Morgunblaðið - 30.12.2019, Qupperneq 27

Morgunblaðið - 30.12.2019, Qupperneq 27
Eitt ogannað ÍÞRÓTTAMAÐUR ÁRSINS Kristófer Kristjánsson kristoferk@mbl.is Júlían Jóhann Karl Jóhannsson var á laugardaginn útnefndur íþróttamaður ársins 2019 af Sam- tökum íþróttafréttamanna í Hörpu í Reykjavík. Martin Hermannsson körfuknattleiksmaður hjá Alba Berl- ín hafnaði í öðru sæti og knatt- spyrnukonan Sara Björk Gunn- arsdóttir varð þriðja en bæði leika þau í Þýskalandi. Þetta er í fyrsta sinn sem Júlían hlýtur viðurkenn- inguna en hann var í öðru sætinu í fyrra. Hann er þriðji kraftlyftinga- maðurinn sem er kjörinn íþróttamað- ur ársins og þetta er í fjórða sinn sem sú íþróttagrein á sigurvegara kjörs- ins. Skúli Óskarsson var kjörinn árin 1978 og 1980 og Jón Páll Sigmarsson árið 1981. Júlían er því sá fyrsti í greininni til að hreppa hnossið í 38 ár. Ótrúlegt að komast í þennan hóp „Þetta hefur verið ótrúlegt ár og þessi endir ekki síður magnaður. Mað- ur er enn svolítið að lenda eftir þetta,“ sagði Júlían þegar Morgunblaðið náði tali af honum eftir verðlaunaafhend- inguna. „Þessi titill, íþróttamaður árs- ins, og þessi kvöldstund. Maður hefur horft á þetta í sjónvarpinu frá því að maður var barn og horft aðdáun- araugum á allt þetta íþróttafólk sem hefur fengið þessa nafnbót í gegnum tíðina. Og að vera núna kominn í þenn- an hóp er ótrúlegt.“ Hann er vel að verðlaununum kom- inn enda hefur Júlían á árinu sem er að líða haslað sér völl sem einn af sterkustu keppendum heims í +120 kílóflokki í kraftlyftingum. Í maí hlaut hann silfurverðlaun á Evrópumeist- aramóti fyrir samanlagðan árangur en hreppti á því móti einnig gull í rétt- stöðu. Hann vann svo bronsverðlaun fyrir samanlagðan árangur á heims- meistaramóti í Dúbaí í nóvember þar sem hann bætti jafnframt sitt eigið heimsmet í réttstöðulyftu, lyfti 405,5 kg, og tryggði sér gullverðlaun í grein- inni. Heildarþyngdin sem Júlían lyfti á heimsmeistaramótinu var 1.148 kg en það er mesta þyngd sem íslenskur kraftlyftingamaður hefur lyft. Það má því segja að allt hafi gengið upp á HM, sem gerist ekki alltaf í þessari íþrótt. „Þetta er svo sjaldgæft. Við keppum í þremur greinum og svo þessum sam- eiginlega árangri. Yfirleitt gengur nú allavega ágætlega í einni grein af þessum þremur, en að ná að bæta sig í öllum þremur … ég man ekki hvenær það gerðist síðast hjá mér, ekki síðan ég var bara byrjandi,“ sagði Júlían en hann lýkur í ár sínu þriðja keppnis- tímabili í opnum flokki. Þá er hann í þriðja sæti á heimslista IPF, Alþjóða- kraftlyftingasambandsins, í +120 kg flokki. Stefnan að komast enn lengra Júlían hefur stöðugt tekist að bæta sig frá ári til árs og spurningin hlýtur þá að vera: hversu langt getur hann komist? „Ég veit í raun og veru ekki hvert þakið er, en eins og staðan er núna stefni ég bara á að bæta mig meira. Mig langar að standa á palli í efsta sæti á heimsmeistaramótinu, ég hef það markmið og keyri áfram að því.“ Á heimsmeistaramótinu geta keppendur unnið sér þátttökurétt á heimsleikunum sem haldnir eru á fjögurra ára fresti en um er að ræða stærsta mót sem kraftlyftingafólk getur keppt á. Næst verður keppt í Bandaríkjunum 2021 og stefnir Júl- ían ótrauður þangað. „Á heimsmeist- aramótinu verður hægt að tryggja sér sæti á heimsleikunum. Það er stærsta fjölgreinamót í heimi fyrir þær íþróttagreinar sem eru ekki á Ólympíuleikunum. Allt púður hjá mér mun fara í að tryggja mig inn á heimsleikana,“ sagði Júlían, sem á óuppgerðar sakir á því móti. „Þetta er stærsti vettvangurinn okkar og ég mun leggja allt í sölurnar til að koma mér þangað inn. Ég keppti þarna 2017 og var þá fyrstur Íslendinga til að fá boð. Það mót gekk hins vegar ekki vel hjá mér og ég á því harma að hefna.“ Biðin eftir að kraftlyftingamaður hreppti þessi verðlaun aftur reyndist býsna löng en Júlían er fyrst og fremst ánægður með hvað íþróttin er farin að njóta mikilla vinsælda á nýj- an leik og hversu aðgengileg hún er orðin nýjum þátttakendum. „Mér finnst þetta alveg geggjað. Að Kraft- lyftingasambandið hafi gengið inn í ÍSÍ og að búið sé að byggja þetta upp aftur sem íþrótt undir sömu reglum og aðrar íþróttir. Það eru yfir 20 að- ildarfélög um allt land þar sem ung- um jafnt sem öldnum gefst kostur á að æfa kraftlyftingar og það er það sem er svo gaman að sjá. Annars er ég enn bara að lenda eftir gærdag- inn, ég er ótrúlega ánægður með þetta.“ Mjótt á mununum hjá Völsurum Kvennalið Vals í körfuknattleik var kjörið lið ársins en Valskonur urðu þrefaldir meistarar keppnis- tímabilið 2018-2019. Afar mjótt var á mununum í kjörinu því kvennalið Vals í handknattleik, sem einnig vann þrefalt á árinu, hafnaði í öðru sæti og stigafjöldi liðanna tveggja var sá sami. Körfuboltakonurnar voru hins vegar oftar í efsta sæti á at- kvæðaseðlum og höfðu því vinning- inn. Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari karlaliðs Gróttu í knattspyrnu, var valinn þjálfari ársins og þá var hand- knattleiksmaðurinn og þjálfarinn Al- freð Gíslason 19. íþróttamaðurinn til að vera tekinn inn í Heiðurshöll ÍSÍ. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Í Hörpunni Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra dáist að íþróttamanni ársins, Júlían J.K. Jóhannssyni, sem fór létt með að lyfta báðum styttunum. Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, brást vel við og náði að vera í rammanum hjá Kristni Magnússyni, ljósmyndara Morgunblaðsins. Veit ekki hvert þakið er  Júlían útnefndur í fyrsta sinn eftir að hafa verið annar í fyrra  Fyrsti kraft- lyftingamaðurinn í 38 ár sem hreppir hnossið  Sigursælar Valskonur hnífjafnar ÍÞRÓTTIR 27 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 30. DESEMBER 2019  Berglind Gígja Jónsdóttir hefur verið tilnefnd sem besti leikmaður ársins 2019 í strandblakinu í Dan- mörku. Blakfréttir greindu frá þessu um helgina. Berglind Gígja hefur verið búsett í Danmörku síðan árið 2014 og æfir þar strandblak allt árið. Berglind og Elísabet Einarsdóttir hafa leikið saman í strandblakinu en tóku sér pásu síðustu ár. Nú í sumar léku þær hins vegar saman á ný og gerðu frá- bæra hluti í Danmörku og víða um heim. Berglind og Elísabet léku á dönsku mótaröðinni auk þess að leika á World Tour-mótum í Liechtenstein og Kína. Þær tóku þátt í fjölmörgum mótum í Danmörku yfir sumarið og bar þar hæst sigur þeirra á lokamóti Pepsi Max-mótaraðarinnar.Valið verður kunngjört 22. febrúar 2020 á hátíð- legri athöfn danska blaksambandsins. Auk Berglindar eru þær Line Trans Hansen og Sofia Nørager Bisgaard tilnefndar.  Ítalska A-deildarlið Fiorentina hefur gert tilboð í Sverri Inga Ingason, mið- vörð grísku meistaranna PAOK og ís- lenska landsliðsins í knattspyrnu, samkvæmt netmiðlinum Íslendinga- vaktinni. Sverrir hefur verið orðaður við ítalska félagið undanfarna daga en liðinu hefur gengið illa í A-deildinni í vetur. Tilboðið er sagt vera upp á fjór- ar og hálfa milljón evra en Sverrir hef- ur átt góðu gengi að fagna með PAOK undanfarið og er fastamaður í liðinu.  Taphrina Los Angeles Lakers í NBA- deildinni í körfuknattleik er loks á enda eftir að liðið lagði Portland Trail Blazers að velli aðfaranótt sunnudags, 128:120. LeBron James hefur verið meiddur á nára undanfarið en skoraði þó 21 stig í leiknum, gaf 16 stoðsendingar og tók sjö fráköst er Lakers batt enda á fjög- urra leikja taphrinu. Kyle Kuzma var stigahæstur með 24 stig og Anthony Davis bætti við 20 stigum fyrir Lakers.  Breytingar á leikmannahópi karla- liðs Njarðvíkur í körfuknattleik halda áfram. Liðið hefur fengið liðstyrk fyrir átökin á seinni hluta tímabilsins í Dominos-deild karla í vetur en Lithá- inn Aurimas Majauskas hefur gert samning við liðið. Wayne Martin yf- irgaf Njarðvík fyrir jól og hélt til Sví- þjóðar og leikur þar út tímabilið. Majauskas er 27 ára gamall og mun vera hávaxinn miðherji en hann lék síðast í efstu deild í heimalandinu og spilaði einnig í háskólaboltanum í Bandaríkjunum. Hann er kominn með leikheimild og getur því tekið þátt í leik Njarðvíkur og ÍR 5. janúar næst- komandi.  Norski knattspyrnumaðurinn Erling Braut Håland gengur til liðs við þýska félagið Dortmund þegar félagsskipta- glugginn verður opnaður um áramót- in. Miklar vangaveltur hafa verið um framtíð Haalands sem hefur slegið í gegn með Salzburg í Austurríki. Nú hefur verið staðfest að Dortmund kaupir sóknarmanninn af Salzburg og hann hefur skrifað undir samning til ársins 2024 við þýska fé- lagið. BBC greindi fyrst frá fé- lagaskiptunum í gær. Kaupverðið er talið vera um 21 milljón evra. 1. Júlían J.K. Jóhannsson, kraftlyftingar................................... 378 stig 2. Martin Hermannsson, körfuknattleikur ........................................ 335 3. Sara Björk Gunnarsdóttir, knattspyrna ........................................ 289 4. Anton Sveinn McKee, sund .............................................................. 244 5. Arnar Davíð Jónsson, keila.............................................................. 218 6. Aron Pálmarsson, handknattleikur................................................ 158 7. Guðbjörg Jóna Bjarnadóttir, frjálsíþróttir...................................... 98 8. Glódís Perla Viggósdóttir, knattspyrna........................................... 61 9. Guðmundur Ágúst Kristjánsson, golf............................................... 55 10. Gylfi Þór Sigurðsson, knattspyrna ................................................... 53 11. Már Gunnarsson, sund.........................................................................30 12. Jóhann Skúlason, hestaíþróttir..........................................................29 13. Helena Sverrisdóttir, körfuknattleikur............................................22 14. Ragnar Sigurðsson, knattspyrna...................................................... 17 15. Haraldur Franklín Magnús, golf .......................................................15 16. Arnór Þór Gunnarsson, handknattleikur .........................................17 17.-18. Íris Björk Símonardóttir, handknattleikur..................................6 17.-18. Jón Axel Guðmundsson, körfuknattleikur...................................6 19.-20. Kolbeinn Sigþórsson, knattspyrna................................................5 19.-20. Jóhann Berg Guðmundsson, knattspyrna....................................5 21. Guðlaug Edda Hannesdóttir, þríþraut................................................3 22. Elín Metta Jensen, knattspyrna ...........................................................2 23.-24. Guðjón Valur Sigurðsson, handknattleikur.................................1 23.- 24. Margrét Lára Viðarsdóttir, knattspyrna ....................................1 Kjörið á íþróttamanni ársins 2019

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.