kl. 7.45-16.00 Flatahrauni 7 | 220 Hafnarfirði | Sími 565 1090 | www.bjb.is Íslenskur karlmaður á miðjum aldri féll á Breiðamerkurjökli laust eftir hádegi á laugardag með þeim af- leiðingum að hann hlaut opið bein- brot. Björgunarsveitir voru kall- aðar út vegna slyssins. Maðurinn, sem er leiðsögumaður, var á göngu um jökulinn ásamt hópi fólks þegar hann féll. Davíð Már Bjarnason, upplýsingafulltrúi Landsbjargar, sagði í samtali við mbl.is að aðstæður á jöklinum hefðu verið erfiðar, skyggni lélegt og færðin sömuleiðis. Þyrla Landhelgisgæslunnar kom á vettvang en björgunarsveitar- menn báru manninn niður af jökl- inum og var hann fluttur yfir Veð- urárlón með svifnökkva. Því næst var hann fluttur á sjúkrahús. Maður slasaðist á Breiðamerkurjökli

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.