Hugur og hönd


Hugur og hönd - 01.06.2001, Side 2

Hugur og hönd - 01.06.2001, Side 2
 ', t r '.................................................j ♦ Fundir hjá stjórn og fastanefndum hafa verið með hefðbundnum hætti. Formannafundur Norrænu heimilisiðnaðarsamtakanna 2001 verður haldinn í Tampere í Finnlandi í byrjun október og er það á sama tíma og norræna heimilisiðnaðarþingið. Mun formaður HFÍ sitja þann fund. flfi 111 pfl ♦ Starfið í félaginu hefur á síðustu árum snúist mikið um Heimilisiðnaðarskólann. í tengslum við Kristnitökuhátíð um síðustu aldamót höfðu margar konur mikinn áhuga á að eignast þjóðbúning og urðu námskeið í þjóðbúningasaum fjölmörg. Myndir af prúðbúnum konum í nýju búningunum sínum hafa verið birtar í fjölmiðlum að þjóðbúninga- námskeiðum loknum. ♦ í sambandi við jurtalitunarnámskeið í sumar tóku nokkrir félagar sig til og lituðu mikið magn af bandi í öllum regnbogans litum fyrir félagið. Það er sérspunnið fyrir útsaum á þjóðbúningum. Er þetta liður í þjóðbúningaverkefni félagsins, en þessi þáttur snýr að faldbúningnum. Um fald- búninginn hefur myndast hópur sem kallar sig Faldafeyki og hittist hann reglulega í húsnæði félagsins til að rannsaka og undirbúa gerð faldbúninga. Hi ♦ HFI hefurtekið þátt í handverkssýningunni í Laugardagshöll sem haldin er á vordögum. Þjóðbúningarnir hafa verið mest áberandi í bás HFÍ enda það sem virðist vera vinsælast núna. Einnig hefur félagið kynnt sig á handverkssýningunni á Hrafnagili sem haldin er á sumrin. Sl. sumar bauðst Heimilisiðnaðar- skólanum að taka þátt í þjóðlagahátíðinni á Siglufirði og mættu tveir félagar þar og sýndu jurtalitun. ♦ Starfsmenn félagsins eru tveir: Ásdís Birgisdóttir, verslunarstjóri þjónustudeildar, sem er lítil verslun í húsnæði félagsins og Steinunn Ásgeirsdóttir, skólastjórnandi Heimilisiðnaðar- skólans. ♦ Annað starf innan HFÍ er unnið í sjálf- boðavinnu félaga hvort sem þeir sitja í stjórn, nefndum eða eru almennirfélagar. ili HEIMILISIÐNAÐAR Heimilisiðnaðarskólinn Laufásvegi 2 101 Reykjavík Sími 551 7800 Fax 551 5532 Netfang: heimilisidnadur@islandia.is Spennandi handverksnámskeið. Lærið gömul vinnubrögð hjá sérhæfðum kennuru Kvöldnámskeið. Allar upplýsingar og skráning í námskeið mánudaga og fimmtudaga kl.10-18 og í tölvupósti, heimilisidnadur@islandia.is. Nemendafjöldi takmarkaður á hvert námskeið. þjóðbúningar - baldýring - knipl útsaumur - almennur vefnaður spjaldvefnaður - bútasaumur útskurður - tóvinna - jurtalitun sauðskinnskógerð og margt fleira. Þjónustudeild Heimilisiðnaðarfélags íslands Laufásvegi 2 101 Reykjavík Sími 551 5500 Fax 551 5532 Netfang: heimilisidnadur@islandia.is Verslun, þjónustu og upplýsingar. Við sérhæfum okkurtil að veita upplýsingar um þjóðbúningagerð, vefnað og vefnaðaráhöld og íslensk útsaumsmynstur. m W Ullarefni, skyrtuefni, svuntuefni Kniplingar, orkeringar, slifsi, húfur og skúfar Javi, strammi og ullargarn Hörband, bómullarband, skyttur og skeiðar Og margt fleira.. Opið mánudaga og fimmtudaga frá kl. 1

x

Hugur og hönd

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hugur og hönd
https://timarit.is/publication/1414

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.