Fréttablaðið - 02.01.2003, Blaðsíða 20

Fréttablaðið - 02.01.2003, Blaðsíða 20
20 2. janúar 2003 FIMMTUDAGUR LIKE MIKE kl. 2 og 4 JAMES BONDkl. 2, 5, 6.30, 8, 10 og 11.30 Sýnd kl. 2, 4, 6, 8, 10 og 11.30 Sýnd í lúxus kl. 3, 7 og 10.30 Forsýnd kl. 10.10GRILL POINT THE GREAT DICTATOR kl. 8 HARRY POTTER m/ísl. tali kl. 2 og 5 Sýnd kl. 2, 4, 6, 8 og 10 Sýnd kl. 2, 4, 6, 8 og 10 GULL PLÁNETAN kl. 1.45 og 3.45 VIT498 LILO OG STITCH m/ísl.tal kl. 2 VIT 429 SANTA CLAUS 1.40, 3.40, 5.50 og 8 VIT485 HARRY POTTER m/ísl.tal kl. 2, 5 og 8 VIT493 HARRY POTTER kl. 6 og 9.15 VIT468 GOSTSHIP kl. 10.10 VIT487 kl. 2, 4 og 6GULLPLÁNETAN m/ísl. tali kl. 8 og 10.05HAFIÐ kl. 2SANTA CLAUSE 2 kl. 4HARRY POTTER kl. 8.10 og 10.10HLEMMUR Sýnd kl. 4, 5.50, 8 og 10.10 VIT 496 Sýnd í lúxus kl. 5.50, 8 og 10.10 VIT 497 Sýnd kl. 2, 4, 6, 8 og 10.10 VIT 468 Sýnd kl. 2, 4 og 8 m/ísl. tali VIT 493 Breskir fjölmiðlar gera mikið úrþví þessa dagana að rithöfund- urinn J.K. Rowling þéni meira á ári hverju en Bretlandsdrottning. Tekjur hennar á árinu voru reynd- ar eins og sexföld laun Breta- drottningar. Rowling á að hafa náð að safna um 48 milljónum punda (6,3 milljarðar ísl. kr.) í sparibauk- inn þetta árið. Harry Potter-bæk- urnar rokseldust, auk þess sem hún fær væna prósentu af gróða kvikmyndanna. Kvikmyndin „The Two Towers“,sem valin var mynd ársins í ársuppgjöri Fréttablaðsins fyrir 2002, átti næst- bestu opnunar- helgi kvikmyndar hér á landi. Rúm- lega 19 þúsund manns sáu mynd- ina á fyrstu þrem- ur sýningardögun- um. 30 þúsund manns höfðu séð myndina eftir fyrstu 5 dagana. Talsmenn Skífunnar segjast von- góðir um að selja yfir 100 þúsund miða á myndina. Myndin er nú í 10. sæti yfir bestu myndir allra tíma á Internet movie database (imdb.com). Ástarlíf leikkonunnar DemiMoore er greinilega umtalað þessa daganna. Ekki er nóg með að hún hafi verið orðuð við sjálfan Bill Clinton á dög- unum því nú er hún sögð vera ást- kona kóngulóar- mannsins Toby Maguire. Moore, sem er fjörutíu ára, er sögð hafa komist í kynni við Maguire í gegn- um sameiginlegan vin þeirra, Le- onardo DiCaprio. Hann er sjálfur sagður vera fyrrum ástmaður leikkonunnar. Það er því deginum ljósara að það eru ekki aðeins miðaldra Hollywood-menn sem geta heillað yngri leikkonur upp úr skónum. TÓNLIST Á þessu ári eigum við eftir að sjá margar gamlar erlendar hetjur punga út nýjum plötum. Spenntastir bíða rokkunnendur líklegast eftir nýrri breiðskífu Radiohead. Sveitin hefur víst fært sig nær þeirri stefnu sem ein- kenndi „OK Computer“. Metallica skilar sinni fyrstu breiðskífu eftir fráhvarf bassa- leikarans Jason Newsted. Upptök- ur hafa staðið yfir á annað ár og meðal annars fékk Sigur Rós skeyti frá sveitinni þar sem þakk- að var fyrir innblástur. Talað er um að upptökustjórinn Bob Rock, sem gerði „svörtu plötuna“ með sveitinni, plokki bassann. Hljómsveitin The Cure ætlar að hefja upptökur á nýrri plötu í apríl. Upptökustjórinn Ross Robinson, sem gerði síðustu plötu At the Drive-in og tvær fyrstu plötur Korn, er að vinna nýju plöt- una með þeim. Blur gefur út sína umtöluðu plötu þar sem Fatboy Slim stjórnar upptökum. Gítar- leikarinn Graham Coxon kemur aðeins lítillega við sögu. Íslandsvinurinn Nick Cave gef- ur út plötuna „Nocturama“ í febr- úar. New York-rokkararnir The White Stripes og The Strokes gera sig klára fyrir aðra lotu og sveitin Yeah Yeah Yeahs slæst í hópinn. Af öðrum merkum útgáfum á ár- inu má nefna nýjar plötur frá Aliciu Keys, The Vines (þar sem goðsögnin Phil Spector stjórnar upptökum), Massive Attack, The Prodigy, Portishead, Deftones, U2, The Mars Volta, The Dandy War- hols, The Who, Ash, Britney Spears, Slipknot, The Cardigans, Saint Etienne, Swan (ný sveit Billy Corgan), Folk Implosion, The Strokes, Starsailor, The Streets, Grandaddy, Turin Brakes, Ryan Adams, Mogwai, Guns ’N’ Roses, Zack de la Rocha, Asian Dub Foundation, Beyoncé Know- les, Snoop Dogg, Creed, Placebo, 50 Cent og vonandi Lauryn Hill. Íslenska vorútgáfan í ár verður óvenju blómleg. Á fyrstu fimm mánuðum ársins má búast við nýj- um plötum frá Botnleðju (febrú- ar/mars), Maus (mars/apríl), The Funerals (mars/apríl), Daníel Ágústi, Desidíu (mars/apríl), Ein- ari Erni (mars/apríl), Jagúar, Kimono og Bang Gang. Aðrir sem vitað er um í plötusmíðum eru Mínus, 200 þúsund naglbítar, Slowblow, Dr. Gunni, Emilíana Torrini, Lúna, Heiða, Hafdís Huld og Sálin hans Jóns míns, sem ætl- ar að gefa út tónleika sína með Sinfóníuhljómsveit Íslands. Allar líkur eru svo á því að Vín- yll, Trabant, Egill Sæbjörnsson og Bubbi sláist í útgáfuhópinn. biggi@frettabladid.is FRÉTTIR AF FÓLKI Hvernig verður tónlistarárið 2003? Árið 2002 var gott tónlistarár. Rokkið sneri aftur, R&B senan varð metnaðar- fyllri og hiphoppið varð mannúðlegra á meðan erlend elektróník olli vonbrigð- um. Við hverju getum við búist af tónlistarárinu 2003? RADIOHEAD Nýja platan ætti að skila sér í plötubúðirnar fyrir sumarið. Liðsmenn hafa víst endurupp- götvað gítarinn og var platan hljóðrituð á mettíma í Los Angeles í haust. KVIKMYNDIR Önnur kvikmyndin í „The Lord of the Rings“-þríleikn- um hefur tekið inn yfir 200 millj- ónir dollara síðan hún var frum- sýnd í Norður-Ameríku, eða um 16 milljarða króna. Náði hún markinu á aðeins 12 dögum og er þar með ein þeirra kvikmynda sem fljótastar hafa verið að ná 200 milljónunum. Fyrsta myndin í þríleiknum, sem kom út fyrir síðustu jó,l var einni viku lengur að ná markmiðinu. Talið er að „The Lord of the Rings: The Two Towers“ hafi tek- ið inn um 400 milljónir dollara á heimsvísu síðan hún var frum- sýnd, eða um 32 milljarða króna. Tvær kvikmyndir með Leon- ardo DiCaprio eru á lista yfir fimm aðsóknarmestu myndir síð- ustu helgar í Bandaríkjunum. „Catch Me if You Can“ í leikstjórn Steven Spielberg náði öðru sæt- inu og „Gangs of New York“ í leikstjórn Martin Scorsese sat í fimmta sæti. ■ The Lord of the Rings: The Two Towers: 32 millj- arðar á heimsvísu TWO TOWERS Atriði úr nýjustu myndinni í „The Lord of the Rings“-þríleiknum. Hún virðist ætla að verða vinsælli en fyrirrennari sinn. JUSTIN TIMBERLAKE Ef einhverjir áhorfendur MTV- sjónvarpsstöðvarinnar eru orðnir leiðir á honum núna, bíðið þá bara. Sjónvarps- stöðin ætlar að þrengja spilunarlista sína og fjölga spilunum á vinsælustu lögunum. Myndin er tekin af næstu forsíðu tímarits- ins Rolling Stone. Sjónvarpsstöðin MTV: Þrengir spilunarlista sína SJÓNVARP Tónlistarsjónvarpsstöðin MTV hefur ákveðið að þrengja spil- unarlista sína. Þetta þýðir að enn færri myndbönd komast í spilun og lög vinsældalistanna fá aukið pláss. Lög tónlistarmanna á borð við Jennifer Lopez, Eminem, Justin Timberlake, Britney Spears og Christina Aguilera verða því, ótrú- legt en satt, spiluð enn oftar en þau eru núna. Aðeins tíu myndbönd komast á svokallaðan „a-lista“ og verða þau lög leikin minnst sex sinnum hvert á hverjum virkum degi. Á fyrstu útgáfuviku sinni verða lögin leikin allt að 50 sinnum. Talsmenn stöðv- arinnar segja að þannig vilji þeir tryggja nýjum listamönnum góða kynningu sem ætti að skila sér í aukinni plötusölu. Samtök listamanna mótmæla þessu harðlega þar sem mikið hafði verið kvartað nú þegar yfir þröng- um spilunarlistum sjónvarpsstöðv- arinnar. Þeir listamenn sem komast ekki í dagspilun á MTV-sjónvarps- stöðvunum tveimur í Bandaríkjun- um eiga litla sem enga möguleika á að selja mikið magn platna, enda hefur kynning laga gegnum mynd- bönd gífurleg áhrif á plötusölu. ■ NICOLE KIDMAN Segist hafa unnið að kvikmyndinni „The Hours“ í miðju þunglyndi eftir skilnað sinn við Tom Cruise. Hún segist aldrei hafa get- að ímyndað sér að myndin myndi vekja jafn mikla athygli og raun ber vitni. Kid- man leikur rithöfundinn Virginiu Woolf í myndinni og er orðuð við tilnefningu til Óskarsverðlauna.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.