Feykir - 01.02.2017, Side 5
Della í Ljónagryfjunni
Dominos-deidin :: Njarðvík – Tindastóll 92–86
Tindastólsmenn fóru illa að ráði
sínu þegar þeir mættu Njarð-
víkingum í Ljónagryfjunni suður
með sjó sl. fimmtudagskvöld.
Eftir frábæran fyrri hálfleik Stól-
anna komust heimamenn inn í
leikinn strax í byrjun síðari hálf-
leiks, með aðstoð dómaranna, og
þeir reyndust síðan sterkari á
lokamínútum leiksins og unnu
dýsætan sigur, 92–86.
Lið Tindastóls spilaði glimrandi
körfubolta í fyrri hálfleik með
þá félaga Pálma Geir og Chris
Caird í hörkustuði. Antonio Hester fékk sína
þriðju villu skömmu fyrir hlé, fyrir leikaraskap
og var sá dómur hæpinn. Staðan í hálfleik var
36-55 fyrir Tindastól.
Hester fékk síðan dæmda á sig algjöra
delluvillu fyrir ruðning strax í upphafi síðari
hálfleiks og varð Martin að setja hann á bekkinn
fyrir lokaátökin. Njarðvíkingar gengu á lagið og
gerðu 12 stig í röð áður en Stólarnir náðu að fóta
sig. Caird var ótrúlega öflugur og raðaði niður
körfum. Síðasta mínútan í þriðja
leikhluta var ótrúleg. Fyrst
minnkaði Jón Arnór muninn í
66-69 en Caird svaraði með þristi.
Þá klikkaði Logi á 3ja stiga skoti
þegar skammt var eftir, Björgvin
náði boltanum og kastaði frá
eigin vítateigslínu yfir allan
völlinn og í spjaldið og niður um
leið og flautan gall! Staðan 66-75
og staða Stólanna góð fyrir
lokaátökin.
Tindastólsmenn héldu for-
ystunni þangað til þrjár mínútur
voru eftir af leiknum en þá tóku
heimamenn leikinn yfir og sigruðu sem fyrr segir
92-86.
Sárgrætilegur ósigur staðreynd. Caird var lang
stigahæstur Stólanna í kvöld með 39 stig! Pálmi
og Hester voru síðan með 13 stig hvor. Pétur var
með 10 stig og sjö fráköst. Svavar og Helgi
Margeirs voru fjarri góðu gamni en reynsla þeirra
hefði eflaust hjálpað Stólunum í þessum átökum.
Næsti leikur er í Síkinu 2. febrúar en þá mæta
Keflvíkingar liði Tindastóls. /ÓAB
Chris Caird var með 39 stig.
MYND: HJALTI ÁRNA
ÍÞRÓTTAFRÉTTIR Fleiri íþróttafréttir á Feykir.isF
Andrea Maya með gull
Keppni í kúluvarpi á MÍ í frjálsum
Meistaramót Íslands í
frjálsíþróttum innanhúss, fyrir
11 – 14 ára, fór fram í
Íþróttahöllinni í Kaplakrika í
Hafnarfirði um síðustu helgi.
Keppendur voru alls um 300,
þar af fjórir Skagfirðingar og
tveir Húnvetningar. Andrea
Maya Chirikadzi UMSS gerði
sér lítið fyrir og sigraði í kúlu-
varpi í flokki 14 ára stúlkna.
Andrea Maya varpaði kúl-
unni 9,64 m tæpum 30 sm
lengra en næsti keppandi. Aðrir
keppendur UMSS voru Stefanía
Hermannsdóttir, Indriði Ægir
Þórarinsson og Óskar Aron
Stefánsson. Fyrir USAH keppti
Brynjar Daði Finnbogason og
Arna Rut Arnarsdóttir fyrir
Kormák. Keppendalista, tíma-
seðla og úrslit er hægt að sjá á
fri.is. /KSE
FYRIRTÆKI
Á NORÐURLANDI VESTRA
Í FREMSTU RÖÐ!
Við erum stolt af því að vera í hópi
framúrskarandi fyrirtækja á Norðurlandi vestra
samkvæmt útnefningu Creditinfo.
1988–2013 SORPHIRÐA Í 25 ÁR
STEINULL HF.
Friðrik Jónsson ehf
Byggingaverktaki
Ste
ypust
öð Skagafjarðar
SKAGAFIRÐI
Sérfræðikomur
í febrúar 2017
13.OG 14. FEBRÚAR
Sigurður Albertsson skurðlæknir
21. OG 32. FEBRÚAR
Valur Þór Marteinsson þvagfæraskurðlæknir
lausir tímar 22. febrúar
23. OG 24. FEBRÚAR
Orri Ingþórsson kvensjúkdómalæknir
Tímapantanir í síma 455 4022.
www.hsn.is
Æfðu á
grasi í
síðustu viku
Góð fótboltatíð
Umræðan um grasvellina á
Sauðárkróki hefur oft verið
á neikvæðu nótunum, þar
sem mörg undanfarin sumur
hafi þeir komið illa undan
vetri og seinir til, þegar
vorar. Og ekki man
blaðamaður eftir því að hafa
heyrt að völlunum sé hrósað
á miðjum vetri, en æft var á
einum grasvellinum í
síðustu viku.
Á heimasíðu Tindastóls
segir að þann 24. janúar í
liðinni viku hafi 3. flokkur
kvenna æft á grasvellinum í
frábæru veðri. Smá frost hafi
verið í vellinum sem var
annars nokkuð góður enda
hefur veðurfar verið með
eindæmum gott undanfarið
og segir á síðunni að vellirnir
séu ennþá í fínu standi eftir
sumarið.
„Stefnt er að því að skipta
út grasinu á þessum velli
fyrir gervigras og er skipu-
lagsvinna við það hafin. Það
er von knattspyrnudeildar að
hægt verði að æfa allan næsta
vetur á gervigrasvellinum
sem verður mikil búbót fyrir
deildina,“ segir á Tindastóll.
is. /PF
Andrea Maya með fangið fullt af bikur-
um á uppskeruhátíð UMSS. MYND: UMSS
Vinnuvélar Símonar ehf.
s: 893 7413
2016
05/2017 5