Fréttablaðið - 30.12.2019, Blaðsíða 33

Fréttablaðið - 30.12.2019, Blaðsíða 33
Dreifing dreifing@postdreifing.is Ef blaðið berst ekki 800 1177 Við segjum fréttir Smáauglýsingasíminn og skiptiborð 550 5000 Ritstjórn 550 5070 ritstjorn@frettabladid.is Auglýsingadeild 550 5050 auglysingar@frettabladid.is Prentun Torg. ehf mest lesna dagblað landsins. ÞÚ GETUR NÁLGAST FRÍTT EINTAK AF FRÉTTABLAÐINU VÍÐSVEGAR UM LANDIÐ. Óskir þú eftir því að fá blaðið í áskrift, hafðu samband við Póstdreifingu. Láru G. Sigurðardóttur BAKÞANKAR FRÍTT KAFFI Í DESEMBER Verslanir Nova eru í Kringlunni, Smáralind, Lágmúla, á Selfossi og Glerártorgi Akureyri Þjónustuver 519 1919 | www.nova.is Segðu bless við myndlykilinn og hæ við Jibbí! Nova TV er ókeypis sjónvarpsveita á netinu þar sem þú finnur allar helstu sjónvarpsstöðvar á Íslandi auk spennandi áskriftaleiða! Barnaefni á íslensku á Nova TV! 890 kr./mán. Prófaðu frítt í 7 daga! Sem lítill drengur ákvað ég að hafa gaman af lífinu og hef haft það að leiðarljósi, svaraði kunningi minn þegar ég spurði hvernig hann færi að því að koma svo miklu í verk af mikilli yfir- vegun. Er þetta svona einfalt? Getum við hreinlega ákveðið að hafa gaman – bara sí svona? Svo hnaut ég um orðið gaman ( 我慢) í bók sem ég er að lesa en það ku vera dygð sem Japanir lifa eftir. Frá unga aldri kenna foreldrar börnum sínum gaman, sem er að tileinka sér hæfni til að komast í gegnum erfiðleika með því að vera róleg, þolinmóð og óbugandi. Til dæmis ef barn kvartar eða er svangt þá svarar foreldri barninu, „gaman“. Og Japanir gera ekki aðstæður verri með því að upp- hefja harmleik, heldur einblína á að gera meira af því sem lætur þeim líða vel. Á okkar máli má heimfæra gaman að einhverju leyti á seiglu, sem er oft líkt við gorm. Við getum togað hann og pressað en þegar álaginu sleppir fer hann f ljótt í fyrra horf. Við getum þjálfað okkur í að vera eins og gormur. Ameríska sálfræðifélagið ráð- leggur okkur m.a. að styrkja tengsl við fólk sem er annt um okkur og bjóða öðrum hjálp okkar. Að líta á þjáningar sem verkefni en ekki óyfirstíganleg vandamál. Að hlúa að eigin þörfum: slaka á, hreyfa sig og gera það sem þér þykir gaman. Til mikils er að vinna. Seigla er dýrmætt tól, því þegar okkur skortir hana verður streita okkur ofviða. Við hættum að hafa gaman. Gaman getur orðið að vana. Með því að endurtaka þætti sem auka seiglu hleypum við gamni inn í líf okkar. Og þegar við tökum lífinu með ró þá skapast meira pláss til að hafa gaman af lífinu. Ég óska öllum landsmönnum friðar og megi gaman fylgja ykkur inn í nýjan áratug. Gaman

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.