Fréttablaðið - 30.12.2019, Page 7
Þú færð Köku ársins á næsta
flugeldamarkaði björgunarsveitanna
Flugeldaveisla í einum kassa!
skot
21
SEK
4
5
13
80
kg
✿ Magn kókaíns og amfetamíns sem hald var lagt á
2008-2019
60 kg
50
40
30
20
10
2010 2012 20152014 2017 20192011 2013 2016 2018
n Amfetamín
n Kókaín
LÖGREGLUMÁL Aukin neysla, aukið
aðgengi efna í Evrópu og gott starf
lögreglu og tollgæslu eru ástæður
þeirrar miklu aukningar sem orðið
hefur í haldlagningu harðra fíkni-
efna á undanförum misserum
að mati Karls Steinars Valssonar,
yfirlögregluþjóns hjá lögreglunni
á Höfuðborgarsvæðinu.
„Ég vil meina að þetta sé blanda;
annars vegar er greinilega aukin
neysla. Hún fylgir að einhverju
leyti efnahagsástandinu og vel-
meguninni. Aðgengi að kókaíni í
Evrópu hefur aukist vegna mikils
magns sem f lutt er frá Suður-
Ameríku og það er að skila sér til
Íslands líka,“ segir Karl Steinar.
Hann nefnir dæmi um haldlagn-
ingu efna í tonnatali sem tekin hafi
verið úr kaf bátum og skútum þar
syðra. Aðferðirnar og magnið sýni
mikil fjárráð þeirra sem standi að
f lutningi þessara efna.
„Það sem við erum að sjá hér er
algjörlega í takt við það sem er að
gerast í Evrópu.“
Karl Steinar segir að hins vegar
verði ekki horft fram hjá auknum
árangri löggæsluyfirvalda sem hafi
einnig áhrif á hve mikið er haldlagt
af sterkum efnum hér.
„Ég vil meina að lögregla og
tollgæsla séu með puttann betur
á púlsinum núna en verið hefur í
talsvert langan tíma. Við þökkum
það meðal annars aukinni sam-
vinnu við erlend lögregluyf ir-
völd sem byggð hefur verið upp á
undanförnum árum,“ segir Karl
Steinar. Hann segir hluta af þessum
haldlögðu efnum hafa verið tekinn
erlendis og f lutt hingað til hald-
lagningar. Að auki hafi verið hald-
lögð erlendis efni sem komi aldrei
hingað en hafi íslenska tengingu.
Landslagið í þessari brotastarf-
semi hefur breyst mikið hér á landi
frá því sem áður þekktist. Bæði
eru mun f leiri í innf lutningi en
áður þegar um fámennan hóp var
að ræða. Þjóðerni brotamanna er
einnig fjölbreyttara en áður. „Við
höfum þó verið að vekja athygli
á því að íslensku hóparnir eru
mest áberandi,“ segir Karl Steinar.
Aðspurður segir hann hluta
þessara hópa skipuleggja alla leið-
ina sjálfa. Þeir hafi þann möguleika
að geta keypt efni beint frá Suður-
Ameríku, meðan aðrir útvega efnin
frá Evrópu; mest frá Hollandi,
Spáni og Portúgal, eftir að þau eru
þangað komin.
Kannabisræktun hefur verið
með miklum blóma hér á landi
og einnig einhver framleiðsla á
amfetamíni. Þótt orðrómur hafi
verið um útflutning efna frá Íslandi
segir Karl Steinar lögregluna ekki
hafa orðið vara við skipulagðan
útf lutning héðan. „Við vitum af
áformum manna um þennan
útf lutning en það er ekki verið að
haldleggja efni erlendis sem rakin
eru hingað.“ Kannabisræktun sé
víðtæk og mikil í f lestum Evrópu-
löndum og markaðurinn líklega
mettaður.
Karl Steinar lætur þess þó getið
að Ísland hafi verið stoppistöð fyrir
efni sem fara til Grænlands og að
einhverju leyti til Færeyja.
Það skila sér þó ekki öll Evrópu-
trend til Íslands. Auk kókaíns hefur
f lutningur heróíns frá Suður Amer-
íku til ríkja Suður-Evrópu einnig
aukist mikið. Þótt hörðu efnin, sem
hingað eru f lutt komi sömu leið, er
heróín ekki þar á meðal.
Karl Steinar telur ástæðuna vera
að ekki hafi verið eftirspurn eftir
því. „Ég hugsa að neytendahópur-
inn á Íslandi hafi greiðari aðgang
að öðrum efnum þannig að menn
hafa ekki talið að það væri mark-
aður fyrir það.“
adalheidur@frettabladid.is
Neysla heróíns í Evrópu ekki
að skila sér hingað til Íslands
Grímur Grímsson gegnir nú stöðu hjá Europol á vegum íslensku lögreglunnar. Karl Steinar Valsson gegndi þeirri
stöðu áður en fer nú fyrir miðlægu deildinni hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Mikið magn harðra
fíkniefna er flutt til Evr-
ópu frá Suður-Ameríku.
Framboð kókaíns í Evr-
ópu skilar sér til Íslands
og neysla þess eykst í
góðærinu. Heróín nær
ekki fótfestu vegna
framboðs annarra efna.
Margir hópar standa að
innflutningi. Íslenskir
hópar eru mest áber-
andi segir lögreglan.
DÓMSTÓLAR Ingveldur Einarsdóttir
fékk í gær af hent skipunarbréf í
embætti hæstaréttardómara.
Skipunarbréfið var afhent eftir að
forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannes-
son, féllst á tillögu Áslaugar Örnu
Sigurbjörnsdóttur dómsmálaráð-
herra um skipan Ingveldar í dóm-
araembættið að því er fram kemur
á vef stjórnarráðsins.
„Dómnefnd um hæfni umsækj-
enda mat þrjá umsækjendur hæf-
asta til embættisins og var Ingveld-
ur einn þeirra,“ segir í tilkynningu.
– gar
Dómara afhent
skipunarbréf
Nýr hæstaréttardómari ásamt
dómsmálaráðherra. MYND/STJR.IS
MENNING Kórinn Kliður mun í
kvöld taka upp fyrstu hljómplötu
sína á tónleikum í Fríkirkjunni.
„Markmiðið er að fanga ekki bara
söng kórsins, heldur ekki síður
andrúmsloft áramótanna þar sem
einu ári lýkur og annað hefst,“ segir
í tilkynningu frá Klið sem býður
fólki að mæta og taka þátt í gerð
plötunnar
„Kórinn er skipaður vinum og
kunningjum, tónlistarmönnum,
rithöfundum, myndlistarfólki úr
Reykjavík og hefur þá sérstöðu
að efnisskráin samanstendur ein-
vörðungu af nýrri, frumsaminni
kórtónlist eftir kórmeðlimi sjálfa,“
segir í tilkynningunni. „Á tónleik-
unum verður efnisskrá síðustu
tveggja ára kvödd til að rýma fyrir
nýjum vörum, nýjum lögum, nýjum
tímum.“ – gar
Hljóðritun í
Fríkirkjunni
Kórinn Kliður.
Á línuritið vantar gögn um amfetamínbasa en rúmlega 8 lítrar af efninu voru haldlagðir fyrr á árinu.
UMFERÐ Um áramótin verða miklar
hækkanir á sektum vegna um-
ferðar lagabrota og viðurlög hert.
Að því er fram kemur í tilkynn-
ingu á veg stjórnarráðsins hækkar
sekt fyrir að aka gegn rauðu ljósi úr
þrjátíu þúsund krónum í fimmtíu
þúsund.
Mælist vínandamagn í blóði á bil-
inu 1,20-1,50‰, eða 0,60-0,75 mg/l
útöndunarlofti, verður viðkom-
andi sviptur ökuréttindum í átján
mánuði í stað eins árs áður. Sektin
fyrir slíkt brot verður óbreytt 180
þúsund krónur. Þá er nýtt þrep
í töf lunni sem miðar við að vín-
andamagn í blóði sé 2,01-2,50‰ eða
útöndunarlofti 1,01 -1,25 mg/l. Fyrir
þetta kemur svipting ökuréttinda
í þrjú ár og 240 þúsund króna sekt.
Efsta þrep hefur verið 2,01‰ eða
meira og svipting ökuréttinda fyrir
það var tvö ár og sektin 210 þúsund
krónur. En nýtt efsta þrep miðar við
að vínandamagn í blóði sé 2,51‰
eða meira eða 1,26 mg/l eða meira
í útöndunarlofti. Fyrir það verða
menn sviptir ökuréttindum í þrjú
og hálft ár og krafðir um 270 þúsund
krónur í sekt. Metamfetamíni hefur
verið bætt við töflu fyrir viðurlög
vegna aksturs undir áhrifum fíkni-
efna.
Þá er ýmsar breytingar vegna
brota á aksturs- og hvíldartíma. Til
dæmis hækka sektir fyrir að van-
rækja að tryggja varðveislu upp-
lýsinga úr ökurita og af ökumanns-
korti úr 20 þúsund til 50 þúsund
krónum í 80 til 300 þúsund krónur.
Verða sektir fyrir slík brot því allt að
sexfalt hærri en nú er. – gar
Hert viðurlög og hærri sektir á nýju ári
Með nýrri reglugerð hækka sektir fyrir ýmis brot. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
3 0 . D E S E M B E R 2 0 1 9 M Á N U D A G U R6 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð