Fréttablaðið - 24.01.2020, Blaðsíða 20
Elskulegur faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
Sigurður Kristinsson
lést laugardaginn 18. janúar sl. á
hjúkrunarheimilinu Sóltúni.
Útförin auglýst síðar.
Pétur Hrafn Sigurðsson Sigrún Jónsdóttir
Guðmundur Ragnar Gróa María Einarsdóttir
Sigurðsson Kemp
Sigurður Hrafn Pétursson Svanhvít Sigurðardóttir
Arnar Pétursson
Jóna Þórey Pétursdóttir
og barnabarnabörn.
Ástkær faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
Magnús Heiðar Sigurjónsson
Gilstúni 26, Sauðárkróki,
lést á Heilbrigðisstofnun Norðurlands
á Sauðárkróki 21. janúar sl.
Útför verður frá Sauðárkrókskirkju
föstudaginn 31. janúar kl. 14. Blóm og kransar afþakkaðir
en þeim sem vilja minnast Magnúsar er bent á
Heilbrigðisstofnun Norðurlands á Sauðárkróki.
Guðbrandur Magnússon Arndís Steinþórsdóttir
Heiðdís Lilja Magnúsdóttir Rúnar Már Smárason,
Sigurjón Magnússon Guðrún Bjarney Leifsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginkona mín, móðir,
tengdamóðir, amma okkar,
systir og mágkona,
Kolbrún Jónsdóttir
frá Reykholti,
lést á líknardeild Landspítalans, í faðmi
fjölskyldunnar, síðastliðinn miðvikudag.
Haraldur Gunnarsson
Steinþóra Jónsdóttir Valgeir Einarsson Mäntylä
Þórir Jónsson Hulda Olgeirsdóttir
Þorvaldur Jónsson Ólöf Guðmundsdóttir
Eiríkur Jónsson Björg Bjarnadóttir
og barnabörn.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir,
amma, langamma og systir,
Málfríður Hadda
Halldórsdóttir
Keldulandi 3,
Reykjavík,
lést þriðjudaginn 21. janúar.
Jarðarförin fer fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Esther G. Högnadóttir Marteinn Karlsson
Þórunn Högnadóttir Brandur Gunnarsson
Aron Högni, Hadda Rakel, Magnea Rut, Tristan Þór,
Birgitta Líf, Birgir Þór, Leah Mist,
Vignir Hrafn og Magnea Rún
Sigurlaug, Guðríður Erla, Kolbrún og Hekla
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
Jón Valmundsson
húsasmíðameistari og brúarsmiður,
Austurvegi 4, Vík í Mýrdal,
lést sunnudaginn 19. janúar á
hjúkrunarheimilinu Hjallatúni í Vík í Mýrdal.
Útför Jóns fer fram frá Víkurkirkju, laugardaginn 1. febrúar
næstkomandi, kl. 13.00. Þeim sem vilja minnast hans er
bent á hjúkrunarheimilið Hjallatún.
Steinunn Pálsdóttir
Steinunn Jónsdóttir Ingólfur Hjörleifsson
Guðrún B. Jónsdóttir Sigurbjörn Hjaltason
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Kristjana Jónsdóttir
Hjúkrunarheimilinu Grund,
áður Eiðismýri 30,
lést 8. janúar. Útför hennar fer fram frá
Seltjarnarneskirkju fimmtudaginn
30. janúar kl. 13. Þökkum starfsfólki á Hjúkrunarheimilinu
Grund sérstaklega góða umönnun og hlýhug.
Ólafur Haukur Ólafsson Elín Arna Arnardóttir Hannam
Valdimar Ólafsson Margrét Steinunn Bragadóttir
Guðrún Ingimundardóttir
Þórleif Drífa Jónsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskulegur eiginmaður minn, faðir
okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
Jón Óskar Álfsson
sem lést þann 13. janúar, verður
jarðsunginn frá Kirkju Óháða
safnaðarins þriðjudaginn
28. janúar klukkan 15.
Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir.
Inga Jóhanna Jónsdóttir
Jóhanna Ingunn Jónsdóttir
Axel Þórir Jónsson Minna Hrönn Pétursdóttir
Guðrún Lóa Jónsdóttir Jónas Vilhelm Magnússon
Ólafur Ari Jónsson Svanhildur Kristjónsdóttir
og fjölskyldur.
Maðu r veit a ld rei þegar maður byrjar hvernig ferlið verður en alltaf gengur það vel og alltaf best á tónleikunum, segir
Guðmundur Óli Gunnarsson, stjórn-
andi Sinfóníuhljómsveitar tónlistar-
skólanna, sem leikur í Langholtskirkju
á morgun, 25. janúar, klukkan 16. Hún
er samstarfsverkefni fjögurra skóla
á höfuðborgarsvæðinu, Sigursveins,
Kópavogs, Garðabæjar og Hafnarfjarð-
ar. „Svo bjóða þeir nemendum annarra
skóla að taka þátt, eftir því sem rúm er
í hljómsveitinni, ég veit að nú eru þrír
nemendur úr Tónlistarskóla Árnesinga
á Selfossi.“
Í sveitinni er fólk á aldrinum 13 til 20
ára. Hún er búin til í hvert sinn og spilar-
arnir eru með mismikla reynslu á bak
við sig. Fyrst var hún stofnuð 2004 og
hefur árlega haldið tónleika að undan-
gengnu hljómsveitarnámskeiði. „Ég
held þetta sé níunda árið sem ég er að
stjórna,“ segir Guðmundur Óli. „Auð-
vitað er kúnst að gera þetta þannig
að allt falli í sama farveginn. En ég hef
fengist við það í nokkra áratugi að sam-
eina krafta sem koma úr ýmsum áttum,
bæði hljómsveitir og kóra, og hef mikla
reynslu af því,“ tekur hann fram.
Guðmundur Óli segir gríðarlega
vinnu að baki svona tónleikum, eink-
um hjá nemendunum sem hafa undir-
búið sig, hver fyrir sig. „Þeir eru valdir af
kennurum sínum og skólastjórnendum.
Almenna krafan er að þeir hafi lokið
miðstiginu. Sumir hafa spilað í hljóm-
sveitum í sínum skólum, aðrir hafa enga
hljómsveitarreynslu. Það er ástæða þess
að skólarnir tóku sig saman á sínum
tíma, þeir vildu gefa sínum nemendum
tækifæri til að spila í sinfónískri hljóm-
sveit, hver og einn skóli hefur ekki
mannskap í það en saman geta þeir gert
það.“
Á hverju ári er einn sólóisti, þeir hafa
spilað á hin ýmsu instrúment og sungið.
Nú er það saxófónleikari og það segir
Guðmundur Óli nýlundu. „Það eru ekki
margir saxófónkonsertar til, svo þeim
sem velja það hljóðfæri gefast ekki mörg
tækifæri til að spila einleik. Þessi piltur,
Björgvin Brynjarsson, er langt kominn
í námi.“
Langholtskirkja hefur lengi verið
vettvangur þessara árlegu tónleika.
Nú er bryddað upp á þeirri nýbreytni
að halda líka skólatónleika. „Sami gall-
inn hefur ávallt fylgt verkefninu,“ segir
Guðmundur Óli. „Ef við teldum saman
klukkutímana sem fara í það veit ég ekki
alveg hvar við mundum enda. Svo hafa
alltaf verið bara einir tónleikar, þá er allt
búið. Því er skemmtilegt að gefa krökk-
unum færi á að spila oftar fyrir áheyr-
endur, um hálftíma dagskrá á tvennum
tónleikum fyrir grunnskólanemendur
nú á föstudagsmorgni.“
gun@frettabladid.is
Gengur best á tónleikum
Áttatíu ungmenni úr fjórum tónlistarskólum stilla saman strengi og halda tónleika í
Langholtskirkju á morgun, að loknu þriggja vikna námskeiði í hljómsveitarleik.
Stjórnandinn Guðmundur Óli Gunnarsson og einleikarinn Björgvin Brynjarsson tilbúnir í slaginn í Langholtskirkju.
Einleikarinn spretthlaupari og efnaverkfræðingur
Björgvin Brynjarsson er fæddur árið
1995. Hann hefur stundað nám við
Tónlistarskóla Garðabæjar frá átta
ára aldri og alla tíð undir handleiðslu
Braga Vilhjálmssonar – til að byrja
með á klarínett en svo á saxófón.
Björgvin hefur meðal annars spilað
tvisvar í úrslitakeppni Nótunnar, upp-
skeruhátíðar tónlistarskólanna, og
einnig á jólatónleikum með Sinfóníu-
hljómsveit Íslands árið 2017, ásamt
hópi saxófónnemenda úr sama tón-
listarskóla.
Íþróttir hefur Björgvin einnig
stundað af kappi og gerði nokkurra
ára hlé á tónlistarnámi til að einbeita
sér að spretthlaupum. Á þeim tíma
keppti hann fyrir íslenska frjáls-
íþróttalandsliðið og setti Íslandsmet.
Seinna sama ár spilaði hann á áður-
nefndum jólatónleikum Sinfóníunnar
og blossaði þá áhuginn á tónlistar-
náminu aftur upp.
Samhliða öðrum áhugamálum
stundaði Björgvin nám í efnaverk-
fræði við Háskóla Íslands og útskrif-
aðist þaðan með B.Sc.-gráðu síðast-
liðið vor. Nú einbeitir hann sér að
tónlistarnáminu og stefnir á útskrift
frá Tónlistarskóla Garðabæjar í vor.
2 4 . J A N Ú A R 2 0 2 0 F Ö S T U D A G U R16 T Í M A M Ó T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
TÍMAMÓT