Fréttablaðið


Fréttablaðið - 30.12.2019, Qupperneq 29

Fréttablaðið - 30.12.2019, Qupperneq 29
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Gústaf Bjarnason gustaf@frettabladid.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050: Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson, hlynur@frettabladid.is , Sigfús Örn Einarsson sigfus@frettabladid.is, Svava O’Brien svava@frettabladid.is, Örn Geirsson orn.geirsson@frettabladid.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5077: Atli Bergmann atli@frettabladid.is, Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is. FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is, Viðar Ingi Pétursson vip@frettabladid.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Guðrún Inga Grétarsdóttir gudruninga@frettabladid.is VIÐ ERUM ÞEGAR MEÐ HUG MYNDIR FYRIR SERÍU TVÖ. MIG LANGAR HELST AÐ HEFJA STRAX TÖKUR Á ANNARRI SERÍU, ÞÓTT EKKI VÆRI TIL ANNARS EN AÐ HITTA ÞETTA FÓLK AFTUR. www.husgagnahollin.is Sími: 558 1100 afsláttur 60% Allt að Ú TS A LA RI SA www.husgagnahollin.is V E F V E R S L U N A LLTAF OP IN Sakamálaþættirnir Brot eru runnir undan rifjum Þórðar Páls sonar en hug­myndin kviknaði þegar hann var nýútskrifaður úr breskum kvikmynda­ skóla árið 2015. Í kjölfarið landaði hann stærsta dreifingar samningi sem gerður hefur verið um ís­ lenskt efni og felur í sér að Netflix mun hefja sýningar á þáttunum í rúm lega 190 löndum á næsta ári. Þannig að óhætt er að segja að með þessari frumraun sinni hafi Þórður stimplað sig rækilega inn sem ungur og upprennandi leikstjóri. Ótrúlega heppinn og þakklátur „Ég kom til Ís lands sumarið eftir út­ skrift og fór á fund hjá fram leiðslu­ fyrir tækinu Tru enorth og kynnti þeim hug myndina. Þeim leist vel á þetta og vildu skoða verkið nánar og þá fór boltinn að rúlla,“ segir Þórður og bendir á að í raun sé eina leið nýrra leikstjóra inn í bransann að skapa sér verkefni sjálfir. Eftir að Þórður fangaði at hygli Tru enorth fóru f leiri, bæði hér heima og erlendis, að sýna verk­ efninu á huga. „Ég hélt að ef ég yrði heppinn myndi ég kannski ná að gera ein hverja ódýra, litla ís lenska kvik mynd. Það er nógu erfitt,“ heldur Þórður áfram. „Maður sér að fólk er í basli hér heima að koma sér á fram færi og meiri hluti lista manna á sjálf stæðu senunni er að fjár magna eigin verk­ efni. Það er alltaf erfiðast að fá fólk til að trúa á þig. Ég var bara ó trú lega heppinn að Kristinn Þórðar son og Davíð Óskar Ólafs son höfðu trú á mér. Ég mun alltaf vera ó trú lega þakk látur þeim fyrir að segja já við ný út skrifaðan leik stjóra sem var bara búinn að gera stutt myndir,“ segir Þórður sem er mikið kvik mynda nörd og hefur ein lægan á huga á leikurum og kvik­ mynda sögunni. „Maður þarf að vera læs og fylgj­ ast með nánast öllu sem er í gangi í kvik mynda heiminum til þess að geta sagt góða sögu sem hrífur nú­ tíma á horf endur. Ég vil alltaf bæta mig og horfi því oft á þær myndir sem ég elska og les svo hand ritið. Þannig næ ég að sjá saumana á sög­ unni og hvernig loka verkið endar oft öðru vísi en upp haf lega stóð til í hand ritinu,“ segir Þórður. Brotnar manneskjur og lög En hvaðan kemur titillinn Brot? Er þetta ein tala eða f leir tala? „Við erum að leika okkur með marg ræðni. Þættirnir fjalla um Kötu og Arnar sem eru að rann saka fyrsta ís lenska rað morðingjann. Titillinn vísar í lög brotin en einnig í per sónurnar sem eru að vissu leyti brotnar. Nafnið getur lifað á fram í f leiri þátta röðum enda viljum við halda þeim mögu leika opnum að þróa söguna á fram. Við erum þegar með hug myndir fyrir seríu tvö.“ En hvernig var það fyrir ungan leik stjóra að leik stýra svona þaul­ reyndum ís lenskum leikurum eins og Nínu Dögg Filippus dóttur og Birni Thors? „Æðis legt,“ svarar Þórður án þess að hika og bætir við: „Það er eitt að skrifa hand rit með hand­ rits höfundum og það er allt annað þegar bestu og reyndustu leikarar Ís lands gefa því líf. Við vorum alltaf að velta upp spurningum um hand­ ritið á töku stað og þróuðum text­ ann á fram svo hann hentaði hverri per sónu og að stæðum. Allir leikararnir gáfu ó trú lega mikið í þetta og höfðu mikla trú á verk efninu. Mig langar helst til að á horf endum þyki vænt um Kötu og Arnar í lokin og sakni þeirra þegar allt er búið,“ segir Þórður og leggur áherslu á að hjarta frásagnarinnar slái með per sónunum þótt f léttan skipti auð vitað alltaf miklu máli í al vöru reyfurum. Erfitt að kveðja Þórður segist hafa fundið fyrir mik­ illi depurð þegar tökum lauk. „Það var erfitt að kveðja því ég var búinn að vinna með þessu fólki í heilt ár; tökur stóðu frá nóvember til maí og þar á undan var mikil undir­ búnings vinna. Svo þegar þetta klárast huga allir að næsta verk efni og maður hittir þetta fólk ekki aftur fyrr en á frum sýningu. Það er mjög skrýtin upp lifun. Mig langar helst til að hefja strax tökur á annarri seríu, þótt ekki væri til annars en að hitta þetta fólk aftur,“ segir Þórður og hlær. ingunnlara@frettabladid.is Tímamót í íslenskri þáttagerðarsögu Þórður Pálsson fékk hugmyndina að spennuþáttunum Brot eftir útskrift úr kvikmyndaskóla árið 2015. Fjórum árum síðar gerði hann dreifingarsamning við Netflix og þættirnir komnir á RÚV. Þórður Pálsson stimplar sig inn á heimsvísu með þáttunum Brot og langar að gera aðra seríu. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR Meira á frettabladid.is 3 0 . D E S E M B E R 2 0 1 9 M Á N U D A G U R24 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.