Fréttablaðið


Fréttablaðið - 30.12.2019, Qupperneq 17

Fréttablaðið - 30.12.2019, Qupperneq 17
Fólk er kynningarblað sem býður auglýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit- stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega. Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Hjördís Erna Þorgeirsdóttir | hjordiserna@frettabladid.is s. 550 5767 | Oddur Freyr Þorsteinsson, oddurfreyr@ frettabladid.is s. 550 57686 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir, sandragudrun@frettabladid.is, s. 550 5762 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768 Útgefandi: Torg ehf Ábyrgðarmaður: Jóhanna Helga Viðarsdóttir Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652, Atli Bergmann, atli@frettabladid.is, s. 550 5657, Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@ frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann Waage, johannwaage@frettabladid.is, s. 550 5656, Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 694 4103, Ingibjörg er söngkona og Siggi, eins og hann er alltaf kallaður, trommuleikari. Þau hafa verið saman í bráðum 10 ár en segjast ekki hafa spilað mikið saman til að byrja með. „Við vorum í svo ólíkum stílum. Ég var mikið að syngja djass, þjóð­ lagatónlist og klassík en Siggi var í rokksenunni,“ segir Ingibjörg. „En þar sem Siggi er þeim hæfileikum gæddur að geta spilað á mörg hljóðfæri þá höfum við spilað mikið saman undanfarið. Fólk var kannski að biðja mig að syngja eitt til tvö lög í brúðkaupi og þá bað ég hann bara að koma með mér. Það er svo þægilegt og við getum bara æft heima í stofu.“ „Ég spila yfirleitt á gítar með henni, en ég er bara sjálf lærður á gítar. Ég er þeim kostum gæddur að geta sungið líka svo ég get raddað hana. Þannig finnst mér ég bæta fyrir það að vera ekki alveg nógu góður gítarleikari. Ég tromma stundum líka með, er með eitthvert smá slagverk,“ segir Siggi. „Þetta er náttúrulega praktískt fyrir heimilið, en getur verið þreytandi. Strákurinn er kannski sofnaður og okkur langar bara að horfa á Netf lix eða eitt­ hvað en við þurfum að æfa. Þar skarast svolítið persónulega lífið og vinnan.“ Syngja og spila fyrir ferða- menn til að auka upplifun Þau Ingibjörg og Siggi hafa undan­ farið verið að f lytja stutt tón­ listarprógramm fyrir ferðamenn í Hörpu. „Ég var að vinna sem leið­ sögumaður í Hörpu og þá tók ég oft sérhópa í skoðunarferð. Af því að ég er starfandi söngkona líka þá báðu yfirmenn mínir mig einu sinni að halda litla tónleika fyrir hópinn. Þetta átti bara að vera greiði við þá, að enda skoðunar­ ferðina á smá tónleikum til að auka upplifunina fyrir gestina,“ útskýrir Ingibjörg. „Ég sagði ekkert mál og fékk Sigga til að koma með mér. Ég vissi ekki alveg hvernig tónlist ég átti að velja fyrir þau. Þetta var stjórn erlends fótboltasambands svo það eina sem mér datt í hug var Ég er kominn heim og eitthvað svona sem allir þekkja. Þetta sló svo í gegn að við vorum beðin að búa til sama prógramm fyrir hinn almenna ferðamann. Þannig að hver sem er gæti upplifað þetta. Að fá skoðunarferð og enda á tón­ leikum,“ segir Ingibjörg. Úr varð lítið prógramm til að kynna íslenska tónlist. Allt frá íslenskum tvísöng, þjóðlagatón­ list og klassík upp í nútíma popp og rokk „Tónleikarnir eru í Austur­ hliðinni á Hörpu, sem snýr út að sjónum og í átt að Sæbrautinni. Þetta er rými sem fæstir ferða­ menn hafa færi á að sjá. Það er með risagluggum og fólk tekur andköf þegar það kemur þarna inn. Það er alveg epískt að hlusta á Ísland farsælda frón og horfa á Esjuna út um gluggann. Þetta verður miklu f lottara út af því,“ segir Siggi. Hjálpa krökkum að sleppa sér og búa til tónlist Siggi og Ingibjörg eru bæði útskrifuð úr skapandi tónlistar­ miðlun frá Listaháskóla Íslands. Frá útskrift hafa þau haldið mikið af tónlistarsmiðjum fyrir börn og unglinga og fullorðna. „Árlega erum við með okkar eigin tónlistarvinnusmiðju sem heitir Spunavélin. Þá erum við svolítið að vinna með frjálsan spuna og alls konar leiki sem hjálpa krökkum að sleppa sér og búa til alls konar músík,“ segir Ingibjörg. „Þetta er vikulangt námskeið fyrir börn. En við getum útfært það á ýmsan hátt. Ef til dæmis einhver hátíð spyr hvort við getum komið í tvo klukkutíma þá búum við bara til minni útgáfu af námskeiðinu. Við höfum farið með námskeiðið á Þjóðlagahátíð á Siglufirði, Sönghátíð í Hafnar­ borg í Hafnarfirði og Listahátíð í Reykjavík og f leiri hátíðir,“ segir Siggi. „Í fyrrasumar vorum við á Kátt á Klambra, þá héldum við þetta úti. Við erum mjög sveigjanleg og aðlögum þetta bara að aðstæðum. Fólki er velkomið að hafa sam­ band við okkur á Facebook síðunni okkar Siggi & Ingibjörg ef það vill fá okkur til að halda smiðju,“ segir Ingibjörg. Gaman að hrærast í tónlist Auk þess að halda saman vinnu­ smiðjur, spila í Hörpu og spila í brúðkaupum, afmælum og árs­ hátíðum hér og þar, eru þau Siggi og Ingibjörg líka að sinna tónlist hvort í sínu lagi. „Ég syng í kór og syng mikið við jarðarfarir. Ég er líka með fasta kennslu eins og svo margir tón­ listarmenn og er líka í hlutastarfi hjá KrakkaRÚV,“ segir Ingibjörg. „Ég vinn líka í miðasölunni í Hörpu,“ segir Siggi. „Það er bara þannig að maður þarf að hafa eitt­ hvað með, þú getur ekkert bara verið að spila.“ „Það er samt misjafnt milli ára,“ skýtur Ingibjörg inn. „Sum ár eru betri en önnur. Ég fékk lista­ mannalaun í þrjá mánuði á þessu ári sem gerði ótrúlega mikið. Ég var að vinna að nýrri tónlist með vinkonu minni sem er tónskáld en hún heitir líka Ingibjörg (Ýr Skarphéðinsdóttir) en við köllum okkur Ingibjargir. Það eru alls konar tækifæri út um allt.“ „Það er gaman að hrærast í þessu,“ segir Siggi, en hann er í mörgum hljómsveitum og vinnur einnig að því að gefa út tónlist í eigin nafni. „Ég er í hljómsveit sem heitir Brött Brekka og við vorum að gefa út okkur fyrstu stóru plötu. Vínylplötu sem er til sölu í f lestum plötubúðum. Svo er ég í hljómsveit sem heitir VAR, við vorum líka að gefa út á þessu ári, við erum svona post rokk band og erum búnir að spila út um allar trissur. Við fórum til Bandaríkj­ anna í sumar og líka í Evróputúr.“ „Þetta er svona nútíma sjó­ mennska. Ég var grasekkja með þennan í svona mánuð samtals eftir að hann fæddist,“ skýtur Ingibjörg inn í og bendir á son þeirra sem situr í fanginu á henni. „Ég er líka í hljómsveit sem heitir Man Kind. Maður er svo­ lítið í underground rokksenunni hérna heima. Það getur verið svolítið fyndið að fara í brúðkaup og syngja eitthvað fallegt, rólegt lag og bruna svo beint á Gaukinn að spila þungarokk,“ segir Siggi og hlær. Enginn gat passað barnið nema nágranni þeirra Þau Ingibjörg og Siggi segja að þótt það sé mjög þægilegt að vinna mikið saman hafi það orðið f lóknara eftir að sonurinn fæddist. „Það segir sig sjálft að þegar við erum að spila svona mikið saman þá þurfum við alltaf að redda pössun og það getur verið ógeðs­ lega erfitt. Um daginn vorum við að fara að spila á jólahlaðborði og allir í fjölskyldunum okkar voru á jólatónleikum í Hörpu svo enginn gat passað. Það endaði með því að við töluðum við nágrannann fyrir ofan okkur og sem betur fer var það ekkert mál.“ Sonurinn hefur hlustað mikið á foreldra sína æfa og þegar Ingi­ björg gekk með hann var hann oft með henni á sviði á tónleikum. „Við erum strax farin að hugsa um hvaða hljóðfæri væri prakt­ ískast fyrir hann að læra á svo það passi við fjölskylduna,“ segir Ingibjörg hlæjandi og lítur á son sinn. „Þú átt engan séns, elsku litla barn.“ „Nei þetta er búið fyrir þig,“ segir Siggi brosandi en bætir svo við: „Hann fær örugglega ógeð á tónlist þegar hann verður svona 10 ára og fer að gera eitthvað allt annað.“ Sandra Guðrún Guðmundsdóttir sandragudrun@frettabladid.is Það er svo þægilegt fyrir okkur að æfa fyrir tónleikana heima í stofu þegar sonurinn er sofnaður. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR Framhald af forsíðu ➛ Ég var að vinna sem leiðsögu- maður í Hörpu og þá tók ég oft sérhópa í skoð- unarferð. Af því að ég er starfandi söngkona líka þá báðu yfirmenn mínir mig einu sinni að halda litla tónleika fyrir hópinn. Ingibjörg Fríða Helgadóttir 2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 3 0 . D E S E M B E R 2 0 1 9 M Á N U DAG U R

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.