Fréttablaðið - 30.12.2019, Blaðsíða 21
Þó að ég hafi verið talsvert hér fyrir norðan sem barn og unglingur, þá ólst ég upp á Seltjarnarnesi, segir Akur-eyringurinn Njáll Trausti Friðbertsson þingmaður.
Hann er heima hjá sér í jólafríi þegar ég
heyri í honum í tilefni fimmtugsafmælis
hans á gamlársdag.
Njáll Trausti hefur setið á þingi í þrjú
ár og segir það áhugavert. Þar hafi hann
fengið að sinna ýmsum verkefnum sem
honum séu kær, eins og f lugmál. Flug-
umferðarstjórn sé nefnilega ævistarfið.
Kveðst hafa útskrifast úr MR vorið 1990
og byrjað að læra f lugumferðarstjórn
um haustið, ætlað svo rétt að skreppa
norður til dvalar í nokkur ár, en ílengst.
Grunur minn um að hann hafi kynnst
konu þar reynist réttur.
„Já, það er nú smá saga,“ segir Njáll
Trausti glaðlega. Konan mín, Guðrún
Gyða, ólst upp á Akureyri og var í MA
en fór suður að læra hjúkrun í Háskóla
Íslands. Tók svo starfsþjálfun í hjúkrun
á barnadeildinni á Akureyri í eitt ár
og við kynntumst í Sjallanum ein-
mitt þegar hún var á förum suður aftur.
Hún sagði f ljótlega upp þar og f lutti
norður – þökk sé Sjallanum! Síðan eru
liðin nokkur ár og við eigum 20 ára
brúðkaupsafmæli núna á gamlársdag,
á afmælisdaginn minn, þannig að þetta
eru mikil tímamót. Við giftum okkur
sem sagt 31. desember 1999, um mið-
nætti átti svo heimurinn að hrynja því
tvöþúsundvandinn átti að grýta allt
niður.“
Njáll Trausti tilkynnir að þau hjón
muni f lýja land áður en þessi tvöfaldi
afmælisdagur renni upp. „Synirnir og
tengdadæturnar ákváðu það í ágúst að
við færum út um áramótin. Það verður
í fyrsta skipti sem við heimsækjum
Tenerife.“
Áhugi Njáls Trausta liggur ekki bara í
f luginu heldur ferðaþjónustu almennt,
því tók hann viðskiptafræði við Háskól-
ann á Akureyri með áherslu á ferðaþjón-
ustu og hagræna þætti hennar. „Þetta
var árið 2004 og það var enginn að pæla
í þessu þá. Samt eru ekki nema fimmtán
ár síðan,“ bendir hann á. „Hagstofan og
Seðlabankinn unnu þó fyrir mig gögn
vegna lokaverkefnisins því þeim fannst
þetta áhugavert.“ Spurður hvort hann
hafi starfað við ferðaþjónustu, fyrir
utan að stjórna flugumferð fyrir norðan,
svarar hann: „Ja, við bræður byggðum
upp gistingu hér á Akureyri sem heit-
ir Sæluhús.“
Njáll Trausti var skiptinemi í Banda-
ríkjunum 1987 til 1988 og kveðst hafa
verið svo heppinn að systir konunnar
sem hann bjó hjá hafi verið aðstoðar-
maður Joes Biden, sem síðar varð vara-
forseti í tíð Obama og stefnir nú á að
verða forseti Bandaríkjanna. Hann hafi
því fengið grand túr um Hvíta húsið. „Ég
var einmitt í heimsókn í Hvíta húsinu
daginn áður en Gorbatsjov og Reagan
skrifuðu undir samning um meðal-
dræg kjarnavopn og eldflaugar sem var
að renna út núna um daginn. Ég fékk
líka tvö bréf frá Joe Biden, annað vegna
þess að ég var markahæstur í fylkinu í
menntaskólaboltanum og fékk ham-
ingjuóskabréf frá honum. Svo var blað
sem valdi mig íþróttamann fylkisins og
ég fékk annað bréf frá Biden upp á það!“
Ýmislegt er tilviljanakennt í líf i
Njáls Trausta að hans eigin sögn. Sem
dæmi nefnir hann að í Bandaríkjunum
hafi hann búið við hliðina á f lugher-
stöð og kynnst svolítið lífinu þar því
um fjórðungur samnemenda hans hafi
búið í herstöðinni. Einnig að í Faunu,
grínbók um stúdenta Menntaskólans
í Reykjavík, standi að hann hafi sagt
að NATO væri friðarbandalag. „Einn
daginn er ég svo allt í einu orðinn for-
maður Íslandsdeildar NATO-þingsins,“
segir hann. „Það er margt skondið þegar
maður horfir til baka, stundum lítur út
fyrir að leiðin hafi verið vörðuð.“
gun@frettabladid.is
Við giftum okkur sem sagt
31. desember 1999, um mið-
nætti átti svo heimurinn að
hrynja því tvöþúsundvandinn
átti að grýta allt niður
Ástkær móðir okkar, dóttir, systir,
tengdamóðir og amma,
Þóranna Haraldsdóttir
lést sunnudaginn 15. desember.
Útförin fer fram í Fríkirkju Reykjavíkur
3. janúar klukkan 15. Blóm og kransar
vinsamlega afþakkaðir.
Edda Tegeder
Edda Tegeder Óskarsdóttir
Ragnar Berg Elvarsson
Haraldur Ingi Shoshan
Ingunn S.U. Kristensen
Mikael Artúr Ingunnarson Shoshan
Haraldur Haraldsson
Sæunn Helena Guðmundsdóttir
Hermann Haraldsson
Brynhildur Jakobsdóttir
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
Sigurþór Hjartarson
rafvirki,
lést á Hrafnistu Nesvöllum í
Reykjanesbæ, föstudaginn
20. desember. Útförin fer fram frá
Keflavíkurkirkju föstudaginn 10. janúar kl. 13.
Okkar innilegustu þakkir til starfsfólksins á Nesvöllum
fyrir frábæra umönnun og hlýju.
Bergljót Hulda Sigurvinsdóttir
Júlíus Sigurþórsson Justyna Kłosińska
Hulda Sigurþórsdóttir Guðjón Örn Emilsson
og barnabörn.
Þennan dag árið 1924 tilkynnti banda-
ríski stjörnufræðingurinn Edwin
Hubble að hann hefði uppgötvað aðrar
stjörnuþokur en Vetrarbrautina sem
Jörðin okkar er hluti af.
Stjörnuþoka, sem er stundum kölluð
vetrarbraut, er þyrping fjölmargra
stjarna og annarra stjarnfræðilegra
fyrirbæra sem haldast í nágrenni hvert
við annað vegna sameiginlegs þyngd-
arsviðs stjörnuþokunnar. Dæmigerðar
stjörnuþokur geta verið frá þúsundum
til hundraða þúsunda ljósára í þvermál.
Í einni stjörnuþoku er talið að
séu um 100-400 milljarðar stjarna,
stundum miklu fleiri. Í flestum til-
vikum er vegalengdin á milli stjörnu-
þoka talin í milljörðum ljósára en þó
eru til stjörnuþokur sem eru mun nær
hver annarri og jafnvel dæmi þess að
tvær rekist saman.
Í dag telja menn að í alheiminum
séu um 100-400 milljarðar stjörnu-
þoka. Talið er að svarthol sé í miðju
þeirra allra.
Þ E T TA G E R Ð I S T: 3 0 . D E S E M B E R 19 24
Hubble uppgötvar stjörnuþokur
1703 Jarðskjálfti skekur Tókýóborg með þeim afleiðingum að 35
þúsund manns farast.
1809 Lög í Boston, sem banna fólki að vera grímuklætt á böllum,
eru innleidd.
1880 Svo hörð og langvarandi frost eru að gengið er á ís frá Reykja-
vík og upp á Kjalarnes.
1883 Fyrstu kirkjuhljómleikar
á Íslandi eru haldnir í Dóm-
kirkjunni í Reykjavík.
1911 Sun Yat-sen er kosinn
fyrsti forseti Kína.
1922 Rússland, Hvíta-Rúss-
land, Úkraína og Suður-Kákasus
mynda Sovétríkin.
1935 Ítalskar sprengjuvélar
rústa sænskum Rauðakross-
skrifstofum í Eþíópíu.
1938 V.K. Zworykin fær einkaleyfi á sjónvarpinu.
1940 Arroyo Seco Parkway, fyrsta hraðbrautin í Kaliforníu, er
opnuð.
1947 Rúmenska þjóðin lýsir yfir sjálfstæði.
1970 Paul McCartney fer í mál við aðra hljómsveitarmeðlimi í
Bítlunum.
1975 Golfstjarnan Tiger Woods fæðist.
1980 Patrick Gervasoni, frönskum manni sem sagður var land-
flótta, er vísað af landi brott eftir miklar deilur.
2006 Saddam Hussein, fyrrverandi forseti Íraks, er tekinn af lífi.
Merkisatburðir Gamlársdagur heilagur
„Stundum lítur út fyrir að leiðin hafi verið vörðuð,“ segir Njáll. FRÉTTABLAÐIÐ/AUÐUNN
Njáll Trausti Friðberts-
son alþingismaður verður
fimmtugur á morgun
og hann og frúin, Guðrún
Gyða Hauksdóttir, eiga
brúðkaupsafmæli. Þau
fagna deginum fjarri
ættjörðinni.
Edwin Hubble stjörnufræðingur.
3 0 . D E S E M B E R 2 0 1 9 M Á N U D A G U R16 T Í M A M Ó T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
TÍMAMÓT