Fréttablaðið - 04.03.2020, Side 34
Samkeppniseftirlitið þarf
að endurskilgreina mark-
aði í breyttum heimi,
annars vinnur það
gegn tilgangi sínum
og skerðir samkeppn-
ishæfni Íslands til
framtíðar.
Ari Fenger, formaður
Viðskiptaráðs
25.02.2020
MARKAÐURINN
Miðvikudagur 4. mars 2020FYLGIRIT FRÉTTABLAÐSINS UM VIÐSKIPTI OG FJÁRMÁL |
Kristinn
Ingi Jónsson
SKOÐUN
Kórónaveiran fer sem eldur í sinu um gervalla heims-byggð. Hún hefur þegar
dregið meira en þrjú þúsund til
dauða og yfir níutíu þúsund eru
smituð. Efnahagsáhrifin verða
gífurleg og líkast til langvarandi,
líkt og sést hefur á viðbrögðum fjár-
festa á fjármálamörkuðum hvar-
vetna í heiminum síðustu daga.
Áhrif faraldursins skipta auk þess
miklu máli frá lagalegum sjónar-
hóli. Alvarleiki veirunnar gæti
þannig ráðið því hvort samningar
teljist gildir eða ógildir. Milljarða
hagsmunir eru í húfi.
Mörg alþjóðleg fyrirtæki velta
því nú fyrir sér hvort faraldurinn
teljist sem „force majeure“ atvik
– óvænt ytri atvik sem engin leið
er að sjá fyrir – sem geti leyst þau
undan samningsskyldum sínum.
Þegar mikil áföll verða sem talið
er að mannlegur máttur hafi ekki
getað komið í veg fyrir – óviðráðan-
leg áföll á borð við náttúruhamfarir
og styrjaldir – er stundum sagt að
hönd Guðs hafi gripið inn í. Flestir
samningar gera ráð fyrir slíkum til-
fellum en túlkun þeirra er þó ekki
ætíð einhlít.
Ekki er til dæmis augljóst hvort
kórónafaraldurinn teljist til slíkra
atvika. Í þess háttar mati þarf að
taka tillit til margra þátta og þar
á meðal alvarleika faraldursins.
Niðurstaðan gæti jafnvel verið ólík
í ólíkum réttarkerfum. Í megin-
landsrétti gætu fyrirtæki þannig
mögulega borið fyrir sig fyrirvara
um „force majeure“, jafnvel þótt
hann sé ekki að finna í samningi, á
meðan semja þarf sérstaklega um
fyrirvarann og skilyrði hans fyrir
fram í engilsaxneskum rétti.
Deilur um málið hafa þegar
sprottið upp. Kínversk stjórnvöld
hafa sem dæmi gefið út metfjölda
svonefndra „force majeure“-vott-
orða til þarlendra fyrirtækja sem
þau segja að geti leyst fyrirtækin að
hluta eða að fullu undan samning-
um að virði samanlagt yfir fjörutíu
milljarða dala. Lögfræðingar sem
Financial Times ræddi við draga
gildi umræddra vottorða hins vegar
í efa og segja fyrirtækin geta ómögu-
lega borið þau fyrir sig utan Kína.
Tveir af stærstu innflytjendum
fljótandi jarðgass í Kína riðu
nýverið á vaðið og virkjuðu „force
majeure“-ákvæði til þess að komast
undan því að taka á móti fjórtán
tankskipum, við lítinn fögnuð
evrópskra gasframleiðenda sem
hótuðu þeim fyrrnefndu málaferl-
um. Fleiri kínverskir innflytjendur,
til dæmis á góðmálmum, hafa fetað
í sömu fótspor.
Útbreiðsla kórónaveirunnar
hefur þegar hoggið skörð í aðfanga-
keðjur alþjóðlegra fyrirtækja, sem
eru að stórum hluta í Kína, með
tilheyrandi neikvæðum áhrifum
á heimsbúskapinn. Langvarandi
lagaflækjur um túlkun „force
majeure“-ákvæða væru einungis
til þess fallnar að gera vont ástand
enn verra.
Að bæta gráu
ofan á svart
Tilnefningarnefnd Marels leggur til að Lillie Li Valeur, sem starfaði sem framkvæmdastjóri hjá Arla Foods
í hartnær áratug, verði kjörin ný í stjórn
félagsins á aðalfundi síðar í mánuðinum í
stað Margrétar Jónsdóttur, framkvæmda-
stjóra rekstrar Eyris Invest, sem hyggst
hætta í stjórninni eftir fjórtán ára setu.
Þetta kemur fram í skýrslu tilnefningar-
nefndar félagsins sem lögð verður fyrir aðal-
fund þess þann 18. mars.
Tilnefningarnefndin leggur til að aðrir núver-
andi stjórnarmenn verði endurkjörnir en þar
er um að ræða þau Ann Elizabeth Savage,
Arnar Þór Másson, Ásthildi Otharsdóttur,
Ástvald Jóhannsson, Ólaf Guðmundsson
og Ton van der Laan.
Fram kemur í skýrslu nefndarinnar að
í kjölfar þess að Margrét tilkynnti stjórn-
inni um ákvörðun sína hafi nefndin ráðið
alþjóðlegt ráðgjafarfyrirtæki til þess að
aðstoða sig við leit að nýjum stjórnarmanni.
Af nokkrum öf lugum kandídötum hafi
nefndin ákveðið að mæla með Valuer. – kij
Vill Lillie Li Valeur í stjórn Marels
Lillie Li Valeur,
forstjóri Good
Food Group.
Instagram
@frettabladid
Facebook
facebook.com/Frettabladid
PwC | Sími 550 5300 | www.pwc.is
PwC á Íslandi er framsækið og traust fyrirtæki sem veitir sérfræðiþjónustu á sviði fyrirtækja- skatta- og lögfræðiráðgjafar,
endurskoðunar og reikningsskila. Fyrirtækið er íslenskt og er hluti af alþjóðlegu neti sjálfstæðra fyrirtækja sem aðstoðar
viðskiptavini sína við að auka verðmæti, stjórna áhættu og bæta árangur sinn.
Reykjavík | Akureyri | Reykjanesbær | Húsavík | Selfoss | Hvolsvöllur | Vestmannaeyjar
2019
Jafnlaunavottun
Sanngjörn
laun fyrir jafn-
verðmæt störf
PwC býður upp á heildstæða þjónustu í launamálum
og jafnlaunavottun. Við búum yfir áralangri reynslu
og lausnum sem virka.