Fréttablaðið - 02.01.2003, Blaðsíða 19

Fréttablaðið - 02.01.2003, Blaðsíða 19
jarnám fyrir þig Fjarn IÐNSKÓLINN Í REYKJAVÍK Skólavörðuholti • 101 Reykjavík • Sími 522 6500 www.ir.is • ir@ir.is ÁFANGAR Í BOÐI: Upplýsinga- og fjölmiðlabraut Félagslegt og sögulegt samhengi grafískra miðla (MHS103) Kynning á sögu grafískra miðla frá upphafi til ljósmyndunar og prentunar í samtímanum. Inngangur að fjölmiðlun (FJÖ103) Fjallað er um prent-, ljósvaka- og netmiðla í sögulegu og fræðilegu ljósi. Fréttaflutningur er skoðaður sérstaklega. Hljóðtækni (HLT101) Kennd er notkun hljóðvinnsluforrits, klipping hljóðs, breytingar og samsetning. Inngangur að forritun (TÖL103) Í áfanganum munu nemendur fá undirstöðuþjálfun í forritun í hlutbundnu forritunarmáli. Markviss tölvunotkun (MTN103) Kennt er að nota tölvu á markvissan og nytsaman hátt, einnig notkun netsins og notkun samskiptaforrita. Myndgreining, týpógrafía og grafísk hönnun (MTG103) Kennd er leturfræði og leturnotkun og nemendur spreyta sig á áhugaverðum hönnunarverkefnum. Myndvinnsla og margmiðlun (MOM103) Hér er sýnt hvernig samþætting forms, myndar, leturs og hljóðs í nýjum miðlum er undirbúið og skipulagt. Rekstrartækni og gæðastjórnun (ROG102) Fjallar m.a. um rekstrarumhverfi fyrirtækja, stefnumörkun, gæðastjórnun, markaðsstarf og mannleg samskipti. Texti og textameðferð (TEX102) Í áfanganum er fjallað um textaskrif fyrir ólíka fjölmiðla. Farið er í grunneiningar texta og byggingu hans. Vefsíðugerð, myndvinnsla og myndbandagerð (VMM103) Kennd eru grunnatriði í vefsíðugerð og tekist á við undirstöðuatriði í vefsíðukóða, myndvinnslu og hreyfi- og stuttmyndagerð. Efnis- og pappírsfræði (EPP102) Hér eru skoðaðar mismunandi gerðir og eiginleikar pappírs í texta, myndir, auglýsingar o.fl. Kynnt er framleiðsla, innkaup, meðferð, geymsla og endurvinnsla á pappír. Ljós og litafræði (LLF102) Fjallað er um ljósnæmni með taugaboðum í auganu, með ljósnæmum söltum í ljósmyndafilmu og með kristöllum í CCD-fylkjum í rafeindasjám. Iðngreinafræði og starfskynning (IOS104) Hér er fjallað um störf og starfsumhverfi í upplýsinga- og fjölmiðlagreinum. Tölvubraut Tölvugrunnur (TÖL132) Hlutverk og virkni helstu hluta tölvubúnaðar. Grunnatriði stýrikerfanna Windows, Dos og Unix. Grunnáfangi í tölvutækni (TÆK102) Farið er í grunneiningar tölvunnar: bita og bæti, talnakerfi og flutning á milli þeirra, útreikninga og ýmsa tvítölukóða. Grunnáfangi í tölvufræði (TÖL102) Kennd eru undirstöðuatriði í Windows stýrikerfinu, ritvinnslu í Word og töflureikninum Excel. Framhaldsáfangi í EXCEL (TÖL212) Notkun EXCEL við áætlanagerð og stjórnun fjármála. Heimasíðugerð (HTM102) Grunnáfangi í heimasíðugerð og mikilvæg undirstaða undir alla vefforritun. Áhersla á HTML og grunnþætti þess. Framsetning og hönnun (FSH112) Kennd eru undirstöðuatriði skönnunar og vinnslu mynda í forritinu Photoshop. Rekstrartækni og gæðastjórnun (ROG102) Fjallar m.a. um rekstrarumhverfi fyrirtækja, stefnumörkun, gæðastjórnun, markaðsstarf og mannleg samskipti. Gagnasafnsfræði (GSF102) Grunnáfangi á tölvubraut. Kennt um venslaða gagnagrunna og smíði þeirra. Algengustu skipanir í fyrirspurnamálinu SQL. Inngangur að forritun (FOR103) Helstu þættir í sögu og þróun nútímaforritunar. Undirstöðuþjálfun í forritun í hlutbundnu forritunarmáli. Forritun í Java (FKH224) Kennd undirstöðuatriði í forritunarmálinu Java. Rafiðnarsvið Rafmagnsfræði (RAF304) Fyrir nema í rafvirkjun og rafvélavirkjun. Undirstöðuþættir rafmagnsfræði og uppbygging algengustu mælitækja í iðninni. Reglugerðir (RER101) Nemendur kynnast reglugerð um raforkuvirki og hvernig ákvæðum reglugerðar um öryggisþætti er framfylgt við verklegar framkvæmdir. Raflagnateikning (RLT102) Fyrsti áfanginn af þremur í raflagnateikningum fyrir rafvirkja. Segulliðastýringar (STÝ104) Fjallað er um uppbyggingu og virkni segulliða og fylgihluta þeirra, tákn og merkingar samkvæmt stöðlum. Loftstýringar (STÝ202) Farið er yfir helstu íhluti loftstýrikerfa, búnað sem notaður er í loftstýringum og virkni hans. Rafeindafræði (REF233) Fyrir nema í rafeindavirkjun. Einnig kjörin leið til upprifjunar eða endurmenntunar á þessu sviði. Rökrásir 1 (RÖK113) Fyrir nema í rafeindavirkjun og alla sem áhuga hafa á undirstöðugreinum rafeinda-, tölvu- og starfrænnar fjarskiptatækni. fyrir þig Innritað verður til 4. janúar. Kennsla hefst 17. janúar. Verð á einingu er 5.200 kr. fyrir fyrstu þrjár einingarnar, 5.000 kr. fyrir fjórðu til níundu einingu og síðan 4.500 kr. fyrir hverja einingu. Nánari upplýsingar á vef skólans. Kennsla einstakra áfanga er með fyrirvara um þátttöku. Innritun með tölvupósti: fjarnam@ir.is Nánari upplýsingar á vef skólans. FIMMTUDAGUR 2. janúar 2003 KVIKMYNDIR Ástralska söngkonan íðilfagra Natalie Imbruglia er bú- in að kaupa sér nýtt hús í Hollywood sem talið er að kosti rúmar 180 milljónir króna. Imbruglia mun búa í húsinu, sem hefur að geyma fimm svefnher- bergi, á meðan hún reynir að hasla sér völl sem leikkona í kvik- myndaborginni. Frumraun Imbruglia í Hollywood verður í gamanmynd- inni „Johnny English“ sem kemur í bandarísk kvikmyndahús í mars. Mótleikarar hennar verða ekki af verri endanum, eða þeir Rowan Atkinson og John Malkovich. ■ Natalie Imbruglia: Keypti sér rán- dýrt hús IMBRUGLIA Ætlar að meika það í Hollywood. KVIKMYNDIR Kvikmyndafyrirtækin í Hollywood keppast nú um að gefa út stórmyndir fyrir lok árs- ins til þess að eiga möguleika á Óskarsverðlaunatilnefningu eftir áramót. Samkvæmt nýjum regl- um Óskarsakademíunnar geta að- eins þær myndir sem voru frum- sýndar í bíó árið 2002 átt von á til- nefningu til verðlaunanna. Það verður svo gert opinbert 11. febr- úar hvaða myndir muni keppa um stytturnar við athöfnina þann 23. mars á næsta ári. Á meðal kvikmynda sem voru frumsýndar í Bandaríkjunum um helgina var söngleikjamyndin „Chicago“ með þeim Catherine Zeta Jones, Richard Gere og Reneé Zellweger í aðalhlutverk- um. Myndin hefur hlotið lof gagn- rýnenda og hefur þegar verið til- nefnd til átta Golden Globe-verð- launa sem yfirleitt er vísbending um velgengni á Óskarsverðlauna- hátíðinni. Kvikmyndin „The Hours“, sem gerð er eftir Pulitzer-verðlauna- bók um ævi og störf Virginu Woolf, var einnig frumsýnd í vik- unni. Með aðalhlutverk í þeirri mynd fara Meryl Streep, Nicole Kidman og Julianne Moore. Nýjasta mynd pólska leikstjór- ans Roman Polanski, „The Pian- ist“, var einnig frumsýnd. Hún segir frá tónlistarmanni á tímum seinni heimstyrjaldarinnar sem nær að flýja útrýmingarbúðir nasista. Myndin vann gull- pálmann á Cannes-kvikmyndahá- tíðinni síðasta vor. Þessar myndir, ásamt „The Two Towers“, eru taldar sigur- stranglegar í Óskarsverðlauna- baráttunni næsta vor. ■ Hollywood hitnar: Óskarsverð- launaslagurinn er hafinn CHICAGO Hér sést leikkonan Reneé Zellweger í hlutverki sínu í söngleikjamyndinni „Chicago“. Hún er talin líkleg til stórræða á næstu Óskarsverðlaunaafhendingu. KVIKMYNDIR Patrick Stewart, sem fer með hlutverk höfuðsmanns- ins Jean-Luc Picard í Star Trek- kvikmyndunum, segist hafa brostið í grát við tökur á lokaat- riðunum fyrir nýjustu myndina, Star Trek: Nemesis, sem jafn- framt er sú tíunda í röðinni. Stewart, sem er 62 ára, segist hafa orðið svo tilfinningaríkur vegna þess að myndin gæti hugs- anlega orðið sú síðasta í bálkin- um. „Mér leið eins og asna en til- finningarnar báru mig ofurliði. Að kveðja þegar við vorum að klára myndina var hreinasta kvöl fyrir mig.“ ■ Patrick Stewart: Grét við tökur á Star Trek STEWART OG SPINER Leikararnir Patrick Stewart, til vinstri, og Brent Spiner, sem leikur vélmennið Comm- ander Data, voru glaðir í bragði þegar Star Trek: Nemesis var kynnt í Þýskalandi.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.