Fréttablaðið - 02.01.2003, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 02.01.2003, Blaðsíða 4
4 2. janúar 2003 FIMMTUDAGUR LÖGREGLUFRÉTTIR KJÖRKASSINN Farðu inn á frett.is og segðu þína skoðun frétt.is Býstu við að árið 2003 verði gott ár? Spurning dagsins í dag: Hver stjórnmálaforingjanna stóð sig best í umræðum um áramótin? Niðurstöður gærdagsins á www.frett.is 20,1% 30,2%Varla 49,7% HÓFLEG BJARTSÝNI Tæpur helming- ur þátttakenda telur að árið 2003 verði gott ár. Nei Já ÁRAMÓTAHEIT Komdu fjármálunum í lag! Er óreiða í þínum fjármálum? 1. Skref – Fjárhagsgreining Er búið að semja umfram greiðslugetu? 2. Skref – Samningagerð Vertu frjáls! 3. Skref – Greiðsluþjónusta 3 Skref ehf. -Fjármálaráðgjöf Lágmúla 9, 108 Reykjavík Sími 533-3007 Netfang: 3skref@3skref.is STJÓRNMÁL Það er óhjákvæmilegt að breytingar verði á skipulagi stjórnar borgarinnar og Reykjavíkurlistans við brotthvarf Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur úr stól borgarstjóra og ráðningu ópólitísks borgarstjóra segir Árni Þór Sigurðsson. „Pólitísk stefnumótun verður í höndum kjör- inna fulltrúa og borgar- ráðsliða en ekki borgar- stjóra,“ segir Árni Þór en kveður óákveðið hver taki við formennsku í borgarráði. Sjálfur er hann forseti borgarstjórnar og segir ekki fara vel á því að gegna báðum störfum í einu. Hann er nú varaformaður borgarráðs. Árni segir fyrir mestu að tekist hafi að tryggja framtíð Reykja- víkurlistans og það mál- efnastarf sem hann byggir á. „Ég hefði gjarnan viljað fá meiri tíma og ráðrúm til að kynna okkur þetta út- spil,“ segir hann enda stefnubreyting að ráða ópólitískan borgar- stjóra. Hann segir að um miðjan dag á sunnu- dag hafi menn gert sér grein fyrir að Reykja- víkurlistinn ætti ef til vill aðeins fáeina klukkutíma ólifaða. ■ Alfreð Þorsteinsson: Hefði skaðað stjórnkerfið STJÓRNMÁL Það hefði komið niður á stjórnkerfi borgarinnar ef óviss- an um stöðu borgarstjóra og framtíð Reykjavíkurlistans hefði dregist á langinn umfram það sem komið var þegar borgarstjóri sagði af sér, segir Alfreð Þor- steinsson. Alfreð þrýsti mjög á um að nið- urstaða yrði fengin í stöðu borgar- stjóra sem fyrst og virðist afstaða hans hafa ráðið úrslitum um að málið var leitt til lykta. „Mitt mat var að það væri ekki hægt að draga þetta mikið lengur.“ Hann segir þó að því hefði ekki þurft að ljúka með því að Ingibjörg Sólrún Gísladóttir segði af sér. „Hún átti alltaf þann kost að halda áfram sem borgarstjóri. Framsóknar- menn lögðu hart að henni að halda áfram,“ segir Alfreð. Þá hefði hún þurft að draga þingframboð sitt til baka. ■ STJÓRNMÁL „Framsóknarmenn bjuggu þetta ekki til en við höfum lagt okkur mjög fram um að leysa úr þessari stöðu,“ segir Halldór Ásgrímsson, formaður Framsókn- arflokksins, um lausn Reykjavík- urlistadeilunnar. „Það var okkar skoðun að það væri ekki hægt að hafa þetta mál opið lengur ef menn vildu halda trausti borgarbúa.“ Halldór segir að þrátt fyrir mikla spennu í Reykjavíkurlistan- um undanfarið hafi hann oft séð það svartara. „Það hefur oft komið upp á mínum pólitíska ferli ákveð- in óvissa og ef eitthvað er hefur það færst mjög til hins betra. Hér áður fyrr var ekki óalgengt að um áramótin og jólin væri mikil póli- tísk spenna. Ég hef séð margt al- varlegra en þetta.“ „Það erástæðulaust að ætla að þessir atburðir verði eitthvað ráð- andi um framhaldið. Ég held að þeir skilji ekki eftir sig nein slík djúp spor,“ segir Halldór aðspurð- ur um áhrif á mögulegar stjórnar- myndunarviðræður. „Það kemur að sjálfsögðu til greina að starfa með Ingibjörgu Sólrúnu. Ég og Framsóknarflokkurinn höfum átt gott samstarf með henni.“ ■ Steinunn Valdís: Söknuður STJÓRNMÁL Steinunn Valdís Ósk- arsdóttir segir það til marks um styrk Reykjavíkurlistans að tek- ist hafi að bjarga samstarfinu en segir mikinn söknuð að Ingi- björgu Sólrúnu Gísladóttur. „Mér finnst þetta sýna styrk og kjark Ingibjargar Sólrúnar að standa upp og leysa þetta mikla vandamál sem var uppi, hún gerði allt sem hún gat til að bjarga Reykjavíkurlistanum,“ segir Steinunn Valdís. „Mér finnst viðbrögðin hafa verið full harkaleg,“ segir hún um þá kröfu Framsóknar og Vinstri grænna um að borgar- stjóri viki. ■ HALLDÓR ÁSGRÍMSSON Það hafa ekki orðið slíkir brestir með Ingi- björgu Sólrúnu og Framsókn að samstarf í ríkisstjórn komi ekki til greina. Bjuggum ekki til deiluna en leystum hana: Ekki ráðandi um framhaldið ALFREÐ ÞORSTEINSSON „Mjög dugandi maður tekur við af aðsóps- miklum borgarstjóra.“ ÁRNI ÞÓR SIGURÐSSON Tókst að ræða við nán- asta baklandið en hefði viljað meiri umræðu. Árni Þór Sigurðsson: Breytingar óhjákvæmilegar ÁRAMÓT Slökkviliðið á höfuð- borgarsvæðinu fékk 14 útköll á gamlárskvöld. Öll voru þau minniháttar. Þrjú voru í heima- hús þar sem flugeldar höfðu ratað inn. Önnur voru flest vegna elds í ruslagámum og tunnum. Talsmaður slökkviliðsins sagði að þessi áramót hefðu verið þokka- leg miðað við önnur. Björgunarsveitir á Norðurlandi: Leitað að pari LEIT Björgunarsveitir Slysavarna- félagsins Landsbjargar af Norð- vesturlandi voru kallaðar út til leitar að manni og konu sem skil- uðu sér ekki á tilætluðum tíma á sveitabæ í Skíðadal í Eyjafirði. Parið hafði lagt af stað frá Blönduósi á sendibíl á hádegi á gamlársdag. Þegar ekkert hafði spurst til þeirra hófst leit. Það var um hádegisbilið að fólkið lét vita af sér. Parið hafði breytt ferðaáætlun sinni og ákveðið að fara fáfarna leið inn í Svartárdal. Ætluðu þau yfir ána við Mælifell en ákváðu að reyna það ekki. Höfðust þau fyrir í bílnum yfir nóttina og hringdu um leið og þau komust í síma- samband. ■ Fjölmenni á áramótabrennum Veðurguðirnir voru í liði með Íslendingum í ár. Fjölmargir mættu á brennur sem haldnar voru víðs vegar á höfuðborgarsvæðinu. Brennurnar fóru vel fram og engin alvarleg slys urðu á fólki. ÁRAMÓT Áramótabrennur voru haldnar víðs vegar á höfuðborgar- svæðinu og var fjölmenni á þeim flestum. Menn voru sammála um að sjaldan hafi veðrið verið hagstætt landanum og í ár. Ára- mótabrennur fóru vel fram og þurfti Slökkvilið höfuðborgar- svæðisins engin afskipti að hafa. Er góðu veðri þakkað, auk þess að raki var í jörðu, sem kom í veg fyrir sinubruna. Flugeldum var skotið upp við flestar brennurnar. Oft voru lætin svo mikil að þjófa- varnarkerfi í nærliggjandi bílum fóru í gang. Gera má ráð fyrir að þrjú hundruð tonnum af flugeldum hafi verið skotið upp og lá púður- mökkurinn yfir borginni. Athygli vakti að farið var að sprengja af fullum krafti strax eftir að ára- mótaskaupi Ríkissjónvarpsins lauk og stóðu lætin fram yfir mið- nætti. Samkvæmt upplýsingum á slysadeild Landspítala í Fossvogi urðu nokkur minniháttar slys af völdum flugelda en engin alvarleg tilfelli. Enginn leitaði til slysa- deildar vegna augnmeiðsla. Eldur kom upp í fjölbýlishúsi í Hátúni þegar flugeldur fór inn um glugga og kveikti í gluggatjöldum. Vel gekk að slökkva eldinn og urðu skemmdir litlar. ■ ÆSKUFÉLAGAR SAMEINAST Magnús Axelsson og Þórir Magnússon eru æskufélagar. Þeim finnst ómissandi að halda áramótin í sameiningu og hafa síðustu ellefu árin hist á heimili Magnúsar í Seláshverfinu og í öll skiptin hafa þeir farið á áramótabrennu. Á myndinni eru, auk Magnúsar og Þóris, Jakobína Ingibergsdóttir, Jakob Fannar Magnússon og Birgir Þórisson. MÆTA ÁRLEGA Á BRENNU Jón Garðar Sigurjónsson, Ólöf Rún Tryggvadóttir, Gerður Guðjónsdóttir, Danni, Selma María og Rakel sögðust mæta á áramótabrennu á hverju ári. Gerður kom alla leið frá Sel- fossi og var þetta í fyrsta sinn sem hún var viðstödd brennu í Reykjavík. Sagði hún sér líka það vel hve stemmingin væri góð á brennunni og ámóta stemningu ríkja á Selfossi. SÖNGELSKIR FYLKISMENN Haraldur Haraldsson og Ingi Stefánsson töldu það vera ómissandi hluta af ára- mótafagnaði að mæta í Fylkisbrennuna og syngja. Sögðust þeir hafa stundað þá iðju í mörg ár. „Við Fylkismenn stöndum saman hvort sem það er fyrsta eða síðasta dag ársins og hvort sem spilað er í fyrstu, annarri eða síðustu deild,“ skaut Haraldur inn í. Sammæltust þeir um að árið yrði kvatt með virktum og tekið yrði á móti nýju ári með miklum glæsibrag. TILHEYRIR AÐ HITTA GAMLA FÉLAGA Eiríkur Óli, Hrafnhildur, Linda, Gauti, Helga, Júlíus, Alexander Örn, Daníel og Birgitta mæt- tust við brennu. „Þetta tilheyrir, að stíga upp frá borðum og rölta niður að brennu og syngja eitt tvö lög,“ segir Eiríkur Óli, sem búið hefur í Árbænum síðan 1966. Hann segist alltaf hitta gamla félaga við áramótabrennuna og slíkt sé ómissandi. Hinn kunni hand- boltakappi Júlíus Jónasson sagðist koma úr öðru hverfi en Árbænum, en þrátt fyrir það hefði hann sótt Fylkisbrennu í mörg ár og alltaf skemmt sér konunglega. „Það ríkir mikill samhugur hjá Árbæingum, hvort sem það er í íþróttum eða öðru.“

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.