Morgunblaðið - 30.12.2019, Side 25
DÆGRADVÖL 25
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 30. DESEMBER 2019
Smáratorgi 1, 201 Kópavogi, sími 588 6090, vl@verkfaeralagerinn.is
Verkfæralagerinn
Mán.-fim. kl. 9-18, fös. kl. 9-18:30, lau. kl. 10-18, sun. kl. 12-17
Óskum landsmönnum
gleðilegra jóla
og farsældar
á komandi ári
Grímsár og Hvítár í Borgarfirði, en
veiðistaðurinn þar heitir Skuggi.
Mér líður best úti í á að velta fyrir
mér flugum, rennsli og tökumögu-
leikum. Keppnisskapið nýtist vel
þar. Ég hef einnig alltaf haft gaman
af dansi og hef síðustu ár stundað
zumba-dans af miklum móð og verið
afleysingakennari í zumba hjá
Hjartastöðinni Dans og jóga hjá Jóa
og Teu.“ Davíð fylgist líka með fót-
bolta og hefur verið mikill Totten-
ham-stuðningsmaður frá barnsaldri.
„Ég ætla ekki að halda veislu í til-
efni afmælisins, en í staðinn ætlum
við hjónin í afmælisferð til Ástralíu í
febrúar/mars og sameina þannig
fimmtugsafmæli okkar beggja, en
konan mín verður fimmtug í mars.“
Fjölskylda
Eiginkona Davíðs er Brynhildur
Þorgeirsdóttir, f. 23.3. 1970, við-
skiptafræðingur. Þau giftu sig 10.7.
1993. Foreldrar hennar eru hjónin
Þorgeir Pálsson, f. 19.5. 1941, fyrr-
verandi flugmálastjóri, og Anna S.
Haraldsdóttir, f. 20.9. 1942, fyrrver-
andi skrifstofumaður. Þau eru bú-
sett í Reykjavík.
Börn Davíðs og Brynhildar eru
Eva Björk, f. 30.6. 1994, nýútskrifuð
úr verkfræði frá HR, búsett í Stokk-
hólmi; Þorgeir Bjarki, f. 12.12. 1996,
við viðskiptadeild HÍ; Anna Lára, f.
30.8. 2000, nemi við lagadeild HÍ;
Benedikt Arnar, f. 14.7. 2003, nemi í
Menntaskólanum í Reykjavík.
Systir Davíðs er María Gísladótt-
ir, f. 31.12. 1974, kennari, búsett í
Reykjavík.
Foreldrar Davíðs: Hjónin Gísli
Benediktsson, f. 16.4. 1947, d. 12.7.
2016, viðskiptafræðingur og sér-
fræðingur hjá Nýsköpunarsjóði, og
Eva María Gunnarsdóttir, f. 1.4.
1949, fyrrverandi læknaritari. Hún
er búsett í Reykjavík.
Davíð Benedikt
Gíslason
Kristín G. Guðlaugsdóttir
húsfreyja í Reykjavík f. á
Kirkjubæjarklaustri
Magnús Pétursson
héraðslæknir á Ströndum og í Rvík og þingmaður
Strandamanna, f. á Gunnsteinsstöðum í Langadal, A-Hún.
Margrét Magnúsdóttir
hárgreiðslukona og leikkona í Reykjavík
Eva María Gunnarsdóttir
fyrrverandi læknaritari í
Reykjavík
Jóhann Gunnar Halldórsson
tónlistarskólastjóri á Blönduósi
Ingibjörg Ólafsdóttir
húsfreyja í Reykjavík, f. á
Akranesi
Halldór Eyþórsson
kaupmaður í Reykjavík, f. á Mel á Mýrum
Guðrún Magnúsdóttir
húsfreyja í Rvík, f. í
Vorsabæ á Skeiðum
Gísli Jónsson
járnsmiður og
bifreiðasmíðameistari
í Rvík, f. í Hróarsholti í
Hraungerðishr., Árn.
Fríða Gísladóttir
hárgreiðslumeistari í Reykjavík
Benedikt Antonsson
viðskiptafræðingur í Reykjavík
Jóhanna M. Pálsdóttir
húsfreyja í Reykjavík, f. í
Halakoti á Álftanesi
Anton M. Eyvindsson
brunavörður í Reykjavík, f. í Reykjavík
Úr frændgarði Davíðs B. Gíslasonar
Gísli Benediktsson
viðskiptafræðingur og sérfræðingur
hjá Nýsköpunarsjóði
„BLÍÐA MÍN, FARÐU ÚR STÓLNUM OG
LEYFÐU MANNINUM AÐ SETJAST.”
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
... morgunkaffið í
rúminu.
HLUSTAÐU,
ELÍN!
ÞEIR ERU AÐ SPILA
LAGIÐ OKKAR!
ÞETTA ER
ÍSBÍLLINN
MÉR VÖKNAR
UM AUGUN
ÞAÐ HRYNJA
MÝS AF
ÞAKSPERRUNUM
HEIMA HJÁ
MÉR!
EN HRÆÐILEGT! ÉG VEIT! VEISTU HVERSU ERFITT ÞAÐ ER AÐ
SETJA SPELKUR Á SVONA LITLA FÓTLEGGI!
„DVL-VILLA. ÉG ENDURTEK DVL-VILLA. D
FYRIR DAUÐUR, V FYRIR VIÐGERÐAMAÐUR,
L FYRIR LJÓSRITUNARVÉLAR, Á
GÓLFINU. NÁÐIRÐU ÞESSU?”
Bókin Auðhumla um kýr ognautahald fyrri alda eftir Þórð
Tómasson í Skógum kom út nú fyr-
ir jólin og gaf ég mér hana í jóla-
gjöf. Það hefur verið skemmtileg
og fróðleg lesning yfir hátíðarnar
og rifjað upp fyrir mér barna- og
unglingsárin í Litlu-Sandvík, - ekki
síst kærar minningar um gagn-
kvæmt traust og vináttu Röggu
gömlu og kúnna. En að vináttu kúa
og kvenna víkur Þórður sér-
staklega í bók sinni og rifjar upp,
að konur löðuðu kýr heim til mjalta
með kalli:
Krossa mín, Krossa,
komdu heim
því mál er að mjalta.
Móðir Þórðar, Kristín Magn-
úsdóttir, hafði snemma það starf að
reka kýr í haga. Hún hafði yfir
stutta þulu í hvert sinn sem hún
skildi við kýrnar í haganum:
Farið þið heilar í haga,
safnið þið mör í maga,
mjólk í spena,
fisk í júgur,
hold á bein,
komið þið allar heilar heim.
Mjaltafötur munu oftast hafa ver-
ið fjórðungsfötur og tóku þá 20
merkur af mjólk. Í gamalli vísu seg-
ir:
Grána mín er gæðakýr,
gerir á básinn róla.
Ekki er mjólkin úr ’enni rýr,
átján marka skjóla.
Góð mjólkurkýr var nefnd bjarg-
ræðisbrunnur. Í gömlu ljóði bónda í
Norður-Múlasýslu segir:
Miðfjarðar á Nesi nú,
nú í vor ég reisti bú,
búskapurinn reiknast rýr,
rýr er björg en engin kýr.
Kýrlaus varla bjargast bær,
bær sem hefur fáar ær,
ærnar fáar fæða fólk,
fólk það hefur litla mjólk.
Eyjólfur á Hvoli lýsir í bók sinni
„Afi og amma“ þeirri blessun sem
ein kýr ömmu hans, Ingveldar Jóns-
dóttur, bar í bú: „Þegar mjólk-
urleysi gekk yfir og sultur á vorin
sagðist hún eiga „nægtabúr neðan í
henni Skjöldu sinni“. Ólafur maður
hennar hafði ekki getað róið vegna
handarmeins þann eina dag sem
fiskaðist. Þá orti Runólfur á Nesi“:
Ólafur af sulti súr
siglir mótgangs öldu.
En nóg á Inga nægtabúr
neðan í henni Skjöldu.
Mikil virðing fylgdi því ekki að
moka flór. Í gamalli vísu segir:
Man ég það ég mokaði flór
með mjóum fingrabeinum.
Nú er ég orðinn innstur í kór
með öðrum dáindissveinum.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Auðhumla