Morgunblaðið - 30.12.2019, Qupperneq 29
MENNING 29
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 30. DESEMBER 2019
Leiksýningar
ársins
Leiklistargagnrýnendur Morgunblaðsins, Daníel Freyr
Jónsson, Silja Björk Huldudóttir og Þorgeir Tryggvason, sáu
samtals hátt á fjórða tug leiksýninga á árinu og velja hér
hápunktana, sem spanna allt frá siðleysi til hugdirfsku.
Ríkharður III í Borgarleikhúsinu
Eftir William Shakespeare í leikstjórn
Brynhildar Guðjónsdóttur.
„Því eitt af því sem opinberast sem aldrei
fyrr, í einbeittri og úthugsaðri túlkun og
sviðsetningu Brynhildar Guðjónsdóttur og
hennar fólks í Borgarleikhúsinu, er hve
sorglega brýn þessi gamla harmsaga er.
[…] Túlkun og frammistaða Hjartar
Jóhanns Jónssonar í hlutverki Ríkharðs er
hennar stærsti sigur, og er þá allnokkuð
sagt. Krafturinn, húmorinn, grimmdin,
slægðin, ósvífnin og umkomuleysið; allt er
þetta þarna og skín í gegnum skelina til
skiptis eins og kvikasilfur. Það er heldur
ekki hægt annað en að nefna þá líkamlegu
þrekraun sem Hjörtur undirgengst hér og
stenst með glans.“
Okkar tíkarsonur
Súper – þar sem kjöt snýst
um fólk í Þjóðleikhúsinu
Eftir Jón Gnarr í leikstjórn Benedikts Erlingssonar.
„Auðvitað er Jón Gnarr rétti maðurinn til að
hefja á loft fána fáránleikans í leikhúsinu, taka
upp þráðinn þar sem Ionesco þraut örendið.
Hvort sem hlutskipti utanveltumannsins, út-
lagans, geimverunnar er Jóni áskapað eða
áunnið þá hefur sýn hans á fólk á sér öll ein-
kenni hins glögga gestsauga. [Sýningin] er
líka enn eitt dæmið um að því er virðist
áreynslulaust öryggi Benedikts Erlingssonar
við að finna viðfangsefnum sínum nákvæm-
lega réttan tón, stíl og yfirbragð. Hún mun
ekki breyta því hvernig við erum, en kannski
mun hún stundum kalla fram smá kinnroða
yfir því hvað við segjum.“
Geimveran
Mutter Courage í Samkomuhúsinu hjá Leik-
félagi Akureyrar og í Kassa Þjóðleikhússins
Eftir Bertolt Brecht í leikstjórn Mörtu Nordal.
„Þetta er verk sem lifir áfram í huga manns í
langan tíma og vekur til umhugsunar. Leik-
stjóri og leikhópur taka margar djarfar
ákvarðanir í uppsetningunni sem opna verk-
ið, draga áhorfendur jafnvel inn í handritið
sjálft og gera sýninguna jafn berskjaldaða og
fólkið sem hún fjallar um. Hér ber þessi djörf-
ung ávöxt sem er áhrifamikið og magnað út-
skriftarverkefni. Listaháskóli Íslands getur
verið stoltur af þessum hópi.“
Berskjölduð
mennska
Rocky! í Tjarnarbíói
Eftir Tue Biering í leikstjórn
Vignis Rafns Valþórssonar.
„Sveinn Ólafur [Gunnarsson] fer á kostum í
Rocky! […] Túlkun hans er full af blæbrigð-
um sem þjóna verkinu vel og minnist rýnir
þess ekki að hafa séð hann betri á sviði. […]
Hann berst við ósýnileg öfl sem kýla hann í
gólfið, missir bókstaflega málið þegar míkró-
fónn hans endar uppi í munninum á honum
og tekur æðiskast með hafnaboltakylfu á
svínsskrokki sem hann hefur hengt upp áður
en hann tekur á sig hlutverk svínsins í full-
kominni uppgjöf og býður andstæðingi sínum
að lumbra á sér.“
Að missa trúna
á lýðræðið
Matthildur í Borgarleikhúsinu
Eftir Roald Dahl í aðlögun Dennis Kelly og Tims
Minchin og leikstjórn Bergs Þórs Ingólfssonar.
„Matthildur er þrekvirki af því taginu sem
Borgarleikhúsið er komið með einstakt lag á
að gera vel. Það er heitt hjarta í sýningunni
sem hverfur ekki í hávaðanum, orðaflaumn-
um, tæknibrellunum og endalausri hug-
kvæmninni og örlætinu við smáatriðanostrið.
Verkið sjálft er hinsvegar gallagripur, það
vantar í það meiri dramatískan skriðþunga,
alvöru þroskabrautir fyrir helstu persónur
og mögulega aðeins færri nótur og orð. Engu
að síður mikil skemmtun og hrífandi kvöld-
stund.“
Pakkið mun sigraðAtómstöðin – endurlit í Þjóðleikhúsinu
Eftir Halldór Laxness Halldórsson í samvinnu
við Unu Þorleifsdóttur leikstjóra sýningarinnar,
byggt á skáldsögu Halldórs Laxness.
„Endurlit Dóra DNA og Unu Þorleifsdóttur á
Atómstöð Halldórs Laxness er að mörgu leyti
sterk sýning. Afburðavel sviðsett í glæsilegri
umgjörð og setur sitt pólitíska ljós aldrei undir
mæliker. Hér er fylgt fordæmi skáldsins og mál-
að með breiðum pensli og barið með þungri
sleggju. Leikgerðin leysir ekki alla snókera bók-
arinnar, er stundum í hægari takti en ég hefði
kosið, heldur til haga meiru af efni bókarinnar
en beinlínis var nauðsynlegt og hefði ekki þurft
að vera jafn löng og tilfellið er. En það er bit og
flug í viðbótartextum Dóra. Dirfskan og sann-
færingin er þarna, gleður, ergir og vekur.“
Upprunagoðsögn ógeðslegs þjóðfélags
Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is
LOKAKAFLINN Í SKYWALKER SÖGUNNI
SÉRSTÖK FORSÝNING
30. DES KL. 22.20