Feykir - 08.02.2017, Side 4
Sjómannaverkfallið dregst á langinn
Nú hefur verkfall sjómanna
staðið yfir hátt á annan mánuð
og ekkert virðist þokast í
samkomulagsátt. Feyki lék
forvitni á að vita hvernig staðan
væri hjá landverkafólki sem
starfar hjá FISK Seafood og
hafði samband við Laufeyju
Skúladóttur markaðs- og
sölustjóra fyrirtækisins.
Laufey sagði að síðan um
miðjan desember þegar síðast
var landað úr skipum fyrir-
tækisins hafi engin fiskvinnsla
verið í gangi. Aðspurð um
hvort fólki hafi verið sagt upp
hjá fiskvinnslunni eins og víða
hefur verið gert segir Laufey að
sú ákvörðun hafi verið tekin í
aðdraganda verkfallsins að
segja engum upp í landvinnslu
fyrirtækisins. Gott starfsfólk til
sjós og lands sé ein af
grunnstoðunum í rekstri FISK
Seafood og því hafi verið
ákveðið að fara þessa leið sem
þótti vera mildari en aðrar
leiðir sem í boði voru.
Með þeirri leið að halda
starfsfólki á launaskrá í stað
uppsagna heldur fólkið öllum
réttindum sínum, t.d. þegar
kemur að orlofi og áfram-
haldandi ráðningarsambandi
við fyrirtækið. Starfsfólkið fær
hins vegar ekki greiddan bónus,
sem kemur til viðbótar dag-
vinnukaupi, þar sem hann er
afkasta- og árangurstengdur.
Í Fiskvinnslunni á Eyrarvegi
vinna um 85 starfsmenn og eru
um 30 þeirra með erlent
ríkisfang.
Tíminn í verkfallinu hefur
verið nýttur til tiltekta og þrifa
auk þess sem starfsfólk sat
Grunnnámskeið fyrir fisk-
vinnslufólk í byrjun janúar sem
haldið var í samvinnu við
Farskólann. Er það byggt upp
samkvæmt Námsskrá Fræðslu-
miðstöðvar atvinnulífsins og er
ætlað þeim sem starfa við
verkun og vinnslu sjávarafla; í
flakavinnslu, frystingu, söltun,
skreiðarverkun, rækju- og skel-
vinnslu. Markmið námskeiðis-
ins er að auka þekkingu náms-
manna á vinnslu sjávarafla og
meðferð aflans allt frá veiðum
og að borði neytandans ásamt
því að styrkja faglega hæfni.
Tíminn í verkfallinu hefur
einnig verið nýttur til að verka
og þurrka hausa sem voru til í
frystigeymslum félagsins.
Ljóst er að áhrifa verkfallsins
gætir víðar í samfélaginu en hjá
fiskvinnslunni; útsvarsgreiðslur
til Sveitarfélagsins lækka, tekjur
Hafnarsjóðs minnka og tekjur
flutningafyrirtækja og annarra
fyrirtækja sem þjónusta sjávar-
útveginn minnka einnig mikið.
Verkfall sjómanna hefur því
víðtækar afleiðingar og mikil
tekjuskerðandi áhrif inn í lítið
samfélag eins og hérna á
Sauðárkróki.
„Við bíðum og vonum að
samninganefndir sjómanna og
SFS fari að ná saman svo að
takist að leysa verkfallið,“ segir
Laufey að lokum.
Tíminn nýttur til tiltekta og lærdóms
Frá útskrift úr grunnnámskeiði fyrir starfsfólk í fiskvinnslu. MYND: FARSKÓLINN
TEXTI
Fríða Eyjólfsdóttir
Gjaldskrá kemur vel út
Skólar í Skagafirði
Öll stærstu sveitarfélög
landsins, nema Mosfells-
bær, hafa hækkað
leikskólagjaldskrár sínar frá
því í upphafi árs 2017 að því
er fram kemur í nýrri úttekt
verðlagseftirlits ASÍ. Mesta
hækkunin er í Reykjavík, sem
rekja má til ríflega fjórðungs
hækkunar á fæðisgjaldi.
Gjald fyrir átta tíma
leikskólavistun með fæði er
lægst á Seltjarnarnesi og í
Reykjavík en hæst í
Vestmannaeyjum og
Garðabæ.
Á heimasíðu ASÍ segir að
mikill verðmunur sé á hæstu
og lægstu gjaldskrá sveitar-
félagana fyrir átta tíma vistun
ásamt fæði. Hæsta gjaldið
fyrir þessa þjónustu er 39.578
kr. í Vestmannaeyjum en
lægst 25.760 kr. á Sel-
tjarnarnesi og er munurinn
13.818 kr. eða tæp 54%. Í
Skagafirði er gjaldið kr. 36.215
samkvæmt gjaldskrá fyrir
leikskóla Skagafjarðar frá 1.
janúar 2017.
Hjá flestum sveitarfélögum
er níundi tíminn með hærra
tímagjald en hinir átta. Hæsta
gjaldið fyrir 9. tímann er greitt
í Kópavogi 13.698 kr., Reykja-
vík 11.750 kr. og Vestmanna-
eyjum 10.130 kr. Lægsta
gjaldið er hjá Sveitarfélaginu
Skagafirði 2.977 kr. og á
Ísafirði 3.039 kr. Akureyri er
eina sveitarfélagið í saman-
burðinum sem býður ekki
upp á vistun í níu klukku-
stundir.
Skólamatur og gæsla
ódýrust í Skagafirði
Þá gerði verðlagseftirlit ASÍ
samanburð á kostnaði for-
eldra við hádegisverð og
síðdegisvistun grunnskóla-
barna meðal stærstu sveitar-
félaga landsins. Skólamatur og
gæsla er 51% dýrari í Garðabæ
en í Skagafirði þar sem gjaldið
reyndist lægst. Gjald fyrir
hádegisverð, þriggja tíma
síðdegisvistun og hressingu
fyrir barn í neðri bekkjum
grunnskólans er hæst í
Garðabæ kr. 36.484 á mánuði
en lægst í Sveitarfélaginu
Skagafirði kr. 24.234. Heildar-
kostnaður foreldra vegna
þessarar þjónustu hefur
hækkað í öllum 15 sveitar-
félögunum sem til skoðunar
eru undanfarið ár. Sjá nánar á
heimasíðu ASÍ. /PF
Leikskólinn Ársalir á Sauðárkróki. MYND:PF
Hrímnir
KS deildin - liðskynning
Fyrsta liðið sem kynnt er til
leiks í KS-Deildinni 2017 eru
sigurvegarar síðustu tveggja
ára, lið Hrímnis. Liðstjóri er
sem fyrr Þórarinn Eymundsson.
Þórarinn hefur staðið sig
frábærlega í deildinni og hefur
hann til að mynda unnið
einstaklingskeppnina þrisvar
sinnum.
Ný inn í þetta lið kemur
Jóhanna Margrét Snorradóttir
en hún hefur ekki keppt í
deildinni áður. Þrátt fyrir
ungan aldur á Jóhanna flottan
keppnisferil að baki og kemur
hún til með að styrkja
Hrímnisliðið.
Eftir árshlé í deildinni
kemur Hörður Óli Sæmundar-
son aftur inn liðið en heyrst
hefur að hann sé mjög vel
hestaður þetta árið.
Helga Una Björnsdóttir og
Líney María Hjálmarsdóttir
halda sínum sætum í liðinu en
þeirra gengi hefur verið gott í
deildinni. /PF
Eins og sjá má eru þarna á ferðinni úrvalsknapar sem munu gera allt sem í
þeirra valdi stendur til að vinna liðakeppnina þriðja árið í röð. MYND:KS DEILDIN.
Nýr námsvísir
Farskóli Norðurlands vestra
Út er kominn námsvísir Farskól-
ans fyrir vorönn 2017. Að vanda
er mikið úrval námskeiða í
námsvísinum, af ýmsum toga.
Að sögn Halldórs Gunnlaugs-
sonar verkefnastjóra hjá Farskól-
anum hefur verið mikið um að
vera það sem af er þessu ári.
Fiskvinnslufólk hefur til að
mynda nýtt tímann til að sækja
námskeið á meðan verkfall sjó-
manna stendur yfir og fjöldi
námskeiða er í gangi. Námsvísirinn
ætti að berast í öll hús á Norðurlandi
vestra í vikunni en hann er þegar
kominn á vefinn. /KSE
4 06/2017