Morgunblaðið - 30.12.2019, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 30.12.2019, Blaðsíða 26
ENGLAND Kristján Jónsson kris@mbl.is Liverpool er í lok árs með þrettán stiga forskot á toppi ensku úrvals- deildarinnar í knattspyrnu. Í gær vann Liverpool 1:0-sigur gegn Wolv- es í Bítlaborginni með marki Sadios Manés. Stigasöfnun Liverpool er nánast óhugnanleg fyrir þá sem von- uðust eftir spennandi keppni um enska meistaratitilinn í vetur. Liðið hefur unnið átján af nítján leikjum sínum í deildinni og í þeim nítjánda gerði það jafntefli. Spurningin um það hvaða lið verð- ur Englandsmeistari árið 2020 er ekki áleitin á þessum tímapunkti. Einungis stórslys getur nú komið í veg fyrir að eyðimerkurgöngu þessa sigursæla félags ljúki í vor en Liver- pool hefur ekki unnið deildina síðan 1990. Ekki er nóg með að Liverpool hafi leikið afar vel í eitt og hálft keppnistímabil heldur eru keppinaut- arnir Manchester City og Leicester City ekki nærri eins stöðugir. Lík- urnar á því að þau lið tapi fáum stig- um sem eftir er eru því álíka litlar og að Liverpool taki upp á því að tapa sex til sjö leikjum á síðari hluta tíma- bilsins. Áhugaverðara er að velta fyr- ir sér hvort Liverpool geti möguleika leikið eftir einstakt afrek Arsenal frá árinu 2004 og farið í gegnum deildina án taps. Keppnistímabilin í boltanum ganga yfir áramótin eins og fólk þekkir en ef árið 2019 er skoðað þá hefur Liver- pool safnað saman 98 stigum í 37 leikjum. Ekkert bendir því til þess að liðið komi til með að gefa mikið eftir. Liðið hefur verið sannfærandi í lang- an tíma. Framganga liðsins á heimavelli er auk þess mjög athyglisverð. Liver- pool er nú taplaust á heimavelli í 50 deildarleikjum í röð. Hefur liðið unnið fjörutíu þessara leikja og gert tíu jafntefli. Sigurleikirnir eru orðnir sautján í röð. Jóhann kom aftur við sögu Þau ánægjulegu tíðindi urðu í leikjatörninni í jólarestinni að íslenski landsliðsmaðurinn Jóhann Berg Guð- mundsson sneri aftur á völlinn eftir meiðsli. Hann kom inn á sem vara- maður gegn Everton á annan í jólum og á laugardagskvöldið kom hann aft- ur inn á gegn Manchester United. Burnley mátti þó sætta sig við tap, 0:2, á heimavelli gegn United þar sem Anthony Martial og Marcus Rash- ford skoruðu. Burnley er í 12.-13. sæti með 24 stig eins og Arsenal. Hitt Íslendingaliðið, Everton, náði í þrjú stig á erfiðum útivelli í New- castle með Ítalann Carlo Ancelotti á hliðarlínunni. Everton vann 2:1 og hefur unnið báða leikina eftir að Ancelotti tók við. Dominic Calvert- Lewin skoraði bæði mörk Everton en Fabian Shcar skoraði fyrir New- castle. Gylfi Þór Sigurðsson lék allan leikinn hjá Everton og átti þátt í fyrra marki liðsins. Everton fékk þá auka- spyrnu á hættulegum stað en Gylfi skaut í varnarvegginn. Hann fékk boltann aftur og reyndi skot sem fór af andstæðingi og fyrir fætur Cal- vert-Lewins sem skoraði af stuttu færi. Everton er í 10.-11. sæti með 25 stig. Óhugnanleg stigasöfnun  Fádæma stöðugleiki hjá Liverpool AFP Hlýja Hamingjan er mikil hjá Jürgen Klopp, Andrew Robertson og öðrum hjá FC Liverpool um þessar mundir enda gengur þeim allt í haginn. 26 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 30. DESEMBER 2019 England Newcastle – Everton............................... 1:2  Gylfi Þór Sigurðsson lék allan leikinn með Everton. Burnley – Manchester United................ 0:2  Jóhann Berg Guðmundsson kom inn á sem varamaður hjá Burnley á 68. mínútu. Brighton – Bournemouth ........................ 2:0 Southampton – Crystal Palace ............... 1:1 Watford – Aston Villa .............................. 3:0 Norwich – Tottenham.............................. 2:2 West Ham – Leicester ............................. 1:2 Arsenal – Chelsea..................................... 1:2 Liverpool – Wolves................................... 1:0 Manchester City – Sheffield Utd............ 2:0 Staðan: Liverpool 19 18 1 0 47:14 55 Leicester 20 13 3 4 43:19 42 Manch.City 20 13 2 5 54:23 41 Chelsea 20 11 2 7 35:28 35 Manch.Utd 20 8 7 5 32:23 31 Tottenham 20 8 6 6 36:29 30 Wolves 20 7 9 4 29:25 30 Sheffield Utd 20 7 8 5 23:19 29 Crystal Palace 20 7 6 7 18:22 27 Everton 20 7 4 9 23:30 25 Newcastle 20 7 4 9 20:30 25 Arsenal 20 5 9 6 26:30 24 Burnley 20 7 3 10 23:32 24 Brighton 20 6 5 9 24:28 23 Southampton 20 6 4 10 24:38 22 Bournemouth 20 5 5 10 20:28 20 West Ham 19 5 4 10 21:32 19 Aston Villa 20 5 3 12 25:36 18 Watford 20 3 7 10 15:33 16 Norwich 20 3 4 13 21:40 13 B-deild: Millwall – Brentford................................ 1:0  Jón Daði Böðvarsson kom inn á eftir 81 mínútu hjá Millwall.  Patrik Gunnarsson var ekki í leikmanna- hópi Brentford. Ítalía B-deild: Spezia – Salernitana ............................... 2:1  Sveinn Aron Guðjohnsen kom inn á eftir 76 mínútur hjá Spezia. Tyrkland B-deild: Keciorengücü – Akhisarspor................. 1:0  Theódór Elmar Bjarnason var ekki í leikmannahópi Akhisarspor. KNATTSPYRNA HANDBOLTI Þýskaland Kiel – Lemgo........................................ 31:24  Gísli Þorgeir Kristjánsson lék ekki með Kiel vegna meiðsla en Bjarki Már Elísson skoraði 4 mörk fyrir Lemgo. Bergischer – Nordhorn ...................... 31:18  Arnór Þór Gunnarsson skoraði 3 mörk fyrir Bergischer en Ragnar Jóhannsson var ekki í leikmannahópnum.  Geir Sveinsson þjálfar Nordhorn. Balingen – Leipzig .............................. 26:24  Oddur Gretarsson skoraði 4 mörk fyrir Balingen. Erlangen – Melsungen........................ 25:30  Aðalsteinn Eyjólfsson þjálfar Erlangen. Stuttgart – Füchse Berlín .................. 32:33  Elvar Ásgeirsson skoraði eitt mark fyrir Stuttgart. Magdeburg – Wetzlar ......................... 34:27  Viggó Kristjánsson skoraði eitt mark fyrir Wetzlar. Leverkusen – Bad Wildungen ........... 25:24  Hildigunnur Einarsdóttir var ekki í leik- mannahópi Leverkusen. Neckarsulmer – Kurpfalz .................. 30:28  Birna Berg Haraldsdóttir skoraði 4 mörk fyrir Neckarsulmer. Frakkland Toulon – Dijon ..................................... 26:28  Mariam Eradze skoraði eitt mark fyrir Toulon. Fleury Loiret – Bourg-de-Péage....... 30:22  Hrafnhildur Hanna Þrastardóttir skor- aði 4 mörk fyrir Bourg-de-Péage. Noregur Bikarúrslitaleikur: Haslum – Elverum............................... 33:35  Sigvaldi Björn Guðjónsson skoraði 9 mörk fyrir Elverum. Svíþjóð Lugi – Sävehof......................................25:24  Markvörðurinn Ágúst Elí Björgvinsson kom ekki við sögu hjá Sävehof. Vináttulandsleikir karla Rúmenía – Holland.............................. 27:25  Erlingur Richardsson þjálfar Holland. Norður-Makedónía – Alsír .................. 25:24 Slóvakía – Tékkland............................. 24:21 Spánn Zaragoza – Baskonia ........................ 101:80  Tryggvi Snær Hlinason skoraði 4 stig og tók 2 fráköst fyrir Zaragoza á 14 mínútum. Danmörk Köbenhavn – Horsens....................... 61:103  Finnur Stefánsson þjálfar Horsens sem er á toppi deildarinnar. KÖRFUBOLTI Hrafnhildur Hanna Þrastardóttir skoraði fjögur mörk fyrir Bourg De Péage í efstu deild franska hand- boltans í gær. Liðið tapaði fyrir Fleury Loiret á útivelli. Liðið er í 10. sæti. Toulon er í 9. sæti en liðið tapaði heima fyrir Dijon 26:28 og skoraði Mariam Eradze eitt mark fyrir Toulon. Birna Berg Haralds- dóttir skoraði fjögur mörk fyrir Neckarsulmer þegar liðið vann Kurpfalz 20:28 í Þýskalandi. Liðið er í 10. sæti og Leverkusen, lið Hildigunnar Einarsdóttur, er í 6. sæti en Hildigunnur lék ekki í gær. Morgunblaðið/Eggert Marksækin Hrafnhildur Hanna spjarar sig vel í Frakklandi. Hrafnhildur og Birna með fjögur mörk Björgvin Páll Gústavsson, lands- liðsmaður í handknattleik, kemur heim til Íslands í sumar. Björgvin hefur skrifað undir tveggja ára samning við Hauka og gengur hann í raðir félagsins eftir tímabilið. Björgvin lék með Haukum tímabilið 2017-2018 en gekk svo í raðir Skjern í Danmörku. Í tilkynningu frá Haukum kemur fram að Björgvin og Andri Sig- marsson Scheving muni mynda markvarðapar liðsins á næsta tíma- bili en Grétar Ari Guðjónsson stefn- ir á að leika erlendis. Björgvin Páll fer aftur til Hauka Morgunblaðið/Árni Sæberg Á heimleið Björgvin Páll Gúst- avsson flytur heim næsta sumar. Bjarki Már Elísson heldur áfram að skora fyrir Lemgo í þýsku bundes- ligunni í handknattleik. Lemgo varð þó að játa sig sigrað gegn toppliði Kiel í gær 31:24. Bjarki skoraði fjögur mörk fyrir Lemgo en Gísli Kristjánsson er á sjúkralist- anum hjá Kiel. Bjarki er á meðal markahæstu manna deildarinnar eins og fram hefur komið. Lærisveinar Aðalsteins Eyjólfs- sonar í Erlangen töpuðu 30:25 á heimavelli gegn Melsungen og Arn- ór Þór Gunnarsson skoraði þrjú mörk fyrir Bergischer sem vann 31:18-stórsigur á Nordhorn, liði Geirs Sveinssonar. Oddur Gretarsson skoraði fjögur mörk í 26:24-sigri Balingen á Leip- zig og Viggó Kristjánsson gerði eitt mark fyrir Wetzlar sem tapaði gegn Magdeburg, 34:27. Elvar Ásgeirsson gerði einnig eitt mark þegar lið hans, Stuttgart, tapaði naumlega fyrir Füchse Berl- in. Stuttgart er því óþægilega ná- lægt neðstu sætum deildarinnar með 12 stig, tveimur frá fallsæti. Morgunblaðið/Eggert Vítaskytta Arnór Þór Gunnarsson skoraði þrívegis gegn Nordhorn. Kiel með eins stigs forskot á toppnum Sigvaldi Björn Guðjónsson fagnaði í gær bikarmeistara- titlinum í norska handboltanum þegar lið hans, Elver- um, vann 35:33-sigur á Haslum í úrslitaleiknum í Osló. Þetta er annað árið í röð sem Elverum og Sigvaldi vinna keppnina. Sigvaldi var markahæsti maður vallarins og átti stór- leik en hann skoraði níu mörk úr tólf skotum fyrir Elver- um. Staðan var jöfn í hálfleik, 14:14, en Elverum tók for- ystuna fljótlega eftir hlé. Munurinn varð mestur þrjú mörk en þegar þrjár mín- útur voru til leiksloka tókst liði Haslum að jafna metin, 32:32. Sigvaldi og félagar gerðu sér hins vegar lítið fyrir og skoruðu þrjú af síðustu fjórum mörkum leiksins til að tryggja bikar- meistaratitilinn. Sigvaldi hefur verið sannkölluð bikarhetja hjá Elverum en hann fór hamförum í undanúrslitum þar sem hann skoraði 18 mörk gegn Halden. Hann mun yfirgefa liðið í lok tímabils í sumar og er búinn að semja við pólska meistaraliðið Kielce. kristoferk@mbl.is Átti stórleik í bikarsigri Sigvaldi Björn Guðjónsson Íslandsvinurinn David Moyes er tekinn við West Ham United á nýjan leik. Félagið tilkynnti um ráðninguna í gærkvöldi og gerði Moyes átján mánaða samning. For- ráðamenn félagsins voru staðráðnir í að semja við Moyes áður en West Ham mætir Bournemouth í ensku úrvals- deildinni á nýarsdag. Manuel Pellegrini, fráfarandi knattspyrnustjóri West Ham, var látinn taka pokann sinn á laugardag eftir að liðið tapaði 1:2 gegn Leicester á heimavelli. West Ham er í 17. sæti, aðeins stigi frá fallsæti, eftir 19 umferðir en liðið hefur tapað fjórum af síðustu fimm leikjum sínum. Liðið fór ágætlega af stað á tímabilinu en tapaði svo níu leikjum í röð og vann aðeins tvo af 13. Moyes er sagður hafa fundað með forráðamönnum West Ham í gær. Moyes hefur áður staðið í slökkvistarfi hjá West Ham og það nýlega. Skot- inn bjargaði liðinu frá falli á síðari hluta tímabilsins 2017-2018. Aftur er leitað til Moyes David Moyes

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.