Morgunblaðið - 30.12.2019, Side 18

Morgunblaðið - 30.12.2019, Side 18
18 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 30. DESEMBER 2019 ✝ Guðbjörg ÓskHarðardóttir fæddist á Bíldudal 17. ágúst 1943. Hún lést á Landspít- alanum í Fossvogi 13. desember 2019. Foreldrar hennar voru Hörður Gísla- son, vörubílstjóri og verkamaður í Reykjavík, f. á Pat- reksfirði 18.3. 1912, d. 31.5. 1984 í Reykjavík, og Elín Guðný Árelía Elíasdóttir, hús- freyja og verkakona í Reykjavík, f. 21.5. 1918 á Krosseyri við Arn- arfjörð, d. 28.8. 1969 í Reykjavík. Systkini: Alfreð Harðarson, kenn- ari í Reykjavík, f. 15.5. 1940, kvæntur Ástu Sigríði Alfons- dóttur leikskólakennara, börn yrkjufræðingi, f. 20.3. 1967, börn þeirra Tinna, f. 15.3. 1990, og Þór, f. 6.9. 1995, börn frá fyrra hjóna- bandi Nanna Dröfn, f. 15.11. 1980, og Gunnar Þórbergur, f. 25.1. 1985. Valgeir Þórbergur, f. 5.4. 1965, stýrimaður búsettur í Reykjavík, barn frá fyrra hjóna- bandi Vala Þöll, f. 26.7. 1991. Elín Björk, f. 2.7. 1967, búsett í Hafn- arfirði, börn Eyþór Ægisson, f. 30.1. 1986, og Elísabet Alexía Jónsdóttir, f. 8.8. 1990. Maki 2) Haukur Heiðdal, f. á Patreksfirði 12.7. 1941, þeirra barn Guðný Ósk tanntæknir, f. 19.3. 1974, gift Árna Birni Erlingssyni viðskiptafræð- ingi, f. 7.8. 1967, börn þeirra Ant- on Björn, f. 4.11. 1997, Kolbún Eva, f. 6.9. 2007, Karen Björg, f. 21.4. 2009. Maki 3) Jón Eyþór Jónsson, flugvirki Reykjavík, f. 21.5. 1944, sem lifir eiginkonu sína. Guðbjörg eða Gugga eins og hún var gjarnan kölluð ólst upp í Laugarneskampi í Reykjavík fram á unglingsár þegar fjölskyldan flutti í Gnoðarvog 28. Gugga fékk lömunarveiki aðeins 3 ára gömul og reyndist sá sjúkdómur hennar förunautur allt lífið. Þrátt fyrir erfiðleika sjúkdómsins var Gugga alltaf full af orku og baráttuþreki sem ásamt gleðinni kom henni ávallt þangað sem hún ætlaði sér. Gugga giftist fyrsta manni sínum Gunnari Þórbergi Þórðarsyni 25.12. 1961 og bjuggu ungu hjón- in á Meistaravöllum 33 í Reykja- vík ásamt 3 ungum börnum sínum þegar Gunnar fórst með m/b Dagnýju 7.3. 1969, hinn 28. ágúst sama ár missti Gugga svo móður sína en þessi áföll reyndust henni þungbær og settu mark sitt á allt hennar líf. Gugga kynntist svo ungum manni frá Patreksfirði, Hauki Heiðdal, sem hún giftist 18.11. 1972 en leiðir þeirra skildu nokkrum árum síðar. Gugga kynntist svo eftirlifandi manni sínum Jóni Eyþóri 1988 en þau gengu í hjónaband 17.8. 1992. Gugga og Jón bjuggu síðustu 20 árin í Frostafold 6 í Reykjavík. Útför Guðbjargar fer fram frá Grafarvogskirkju í dag, 30. desember 2019, klukkan 13. þeirra Jónas Guðni, f. 9.2. 1968, Hans Guð- berg, f. 21.8. 1971, og Aldís Elín, f. 15.2. 1979; Sigurgísli Harðarson, f. 6.8. 1955, lyfjafræðingur, kvæntur Kirsten Moesgard lyfjafræð- ingi, börn þeirra Tomas Gíslason Moesgaard, f. 2.9. 1988, og Elisabet Gísladóttir Moesgaard, f. 23.7. 1992, þau eru búsett í Danmörku. Maki 1) Gunnar Þórbergur Þórð- arson skipstjóri, f. í Hergilsey á Breiðafirði 10.5. 1942, d. 7.3. 1969. Börn þeirra, Hörður, f. 11.10. 1961 skipstjóri og viðskiptafræðingur búsettur í Reykjavík, kvæntur Jónu Dísu Sævarsdóttur garð- Elsku mamma mín, nú er komið að leiðarlokum hjá þér, elskan mín, það verður skrítið að heyra ekki í þér á hverjum degi þú sem varst alltaf svo hlý og stappaðir í mig stálinu þegar mér leið sem verst. Nú þarft þú ekki að þjást meira elskan mín. Þakka þér fyrir allt það góða sem þú gerðir fyrir mig og mín börn, ég veit að vel verður tekið á móti þér. Hvíl í friði, elsku mamma mín. Þín dóttir, Elín Björk. Gugga eins og hún var oft nefnd fæddist á Kaldabakka á Bíldudal í Arnarfirði 17. ágúst árið 1943. Hún var skírð eftir móðursystur sinni, Guðbjörgu, og Óskari, sem fórust með skipinu Þormóði sem sökk sama ár. Hún ólst upp í Laugar- neskampi og gekk í Laugarnes- skóla. Gugga fékk lömunarveiki um tveggja ára aldur sem varð til þess að annar fóturinn lamaðist og var alltaf styttri en hinn. Snorri Hallgrímsson sá mikilhæfi læknir gerði nokkrar aðgerðir á Guggu sem höfðu bætandi áhrif. Eitt sinn kom maður í heimsókn og sagði aumingja Gugga að vera svona hölt, sú litla svaraði að bragði: „Þú getur bara verið aumingi sjálf!“ og stappaði í gólfið með betri fætin- um. Viljastyrkurinn kom þarna strax í ljós sem átti eftir að reynast henni vel í lífinu ásamt einstöku hjartalagi. Gugga giftist Gunnari Þórðar- syni og eignuðust ungu hjónin börnin Hörð, Valgeir og Elínu. Gunnar var vanur sjómaður og lærður skipstjóri. Hann var feng- inn til þess að ferja skip að vetr- arlagi á milli Hornafjarðar og Stykkilshólms ásamt tveimur öðr- um. Á leiðinni gerði aftakaverður með mikilli ísingu sem varð þess valdandi að skipið fórst í Faxaflóa með allri áhöfn. Þetta var mikið reiðarslag fyrir ungu fjölskylduna. Elín móðir Guggu stóð eins og ávallt við hlið dóttur sinnar og barnabarna en því miður lést hún úr sjúkdómi nokkrum mánuðum eftir slysið. Föðurfólk Gunnars reyndist fjölskyldunni mjög vel og voru drengirnir oft hjá þeim í Flat- ey. Löngu seinna veikist Elín yngri fyrir miðjan aldur af erfiðum sjúk- dómi. Gugga var þá hennar klettur líkt og Elín eldri hafði áður verið dóttur sinni. Gugga giftist síðar Hauki Heið- dal og gekk hann börnunum í föð- urstað. Þau eignuðust saman Guð- nýju Ósk. Seinna giftist hún Jóni Eyþóri sem var henni til halds og trausts í veikindum. Yndisleg vin- kona þeirra hjóna hún Malla (Mál- fríður) sýndi þeim einstaka um- hyggju og hjálpsemi sérstaklega við heimilishaldið, var það ómetan- legt og erum við stórfjölskyldan henni sérstaklega þakklát. Einnig viljum við þakka öllum sem veittu Guggu aðhlynningu á spítala og heimili í hennar miklu veikindum. Kærleikur þeirra og umhyggja var okkur mikils virði og erum við þeim ævinlega þakklát. Gugga var vinamörg og ræktaði samböndin eins vel og hún gat. Lífsreynsla Guggu og kærleikur hefur hjálpað mörgum enda hlust- aði hún á fólk með hluttekningu og skilningi. Síðustu misserin lifði hún með æðruleysi og trúarfestu þrátt fyrir miklar þrautir. Gugga skilur eftir sig trausta og duglega afkom- endur. Þegar ég kveð mína elskulega Guggu systur eftir 76 ára samfylgd hjálpar mér trúin á að ég hitti hana í öðrum heimi. Ég þakka henni kærleiksríka samfylgd sem aldrei féll skuggi á. Við vottum Jóni Ey- þóri, börnum og mökum þeirra ásamt allri fjölskyldunni einlæga samúð við fráfall okkar ástkæru Guðbjargar Óskar Harðardóttur. Alfreð Harðarson og Ásta Sigríður Alfonsdóttir. Jónas Guðni. Hans Guðberg, Guðrún og fjölskylda. Aldís Elín, Játvarður Jökull og fjölskylda. Núna er komið að kveðjustund. Ég man eftir þér frá því ég var lítil í Torfufellinu þegar við Guðný vorum að bralla eitthvað saman. Þegar þið mamma komuð brjálaðar af því að við höfðum tekið fínu dúk- ana ykkar til að hafa dót á tombólu. Af hverju þið voruð ekki sáttar er hulin ráðgáta því við vorum bara að reyna að græða smápening. Því miður datt sambandið niður þegar við fluttum til Keflavíkur en var tekið upp fljótlega eftir að for- eldrar mínir skildu. Ég man eftir mörgum stundum við eldhúsborðið í Reynigrundinni, á Nýbýlavegin- um og loks í Frostafoldinni þar sem spjallað var um alla heima og geima, hlegið og grátið, glaðst og syrgt. Þið mamma hafið gengið í gegn- um ótrúlega hluti saman og alltaf getað fundið styrk í hvor annarri sem er ómetanlegt í fari vina. Ég fann líka alltaf fyrir mikilli hlýju og væntumþykju frá þér í minn garð og hvað þú trúðir enda- laust á hæfileika mína í öllu sem ég gerði. Það er skrítið að þú skulir vera búin að kveðja þennan heim en það er líka gott að hugsa að þú hafir loks fengið hvíld eftir langvarandi og erfið veikindi sem hafa fylgt þér nærri allt þitt líf. Ég vildi að ég gæti fylgt þér til þinnar hinstu hvílu en ég veit að við munum hittast aftur þegar Guð uppfyllir loforðið sem hann gaf okk- ur í Opinberunarbókinni 21:4. Og hann mun þerra hvert tár af augum þeirra. Og dauðinn mun ekki framar til vera, hvorki harmur né vein né kvöl er framar til. Hið fyrra er farið. Sjáumst í Paradís, yndislega mamma mín nr. 2. Elsku fjölskylda. Ég votta ykkur mína dýpstu samúð á þessari erfiðu stundu, hugur minn er hjá ykkur. Kveðja Bryndís og Jóhannes. Við andlátsfregn þína, allt stöðvast í tímans ranni. Og sorgin mig grípur, en segja ég vil með sanni, að ósk mín um bata þinn, tjáð var í bænunum mínum, en Guð vildi fá þig, og hafa með englunum sínum. Við getum ei breytt því sem frelsarinn hefur að segja. Um hver fær að lifa, og hver á svo næstur að deyja. Þau örlög sem við höfum hlotið, það verður að skilja. Svo auðmjúk og hljóð, við lútum að frelsarans vilja. Þó sorgin sé sár, og erfitt er við hana að una. Við verðum að skilja, og alltaf við verðum að muna, að Guð hann er góður, og veit hvað er best fyrir sína. Því treysti ég nú, að hann geymi vel sálina þína. Þótt farin þú sért, og horfin ert burt þessum heimi. Ég minningu þína, þá ávallt í hjarta mér geymi. Ástvini þína, ég bið síðan Guð minn að styðja, og þerra burt tárin, ég ætíð skal fyrir þeim biðja. (Bryndís Jónsdóttir) Elsku vinkona, takk fyrir allar samverustundirnar sem við höfum átt í gegnum árin. Ég votta öllum aðstandendum mína dýpstu samúð. Þín vinkona, Malla. Guðbjörg Ósk Harðardóttir ✝ Rósa Aðal-steinsdóttir frá Ási, Vopnafirði, fæddist 30. septem- ber 1958 á Vopna- firði. Hún lést á líknardeild Land- spítalans 16. desem- ber 2019. Foreldrar hennar voru Stefán Aðal- steinn Sigurðsson, sjómaður og út- gerðarmaður frá Ási, Vopnafirði, f. 12. júní 1925, d. 24. desember 2010, og Stefanía Sigurðardóttir frá Galtarhrygg í Mjóafirði við Djúp, f. 22. júlí 1925, d. 13. ágúst 1968. Eftirlifandi bræður Rósu eru 1) Páll, skipasmiður, f. 23. júlí prófi gekk Rósa í Hússtjórnarskól- ann á Akureyri og lagði síðar stund á fataiðn við Iðnskólann í Reykjavík. Árið 2002 útskrifaðist Rósa sem skrifstofutæknir frá Menntaskólanum á Egilsstöðum og ári síðar hóf hún nám á listnáms- braut við Verkmenntaskólann á Akureyri. Rósa byrjaði snemma að salta síld og vann stærstan hluta starfsævi sinnar við fiskvinnslu á Vopnafirði. Hún sinnti þó einnig nokkrum öðrum störfum á Vopna- firði, Akureyri og í Reykjavík og vann þá meðal annars við sútun á skinnum, umönnun aldraðra og við saumastörf. Rósa var meðlimur í Hvíta- sunnukirkjunni. Hún hafði áhuga á kristilegum samkomum, söng, ætt- fræði, ferðalögum, handavinu, föndri, saumaskap og mörgu fleira. Útför Rósu fer fram frá Vopna- fjarðarkirkju í dag, 30. desember 2019, og hefst athöfnin klukkan 14. 1956, kona hans er Astrid Linnéa Örn Aðalsteinsson, saumakona og hús- móðir, f. 18. apríl 1962. Börn þeirra eru a) Katrín Stef- anía, f. 25. ágúst 1988, b) Lýdía Linnéa, f. 6. ágúst 1990, gift Juho P. Koskela, börn þeirra eru Otto Aleksander og Aron Páll, c) Enok Örn, f. 17. apríl 1997. 2) Ásmundur, húsa- smiður, f. 9. september 1957. Rósa gekk í barna- og ungl- ingaskóla á Vopnafirði og stund- aði síðar nám við Alþýðuskólann á Eiðum. Að loknu gagnfræða- Eitt sinn var lítil stúlka í litlu þorpi, sem átti fáa að. Eða þannig. En barnið finnur sér alltaf stað, þar sem það er velkomið og finnur til öryggis og hlýju. Einn þeirra staða var í Ási. Hjá Alla mínum, sem var mér sem afi og mér þykir óendanlega vænt um. Í Ási voru líka börn Alla; Rósa, Palli og Ási. Rósa dóttir Alla sá um heimilið á þeim tíma sem við flytjum austur og alla tíð. En móðir hennar lést þegar Rósa var 10 ára. Líf Rósu var ekki dans á rósum, hvorki auð- velt né einfalt og engin var silfur- skeiðin í munni. En alltaf var stutt í glettni og bros, sem og vilja til að vera öðrum innan handar. Ég á margar góðar minningar, m.a. jólaboðin, þar sem boðið var upp á grillaðar samlokur með skinku og osti fyrir skotturnar þrjár og heitu kakó, ásamt kúfuðu borði af veislu- réttum. Allar stundirnar í Fagra- hjallanum, blómin og heimagerðu gjafirnar, sodastream, poppvélin og fótanuddtækið. Hárskrautið sem Rósa gaf mér eitt sinn, en það hafði hún átt sem barn og geymi ég það nú á góðum stað. Rósa átti og mun ávallt eiga sér stað í hjarta mér. Hlýjan, brosið, hreina andlit- ið og augnsvipurinn. Hvíl í friði, Rósa mín, þín er saknað og minnst. Rósa verður jarðsungin 30. des- ember, sem er sami dagur og Alli minn var jarðsettur fyrir 9 árum. Því miður get ég ekki verið við- stödd og sendi því kveðju hér til aðstandenda og vina. Ævibraut vor endar senn, er vér hljótum sjá, allir Drottins munu menn mætast heima þá. Ef ei dauðinn undan fer, ástkær frelsarinn kemur senn og burt oss ber beint í himininn. Ó, er okkar vinir allir mætast þar, ganga á geislafögrum grundum eilífðar, lofa Guð og Lambið lífið sem oss gaf. Sorgin dvín, sólin skín, sjá Guðs náðarhaf. Margir, er vér unnum heitt, undan fóru heim. Hafa stríð til lykta leitt, ljúft vér fögnum þeim. Þar er sérhvert þerrað af þeirra sorgartár. Arf á himnum Guð þeim gaf, gleðjast allra brár. Varðveit klæðin helg og hrein Herrans blóði í, Svo þér ekkert mæti mein Myrkursins á ný. Lúður Drottins hljómar hátt, Hver er viðbúinn? Jesús kemur, kemur brátt. Kom þú, Drottinn minn! (Sigríður Halldórsdóttir) Sonja Dröfn Helgadóttir. Þegar ég frétti andlát Rósu Aðalsteinsdóttur frá Vopnafirði Rósa Aðalsteinsdóttir hugsaði ég hvaða orð lýsti henni best. Eftir svolitla umhugsun var það orðið gleðigjafi. Frá því að ég man fyrst eftir Rósu var alltaf stutt í gamansemina og dillandi hláturinn. Nú á seinni árum var hún mjög virk á Facebook og vinir hennar þar kunnu að meta skrýtl- urnar og gamansögurnar sem streymdu frá Rósu nær daglega þar til undir það síðasta. Við hjónin og börnin okkar heimsóttum Vopnafjörð um páska snemma á 9. áratug síðustu aldar. Erindið var að taka þátt í samkom- um í Hvítasunnukirkjunni. Ég fann til tengsla við starfið þar í gegnum Sigurmund afa minn Ein- arsson og Margréti ömmu Þor- steinsdóttur sem störfuðu þar. Vopnfirðingar tóku okkur mjög vel, ekki síst Rósa. Hún stóð fyrir veisluhöldum af mikilli rausn og ekkert var til sparað. Þannig var hún, örlát, fórnfús og veitandi. Þrátt fyrir gamansemina var líf Rósu ekki alltaf auðvelt. Hún og bræður hennar misstu móður sína meðan þau voru lítil. Það markaði líf þeirra upp frá því eins og ann- arra sem verða fyrir móðurmissi. Hún átti auk þess við veikindi að stríða en tókst við þau af æðruleysi og faldi kannski líðan sína oft á bak við glaðværðina. Rósa kom í heimsókn til okkar 11. júlí í sumar til að fá lánaðar Hannasögur, eftir föður minn heit- inn. Þar er lýsing á því þegar virðuleg frú mætti á Kotmót í Kirkjulækjarkoti í árdaga þess mótshalds. Frúnni var vísað til svefns í heyhlöðu bóndans ásamt fleiri mótsgestum. Þegar komið var fram á nótt varð bóndanum gengið fram hjá hlöðunni og blöskraði að sjá hvað mikið hey hafði ruðst út um hlöðuopið. Hann safnaði saman vænu fangi og kast- aði inn um hlöðugatið. Heyið lenti á frúnni sem vaknaði við vondan draum en bóndinn tók á sprett. Frúin sem um ræðir var amma Rósu og ákvað hún að rifja söguna upp í vitnisburði sínum í tilefni af 70 ára afmæli Kotmóta á liðnu sumri. Svo fékk Rósa váleg tíðindi um meinið sem dró hana til dauða. Við hjónin fengum að heimsækja hana á Landspítalann og þá leið henni vel, miðað við aðstæður, og áttum við góða stund. Ekki óraði mig fyrir því að það væri okkar kveðjustund. Bæn mín og von var sú að henni gæfist lengri ævi, en svo varð ekki. Ég er þakklátur fyrir það hvað Rósa var mér, gleðigjafi, og bið Guð að blessa minningu hennar og að hugga ástvini hennar í sorg þeirra. Guðni Einarsson. Það er mikil eftirsjá og sökn- uður að þessari gefandi konu, sem svo fallega vitnaði um trúna á Krist á sinni lífsgöngu. En aðeins 61 árs er hún látin, varð 16. þessa mánaðar að lúta í lægra haldi fyrir krabbameini sem hún greindist með í ágústmánuði. Hún var virk Hvítasunnukona, lifandi þáttur í því mikla bæna- samfélagi, sjálf afar kröftug og ástundunarsöm bænakona en þó um leið glaðlynd og gamansöm nánast flestum fremur. Kallaði hún sig á stundum Vopna-Rósu, en einnig Rósu Guðs. Hún var líka kunn að óborgan- legri fyndni á Facebook og átti þar á 13. hundrað vina. Nú er Face- booksíða hennar, facebook.com/ riorosin, orðin að minningarsíðu um Rósu, og á þriðja hundrað manns hefur nú þegar minnzt hennar þar afar hlýlega, enda held ég undirritaður, að hún hafi verið elskuð af öllum. Hún var ennfremur félagi í Kristnum stjórnmálasamtökum, nokkurn veginn frá upphafi þeirra samtaka 2007. Vegna búsetu henn- ar á Vopnafirði voru samskiptin við hana mest gegnum netið og í síma, en þó var líka hitzt, m.a. kom hún á a.m.k. einn af mánaðarleg- um fundum okkar á þessu ári. Fyrir hönd minna 23 félaga í KS vil ég þakka Rósu samleiðina með okkur og alla samstöðu. Blessuð sé minning hennar í huga okkar allra og í áhrifunum af vitnisburði henn- ar um frelsarann. Jón Valur Jensson. Það snerti mig djúpt þegar ég frétti af andláti Rósu Aðalsteins- dóttur um miðjan desember síð- astliðinn. Ég kynntist Rósu fyrir nokkrum árum þegar ég flutti á Vopnafjörð. Fljótlega eftir að ég kom þangað kom hún að máli við mig ásamt frænku sinni. Þær kynntu mér hugmynd að rekstri nytjamarkaðar fyrir notaða hluti. Markmiðið með markaðnum var að selja notaða hluti og ágóðinn rynni til góðra mála í samfélaginu. Markaðinn nefndu þær Hirðfíflin og vinnan við markaðinn var sjálf- boðavinna. Þær rökstuddu nafnið á markaðnum á þann veg að þær væru hálfgerð fífl sem hirtu drasl sem fólk henti og seldu. Þannig hugsuðu þessar góðu konur og mér fannst mikilvægt að sveitar- félagið aðstoðaði þær fyrstu skref- in við að koma starfseminni á lagg- irnar. Markaðurinn er í blómlegum rekstri í dag og hefur lagt stórar fjárhæðir til verkefna á Vopnafirði, auk þess að vera vísir að samfélagsmiðstöð á svæðinu. Rósa var vinmörg, enda per- sóna sem var umhugað um vini sína, sýndi þeim vináttu og virð- ingu. Hún var trúuð kona, réttsýn og starfaði innan Hvítasunnusafn- aðarins á Vopnafirði. Ætíð var stutt í húmorinn og hún gerði oft góðlátlegt grín að sjálfri sér, var fylgin sér eins og ég mátti reyna þegar hún og frænka hennar ákváðu að stofnsetja Hirðfíflin og þær vantaði aðstoð mína við verk- efnið. Þá var hún réttsýn og órétt- læti var nokkuð sem misbauð hennar lífssýn. Ég er þakklátur fyrir að hafa fengið tækifæri til að kynnast Rósu, þessari jákvæðu og glað- væru konu. Megi hún hvíla í Guðs friði. Ólafur Áki Ragnarsson.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.