Fréttablaðið - 07.04.2020, Qupperneq 1
— M E S T L E S N A DAG B L A Ð Á Í S L A N D I * —8 3 . T Ö L U B L A Ð 2 0 . Á R G A N G U R Þ R I Ð J U D A G U R 7 . A P R Í L 2 0 2 0
Njóttu hækkandi sólar á rúntinum.
Uppáhaldsbíllinn þinn bíður!
HEKLA · Skoðaðu úrvalið á www.hekla.is/vefverslun
ORKUMÁL Jarðvarmafyrirtækið
Reykjavík Geothermal (RG) er aðili
að risavöxnum orkukaupasamningi
Eþíópíu. Fyrirtækið hefur starfað á
svæðinu í átta ár en samningurinn
markar mikil kaflaskil.
„Það var mjög ánægjulegt að fá
þetta staðfest, sérstaklega í ljósi
þess að lítið er að gerast í virkjana-
málum á Íslandi,“ segir Guðmundur
Þóroddsson, stjórnarformaður RG.
Um er að ræða tvær 150 mega-
watta virkjanir, Corbetti og Tulu
Moye, sem hvor um sig mun kosta
um 600 milljónir dollara, um 86
milljarða króna. Orkukaupasamn-
ingurinn fyrir Tulu Moye hljóðar
upp á 800 milljónir dollara, rúm-
lega 115 milljarða króna. Hlutur RG
er um 49 prósent í Tulu Moye og 30
prósent í Corbetti.
Uppbygging veranna tryggir Eþí-
ópíumönnum grunnaf l, þeir hafa
hingað til stólað mikið á vatnsaflið,
sem er árstíðabundið og ótryggt.
Í Austur-Afríku eru f lekaskil
og stór sigdalur allt frá Djibútí til
Tansaníu, og svæðið því ríkt af
jarðvarma. Keníumenn hafa verið
fremstir í að nýta af lið en grann-
þjóðirnar hafa sótt á undanfarið.
„Það eru mikil sóknarfæri í jarð-
hitanum en þetta er mikil þolin-
mæðisvinna,“ segir Guðmundur.
Samkvæmt honum verða þessar
tvær virkjanir ekki komnar í fulla
notkun fyrr en 2025 eða 2026. Einn-
ig sé horft til annarra staða á svæð-
inu, einnar til viðbótar í Eþíópíu
og í Keníu og Tansaníu.Fleiri íslensk
fyrirtæki koma að verkefnunum,
Jarðboranir að Corbetti virkjun-
inni og einnig ýmis ráðgjafafyrir-
tæki svo sem Mannvit, Ísor og VSÓ.
– khg
Reykjavik Geothermal aðili
að risasamningi í Eþíópíu
Jarðvarmafyrirtækið Reykjavik Geothermal og samstarfsaðilar hafa nýlega gert raforkukaupasamninga
við eþíópíska ríkið sem hlaupa á hundruðum milljarða króna. Stjórnarformaðurinn segir þetta þolin-
mæðisvinnu en mikil tækifæri séu í Austur-Afríku. Virkjanirnar tryggja Eþíópíumönnum grunnafl.
Það var mjög
ánægjulegt að fá
þetta staðfest, sérstaklega í
ljósi þess að lítið er að gerast
í virkjanamálum á Íslandi
Guðmundur
Þóroddsson,
stjórnarformaður
Reykjavik
Geothermal
TF-GRÓ, þyrla Landhelgisgæslunnar, f laug í gær með tíu heilbrigðisstarfsmenn til Ísafjarðar til að aðstoða við aðhlynningu sjúklinga með COVID-19 fyrir vestan. Með þyrlunni voru
einnig f luttar grímur, sýnatökupinnar og annar búnaður. Þá tók þyrlusveitin sýni til baka. Með til Reykjavíkur fór einnig sjúklingur sem ekki er COVID-smitaður. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
COVID -19 Röskun á skólastarfi
bitnar illa á nemendum með ADHD,
sem eru allt að 10 prósent í hverjum
árgangi, vegna skorts á aðhaldi
skólans. Verst bitnar hún á nem-
endum á efri stigum þar sem allt
námið er nú unnið í fjarkennslu.
Hrannar B. Arnarsson, formaður
ADHD-samtakanna telur hættu á
að þessi hópur flosni upp úr námi.
Nemendur með
ADHD gætu
flosnað úr námi
Hrannar B.
Arnarsson.
„Tímaskyn og skipulagseigin-
leikar eru ekki eins sterkir hjá
mörgum í okkar hópi og hjá ýmsum
öðrum. Þetta reynir rosalega á for-
eldrana sem þurfa að taka mikla
viðbótarvinnu á sig,“ – khg / sjá síðu 4