Fréttablaðið - 07.04.2020, Síða 16

Fréttablaðið - 07.04.2020, Síða 16
Fyrsti rafmagnaði Skoda bíllinn er kominn til landsins í formi tengiltvinnbílsins Superb iV. Óhætt er að segja að rafmagns- bylgja Skodamerkisins sé rétt handan við hornið því að tíu slíkir eru væntanlegir á næstu tveimur árum. Fyrsti bíllinn í röðinni er nýr Skoda Superb iV tengiltvinn- bíll sem byggir á grunni hefð- bundins Superb og líkist honum mikið. Superb iV kemur á MQB undirvagninum sem hefur verið breytt til að koma fyrir og verja rafhlöðuna sem er í raun og veru sami raf búnaðurinn og í VW Passat GTE með nýju 13 kWh raf- hlöðunni. Smávægilegar breytingar Að utan lítur hann út eins og hver annar Superb fyrir utan smá mun á grilli og iV merkið aftan á bílnum. Hann fær sömu Matrix aðalljósin og meira króm en þá er það nánast upptalið. Að innan er það sama uppi á teningnum og eiginlega ekkert nýtt að sjá miðað við tveggja ára gamlan Superb, sama hefðbundna mælaborðið með stóra 9,2 tommu Columbus skjánum fyrir utan að kominn er eyðslumælir fyrir raf búnaðinn vinstra megin. Upplýsinga- skjárinn er reyndar með uppfærslu sem býður upp á flettimöguleika sem er framför. Jú, svo er E-takki í miðjustokknum til að keyra bílinn á rafmagninu einu saman. Það verður svo sjaldan kvartað yfir plássleysi í Superb og iV útgáfan er eins rúmgóð að flestu leyti, þótt farangursrýmið sé ögn minna og óþarfi að fjölyrða um það. Sneggri af stað En hverer munurinn á Superb iV og hefðbundnum Superb í akstri? Þar hittir vel á því að fyrir er nýlegur Superb á heimili undirritaðs. Ólíkt mörgum tengil- tvinnbílum er rafmótorinn ekki fyrir afturdrifið heldur tengist skiptingunni til að gefa bensín- mótornum auka afl eða keyra bílinn eingöngu á 114 hestafla raf- mótornum. Bensínvélin sjálf er 154 hestöfl en saman skila mótorarnir 215 hestöflum. Upptakið er aðeins frísklegra en í dísilbílnum með 190 hestafla vélinni og hann er mjög mjúkur og hljóðlátur á rafmagninu einu saman. Rafhlaðan á að duga fyrir allt að 63 km akstur við bestu Raf-magnaður Skódi Þegar reynt er á Superb iV í beygjum leggst hann aðeins meira á fjöðrunarbúnaðinn enda 260 kílóum þyngri. MYNDIR/TRYGGVI ÞORMÓÐSSON Farangursrýmið er örlítið minna en samt 485 lítrar og dugar því vel. Matrix ljósin eru nú staðal- búnaður í nýjum Superb og það er smávægilegur munur á grilli. Bensínvélin er 154 hestöfl ein og sér en rafmótorinn skilar 114 hestöflum. KOSTIR OG GALLAR Skoda Superb iV Grunnverð: 4.990.000 kr. Afl: 215 hestöfl Tog: 400 Newtonmetrar Eyðsla bl.ak: 1,4 l/100 km Rafhlaða: 13 kWh Drægni rafhlöðu: 63 km CO2: 35 g/km Hröðun: 0-100 km: 7,3 sekúndur L/B/H: 4.869/1.864/1.469 mm Hjólhaf: 2.841 mm Farangursrými: 485 lítrar n Verð n Áfram rúmgóður n Stífari fjöðrun KOSTIR GALLAR aðstæður og satt best að segja dugði hún ágætlega þrátt fyrir talsverðan kulda á meðan á prófun bílsins stóð. Þegar rafhlaðan er tóm er smá hik í upptakinu þegar bílnum er gefið snöggt inn, þar sem hann tekur í smástund af stað á rafmagninu frá minni rafhlöð- unni en skiptir síðan yfir á bensín- vélina. Bíllinn er mjög hljóðlátur á rafmagninu eingöngu og reyndar einnig á bensínvélinni líka. Stýrið virðist líka örlítið léttara í notkun og í meðallagi næmt með 2,7 hringi borð í borð. Þyngri í beygjum Rafhlöðunni er komið fyrir framan við 50 lítra bensíntankinn undir aftursætinu, og hún ásamt raf búnaðinum bætir allt að 260 kílóum við þyngd bílsins. Brems- urnar virðast vera þær sömu og í dísilbílnum og virka ekki alveg eins vel, bíta betur í léttari dísil- bílnum. Rafstillanlegir demparar eru staðalbúnaður í iV bílnum og hann er 10 mm lægri á þeim og þess vegna aðeins stífari í akstri. Aukin þyngd bílsins þýðir að þessi stóri bíll leggst meira út á hliðarnar þegar reynt er á hann í beygjum. Meiri þyngd þýðir líka að hann ræður ekki eins vel við holur og hraðahindranir og þarf að hægja vel á sér ef slíkt á ekki að hafa áhrif. Til að ráða betur við þyngdina er ökumaður líklegri til að vilja nota sportstillinguna, sem kemur niður á getu bílsins til að ráða við skarpar fyrirstöður. Það má þó ekki túlka þetta sem að það sé eitthvað leiðinlegt að keyra Superb iV þótt muninum sé lýst með þessum hætti. Hann liggur vel og er frísklegur af stað eins og áður sagði miðað við bíl af þessari stærð. Á mjög góðu verði Þá erum við líka komin að því sem er kannski aðalkosturinn við þennan bíl sem er verðið. Fyrir 4.990.000 kr. grunnverð fæst rúm- góður, vel búinn 214 hestafla bíll sem getur gengið fyrir rafmagni megnið af þeim tíma sem flestir nota undir stýri. Ef fara þarf í lengri akstur dugar 1,4 lítra vélin honum ágætlega fyrir hvað sem er. Auk þess á hann fáa keppi- nauta hérlendis nema þá kannski helst bróður sinn Passat GTE og Kia Optima PHEV. Ef við skoðum aðeins Kia bílinn kostar sambæri- leg Optima með stærri rafhlöð- unni frá 5.190.777 kr en Passat GTE er talsvert dýrari eða frá 5.890.000 kr. Skoda Superb keppir einnig við Peugeot 508 tvinnbílinn og BMW 330e, en hvorugur er í boði á verð- listum viðkomandi umboða. 4 BÍLAR 7 . A P R Í L 2 0 2 0 Þ R I ÐJ U DAG U R

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.