Fréttablaðið


Fréttablaðið - 23.12.2019, Qupperneq 6

Fréttablaðið - 23.12.2019, Qupperneq 6
Í niðurstöðunum er gerð athugasemd við mat bank- anna á upplýsingum um raunverulega eigendur fjármuna eða félaga sem eru í viðskiptum við þá. Dansk julegudstjeneste holdes i domkirken tirsdag den 24. december kl. 15.00 ved pastor Ragnheiður Jónsdóttir. Alle velkomne. Danmarks Ambassade CHILLY’S FJÖLNOTA FLÖSKUR FREEGO HYPER MASSAGE PRO 2 NUDDBYSSA HMP2GOL -BLA -RED PHILIPS HUE E27 STARTPAKKI HUEWCAMBISETT XIAOMI M365 HLAUPAHJÓL X1003 X1004 BOSE NC700 ÞRÁÐLAUS HEYRNARTÓL 7942970100 -300 -400 AARKE CARBONATOR II GOSDÆLA AA01C2- 19.995 19.995 55.196 52.895 gleðileg græjujól -20% 29.995 VERÐ FRÁ: 2.995 VERÐ FRÁ: SAMFÉLAG Bæjarráð Árborgar hefur hafnað styrkbeiðni frá SEK product­ ion upp á sjö milljónir króna. Fyrir­ tækið stefnir á að gera leikna mynd sem byggir á ljóðum Jóhannesar úr Kötlum um íslensku jólasveinana í bók hans Jólin koma. Fyrirtækið er í eigu þeirra sem gerðu þættina Óminni. Fyrirtækið er í eigu Eyþórs Gunnlaugssonar, Kristjáns Ernis Björgvinssonar og Sólrúnar Freyju Sen. Í kynningu frá fyrirtækinu til Árborgar segir að myndin eigi að gerast á sveitabæ í Laxárdal í Dölum, rétt fyrir jólahátíðina upp úr aldamótunum 1900. Frá bænum er ófært á meðan jóla­ sveinarnir koma hver af öðrum og herja á bæinn, ræna mat og hræða heimilisfólkið. Ein sögupersónan í kvikmyndinni er lítill drengur og hugmyndin er sú að sá litli drengur sé Jóhannes úr Kötlum sem hafi svo skrifað ljóðin um jólasveinana þegar hann varð eldri, út frá reynslu sinni af þessum vetri. Í sögunni er jólasveinunum stillt upp sem síðustu tröllunum, en þau höfðu búið í aldaraðir á Íslandi fyrir landnám. Með yfirgangi mannanna hafa þau grafið sig ofan í fjöllin og týnst að eilífu. Markmið kvikmyndarinnar er að kynna Íslendingum sögurnar sem ljóðin segja, á myndformi, til að efla þekkingu á íslenskri menningararf­ leifð og jólahefðum. – bb Árborg hafnar jólasveinamynd Ketkrókur kom til byggða í dag, á Þorláksmessu. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR SAMFÉLAG Halldóra Mogensen, þingkona Pírata, hefur verið á leigu­ markaði undanfarin ár. Í nóvember fór að bera á veikindum hjá dóttur hennar sem meðal annars lýstu sér í slæmu exemi. „Íbúðin hafði nýlega verið máluð og því leiddi maður ekki hugann að því að mygla gæti orsakað veikindin. Það reyndist þó raunin eftir að sérfræðingar frá Eflu komu og tóku íbúðina út,“ segir Halldóra. Hún hafi því tekið þá ákvörðun að yfirgefa íbúðina með heilsu dóttur sinnar í huga. „Það er ekki léttvæg ákvörðun að gera slíkt rétt fyrir jól en heilsa fjölskyldumeð­ lima skiptir auðvitað öllu máli,“ segir Halldóra. Ásamt manni sínum og dóttur hefur Halldóra því þurft að gista hjá ættingjum og vinum undanfarnar vikur sem hefur síður en svo verið þægilegt. „Sem betur fer eigum við góða að. Við dvöldum hjá móður minni um tíma og í bíl­ skúr frænku minnar í einhverja daga. Þetta er vissulega erfitt í und­ irbúningi jóla en þetta hefur samt reddast,“ segir Halldóra. Reynslan hafi þó opnað augu hennar fyrir því hversu berskjald­ aðir leigjendur séu þegar leiguíbúð­ ir eru óíbúðarhæfar. „Við erum með gildan leigusamning og því erum við upp á náð og miskunn leigu­ salans hvort við fáum að losna fyrr undan honum. Það er ekki nema í mjög ýktum dæmum, sem leigjend­ ur öðlast einhver réttindi í slíkum aðstæðum og ég tel að löggjafinn þurfi að skoða þessa viðkvæmu stöðu betur,“ segir Halldóra. Hún hyggst funda með sérfræð­ ingum Eflu vegna málsins og kynna sér málið frá öllum hliðum. „Bara þessi vandræði mín hafa gert það að verkum að maður hefur heyrt margar enn verri sögur. Það þarf að skoða réttarstöðu leigjenda í slíkum dæmum en einnig fyrirbyggjandi aðgerðir vegna myglu. Það er greini­ legt að við erum að gera eitthvað vitlaust í uppbyggingu íbúða þegar slík vandamál eru að koma upp.“ Eins og í öllum góðum jólamynd­ um redduðust þó heimilishrakning­ ar fjölskyldunnar rétt fyrir jól. „Við fundum íbúð hjá yndislegu fólki sem þau ætluðu að leigja okkur frá og með 1. janúar. Þegar þau heyrðu af vandræðum okkar þá leyfðu þau okkur að flytja inn fyrir jól, jafnvel þó að þau væru ekki f lutt alveg út. Það er æðislegt að finna fyrir slíkum náungakærleik,“ segir Halldóra. bjornth@frettabladid.is Heimilishrakningar leystust með kærleika Halldóra Mogensen hefur verið á húsnæðishrakhólum allan desembermánuð eftir að mygla uppgötvaðist í leiguíbúð hennar. Hún segir að reynslan hafi sýnt henni að réttindum leigjenda í slíkum aðstæðum er verulega ábótavant. Fjölskylda Halldóru Mogensen hraktist úr leiguíbúð sinni í desember vegna mygluskemmda. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR Eins og í öllum góðum jólamynd- um redduðust þó heimilis- hrakningar fjölskyldunnar rétt fyrir jól. Halldóra Mogensen þingmaður VIÐSKIPTI Fjármálaeftirlitið hefur gert athugasemdir við peninga­ þvættisvarnir allra íslensku við­ skiptabankanna. Þetta kemur fram í niðurstöðum athugana eftirlitsins á peningaþvættisvörnum bankanna sem greint hefur verið frá á vef Fjár­ málaeftirlitsins. Í niðurstöðunum er gerð athuga­ semd við mat bankanna á upplýs­ ingum um raunverulega eigendur fjármuna eða félaga sem eru í við­ skiptum við þá. Að mati eftirlitsins hafa bankarnir ekki metið upp­ lýsingar um raunverulega eigendur með sjálfstæðum hætti. Niðurstöður athugunarinnar á Arion banka lágu fyrst fyrir og voru þær birtar í maí á þessu ári en niðurstöður vegna athugunar á hinum þremur bönkunum voru ekki birtar fyrr en síðastliðinn föstudag. Athugun eftirlitsins á Landsbankanum lauk í október en á Kviku banka og Íslandsbanka núna í þessum mánuði. Athugasemdir voru gerðar við peningaþvættisvarnir allra bank­ anna, Arion banka, Landsbankans, Íslandsbanka og Kviku. Enginn þeirra gat sýnt fram á að hafa upp­ fyllt lög um að meta með sjálf­ stæðum hætti hvort upplýsingar um raunverulega eigendur við­ skiptavina þeirra væru réttar og fullnægjandi. Fjármálaeftirlitið réðst í athug­ anirnar í kjölfar þess að alþjóð­ legur vinnuhópur gegn peninga­ þvætti og fjármögnun hryðjuverka, FATF, skilaði úttekt á frammistöðu Íslands, sem var talin mjög slæm. Ísland var svo sett á gráan lista í október á þessu ári fyrir að bregðast ekki nægilega vel við athugasemd­ unum. Lenti landið því á listanum ásamt Mongólíu og Simbabve, sem einnig voru ný á honum. Í umfjöllun Fréttablaðsins um málið kom fram að of snemmt væri að fullyrða um hver skaðinn væri en ljóst að um orðsporshnekki væri að ræða fyrir Ísland. Í samtali við blaðið þann 17. október, sagði Bjarni Benediktsson fjármálaráð­ herra að dvöl Íslands á listanum yrði stutt ef til hennar kæmi. Í niðurstöðum eftirlitsins um Íslandsbanka kemur fram að bank­ inn hafi þegar gripið til úrbóta. Kvika banki  hóf einnig innleið­ ingu á nýju kerfi þegar athugunin fór fram en samt var það niður­ staða eftirlitsins að á vantaði að uppfæra reglulega upplýsingar um viðskiptamenn bankans. Fyrir inn­ leiðingu nýja kerfisins voru athuga­ semdirnar alvarlegri. – okp Peninga þvættis varnir allra ís lensku viðskiptabankanna ó full nægjandi 2 3 . D E S E M B E R 2 0 1 9 M Á N U D A G U R6 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.