Morgunblaðið - 30.12.2019, Qupperneq 24
24 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 30. DESEMBER 2019
Fossháls 27, 110 Reykjavík
Opnunartími 7.30-16.30
Sími 557 8866
pantanir@kjotsmidjan.is
Komdu við
eða sérpantaðu
- Fyrir áramótaveisluna -
Lambakjöt, svínakjöt, nautakjöt
og villibráð
Gæða
kjötvörur
60 ára Óli Siggi er
Siglfirðingur. Hann er
vélvirki að mennt og
vinnur á JE vélaverk-
stæði á Siglufirði.
Maki: Margrét Bjarna-
dóttir, f. 1964, vinnur
hjá hreingerninga-
fyrirtækinu Dagar.
Börn: Geirrún Sigurðardóttir, f. 1994, og
Ólöf Steinunn Sigurðardóttir, f. 2000.
Stjúpbörnin eru fjögur.
Foreldrar: Sigurður Jónsson, f. 1933, d.
1993, sjómaður á Siglufirði, og Geirrún
Jóhanna Viktorsdóttir, f. 1932, d. 2010,
húsmóðir á Siglufirði.
Sigurður Ólafur
Sigurðsson
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Margir fá snilldarlegar skyndi-
hugmyndir en þú ert ein/n af þeim sem
kunna að láta þær verða að einhverju.
Ástarsamband styrkist með hverjum
degi.
20. apríl - 20. maí
Naut Þú býrð yfir ýmsum hæfileikum
sem nýtast þér þegar á reynir. Besta leið-
in til að eignast vini er einfaldlega að vera
vinalegur.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Þarfir þínar skipta jafn miklu
máli og annarra. Ekki setja þig alltaf í síð-
asta sætið. Mundu að sannleikurinn er
sagna bestur.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Eru engar lausnir í sjónmáli? Með
því að hreinsa af borðinu býrðu til pláss
fyrir eitthvað nýtt. Slakaðu á eins oft og
þú getur.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Yfirborðskennd vinátta kemur og fer
og þú gerir lítið veður út af því. Sam-
komulag næst í deilu.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Farðu þér hægt í því að fitja upp á
nýjum hlutum í dag og gakktu heldur frá
öllum lausum endum. Láttu hjartað ráða
för.
23. sept. - 22. okt.
Vog Þú hittir óvænt gamlan vin sem get-
ur komið þér til hjálpar í erfiðu máli. Ák-
veddu að sinna þörfum þínum betur á
nýju ári.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Það er mikið rót á öllu í
kringum þig. Hristu af þér slenið, þú hef-
ur líka þitt til málanna að leggja.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Vertu á varðbergi gagnvart
fagurgala sem kom nýlega inn á sjónar-
svið þitt. Ekki er allt gull sem glóir.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Ástarsambönd eða ástvinir
gætu valdið þér miklum vonbrigðum í
dag. Sjálfstraust þitt bíður þó ekki
hnekki.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Framtíðaráform eru þér ofar-
lega í huga. Ráðfærðu þig við þína nán-
ustu um framtíðina. Leitaðu aðstoðar ef
þú þarft með.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Taktu þér tak í peningamálunum.
Hrífandi fólk verður á vegi þínum.
og það fimmta stærsta í heimi.
Kröfulýsingar voru tæplega 30 þús-
und frá yfir 100 löndum og kröfu-
fjárhæð yfir sjö þúsund milljarðar.
Eins og gefur að skilja voru verk-
efnin í slitastjórninni mikil og sér-
stæð og voru starfsmenn slitabúsins
yfir 100 manns þegar mest lét. Ég
starfaði fyrir slitabúið jafnhliða því
að reka Gjaldheimtuna og Moment-
um í samstarfi við mína meðeig-
endur og starfsfólk og voru þessi
fimm ár vægast sagt viðburðarík.“
Davíð hefur lengi verið viðriðinn
handboltann, hann spilaði alla tíð í
breytta innheimtuþjónustu. Á fyrstu
árunum var hún í samstarfi við
frum- og milliinnheimtufyrirtækið
Momentum, sem þá var rekið af
Þórði Þórðarsyni lögmanni. Árið
2006 keypti Gjaldheimtan félagið og
hefur Davíð rekið bæði fyrirtækin
saman og gerir enn.
Davíð var skipaður af héraðsdómi
Reykjavíkur í slitastjórn Kaupþings
banka í maí 2009 og starfaði í slita-
stjórninni til ársloka 2013 auk ráð-
gjafarstarfa í nokkurn tíma eftir
það. „Þar var um að ræða lang-
stærsta gjaldþrot Íslandssögunnar
D
avíð Benedikt Gíslason
fæddist 30. desember
1969 í Reykjavík.
Hann bjó í Hlíðunum
fyrstu árin og fór fyrst
í æfingadeild Kennaraháskóla Ís-
lands. Hann flutti með fjölskyldu
sinni í Sævargarða á Seltjarnarnesi
13 ára gamall og lauk grunnskóla-
prófi frá Valhúsaskóla 1985. Davíð
gekk í Menntaskólann í Reykjavík
og brauðskráðist þaðan frá eðlis-
fræðideild 1989. Þaðan lá leiðin í
lagadeild Háskóla Íslands þar sem
Davíð útskrifaðist sem cand. juris
1995 og fékk lögmannsréttindi 1996.
„Tvær bjartsýnistilraunir voru
reyndar að senda mig í sveit, annars
vegar á Skammadalshól í Mýrdal,
þar sem Gísli faðir minn hafði verið í
sveit, og Vorsabæ á Skeiðum. Báðar
tilraunir voru stuttar en skemmti-
legar þar sem heyofnæmi mitt tók
völdin og gerði vistina erfiða. Of-
næmið varð hins vegar að lúta í
lægra haldi fyrir sprautumeðferð á
unglingsárum.“
Meðan á námi stóð vann Davíð
fjölbreytt sumarstörf. Fyrstu sumr-
in starfaði hann sem verkamaður í
verksmiðju Péturs Snælands við
húsgagna- og svampdýnugerð,
handlangari hjá Hagvirki og loks
sem fangavörður í laganámi, bæði í
Hegningarhúsinu við Skólavörðu-
stíg, kvennafangelsinu í Kópavogi og
gæsluvarðhaldsfangelsinu við Síðu-
múla. Síðustu sumrin starfaði Davíð
sem fulltrúi á Almennu málflutn-
ingsstofunni hjá Jónatan Sveinssyni,
Hróbjarti Jónatanssyni og Reyni
Karlssyni.
Eftir laganám hóf Davíð störf hjá
Almennu málflutningsstofunni í
Borgarkringlunni (síðan við Sigtún
42) við almenn lögfræðistörf þótt
löginnheimta hafi fljótt verið stór
hluti starfsins. Eftir skemmtileg og
fjölbreytt átta ár stofnaði Davíð
löginnheimtufyrirtækið Gjaldheimt-
una í lok árs 2003 í samstarfi við
Kristin Hallgrímsson og Óskar
Norðmann sem voru þáverandi eig-
endur lögmannsstofunnar Fulltingis
ásamt Óðni Elíssyni.
Gjaldheimtan hefur frá upphafi
veitt viðskiptavinum sínum fjöl-
Gróttu utan tveggja ára í Fram
1991-1993 og á vel yfir 400 meist-
araflokksleiki með Gróttu. Hann lék
með unglingalandsliðunum upp í
U21. Hann sat í stjórn Gróttu um
aldamótin þegar félagið tefldi fram
sameinuðu liði með KR í fyrsta
skiptið og tók einnig stöðu í stjórn
félagsins 2012. Hann hefur unnið
fyrir Handknattleikssamband Ís-
lands frá 2007, bæði sem lagalegur
ráðgjafi, í aga-, dómara- og laga-
nefnd. Hann hefur verið formaður
laganefndar HSÍ og í stjórn sam-
bandsins frá 2010 og varaformaður
þess frá 2015. Davíð situr í laganefnd
ÍSÍ frá 2017 og hefur verið formaður
þeirrar nefndar frá 2019.
„Líf mitt hefur mikið til snúist um
handbolta, ég byrja í honum þegar
ég flyt á Nesið og öll fjölskyldan hef-
ur verið í handbolta, konan mín og
börnin. Nú er Eva Björk að spila í
Svíþjóð, Þorgeir í HK og Anna Lára
og Benedikt í Gróttu. Næst á dag-
skrá hjá okkur hjónunum er að
fylgja A-landsliði karla eftir á EM í
Malmö núna í janúar.“
Auk handboltans hefur Davíð
gríðarlegan áhuga á stangveiði. „Ég
læri veiðimennskuna hjá föður mín-
um og afa sem voru miklir stang-
veiðimenn. Ég ólst upp við ármót
Davíð B. Gíslason, lögmaður og framkvæmdastjóri – 50 ára
Fjölskyldan Frá vinstri: Þorgeir Bjarki, Benedikt Arnar, Davíð, Anna Lára, Brynhildur og Eva Björk.
Handboltinn stór hluti af lífinu
Veiðimaðurinn Davíð staddur við
Svalbarðsá síðastliðið sumar.
Hjónin Davíð og Brynhildur á 25
ára brúðkaupsafmæli þeirra í fyrra.
30 ára Ásta ólst upp í
Kópavogi en býr í
Garðabæ. Hún er
sjúkraþjálfari að
mennt og vinnur á
taugasviði á Reykja-
lundi.
Maki: Sigurður Möller,
f. 1989, fjármálaverkfræðingur hjá
KPMG.
Börn: Jón Trausti Möller, f. 2016, og
Anna Sigrún Möller, f. 2018.
Foreldrar: Gunnar Kristófersson, f. 1961,
eigandi GK Seafood, og Anna Helgadótt-
ir, f. 1963, íslenskufræðingur og próf-
arkalesari. Þau eru búsett í Reykjavík.
Ásta Kristín
Gunnarsdóttir
Til hamingju með daginn
Garðabær Anna Sigrún Möller
fæddist 24. september 2018 kl.
19.11 í Reykjavík. Hún vó 4.330 g
og var 53 cm löng. Foreldrar henn-
ar eru Ásta Kristín Gunnarsdóttir
og Sigurður Möller.
Nýr borgari