Morgunblaðið - 30.12.2019, Page 15

Morgunblaðið - 30.12.2019, Page 15
15 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 30. DESEMBER 2019 Listsund Sundáhugamenn söfnuðust saman í innilaug Laugardalslaugar og fylgdust með listsundi. Eftir sýninguna gafst áhorfendum tækifæri til að spyrja spurninga og taka þátt í listsundsæfingu. Kristinn Magnússon Bláa hagkerfið, eða öll starf- semi sem viðkemur hafinu í kring- um Ísland, getur þrefaldast að umfangi á næstu tveimur áratug- um. Landhelgin okkar er stærri en Frakkland og þar leynast mörg tækifæri til að skapa verðmæti og áhugaverð störf til framtíðar. Bróðurpartur veltu bláa hag- kerfisins í dag er tengdur hefð- bundnum veiðum. Ef rétt er á málum haldið kann að vera að allt að helmingur veltu bláa hagkerf- isins sé lítið eða ekkert tengdur hefðbundnum veiðum innan 20 ára. Nýjar atvinnugreinar, sem nýta auðlindir landhelgi okkar, munu skjóta enn frekar rótum og geta orðið fyrirferðarmiklar á komandi árum. Tækifærin liggja m.a. í aukinni fiskirækt, líftækni, fullvinnslu aukaafurða, tækniþróun tengdri umhverfismálum, skipahönnun og vinnslu, aukinni markaðssetningu með íslenskar sjávarafurðir er- lendis, vaxandi stofnum nýrra veiðitegunda við Ísland eins og skelfiski og nýtingu þara og rækt- un þörunga svo eitthvað sé nefnt. Fjöldi stofnana og félagasamtaka hefur stuðlað að því á síðustu árum að mun meiri umræða fer nú fram um tækifær- in í bláa hagkerfinu og margt hefur áunnist í verðmæta- sköpun. Á komandi árum þurfa þessir aðilar að efla samstarf sín í milli til að vinna að framgangi bláa hagkerfisins. Þrátt fyrir gott starf hefur ekki tekist nægilega vel að kynda undir áhuga nýrra kynslóða Íslendinga á þeim tækifærum sem við sjáum í hafinu. Við Íslendingar eigum að ávinna okkur traust sem for- ystuland í nýsköpun og umhverfisvernd á hafinu. Þá þurfum við að muna að langflest öflugustu fyrirtækin sem tengjast bláa hagkerfinu hafa orðið til að hluta eða öllu í samstarfi við rannsóknarteymi í háskólum, Matís eða Hafró. Efla þarf þessar stofnanir. Þá þarf að styrkja enn frekar samkeppn- issjóði og efla nýsköpunar- og frumkvöðlaumhverfið hér- lendis. Árið 2020 getur orðið árið sem lagði grunninn að markviss- ari stefnu og samstarfi um bláa hagkerfið á Íslandi. Eftir Þór Sigfússon »Ef rétt er á málum hald- ið kann að vera að allt að helm- ingur veltu bláa hagkerfisins sé lítið eða ekkert tengdur hefð- bundnum veið- um innan 20 ára. Þór Sigfússon Höfundur er stofnandi Sjávarklasans. Bláa hagkerfið 2020 Í anddyrinu á komm- únistasafninu í Prag eru þrjú orð „Draumur“, „Raunveruleiki“ og „Martröð“. Þessi orð lýsa vel þeim hryllingi sem þjóðir í Austur- Evrópu þurftu að þola til margra ára þegar stefna kommúnista var við lýði. Þeir sem ferðast til Prag ættu að heimsækja þetta merkilega safn um kommúnisma og kynna sér vel þann hrylling sem stefna kommúnista getur getið af sér. Það sem yfirleitt einkennir slaka stjórn- málamenn og stjórnmálaflokka eru skattahækkanir, aukning útgjalda og draumar sem breytast oft á tíðum í martraðir. Eignaupptökuskattar, skerðing lífeyris eldri borgara og út- rýming á allri hvatningu til athafna hefur verið leiðarljós vinstri stjórn- málaafla. Athafnafrelsi, frelsi ein- staklingsins og framfarir eru yfirleitt það sem leggur grunn að hagsæld þjóð- ríkja. Tækifæri Íslands eru fjöldamörg horft til framtíðar þar sem Ísland er einstakt land og eftirspurn eftir gæð- um þess mun eingöngu aukast á næstu áratugum. En til þess að nýta tækifær- in þarf athafnafrelsi nýsköpun og fram- farir. Tækifærið til að búa í haginn þegar vel árar hefur ekki verið nýtt til hagræðingar í rekstri heldur hefur launakostnaður og áfallnar lífeyris- skuldbindingar aukist með ógnarhraða. Stjórnleysið hefur náð hámarki á und- anförnum misserum þar sem hug- myndir án nokkurrar skynsemi í mörg- um málaflokkum eru kynntar án vitrænnar hugsunar. Það væri samt til- breyting frá þessum sömu vinstri stjórnmálaöflum sem sífellt tala um „samtal“ „gagnsæi“ og „heiðarleika“ í stjórnmálum að setja mál fram á vit- rænan hátt og með heilbrigða skyn- semi að leiðarljósi, en á það hefur skort verulega á undanförnum árum. Rík- isvæðing í dýrustu mála- flokkum landsins mun reyn- ast dýrkeypt til lengri tíma en rangar fjárfestingaákv- arðanir munu skattgreið- endur og almenningur þurfa að greiða að lokum. Ríkisvæðing dregur úr samkeppnishæfni og hvatningu Stjórnmálamenn og stjórnmálahreyfingar sem aðhyllast hækkun skatta og aukin útgjöld fara yfirleitt frjálslega með staðreyndir og fátt er um svör þegar spurt er hvernig eigi að fjármagna kosningaloforð sem þýða 150-200 ma.kr. í aukinni skuldsetningu og skattlagningu. Framangreind kosn- ingarloforð eru t.a.m. undir forystu stjórnmálaflokka til vinstri sem aðhyll- ast stefnumörkun sem yfirleitt eru draumar sem oftast verða að martröð. Það væri tilbreyting að heyra af hag- ræðingaraðgerðum í rekstri og skyn- samlegum tillögum um betri stjórnun og tengsl við skattgreiðendur. Sjálfbær framtíðarsýn þar sem hlustað er á þarfir fólks og þeirra sem greiða út- svar og fasteignagjöld virðist ekki ná eyrum forystu stjórnmálaafla til vinstri. Ríkisvæðing heilbrigðiskerf- isins, fjármálakerfisins, mennta- kerfisins og fjölmiðla mun leiða til auk- ins samfélagskostnaðar og minni samkeppnishæfni horft til lengri tíma. Athafnafrelsi og lækkun skatta eykur samkeppnishæfni þjóðfélaga og hvatn- ingu til góðra verka. Á 21. öldinni er Ísland enn þá að ríkisvæða heilbrigð- iskerfið, menntakerfið, fjármálakerfið og fjölmiðla þrátt fyrir að draumur kommúnistaríkjanna sé í flestum til- fellum orðinn að martröð fyrir löngu. Mikilvægt er að auka samkeppni með nýjum rekstrarformum sem veita að- hald og gera þannig kröfu til ríkis- rekstrar. Í öðrum norrænum ríkjum hafa rekstrarform á einkamarkaði veitt opinberum rekstri verulegt aðhald til að efla samkeppni og auka samkeppn- ishæfni. Að öðrum kosti mun kostnaður aukast og framleiðni minnka og skatt- greiðendur sitja upp með afleiðing- arnar. Mikilvægt er að Íslendingar hafi val hvort þeir notfæri sér heilbrigð- isþjónustu í opinbera kerfinu eða á einkamarkaði. Samkeppni eykur fram- leiðni, leiðtogafærni, og sparar ríkis- sjóði fjármuni. Í stað hagræðingar í rekstri hafa menn reynt að ná hagræð- ingu fram með aukinni skattheimtu á hópa sem hafa flestir lagt verulegar fjárhæðir til samfélagsins en á sama tíma fengið frekar lítið til baka þegar njóta á þjónustu hins opinbera. Undir- ritaður er náttúrulegur bjartsýnismað- ur sem er ólíkt mörgum vinstrimönnum sem hafa margir stórt vandamál sem er að spá fyrir mikilli svartsýni í mörg- um málum sérstaklega umhverfis- málum án þess að benda á raunveru- legar lausnir, sem er auðvitað ekkert nýtt. Sjálfbærni og umhverfisvernd eru verðmætasköpun 21. aldarinnar en nálgast verður verkefnið með bjartsýni að vopni og með raunverulegum lausn- um. Það er ekki skrýtið að öll komm- únistakerfi endi í martröð því hug- myndafræðin er röng eins og oft hefur komið í ljós. Eins og einn allra besti knattspyrnumaður heims Johan Cruyff orðaði þetta: „Að spila fótbolta er ein- falt, en að spila einfaldan fótbolta er það erfiðasta.“ Þetta ættu allir sem að- hyllast kommúníska hugmyndafræði að hafa í huga. Eftir Albert Þór Jónsson » Tækifæri Íslands eru fjöldamörg horft til framtíðar þar sem Ísland er einstakt land og eftirspurn eftir gæðum þess mun eingöngu aukast á næstu áratugum. Albert Þór Jónsson Höfundur er viðskiptafræðingur með MCF í fjármálum fyrirtækja og 30 ára starfsreynslu á fjármálamarkaði. Draumur, raunveruleiki og martröð

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.