Feykir - 08.02.2017, Blaðsíða 2
Í æsku minni í uppsveitum Borgarfjarðar voru blöðin (lesist
Tíminn) mikið lesin og hlustað á útvarpsfréttir þó boð-
leiðirnar væru heldur fábreyttari en nú. Ef til vill hef ég verði
forvitið barn og þótt gaman að fylgjast með fréttum, þó
forfeður mínir vildu lítt kannast við orðatiltækið Lundar-
reykjadalskjaftæði. Í öllu falli hefur mér alltaf verið afar hlýtt
til héraðsfréttablaða og er Feykir þar engin undantekning.
Það er því með söknuði sem ég
kveð Feyki eftir tæplega fjögurra
ára starf við blaðið. Eins og ég
vissi þegar ég tók starfið að mér, í
níu mánuði til að byrja með, hefur
það í senn verið fjölbreytt, gefandi
og krefjandi. Mér er það til efs að
nokkurt starf henti betur en þetta
til að kynnast nýjum heimkynn-
um og nýju fólki. Viðtöl sem að
jafnaði taka eina til tvær klukku-
stundir gefa manni ótrúlega góða
innsýn í líf og störf fólks og í
sumum tilfellum opnar fólk sig um mjög persónuleg mál eins
og sjúkdóma eða erfiða lífsreynslu. Ég lít á það traust sem
viðmælendur hafa sýnt mér sem mikinn heiður og er auðmjúk
yfir öllum viðbrögðum sem ég hef fengið við verkefnum mínum
fyrir Feyki.
Það er líka með ólíkindum hversu margir hafa lagt mér lið í
þessu starfi. Hvort sem er með því að veita viðtöl, skrifa aðsendar
greinar, senda mér myndir, svara misgáfulegum fyrirspurnum
um stóra og smáa hluti eða bara með örlitlu klappi á bakið. Oft
hefði maður viljað vera á um það bil fjórum stöðum í einu en það
er augljóslega ekki hægt og því gott að eiga hauka í horni. Ég er
gríðarlega þakklát fyrir þetta og yfirhöfuð öll þau lærdómsríku
samskipti sem ég hef átt við íbúa á Norðurlandi vestra. Vonandi
halda þau áfram þó að starfsvettvangurinn verði annar.
En þó starf blaðamannsins fari fram í öllu samfélaginu, fer
stór hluti þess fram inni á vinnustaðnum. Sem er reyndar
samfélag út af fyrir sig. Það verður skrítið að fara ekki í vinnuna í
næstu viku og hitta Siggu brosandi við afgreiðsluborðið, hina
þolinmóðu Sjónhornskonu Báru eða Austfirðinginn okkar nýja,
hann Sigfús sem öllu reddar. Að ég tali nú ekki um umbrots-
manninn Óla sem ásamt hinum geðþekka Guðna í prentsmiðj-
unni leggur lokahönd á að gera Feyki að flottasta blaði landsins.
Þá er ótalin ofurkonan Þuríður sem heldur öllu batteríinu gang-
andi. Nánast er þó samstarfið við ritstjórann og eins gott að
samkomulagið sé gott þegar menn deila skrifstofu níu tíma á dag
og bilið milli skrifborða er varla meira en hálfur metri. Engan
skugga hefur borið á það samstarf, enda Palli seinþreyttur til
vandræða og ávallt með gamanyrði á vörum. Það sama gildir um
Berglindi sem ég starfaði með stóran hluta starfstímans hjá Feyki.
Öllu þessu frábæra fólki vil ég þakka gjöfult og gott samstarf.
Því er líklega eins farið með blaðamenn og kennara, að starfið
er lífsstíll. Það er því aldrei að vita nema ég setjist einhvern
tímann hinu megin við borðið og skrifi eins og eina aðsenda
grein. En þangað til bið ég starfsfólk og lesendur Feykis vel að lifa.
Kristín Sigurrós Einarsdóttir
uppgjafarkennari og uppgjafarblaðamaður, verðandi „frílans.“
LEIÐARI
Að leiðaralokum Dagur Þór kominn til starfa
Skagafjarðarhafnir
Nýr yfirhafnarvörður hóf störf
hjá Skagafjarðarhöfnum þann
1. febrúar sl., Dagur Þór
Baldvinsson. Dagur Þór er
menntaður sjávarútvegs-
fræðingur frá Háskólanum á
Akureyri og mun í vor ljúka
fjárnámi í APME verkefna-
stjórnun við Háskólann í
Reykjavík með IPMA alþjóðlegri
vottun.
Yfirhafnarvörður starfar hjá
Hafnarsjóði Skagafjarðar sem á
og rekur tvær hafnir í Skaga-
firði, á Sauðárkróki og á Hofs-
ósi og sinnir margvíslegum
verkefnum.
Í samtali við Feyki segir
Dagur að starfið leggist
ágætlega í hann við fyrstu sýn
en fyrstu verkefni hans voru að
gera reikninga fyrir janúar og
kynnast starfseminni almennt.
„Gunnar Steingrímsson fyrr-
verandi yfirhafnarvörður var
með mér fyrstu þrjá dagana til
að koma mér inn í starfið.
Nokkrir smábátar lönduðu í
vikunni 13.611 kg og var
fiskurinn fullur af loðnu, létum
við Hafrannsóknarstofnun
Íslands vita af því. Á Hofsósi
lönduðu smábátarnir samtals
9553 kg,“ segir Dagur sem
vonast eftir góðu samstarfi við
útgerðaraðila og smábátaeig-
endur í Skagafirði. /PF
Útgefandi: Nýprent ehf., Borgarflöt 1, Sauðárkróki
Póstfang Feykis: Borgarflöt 1, 550 Sauðárkrókur
Ritstjóri & ábyrgðarmaður:
Páll Friðriksson, palli@feykir.is & 861 9842
Blaðamenn:
Kristín Sigurrós Einarsdótti, kristin@feykir.is & 867 3164
Fríða Eyjólfsdóttir, frida@feykir.is & 867 9744, Óli Arnar Brynjarsson, oli@feykir.is
Áskriftarverð: 530 kr. hvert tölublað með vsk. Lausasöluverð: 650 kr. með vsk.
Áskrift og dreifing: Nýprent ehf. Sími 455 7171. Umbrot og prentun: Nýprent ehf.
Óháð fréttablað á Norðurlandi vestra - alltaf á miðvikudögum
Á Skagaströnd var landað tæpum
47 tonnum, tæpum 14 tonnum á
Hvammstanga, tæpum 13 tonnum
á Hofsósi og tæpum 14 tonnum á
Sauðárkróki. Alls gera þetta tæp
87 tonn á Norðurlandi vestra.
Meðfylgjandi mynd tók Páll
Friðriksson í vikunni af Skaga-
strandarhöfn. /FE
Aflatölur 29. janúar–4. febrúar 2017 á Norðurlandi vestra
87 tonnum landað í vikunni
SKIP/BÁTUR VEIÐARFÆRI KG SKIP/BÁTUR VEIÐARFÆRI KG
Íslandsbersi HU 113 Línutrekt 1.518
Jenný HU 40 Handfæri 1.667
Kambur HU 24 Landb.lína 1.032
Stella GK 23 Landb.lína 10.531
Alls á Skagaströnd 46.695
SAUÐÁRKRÓKUR
Hafborg SK 54 Net 3.800
Óskar SK 13 Landb.lína 6.437
Sæfari HU 212 Landb.lína 1.965
Hafey SK 10 Handfæri 576
Kristín SK 77 Handfæri 139
Már SK 90 Handfæri 247
Vinur SK 22 Handfæri 290
Þytur SK 18 Handfæri 157
Alls á Sauðárkróki 13.611
HVAMMSTANGI
Bergur Vigfús GK 43 Lína 13.882
Alls á Hvammstanga 13.882
HOFSÓS
Ásmundur SK 123 Lína 4.110
Skáley SK 32 Lína 8.843
Alls á Hofsósi 12.953
SKAGASTRÖND
Alda HU 112 Landb. lína 10.949
Auður HU 94 Landb. lína 5.180
Bergur sterki HU 17 Landb.lína 3.920
Dagrún HU 121 Þorskfisknet 4.012
Dísa HU 91 Landb. lína/handf. 4.704
Fengsæll HU 56 Landb.lína 3.182
Áhyggjur af sjómannaverkfalli
Samtök sjávarútvegssveitarfélaga
Á stjórnarfundi Samtaka
sjávarútvegssveitarfélaga sem
haldinn var 3. febrúar sl., var
staðan rædd sem komin er upp
í sveitarfélögum allt í kringum
landið í tengslum við verkfall
sjómanna.
Það hefur áhrif á fleiri en
samningsaðila og var samþykkt
að senda bókun á sjávarútvegs-
ráðherra, samningsaðila og alla
þingmenn í gær sem hljóðar
svo: Stjórn Samtaka sjávar-
útvegssveitarfélaga lýsir yfir
miklum áhyggjum af þeirri
stöðu sem komin er upp í
sveitarfélögum allt í kringum
landið í tengslum við verkfall
sjómanna. Verkfallið hefur nú
staðið í u.þ.b. tvo mánuði og er
farið að hafa mikil áhrif sem
ekki einungis ná til samnings-
aðila, heldur einnig stöðu
landverkafólks og þeirra sem
vinna óbein störf í sjávarútvegi
og eru ekki aðilar að kjara-
samningi sjómanna og út-
gerðarmanna. Í jafn mikilvægri
atvinnugrein og sjávarútvegi er
ábyrgð aðila mikil. Ljóst er að
staðan er þegar orðin alvarleg í
mörgum sjávarútvegssveitar-
félögum og stefnir í óefni að
óbreyttu.
Stjórn Samtaka sjávar-
útvegssveitarfélaga hvetur
samningsaðila og ríkisstjórn
Íslands til að leita allra leiða til
að liðka fyrir lausn málsins,
þannig að koma megi í veg fyrir
frekara tekjutap þjóðarbúsins í
heild sinni. /PF
Dagur Þór Baldvinssoni.
MYND: SKAGAFJORDUR.IS.
2 06/2017