Fréttablaðið - 23.12.2019, Blaðsíða 18

Fréttablaðið - 23.12.2019, Blaðsíða 18
2 3 . D E S E M B E R 2 0 1 9 M Á N U D A G U R18 S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð SPORT Saga Danny Ings innan vallar er ansi mikil rússíbanareið. Eftir að hafa slegið í gegn með Burnley samdi hann við Liverpool og kom á frjálsri sölu, eða svona næstum því. Liver­ pool þurfti að borga uppeldisbætur, þær dýrustu í sögunni, um 6,5 millj­ ónir punda. Hann hafði skorað 21 mark í Championship deildinni og 11 á sínu fyrsta tímabili í deild þeirra bestu. Hann var 22 ára og framtíðin virtist svo sannarlega björt. Skömmu síðar var hann valinn í enska landsliðið í fyrsta sinn gegn Eistlandi og Litháen í undankeppni HM. Jurgen Klopp var að taka við Liverpool af Brendan Rodgers og það vissu f lestir að Klopp var að fara að gera eitthvað stórkostlegt með liðið. Ings var kominn með þrjú mörk og virtist pluma sig vel meðal stóru strákana. Hann skoraði meðal annars í borgarslagnum gegn Everton. En þá dundu ósköpin yfir. Á fyrstu æfingu Klopps með Liver­ pool, þann 15. október 2015, sleit Ings krossband í vinstra hné. Von­ irnar um EM 2016 fuku út um glugg­ ann og tímabilið var búið. Hann náði reyndar að koma til baka áður en það kláraðist og kom inn á í síð­ asta leik tímabilsins gegn WBA. Hann var í varaliðinu á meðan hann var að vinna í að ná fyrri styrk í hnéð en var klappaður og klár, nánast akkúrat ári síðar til að spila gegn Tottenham í deildarbikarnum. Þar meiddist hann á hægra hné og var frá í 11 mánuði. Hann neitaði þó að gefast upp og hóf endurhæfingu um leið og hann gat og í apríl 2018 skoraði hann fyrsta markið sitt eftir meiðslin gegn WBA. Hann hafði þá beðið 930 daga á milli marka. Klopp hafði ekki setið auðum höndum og var kominn með þá Sadio Mane, Roberto Firmino og Mo nokkurn Salah í framlínuna. Þeir virðast aldrei meiðast og því var erfitt fyrir Ings að brjóta sér leið í byrjunarliðið. Fyrir utan að þeir þrír eru talsvert betri en Ings svo það sé nú bara sagt. Klopp vildi gjarnan halda Ings því hann var gríðarlega vinsæll í klefanum. En hann sá að hann gat ekki haldið honum. Southampton fékk hann lánaðan en hann ólst upp í Netley sem er skammt frá borginni og dreymdi um að spila með félag­ inu. Hann var tíu ára þegar South­ ampton sagði við snáðann að hann væri of lítill og hann kæmist ekki lengra. Hann spilaði með Itchen Tyro þangað til hann komst á reynslu hjá Bournemouth. Þar fór boltinn að rúlla. Dýrmæt mörk Sigur Dýrðlinganna, eins og South­ amptonmenn eru yfirleitt nefndir, kom þeim þremur stigum frá Aston Villa sem situr nú í fallsætinu. Ings hefur skorað 12 mörk í síðustu 13 leikjum sínum og er það sem sumir kalla „Á eldi“. Hann er sterkur, f ljótari en f lestir halda, getur haldið boltanum uppi og er með tvo góða fætur sem vita svo sannar­ lega hvar netið er. Af 11 mörkum hans í deildinni hafa fimm komið með hægri og fimm með vinstri. Southampton var ekki lengi að tryggja sér þjónustu hans og borg­ aði 18 milljónir punda fyrir kapp­ ann, sem er í raun ótrúlega mikið miðað við að hann skoraði aðeins fjögur mörk fyrir Liverpool. En það eru smáaurar miðað við að falla ekki úr deildinni og mörkin hans Ings munu trúlega halda félaginu á meðal þeirra bestu – svo framarlega sem hann helst heill. Enskir fjölmiðlar segja að hann sé loksins að ná fyrri heilsu og styrk og sé farinn að sýna það af hverju Liverpool fékk hann til sín, af hverju þeir vildu halda honum og af hverju Southampton borgaði svona mikið fyrir kappann sem er 27 ára. Góði gæinn The Danny Ings Disability Sports Project, er góðgerðarfélag sem hann hefur á sínum snærum. Það borgar þjálfurum laun fyrir að þjálfa fötluð börn. Hann var aðeins nýskriðinn yfir tvítugt þegar hann stofnaði það. „Ég hef alltaf viljað gefa eitt­ hvað til baka til samfélagsins. Markmiðið er að Burnley geti teflt fram liði skipað fötluðum í fyrsta sinn og þetta er eitthvað sem mig langar að stækka í framtíðinni,“ sagði hann árið 2014. Hann fékk hugmyndina eftir að hafa gefið skóna sína til Josephs Skinner, stuðningsmanns Burnley sem er fatlaður, en myndin af þeim félög­ um fór víða um samfélagsmiðla. Skömmu síðar uppfyllti hann ósk Harley Jane Proctor sem óskaði sér að hitta kappann. Hann gerði gott betur og Proctor leiddi leikmenn út á völl og eftir leikinn fór hann með henni í dýragarðinn í Burnley. Hann var enn bara rétt skriðinn yfir tvítugt. Trúlega væri hægt að fylla f leiri blaðsíður af góðverkum hans utan vallar. Er nema von að heims­ byggðin haldi örlítið með Ings og voni svolítið að hann standi sig vel. benediktboas@frettabladid.is Dýrðlingur dýrðlinganna Danny Ings skoraði tvö marka Southampton þegar liðið vann Aston Villa. Ings er kominn með 11 mörk á tímabilinu, þykir ákaflega skemmti- legur og trúlega munu mörkin hans tryggja liðinu áframhaldandi veru í deildinni. Utan vallar er hann auðmjúkur og gjafmildur og rekur sitt eigið góðgerðarfélag sem hann stofnaði 22 ára. HETJA HELGARINNAR Danny Ings Fæddist 23. júlí árið 1992 í Netley hverfinu í Winchester. Faðir hans var duglegur að fara út í bolta með guttanum og draumur­ inn var að spila með borgarliðinu Sout­ hampton. Faðir hans er múrari og búa for­ eldrar hans í sama húsi og Danny Ings ólst upp í. Annað suðurstrandarlið, Bourne­ mouth, tók guttann og á tveimur árum skoraði hann 7 mörk. Hann hefur verið ótrúlega óheppinn með meiðsli í gegnum sinn feril, alveg frá því hann var gutti. Seinna markið hans var frábært. Hann er frábær karakt­ er og auðvitað kunnum við að meta að hann sé í þessu formi. Hann var óheppinn í síðasta leik þegar hann skaut í tréverkið og mark var dæmt af honum en hann missir ekki sjálfstraust. Ralph Hasenhuttl, knattspyrnu- stjóri Southampton, eftir leikinn gegn Aston Villa. Við munum sakna hans mikið, einnig sem fót­ boltamanns því þar hefur hann frábæra hæfileika. Hann var óheppinn hér en við getum öll glaðst að hann er farinn að spila aftur og á leiðinni á góðan stað. Fyrir hönd Liverpool segjum við góða ferð, gangi þér vel og við munum sakna þín. Jurgen Klopp þegar hann tilkynnti um sölu Ings til Southampton. 930 dagar liðu á milli marka hjá Ings þegar hann var í Liver- pool. Þann 4. október 2015 skoraði hann gegn Everton og svo 21. apríl 2018 gegn WBA.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.