Morgunblaðið - 30.12.2019, Page 12

Morgunblaðið - 30.12.2019, Page 12
12 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 30. DESEMBER 2019 Vefverslun: www.donna.is Erum nú á Facebook: donna ehf Sími 555 3100 www.donna.is Honeywell gæða lofthreinsitæki Hreint loft - betri heilsa Loftmengun er hættuleg heilsu og lífsgæðum. Honeywell lofthreinsitæki eru góð við myglu-gróum, bakteríum, frjókornum, svifryki, lykt og fjarlægir allt að 99,97% af ofnæmisvaldandi efnum. Verð kr. 18.890 Verð kr. 49.920 Verð kr. 35.850 Verð kr. 15.960 30. desember 2019 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 121.45 122.03 121.74 Sterlingspund 158.7 159.48 159.09 Kanadadalur 92.71 93.25 92.98 Dönsk króna 18.102 18.208 18.155 Norsk króna 13.692 13.772 13.732 Sænsk króna 12.944 13.02 12.982 Svissn. franki 124.3 125.0 124.65 Japanskt jen 1.108 1.1144 1.1112 SDR 167.47 168.47 167.97 Evra 135.25 136.01 135.63 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 165.819 Hrávöruverð Gull 1490.85 ($/únsa) Ál 1790.0 ($/tonn) LME Hráolía 67.91 ($/fatið) Brent ● Tyrknesk stjórnvöld frumsýndu á föstudag fyrsta bílinn sem er að fullu hannaður og smíðaður þar í landi. Um er að ræða rafmagnsbíl sem ætlunin er að framleiddur verði í allt að 175.000 ein- tökum árlega. Samtals verður jafnvirði 3,7 milljarða dala varið í verkefnið og dreifist kostnðurinn á þrettán ár, að því er Reuters greinir frá. Á kynningarathöfninni sagði Recep Tayyip Erdogan Tyrklandsforseti að til stæði að selja rafmagnsbílinn bæði inn- anlands og á erlendum mörkuðum. Nýi bíllinn hefur fengið nafnið TOGG, sem er skammstöfun á Türkiye’nin Otomobili Girisim Grubu, eða Tyrkneska bílasamsteypan. Var TOGG sýndur í tveimur útgáfum á föstudag; í sport- jeppaútfærslu og sem stallbakur. Mikil bílaframleiðsla fer nú þegar fram í Tyrklandi og reka t.d. Ford, Fiat, Toyota og Hyundai verksmiðjur þar í landi. TOGG er þó fyrsti bíllinn sem er tyrkneskur í húð og hár. Fjöldafram- leiðsla á TOGG-sportjeppanum á að hefj- ast árið 2022. ai@mbl.is Tyrkir frumsýna rafbíl Metnaður Erdogan við hinn nýja TOGG. STUTT VIÐTAL Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is Á tímabili leit út fyrir samdrátt í sölu fasteigna á höfuðborgarsvæð- inu en markaðurinn rétti úr kútn- um með haustinu og stefnir núna í að álíka margar eignir verði seldar á þessu ári og því síðasta. Þetta segir Páll Heiðar Pálsson fast- eigna- og fyrir- tækjasali hjá 450 Fasteignasölu en hann hefur það fyrir sið í lok árs að greina þróun markaðarins og segja fyrir um horfurnar. „Sumarið var mjög rólegt og var t.d. 30% minni sala í ágústmán- uði í ár en á sama tímabili í fyrra, en svo kom kippur um sumarið og reyndist október söluhæsti mánuð- urinn frá því í júní 2015 með tæp- lega 1.000 þinglýstum kaupsamn- ingum,“ segir hann. „Árið 2018 seldust 7.700 eignir á höfuðborgar- svæðinu og hinn 1. desember síð- astliðinn voru þinglýstir kaupsamn- ingar 7.130 talsins en algengt er að í desember seljist í kringum 500 eignir, svo að samalagt verður sal- an á mjög svipuðu róli í ár og í fyrra.“ Spurður hvað gæti helst skýrt skarpar sveiflur á milli ársfjórð- unga segir Páll að eðlilega hafi kaupendur haldið að sér höndum fyrri hluta árs m.a. vegna gjald- þrots WOW, loðnubrests og mik- illar spennu í deilum um kjaramál. „En með haustinu komu fréttir sem virðast hafa gefið fólki aukna bjart- sýni; bæði sýndu tölur að verðbólg- an hafði haldist nokkuð stöðug og svo var tilkynnt að tvö ný flugfélög hygðust hefja rekstur. Var léttirinn áþreifanlegur og landsmenn fengu aftur trú á því að slæmir tímar væru kannski ekki handan við hornið.“ Hægir á hækkuninni Þróun fasteignaverðs á árinu bendir til þess að einhvers konar jafnvægi sé komið á. Á höfuðborg- arsvæðinu mældist hækkunin 2,4% undanfarna 12 mánuði og þarf að leita allt aftur til ársins 2011 til að finna lægri tölu. Hækkaði fjölbýli um 2,1% og sérbýli um 1%. „Til samanburðar hækkaði fasteigna- verð á höfuðorgarsvæðinu um 4,6% í fyrra og 10,5% árið þar á undan,“ segir Páll og bætir við að áhuga- verð þróun komi í ljós þegar litið er á bæði þennan áratug og þann síð- asta: „Á tímabilunum 2000 til 2010 og svo 2010 til 2020 var heildar- hækkun fasteignaverðs á höfuð- borgarsvæðinus svipuð, 53-54%, og að jafnaði er meðaltalshækkun á ári á bilinu 5-6%. Kemur á óvart að ekki sé meiri munur á tímabilunum, s.s. þegar haft er í huga að 2008 varð raunlækkun á verði fasteigna.“ Meðal þess sem mun setja svip á fasteignamarkað Reykjavíkur og nágrannsveitarfélaga á komandi ári er hve margar nýjar eignir eru væntanlegar í sölu. „Í kringum 5.000 nýjar íbúðir eru í smíðum og gætu um 3.000 þeirra farið í sölu á næstu 12-15 mánuðum. Er þetta mikil fjölgun frá 2019 og jákvæð þróun enda hafa nýbyggingar myndað um 11-15% af öllu seldu íbúðarhúsnæði og ætti hlutfallið að vera mun hærra en það,“ segir Páll og spáir að vegna góðs framboðs verði hækkun fasteignaverðs mjög hófleg árið 2020. „Ég reikna með að fram til ársins 2022 verði hækk- unin í námunda við hækkun verð- bólgu, eða álíka og sú 2,9-3,6% hækkun sem greiningardeildir bankanna hafa spáð.“ Hlutdeildarlán gætu reynst skammgóður vermir Að því sögðu þá má greina nokk- ur hættumerki við sjóndeildar- hringinn. Þannig hafa verktakar kvartað yfir því að bankar fáist síð- ur til að veita lán fyrir framkvæmd- um, og eins að sveitarfélögin geri byggingarverkefni flóknari og dýr- ari en þau þyrftu að vera s.s. með háu lóðarverði og íþyngjandi leyf- isferlum. Er fátt sem bendir til að sveitarfélögin á höfuðborgarsvæð- inu muni breyta starfsvenjum sín- um og stefnu, né heldur að lánveit- ingar vegna framkvæmda verði auðsóttari. Er því ekki víst að framboð nýrra eigna haldi í við eftirspurn. Þá hafa stjórnvöld boðað að ákveðnum kaupendahópum muni standa til boð sk. „hlutdeildarlán“ sem eiga að auðvelda fyrstu kaup- endum og tekjulágum að eignast fasteign. Páll óttast að þetta úrræði kunni að verða til þess að ýta upp verði eigna og stuðningurinn því skammgóður vermir fyrir þá hópa sem ætlunin er að hjálpa. Hann segir enn á reiki hvernig hlutdeild- arlánin verða útfærð, en margt bendi til að það muni reynast snúið fyrir stjórnvöld að ákveða með skynsamlegum hætti hverjir munu eiga rétt á þessum stuðningi. „Það virðist sem hlutdeilarlán verði ein- göngu í boði vegna kaupa á ný- byggingum undir 40 milljónum, og ef það er viðmiðið þá gagnast stuðningurinn aðeins þeim sem vilja búa úti á landi, ef t.d. ætlunin er að kaupa þriggja herbergja íbúð.“ Á móti kemur að það virðist ill- mögulegt fyrir unga og tekjulitla einstaklinga að ná fótfestu á fast- eignamarkaðinum án einhvers kon- ar hjálpar. „Ég spyr gjarnan út í þetta hjá þeim sem eru að kaupa hjá mér sína fyrstu eign og undan- tekningalítið er það hjálp frá for- eldrum sem hefur gert gæfumun- inn, s.s. ef þeir leyfa ungu pari að búa hjá sér leigulaust á meðan hver einasta króna er lögð fyrir til að eiga fyrir innborgun. Fólk sem er með venjuleg laun og er á leigu- markaði á annars ósköp erfitt með að eignast fasteign.“ Vísbendingar um jafnvægi Morgunblaðið/Hari Óvissa Stefna og vinnubrögð sveitarfélaga og banka gætu skapað flösku- háls þegar kemur að framboði nýrra fasteigna til lengri tíma litið.  Jákvæðar fréttir um haustið urðu til þess að sala á fasteignum tók ágætis kipp  Von er á um 3.000 nýjum íbúðum á markað á höfuðborgarsvæðinu á komandi ári Páll Heiðar Pálsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.